Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 24
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þess verður minnst í dag, að tuttugu
ár eru liðin frá hryðjuverkaárás-
unum á New York og Washington.
Árásirnar mörkuðu upphafið að
„stríðinu gegn hryðjuverkum“, sem
sett hefur mark sitt á flesta þætti al-
þjóðastjórnmála síðan þá. Þær
leiddu enn fremur til innrása í bæði
Afganistan og síðar Írak, sem kostað
hafa Bandaríkin mikið fé og
mannafla á undanförnum tuttugu
árum.
Morgunninn 11. september 2001
var heiðskír og fagur, en kl. 8.46 að
bandarískum austurstrandartíma
var kyrrðin rofin, þegar farþegaþota
American Airlines 11 flaug inn í
norðurturn World Trade Center,
eitt helsta kennileiti New York-
borgar. Flestir töldu að um skelfi-
legt slys hefði verið að ræða, en kl.
9:03 flaug þota United Airlines 175,
sem átti að vera á leiðinni frá Boston
til Los Angeles, á syðri turninn. Var
þá orðið ljóst að um einhverja mestu
hryðjuverkaárás sögunnar var að
ræða.
Rúmum hálftíma síðar, eða kl.
9.37, flaug önnur þota frá American
Airlines inn í vesturhlið Pentagon-
byggingarinnar, en þar er banda-
ríska varnarmálaráðuneytið til húsa.
Fjórða vélin, United 93, sem talið er
að hafi átt að fljúga á bandaríska
þinghúsið, brotlenti hins vegar við
Shanksville í Pennsylvaníu rétt um
tíuleytið, en farþegar í þeirri vél
höfðu frétt af hryðjuverkunum, og
vissu því hvaða örlög biðu þeirra, ef
þeir reyndu ekki að streitast á móti.
Gerðu þeir því atlögu að flugræn-
ingjunum, en allir fórust þegar vélin
brotlenti.
Um líkt leyti margfaldaðist hryll-
ingur árásarinnar þegar suðurturn-
inn í World Trade Center hrundi til
grunna, og um hálftíma síðar féll
norðurturninn einnig. Alls létust
2.977 manns í árásunum, þar af voru
2.753 sem fórust í New York þegar
turnarnir féllu.
Böndin berast að al-Qaeda
Mikið vatn er runnið til sjávar síð-
an þá. Búið er að reisa nýjan turn
þar sem tvíburaturnarnir stóðu áð-
ur, en hann er sjötta hæsta bygging í
heimi, 1.776 fet eða 541 metri á hæð.
Þar er einnig minnisvarði um árás-
irnar, og verður þar haldin minning-
arathöfn í dag, líkt og við Pentagon
og við akurinn í Shanksville, þar sem
fjórða vélin brotlenti.
Fljótlega eftir árásirnar varð ljóst
að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda
bæru ábyrgð á þeim, en þau höfðu
áður staðið að hryðjuverkum gegn
sendiráðum Bandaríkjanna í Keníu
og Tansaníu árið 1998 og mann-
skæðri árás á tundurspillinn USS
Cole árið 2000, en þar létust 17
bandarískir sjóliðar. Fáir höfðu þó
trú á því að samtökin gætu látið til
skarar skríða á meginlandi Banda-
ríkjanna.
Leitin að Osama bin Laden, stofn-
anda samtakanna, varð eitt af helstu
keppikeflum Bandaríkjanna eftir
hryðjuverkin, en hann var þá í Afg-
anistan undir verndarvæng talíbana,
sem höfðu engan áhuga á því að láta
hann af hendi. Bandaríkjamenn réð-
ust því inn í Afganistan hinn 7. októ-
ber 2001, og tókst þeim á tveimur
mánuðum að ýta talíbönum frá völd-
um í landinu. Það reyndist hins veg-
ar þrautin þyngri að hafa hendur í
hári bin Ladens, en hann var loks
felldur við Abottabad í Pakistan árið
2011, nærri tíu árum síðar.
Hryðjuverkaógn
enn fyrir hendi
Bandaríkjamenn hafa náð að
handsama eða drepa flesta þá, er
komu að skipulagningu hryðjuverk-
anna 2001, og al-Qaeda-samtökin
eru nú sögð skugginn af sjálfum sér
eftir að bin Laden var felldur.
Eftirmaður hans, Ayman al-
Zawahiri, er enn sagður í felum ein-
hvers staðar í Afganistan og Pak-
istan, en samtökin sjálf treysta mun
minna á miðstýringu en þau gerðu
meðan bin Laden var á lífi. Útibú frá
samtökunum er nú að finna víða í
Afríku og um Mið-Austurlönd, en
þau hafa að miklu leyti fallið í skugg-
ann af öðrum hryðjuverka-
samtökum, þá einkum Ríki íslams.
„Stríðið gegn hryðjuverkum“ hef-
ur því ekki náð að útrýma hættunni
sem stafar af al-Qaeda eða öðrum
slíkum samtökum. Það virðist þó al-
gengara nú en áður að „einfarar“
takist á hendur að fremja hryðju-
verk, en mun erfiðara er fyrir leyni-
þjónustur að stöðva slík áform í fæð-
ingu en þegar samtök skipuleggja
stærri ofbeldisverk.
Það segir sína sögu að Ken
McCallum, yfirmaður bresku innan-
ríkisleyniþjónustunnar MI5, varaði
við því í gær að stofnun sín hefði náð
að koma í veg fyrir sex áform um
hryðjuverk á síðustu 18 mánuðum,
þrátt fyrir að kórónuveirufarald-
urinn væri þá í algleymingi. Þá hefði
stofnunin náð að hrinda 31 áformi
um slík verk á síðustu fjórum árum.
Bretland er nú á þriðja hæsta við-
búnaðarstigi vegna hryðjuverka, en
McCallum sagði að því miður væri
raunin sú að ekki yrði alltaf hægt að
koma í veg fyrir að hryðjuverka-
menn næðu fram markmiðum sín-
um.
Sigur talíbana auki líkurnar
Um þrjár vikur eru nú liðnar frá
því að talíbanar hófu leiftursókn í
Afganistan, sem endaði með því að
þeir náðu nær öllu landinu á sitt
vald skömmu áður en Bandaríkja-
her yfirgaf það endanlega. Lauk
þar með lengstu stríðsátökum í
sögu Bandaríkjanna, en brottförin
frá Afganistan hefur af flestum
verið túlkuð sem ósigur þeirra.
McCallum varaði enda við því í
gær, að líklegt væri að atburðir síð-
ustu vikna í Afganistan myndu
blása íslömskum öfgamönnum móð
í brjóst, og að bresku leyniþjónust-
urnar myndu því gera ráð fyrir að
„meiri áhætta“ gæti verið fyrir
hendi vegna þessa.
Talíbanar hafa heitið því, að þeir
muni ekki leyfa erlendum hryðju-
verkahópum að nýta afganska
grund til þess að skipuleggja árásir
sínar. Óvíst er þó hversu mikinn
trúnað er hægt að leggja á orð
þeirra. Talsmenn talíbana hafa
einnig heitið mildari stjórnar-
háttum en þegar þeir réðu Afgan-
istan með harðri hendi á árunum
1996-2001, en í vikunni hafa borist
fregnir af því að vígamenn á vegum
þeirra væru að berja niður mót-
mæli gegn sér með ofbeldi.
Þá hafa þeir útnefnt Sirajuddin
Haqqani sem innanríkisráðherra,
en hann leiðir vígahóp sem kennd-
ur er við hann og er sagður hafa
sterk tengsl við al-Qaeda-
samtökin. Hafa sérfræðingar í
hryðjuverkum því áhyggjur af því
að talíbanar muni ekki beita sér af
miklum þunga gegn slíkri starf-
semi í Afganistan.
AFP
Ógn í aðsigi Hér sést þegar vél United Airlines nálgast syðri turninn, skömmu áður en ljóst var að um hryðjuverk væri að ræða. Tuttugu ár eru liðin í dag frá árásunum 11. september 2001.
Vendipunktur í veraldarsögunni
- Tuttugu ár liðin frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 á New York og Washington
- 2.977 manns féllu í árásunum - Hryðjuverkaógn enn fyrir hendi - Er hægt að treysta talíbönum?
AFP
Stríðið gegn hryðjuverkum Bandarískur landgönguliði heldur hér á afg-
önsku barni skömmu fyrir brottför Bandaríkjahers frá Afganistan.
24 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021