Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 VIÐTAL Atli Vigfússon Laxamýri „Ég vil gefa eitthvað af mér og gera það sem kemur öðru fólki til góða. Það skiptir máli að nýta hlutina og mér finnst svo gaman þegar eitthvað notað fer á góðan stað og fær nýtt hlutverk.“ Þetta segir Helga Guðrún Helga- dóttir, sauðfjárbóndi í Skarðaborg í Reykjahverfi, en þetta er þriðja sum- arið sem hún er með nytjamarkað heima hjá sér með hjálp systur sinn- ar, Kristínar Helgadóttur, kennara á Húsavík. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt í sumar að sögn Helgu en veðrið hefur verið frábært og það hefur verið hægt að hafa söluvarn- inginn úti, sitja við borð í sólskininu og njóta veitinga á nytjamarkaðnum. „Þetta byrjaði allt með því að ég þurfti að ganga frá þremur búslóð- um, þ.e. dánarbúum o.fl. og vildi finna leið til þess að hlutirnir gengju í endurnýjun lífdaga og því kom þessi hugmynd fram um að selja hér í fjár- húsunum það sem væri nýtilegt. Það var raunar eina plássið sem ég hafði,“ segir Helga. Þetta var líka leið fyrir þær systur til þess að vera meira saman og gera eitthvað nyt- samlegt. Sælla er að gefa en þiggja Strax voru þær sammála um að allir peningar sem kæmu inn færu til góðgerðarmála. Fyrsta sumarið styrktu þær systur Styrktarsjóð sjúkrahússins á Húsavík með 600 þúsund króna peningagjöf. Í fyrra gáfu þær 900 þúsund til Hvamms, dvalarheimilis aldraðra. Í sumar hafa þær safnað fyrir Krabbameinsfélag Þingeyinga og nú er komin inn 1.5 milljón króna sem þær systur ætla að færa félaginu. Öll vinna þeirra við nytjamarkaðinn er þeirra framlag til þess málefnis sem unnið er að hverju sinni. T.d. hefur Helga bakað mikið af brauði, bæði til þess að selja og bjóða viðskiptavin- um upp á þegar þeir koma til þess að líta á varninginn. Mikið hveiti, mörg egg o.fl. hafa farið í baksturinn en Helga segist vilja bjóða fólki upp á eitthvað þegar það kemur enda er það gamall sveitasiður að bjóða kaffi og með því. Þá fá allir krakkar eitt- hvert góðgæti og Helga orðar það svo að sælla sé að gefa en þiggja. Fjárhúsin fengu nýtt hlutverk Til þess að gera fjárhúsin vistlegri var breiddur dúkur á veggi og yfir garðana og er hlutunum komið hag- anlega fyrir. Það er gott skjól sunnan við fjárhúsin og þegar sólin skín er söluvarningurinn borinn út og þá verður þetta að hluta til útimark- aður. Helga segir að það sé mikið verk að bera allt út og raða upp áður en fólkið kemur og svo þarf líka að bera allt inn á kvöldin þegar allir eru farn- ir. Þarna er úr mörgu að velja og má þar nefna barnadót, bækur, fatnað, hljómdiska, búsáhöld í stórum stíl, myndir, jólaskraut o.m.m.fl. Í sumar hefur verið opið tuttugu daga og hafa mjög margir lagt leið sína í Skarða- borg enda hefur framtakinu verið mjög vel tekið. Margir vilja gefa Þær systur eru sammála um að það sé ótrúlegt hve margir hafi viljað leggja þessu lið og fólk hafi verið mjög fúst til þess að gefa á mark- aðinn. Sumir hafi komið með mjög mikið af ýmsum varningi og stundum svo mikið að það hafi verið töluverð vinna að taka við því og flokka það. Þannig stækkaði nytjamarkaðurinn sem var ekki svo stór í upphafi. Fólk sýndi að það hafði áhuga á því að ein- hver gæti notað það sem það var sjálft búið að leggja frá sér. Það er hins vegar töluvert mál þegar á að fara að ganga frá svona markaði í lok sumars því þá þarf marga kassa en öllu þarf að koma í geymslu. Fjár- húsin gegna öðru hlutverki yfir vet- urinn, kindurnar þurfa pláss og því þarf að tæma aðstöðuna. Þær systur hafa geymt töluvert af dóti í aðgerðarskúr föður þeirra á Húsavík þar sem er að finna geymsluloft og sumt fer í sölu annars staðar, m.a. hjá Rauða krossinum. Með sól í hjarta Nú er sumarið á enda og þær Helga og Kristín eru himinsælar með afraksturinn. Það hefur verið gefandi og skemmtilegt að hitta allt það fólk sem hefur litið við og margir eru þeir sem hafa fundið eitthvað nytsamlegt. Þá eru þær mjög þakk- látar öllum þeim sem hafa gefið muni á markaðinn og eins þeim sem hafa styrkt þessa fjáröflun með mynd- arlegum hætti. Og auðvitað er það með sól í hjarta sem þær systur færa Krabbameins- félagi Þingeyinga vegalega pen- ingagjöf, þ.e. 1,5 milljónir króna, og á sama tíma hefur nytjamarkaðurinn í fjárhúsunum í Skarðaborg sannað gildi sitt. Nytjamarkaður í fjárhúsunum - Markaður starfræktur þriðja sumarið í röð á bænum Skarðaborg í Reykjahverfi - Sauðfjárbónd- inn hefur fengið góða aðstoð frá systur sinni - Allur afrakstur hefur runnið til góðgerðarmála Morgunblaðið/Atli Vigfússon Systur Kristín og Helga Guðrún Helgadætur hafa staðið fyrir nytjamarkaðnum í Reykjahverfi í sumar. Nytjamarkaður Það kennir ýmissa grasa í fjárhúsinu, bækur og fleira. Nemendur úr Kársnesskóla og leik- skólabörn komu saman í hádeginu í gær ásamt bæjarstjóra, bæjarstjórn Kópavogs og fulltrúum Kársnes- skóla í tilefni þess að framkvæmdir eru hafnar við nýjan Kársnesskóla við Skólagerði. Í tilefni dagsins færðu fulltrúar barna í 1. bekk og fulltrúar leik- skólabarna bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni, myndir af draumaskólanum sínum. Þá tók kór Kársnesskóla lagið ásamt leikskóla- börnum og börnum úr 1. bekk. Nýr skóli við Skólagerði mun hýsa leikskóla og nemendur í 1. til 4. bekk Kársnesskóla. Stefnt er að því að skólinn verði tekinn í notkun árið 2023. Kársnesskóli var rýmdur vorið 2017 vegna raka- og myglu- skemmda og var afráðið að rífa húsnæði skólans og byggja nýtt. Skipaður var stýrihópur sem m.a. vann þarfagreiningu fyrir nýtt skólahúsnæði. Niðurstaðan var að byggja hús úr timbri. Verður það fyrsta skólahúsnæði landsins sem verður Svansvottað. Mannvit sá um hönnun í samstarfi við Batteríið. Fögnuðu byggingu nýs Kársnesskóla Kópavogur Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og skólastjórar tóku við hug- myndum nemenda í gær um draumaskóla þeirra á Kársnesinu. Opið streymi Sérstakir formannaþættir í aðdraganda kosninga eru farnir af stað og 13. september situr Gunnar Smári Egilsson formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, fyrir svörum Leiftrandi umræða sem þú skalt ekki láta fram hjá þér fara mbl.is/dagmal 13. sept.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.