Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 14
2021 ALÞINGISKOSNINGAR14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 „Hér fyrir vestan vil ég búa. Stjórnmálamenn þurfa þó að bæta úr ýmsu,“ segir Ástrún Sigríðardóttir, leikskólaliði á Ísafirði. „Vegakerfið þarf að bæta og símasamband í Djúp- inu. Þar hafa orðið slys og slæmt er að vita að fjarskiptin séu í ólagi. Sjúkrahús og heilsugæslu þarf að styrkja með fleiri sérfræðingum. Tryggja verður að úti á landi sé sambæri- legur aðgangur að opinberri þjónustu og fyrir sunnan.“ Fleiri sérfræðinga og síma í Djúpið „Ríkið þarf að skapa sveitarfélögum skilyrði til að geta áfram veitt íbúum grunnþjónustu sem nútíminn krefst,“ seg- ir Sveinn Ragnarsson, bóndi og verktaki á Svarfshól í Reyk- hólasveit. „Skólar, verslun og vegir; þetta þarf allt að vera til staðar og virka. Já, ég get sætt mig við sömu flokka í ríkis- stjórn; að minnsta kosti sé ég ekki annan betri kost í augsýn en að þeir verði áfram við völd.“ Grunnþjónustan þarf að virka „Góðar samgöngur, heilbrigðisþjónusta og atvinnumál eru ofarlega á baugi í þessu kjördæmi. Einnig landbúnaðarmál,“ segir Hrefna Jóhannesdóttir á Silfrastöðum í Skagafirði og oddviti Akrahrepps. „Umhverfismálin koma sterk inn. Nytja- skógrækt skilar bændum afurðum og tekjum áratugum fyrr en vænst var. Stjórnmálamenn ættu því að gefa skógar- búskap meiri gaum þegar horft er á stóru myndina.“ Umhverfismál og nytjaskógrækt „Efla þarf gjaldeyrissköpun svo halda megi velferðarkerfinu uppi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. „Bygging vetnisverksmiðju á Grundartanga, sem er í deiglunni, væri frábært fyrir umhverfismál og Akranes- svæðið. Alls 90 milljarða króna fjárfesting og 270 ný störf myndu skapast. Alltaf er mikilvægt að vel takist til við að stjórna landinu, slíkt er mikilvægt og óháð flokkslínum.“ Gjaldeyrissköpun og velferðarmál Hvað brennur á íbúum? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á kjörskrá í Norðvesturkjördæmi í þingkosningunum 25. september eru 21.548 manns eða 8,46% þeirra lands- manna sem hafa kosningarétt. Hið víðfeðma Norðvesturkjördæmi er því sem næst fjórðungur af Íslandi. Þarna eru grunnatvinnuvegir í að- alhlutverki; sjávarútvegur, landbún- aður og stóriðja. Fiskeldi og ferða- þjónusta eru greinar sem komið hafa sterkar inn á síðustu árum. Hags- munir og skilyrði atvinnurekstrar eru alltaf ofarlega í pólitískri umræðu úti á landi, þótt líka sé sagt að í dreifbýli snúist pólitíkin öðru fremur um veg- ina. Víst er líka að mörg stórverkefni í samgöngumálum bíða úrlausnar í NV-kjördæmi. Þar má nefna upp- byggingu vega um Skógarströnd við innanverðan Breiðafjörð og á Vatns- nesi. Einnig að grafa þurfi jarðgöng um Mikladal, Hálfdán og Súðavíkur- hlíð fyrir vestan. Sömuleiðis þurfi betri vegi í sveitum, þaðan sem marg- ir sækja vinnu eða skóla í þéttbýli. „Í samtölum við frambjóðendur höfum við lagt áherslu á samgöngu- mál og minnt á að hve hátt hlutfall malarvega er hér,“ segir Unnur Val- borg Hilmarsdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á Norð- urlandi vestra. „Atvinnumálin eru ofarlega á lista og eins raforkan. Ekki hefur enn verið gengið frá öllu því sem gera átti eftir óveðrið á aðventu 2019 til að tryggja öryggi fólks í lang- varandi rafmagnsleysi.“ Vilja góð búsetuskilyrði „Samgöngur, heilbrigðisþjónusta og góð skilyrði fyrir atvinnulífið; kosningamálin eru svipuð hvar sem borið er niður í kjördæminu,“ segir Páll Snævar Brynjarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. „Aðstæður eru um margt svipaðar til dæmis í Borgar- firði og Norðurlandi vestra. Sjávar- útvegsmálin koma svo alltaf sterk inn, til dæmis á Snæfellsnesi og Vest- fjörðum. Í stóru myndinni er þetta annars þannig að fólk vill góð búsetu- skilyrði í sinni heimabyggð og er áfram um úrbætur. Slík mál yfir- gnæfa annað úti á landi svo umræða um til dæmis mannréttindi, stöðu minnihlutahópa og slíkt verður aldrei mjög áberandi.“ Þingmenn Norðvesturkjördæmis eru og verða átta; þar af einn í upp- bót. Þá ber líka að hafa í huga að vægi atkvæða er hvergi meira á landinu. Í kosningum til Alþingis árið 2017 voru 2.690 atkvæði á bak við hvert þing- sæti í NV en 5.350 í Suðvestur- kjördæmi. Styrkleikamunurinn er svipaður enn. Sé litið á skipan framboðslista nú sést að fólk í „öruggum sætum“ er margt af Akranessvæðinu eða úr Skagafirði. Færri eru af Vestfjörðum þaðan sem margir helstu málafylgju- menn íslenskra stjórnmála fyrr á tíð komu. Spurt um sameiningu Jafnhliða því sem íbúar í Húna- vatnshreppi á Norðurlandi vestra kjósa til Alþingis fer þar fram könnun um viðhorf til sameiningar sveitar- félagsins við Blönduósbæ. Meirihluti var fyrir því í kosningum sl. vor, þótt tillagan sem kosið var um þá væri felld en hún miðaði að sameiningu allra sveitarfélaganna í Austur- Húnavatnssýslu, sem í dag eru fjög- ur. Úrslit kosninga í okt. 2017 Þingmenn og fylgi nú skv. könnunum MMR 3.177 atkv. 18,4% 2 þingm. B – Framsókn 20,1% 2 þingm. 423 atkv. 2,5% C – Viðreisn 4,4% 4.233 atkv. 24,5% 2 þingm. D – Sjálfstæðisflokkur 27,1% 3 þingm. 911 atkv. 5,3% F – Flokkur fólksins 3,9% J – Sósíalistaflokkur 7,1% 2.456 atkv. 14,2% 2 þingm. M – Miðflokkur 5,4% 1 þingm. 1.169 atkv. 6,8% P – Píratar 4,6% 1.681 atkv. 9,7% 1 þingm. S – Samfylking 12,2% 1 þingm. 3.177 atkv. 18,4% 1 þingm. V – Vinstri græn 11,6% 1 þingm. Sveitarfélag Fjöldi á kjörskrá Akrahreppur 151 Akranes 5.355 Árneshreppur 40 Blönduós 622 Bolungarvík 597 Borgarbyggð 2.566 Dalabyggð 483 Eyja- og Miklaholtshr. 73 Grundarfjarðarbær 536 Sveitarfélag Fjöldi á kjörskrá Helgafellssveit 54 Húnavatnshreppur 302 Húnaþing vestra 858 Hvalfjarðarsveit 499 Ísafjarðarbær 2.557 Kaldrananeshreppur 88 Reykhólahreppur 171 Skagabyggð 67 Skorradalshreppur 53 Sveitarfélag Fjöldi á kjörskrá Snæfellsbær 1.042 Strandabyggð 331 Stykkishólmur 786 Súðavíkurhreppur 133 Sveitarf. Skagafjörður 2.985 Sveitarf. Skagaströnd 351 Tálknafjarðarhreppur 169 Vesturbyggð 679 Samtals 21.548 Norðvesturkjördæmi Íbúafjöldi: 31.218 Fjöldi á kjörskrá: 21.548 sem er fjölgun um 32 frá kosningunum í október 2017 Fjöldi þingsæta: 8 (þar af eitt jöfnunarþingsæti) Fjöldi sveitarfélaga: 26 Kjörsókn í október 2017: 83,1% Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Stefán Vagn Stefánsson Haraldur Benediktsson Teitur Björn Einarsson Þórdís K.R. Gylfadóttir Bergþór Ólason Valgarður L. Magnússon Bjarni Jónsson B B D D D M S V Patreksfjörður Ísafjörður Sauðárkrókur Skagaströnd Blönduós Hvammstangi Hólmavík BúðardalurStykkishólmur Ólafsvík Grundarfjörður Borgarnes Akranes Bolungarvík Talning atkvæða verður í Borgarnesi Vægi atkvæðanna er hvergi meira Átta á þing úr Norðvestur- kjördæmi. Kjósendur vilja vegi og þjónustu. Akranes sterkt. Umræða um atvinnumál áberandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mannnlíf Leikskólabörn á gangi á Skagabraut á Akranesi, sem er fjölmenn- asta byggðarlagið í Norðvesturkjördæmi. Fagurblátt Akrafjall í bakgrunni. Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.