Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 21
setningin með óhefðbundnu sniði þetta haustið, þar sem nemendum var boðið að koma í skólann í sínum bæjarkjarna og hitta umsjón- arkennara sinn í nemendaviðtali. Í skólanum þennan veturinn eru 209 nemendur, sem skiptast þannig að 109 eru í húsnæðinu við Norðurgötu á Siglufirði, þ.e. í 1.-5. bekk, og 101 í húsnæðinu við Tjarnarstíg í Ólafs- firði, í 6.-10. bekk. - - - Í Tónlistarskólanum á Trölla- skaga eru 226 nemendur. Eru þeir ýmist í einkatímum eða hóptímum, auk frístundar, og svo sér skólinn um alla tónmenntartíma í grunn- skólum í Dalvíkurbyggð og Fjalla- byggð. Sveitarfélögin tvö eru á pari hvað varðar fjölda nemenda í hvoru byggðarlagi fyrir sig, að sögn Magn- úsar G. Ólafssonar skólastjóra. Kennarar eru 15 talsins. Söngurinn er vinsælastur, síðan gítar, píanó, trommur, fiðla og svo eru önnur hljóðfæri með færri nemendur. - - - Í Menntaskólanum á Trölla- skaga, sem er til húsa í Ólafsfirði, eru 493 nemendur skráðir í nám. Þar af eru um 400 fjarnemar. Að venju eru nemendur víða að af land- inu og einnig nokkrir sem búa er- lendis (14). Að þessu sinni hefja 18 nemendur, sem útskrifuðust úr grunnskóla síðastliðið vor, nám. Einnig sækja 18 grunnskólanemar áfanga við skólann, flestir úr Fjalla- byggð. - - - Vinna við snjóflóðavarnir í Hafnarfjalli hefur verið í fullum gangi frá því í vor. Hefur þyrla kom- ið reglulega til þess að ferja búnað og byggingarefni upp í fjallið í þess- um 4. áfanga verkefnisins. Fyrstu framkvæmdir við snjóflóðavarnir í firðinum hófust árið 1998, þegar byggðir voru háir garðar syðst í bænum, sem leiða snjóflóð fram hjá byggðinni. Árið 2003 hófust fram- kvæmdir við þvergarða yfir allri byggðinni og 1. áfangi við uppsetn- ingu stoðvirkja. Framkvæmdir við 2. áfanga hófust vorið 2013 og lauk haustið 2015. Framkvæmdir við 3. áfanga hófust svo haustið 2015 og lauk árið 2018. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 Jón Arilíus segir að skráning slysa sé í góðu horfi hjá Sjúkra- tryggingum Íslands, lögreglu og Landhelgisgæslu. Flest málin koma einnig á borð sjóslysanefndar, sem skráir þau og fjallar sérstaklega um þau stærstu og þau sem draga má lærdóm af. Hann segir að nú sé nokkuð full- komin tölfræði fyrir hendi um slys og atvik á sjó, nokkuð sem ekki var til að dreifa fyrir 20 árum. Ekki sé lengur verið að elta hvert einasta at- vik, t.d. þegar bátar verða vélarvana án frekari erfiðleika eða eftirmála, en farið sé yfir öll atvik þannig að tölulegar upplýsingar eru nú fyrir hendi. Jón Arilíus hefur ekki áhyggjur af verkefnaskorti nú þegar hann lætur af störfum sem rann- sóknastjóri. Hann segir að fjöl- skyldan sé orðin nokkuð stór, þau eigi sumarbústað í Ölveri undir Hafnarfjalli og veiðiferðir og ýmislegt fleira muni eflaust fá aukinn tíma í framtíðinni. Svo er það kannski golfið. „Ég og konan mín, Sigrún Elín Svavarsdóttir, erum komin í Há- skólann, nánar tiltekið á nám- skeið hjá Endurmenntun Há- skóla Íslands, þar sem við lærum um frumatriði í golfi hjá Magnúsi Birgissyni á þriggja kvölda námskeiði. Það verður spennandi að sjá hvert það leið- ir okkur,“ segir Jón Arilíus Ing- ólfsson. Kynnast golfi í Háskólanum NÓG AF VERKEFNUM „Prestar eru uggandi yfir stöðu mála og þróun,“ segir sr. Ninna Sif Svav- arsdóttir, formaður Prestafélags Ís- lands. Ráðningarstopp gildir innan þjóðkirkjunnar að minnsta kosti fram í nóvember. Þetta er skv. sam- þykkt Kirkjuþings og er viðbragð við þröngri fjárhagsstöðu. Fyrir nokkrum misserum var gengið frá nýju samkomulagi þjóð- kirkjunnar og ríkisins. Þar var skerpt var á ýmsum málum svo sem að prestar væru ekki lengur emb- ættismenn heldur starfsmenn Bisk- upsstofu. Einnig að ríkið greiði laun presta, en þar er m.a. byggt á svo- nefndu kirkjujarðasamkomulagi. „Kirkjuþing taldi samninginn góð- an og að ekki yrði lengra komist. Nú kemur annað á daginn, samanber að ekki er ráðið í störf sem losna,“ segir Ninna Sif. Í því sambandi bendir hún á að starfi sóknarprests í Skálholti sé nú sinnt af héraðspresti á Suður- landi. Þá hafi presturinn á Skaga- strönd, eins og sagði frá í Morgun- blaðinu í gær, þjónustu á Blönduósi með höndum tímabundið. „Staðan hefur verið sú að laun 138 presta á landinu eru greidd af rík- inu,“ segir Ninna. „Við prestar er- um flest fylgjandi auknu sjálfstæði kirkjunnar, einn- ig fjárhagslegu. Viðbótarsam- komulagið var þó aldrei rætt þann- ig að með sam- þykkt þess myndu kjör presta rýrna eða þeim fækkað.“ Á vettvangi þjóðkirkjunnar hefur síðustu árin verið rekin sú stefna að sameina prestaköll; sem nú ná yfir víðfeðmari svæði en áður og er jafn- framt þjónað af nokkrum prestum. Reynsluna af þessu fyrirkomulagi segir Ninna Sif vera ágæta. Prestar séu yfirleitt ánægðir með samstarf í stærri einingum en ekki megi þó öllu fórna. Margir óttist að þar sem prestaköll hafi verið sameinuð, og fleiri prestar starfi saman, verði þeim svo fækkað í fyllingu tímans. Slíkt muni bitna bæði á sóknarbörn- um og þjónustu kirkjunnar sem prestar leggja sig eftir að veita, ekki síst þegar áföll dynja yfir. sbs@mbl.is Kirkjan sparar og uggur í prestum - Ráðningarstopp - Efasemdir um samning við ríki - Þjónustan gæti skerst Ninna Sif Svavarsdóttir Opið virka daga frá kl. 9 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14. Vefverslun okkar er opin allan sólarhringinn á sminor.is. Uppþvottavél SN 43EC16CS (svört) 13 manna. Sex kerfi og fjögur sérkerfi. Hljóð: 44 dB. Fullt verð: 149.900 kr. Tilboðsverð: Þvottavél WM 14SO8DN Tekur mest 8 kg og vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus mótor. i-Dos: Sjálfvirk skömmtun fyrir fljótandi þvottaefni. Fullt verð: 169.900 kr. Tilboðsverð: Tekur mest 8 Bakstursofn HB 478GCB0S (svart stál) Stórt ofnrými. Kjöthitamælir. Matreiðslutillögur. Brennslusjálfhreinsun. Fullt verð: 179.900 kr. Tilboðsverð: Kæli- og frystiskápar KG 33VVLEA (stál, kámfrítt) KG 33V6WEA (hvítur) Skúffa (hyperFresh) sem tryggir ferskleika grænmetis og ávaxta lengur. lowFrost-tækni. Hæð: 176 sm. Fullt verð: 119.900 kr. Tilboðsverð: Tilboð í september Rakatæki, Eva little Lítið, öflugt og stílhreint. Fullt verð: 21.900 kr. Tilboðsverð: Sandnes Gólflampi 19702-01 Fullt verð: 13.900 kr Tilboðsverð: 7. . Skoðaðu nýja tilboðsbæklinginn á síðunni okkar, sminor.is! Hjá okkur færðu þýsku gæðatækin frá Siemens,Bosch og Gaggenau.Stór og smá heimilistæki, ljós, pallahitarar, rakatæki og fleira í miklu úrvali. Margar vörur á sérstöku tilboðsverði sem gildir út september 2021 eða á meðan birgðir endast. Tilboð í s e p te m b e r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.