Morgunblaðið - 11.09.2021, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Lundinn er nú að mestu farinn frá
Vestmannaeyjum til vetrarstöðva
sinna á úthafinu. Sigurgeir Jón-
asson, ljósmyndari og fugla-
áhugamaður, hefur farið í úteyjar
Vestmannaeyja í minnst 75 ár.
Hann fór fyrst með föður sínum,
Jónasi Sigurðssyni í Skuld, þegar
hann var 5-7 ára og hefur farið flest
sumur síðan þá.
Sigurgeir er Álseyingur og
skrapp í Álsey í sumar og háfaði
nokkra lunda í soðið þegar veiði
var leyfð. „Maður er ekki búinn að
gleyma bragðinu,“ sagði Sigurgeir.
Hann var ánægður með betra
ástand lundans nú en undanfarin
ár. Hér birtast nokkrar lundamynd-
ir úr viðamiklu ljósmyndasafni Sig-
urgeirs, sjá sigurgeir.is.
Lundapysjutímanum er að mestu
lokið. Á vefnum lundi.is var búið að
skrá 4.567 pysjur í gær. Meðal-
þyngdin var 317 grömm. Margrét
Lilja Magnúsdóttir, líffræðingur og
einn umsjónarmanna Pysjueftirlits-
ins, sagði að pysjur sem var bjargað
í bænum hefðu líklega verið tals-
vert mikið fleiri.
„Í fyrra var eitthvað um að fólk
skráði pysjurnar hjá sér á blað og
færði svo inn á vefsíðuna í lokin.
Við biðjum fólk um að klára skrán-
inguna,“ sagði Margrét. Hún sagði
líka eitthvað um að fólk sleppti því
að skrá pysjur sem það finnur.
„Pysjurnar komu snemma nú og
áður en skólarnir byrjuðu. Helgina
sem mest var af pysjum, í kringum
12.-15. ágúst, komu mjög margir of-
an af landi í pysjubjörgun. Ég veit
ekki hvort allir vissu af skráning-
unni. Það gætu því fleiri pysjur
hafa farið framhjá kerfinu nú en
venjulega,“ sagði Margrét.
Lundapysjurnar voru óvenju vel
haldnar þetta árið. „Ég hélt fyrst
að vigtunin væri ekki rétt, en það
gátu ekki allar vigtir í bænum verið
vitlausar,“ sagði Margrét. „Þetta er
orðið eins og í gamla daga, bæði
pysjutíminn og stærðin á pysjunum.
Eins var fjöldi lunda í brekkunum
eins og maður man.“ gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Álsey Þétt lundabyggð er í Álsey sem er þriðja stærsta útey Vestmannaeyja. Þar var mikið veitt af lunda á árum áður. Þá
voru geldfuglarnir veiddir en sílisfuglar, sem áttu pysju í holu, voru ekki háfaðir. Hér er horft úr Álsey yfir í Hellisey.
Kolapiltur Svo eru kallaðir þeir lundar sem eru dökkir í vöng-
um líkt og pysjurnar. Þeir eru enn í vetrarbúningi yfir sumarið.
Lundaprins Mörg litaafbrigði af lunda eru þekkt og hefur hvert
sitt heiti. Lesa má um litaafbrigðin á vefnum lundi.is.
Gott lundasumar er að baki
- Lundastofninn í Vestmannaeyjum rétti úr kútnum í sum-
ar - Lundapysjurnar voru vel gerðar eins og í gamla daga
Lending Það er oft þétt setinn bekkurinn í lundabyggðunum og því þarf að
vanda sig vel þegar lent er við bjargbrúnina. Hvert lundapar á sína holu.
Æti Lundarnir þurftu ekki að sækja langt eftir æti handa pysjunum í sumar
og komu með fulla gogga af pattaralegum sílum. Pysjurnar fengu því nóg.
WWW.S IGN . I S
Fornubúðum 12 · Hafnar f i rð i · s ign@s ign . i s · S : 555 0800
G
U
L
L
O
G
D
E
M
A
N
TA
R