Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þeir, sem
komnir
voru til vits
og ára, munu lík-
lega aldrei gleyma
þeim stað og þeirri
stund, þegar þeir
fréttu að búið væri að fljúga
farþegaþotum á tvíbura-
turnana í New York og Penta-
gon-bygginguna í Wash-
ington. Þegar turnarnir féllu
var þegar orðið ljóst að sú
heimsmynd um endanlegan
sigur hins lýðræðislega skipu-
lags, sem haldið hafði verið á
loft á árunum eftir lok kalda
stríðsins, var hrunin með
þeim.
En hvað hefur áunnist á
þeim tuttugu árum, sem liðin
eru frá þessum hörmungar-
degi? Eftir hina sneypulegu
brottför Bandaríkjahers frá
Afganistan virðist sem það sé
næsta lítið. Talíbanar, sem
veittu alþjóðlegum hryðju-
verkasamtökum skjól á afg-
anskri grund, kúguðu lands-
menn og þá einkum konur og
eyðilögðu ómetanleg menning-
arverðmæti, sitja nú aftur við
völd í Kabúl. Fátt bendir til
þess að þeir hafi í hyggju að
breyta um kúrs frá fyrri valda-
tíð sinni. Í nýskipaðri ríkis-
stjórn þeirra er jafnvel að
finna innanríkisráðherra sem
eftirlýstur er af alríkislögregl-
unni í Bandaríkjunum, FBI,
nokkra ráðherra sem eru al-
ræmdir fyrir árásir á banda-
ríska hermenn og forsætis-
ráðherra sem er á svörtum
lista Sameinuðu þjóðanna.
Það er napurleg tilhugsun,
að eftir tveggja áratuga átök,
þar sem ómældum fjármunum
og fjölda mannslífa var fórnað
til að reyna að færa Afganist-
an á braut lýðræðisins, hafi
þeim lokið með þeim hætti
sem raun bar vitni. Arfleifð 11.
september 2001 verður þannig
biturri en ella.
Fljótlega eftir að „stríðið
gegn hryðjuverkum“ hófst var
bent á, að það gæti orðið tor-
sótt að vinna það stríð, án þess
að gengið yrði ansi nærri þeim
mannréttindum sem vestræn
ríki hafa haldið í heiðri. Eftir-
lit á flugvöllum jókst til mikilla
muna, líkt og gera mátti ráð
fyrir, en með hinni miklu
framþróun sem sést hefur í
samskiptatækni hefur eðli
hryðjuverka, sem og eðli
þeirra eftirlitsstofnana sem
koma eiga í veg fyrir þau,
gjörbreyst.
Herferð Bandaríkjanna
gegn hryðjuverkum hefur þó
ekki verið án alls árangurs. Al-
Qaeda-samtökin sem stóðu að
baki þeim eru ennþá ógn, en
varla í líkingu við
það sem var.
Osama bin-Laden,
höfuðpaur þeirra,
er fallinn. Og enn
sem komið er hef-
ur þeim ekki tekist
að fremja annað hryðjuverk
með álíka mannfalli á Vestur-
löndum, þó að Lundúnir,
Madríd, Brussel, Parísarborg
og fleiri hafi allar þurft að þola
mannskæðar árásir öfgafullra
íslamista með tilheyrandi
skelfingu.
En á sama tíma og ólíklegra
er, að hryðjuverkahópur nái
að fremja annað tröllvaxið
voðaverk í líkingu við hryðju-
verkin 11. september, er hætt-
an á hryðjuverkum enn mikil.
Líklega verða alltaf til öfga-
menn úr ýmsum áttum, sem
eru á alvarlegum villigötum og
telja ofbeldi gegn saklausum
borgurum einu lausnina til að
berjast fyrir dapurlegum lífs-
viðhorfum sínum. Og alltaf má
því eiga von á að einhverjir
„einmenningar“, sem sæki
innblástur sinn til slíkra öfga-
hópa, ákveði að grípa til ódæð-
isverka nær fyrirvaralaust,
líkt og sást á Nýja-Sjálandi í
síðustu viku.
Á sama tíma hafa vestrænar
leyniþjónustur og öryggis-
stofnanir fengið umfangsmikil
tæki í hendurnar til þess að
fylgjast með þeim, sem ógn er
talin stafa af. Og samstarf
þeirra og bandamanna víða um
heim hefur batnað mikið á síð-
ustu tveimur áratugum, eins
og Condoleezza Rice, örygg-
isráðgjafi Bush yngri Banda-
ríkjaforseta og síðar utan-
ríkisráðherra, fjallaði um í
grein í The Wall Street Journ-
al í fyrradag. En um leið og
viðurkennd er nauðsyn þess að
hafa góðar gætur á þeim, sem
vilja fremja hryðjuverk, er
einnig ljóst að þau miklu tæki-
færi til eftirlits, sem tækni-
byltingar síðustu ára hafa fært
stofnunum ríkisins, eru vand-
meðfarin. Öryggi lýðræðis-
ríkjanna verður að verja en
það má ekki gleyma því að til-
gangurinn er ekki síst að verja
frelsi íbúanna.
Hryðjuverkin 11. september
2001 voru ekki aðeins árás á
Bandaríkin heldur um leið
árás á hið lýðræðislega skipu-
lag í heiminum og atlaga að
þeirri hugmynd að opin þjóð-
félög frjálsra einstaklinga
gætu þrifist. Þess vegna þarf,
um leið og öryggið er varið og
barist gegn hryðjuverkaógn-
inni hvar sem hana er að finna,
að gæta þess að leit okkar eftir
öryggi breytist ekki í and-
hverfu sína.
Tuttugu ár eru liðin
frá hryðjuverkunum
í New York og
Washington}
Dagur sem aldrei
má gleymast
S
tjórnmálaflokkarnir keppast nú við
að kynna hugmyndir sínar um fram-
tíðina. Sumir vilja gera allt fyrir alla,
sem er vel meint en óraunhæft til
lengri tíma. Umsvif og útgjöld rík-
isins hafa aukist mjög vegna tímabundinna að-
stæðna, en slíkt útstreymi úr ríkissjóði má ekki
verða varanlegt enda ósjálfbært. Mikilvægasta
verkefni stjórnvalda á næsta kjörtímabili er að
finna jafnvægið milli opinbera geirans og al-
menna markaðarins – tryggja stöðugt efnahags-
ástand og búa svo um hnútana, að fyrirtæki af
öllum stærðum og gerðum geti blómstrað. Að-
eins þannig getum við fjármagnað lífsgæði okk-
ar, bæði til einka- og samneyslu.
Framsóknarflokkurinn gengur með skýra
sýn til móts við nýtt kjörtímabil. Við viljum
kraftmikið atvinnulíf, sem fjármagnar góða
opinbera þjónustu. Við viljum nota tekjur ríkissjóðs til að
fjárfesta í fólki og halda áfram að laga kerfi hins opinbera
að þörfum fólksins í landinu. Við erum trúverðugur kostur
þegar kemur að því, eins og kerfisbreytingar síðustu ára
eru til marks um. Við höfum leitt mikil umbótamál, með
grundvallarbreytingum á kerfum sem voru ryðguð föst.
Nýtt lána- og styrkjakerfi námsmanna er gott dæmi um
það, bylting í málefnum barna, nýjungar í húsnæðismálum,
Loftbrúin og stórsókn í samgöngum um allt land. Samhliða
hefur fyrirtækjarekstur almennt gengið vel, með þeirri
augljósu undantekningu sem viðburða- og ferðaþjónustu-
fyrirtækin eru.
Það er brýnt að þau fái nú tækifæri til að blómstra, líkt
og önnur fyrirtæki, því öflugt atvinnulíf er forsenda stöð-
ugleika í efnahagslífinu. Sérstaklega þarf að huga að litlum
og meðalstórum fyrirtækjum, nýsköpun og
fyrirtækjum í skapandi greinum. Nær ótak-
mörkuð tækifæri eru í hugverkaiðnaði, svo sem
líftækni, lyfjaframleiðslu og tengdum greinum,
og þá sprota viljum við vökva. Við viljum efla
kvikmyndagerð, sem skapar milljarða í gjald-
eyristekjur, og auka útflutning á ráðgjöf, hug-
viti og þekkingu.
Ekkert af ofangreindu gerist í tómarúmi,
heldur einungis með framsóknarlegri samvinnu
og seiglu. Dugnaði og framtakssemi ein-
staklinga og fyrirtækja. Kerfi og stofnanir rík-
isins þurfa líka að taka þátt, hugsa í lausnum og
hvetja til framfara. Skattkerfið gegnir þar lykil-
hlutverki, enda mikilvægt jöfnunartæki sem
hefur þó frekar sýnt sveigjanleika gagnvart
fólki en fyrirtækjum.
Framsóknarflokkurinn er málsvari lítilla og
meðalstórra fyrirtækja og vill taka upp þrepaskipt trygg-
ingagjald. Lækka tryggingagjald á lítil og meðalstór fyrir-
tæki og taka samhliða upp þrepaskiptan tekjuskatt, þar
sem ofurhagnaður er skattlagður meira en hóflegur. Þann-
ig dregur skattlagning ekki úr getu ríkissjóðs til að standa
undir öflugu velferðar-, mennta- og heilbrigðiskerfi, heldur
dreifist hún með öðrum hætti en áður.
Framsóknarflokkurinn leggur ekki til töfralausnir, held-
ur finnur praktískar lausnir á flóknum verkefnum. Við er-
um reiðubúin til samstarfs við þá sem hugsa á sömu nótum,
deila með okkur sýninni um samvinnu og réttlátt samfélag
þar sem fólk blómstrar á eigin forsendum.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Yfirboð á kostnað skattgreiðenda
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra
og frambjóðandi Framsóknarflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
B
eðið er eftir niðurstöðum úr
samráði í samráðsgátt
stjórnvalda í fjölda mála og
eru dæmi um að niður-
stöður samráðsferlis hafi verið í
vinnslu frá árinu 2018. Jafnframt eru
dæmi um að reglugerðir sem hafa ver-
ið settar í samráð hafi verið sam-
þykktar af ráðherra og tekið gildi án
þess að niðurstöður hafi verið birtar í
gáttinni. Það er því í að minnsta kosti
sumum tilfellum engin leið fyrir um-
sagnaraðila að ganga úr skugga um að
tekið hafi verið tillit til umsagna þeirra
eða tillögum hafnað á málefnalegum
grunni.
Frá því að rafrænni samráðsgátt
var komið á hefur almenningur og lög-
aðilar skilað 7.881 umsögn um 942 mál.
Ekki hafa verið birtar niðurstöður í 9
málum frá árinu 2018 og 30 málum
sem kynnt voru 2019. Þá bíða nú 235
mál þess að niðurstöður úr samráði
verða birtar í samráðsgáttinni.
Færri brot?
Þegar samráðsgátt stjórnvalda
var komið á 2018 var það í þeim til-
gangi að „auka gegnsæi í laga- og
reglusetningarferlinu þannig að hags-
munaaðilar geti áttað sig á hvað er í
vændum og komið sínum sjónar-
miðum að á öllum stigum“ og „bæta
vinnubrögð við undirbúning laga- og
reglusetningar og við stefnumótun
þannig að stjórnvöld fari í gegnum til-
tekin skref sem stuðla að vandaðri
vinnubrögðum“ að því er fram kom í
skýrslu vinnuhóps forsætis- og innan-
ríkisráðuneytis um virka og gegnsæja
samráðsferla á netinu, sem skilaði
skýrslu sinni árið 2015.
Vísaði vinnuhópurinn til þess að á
vettvangi OECD hefði verið litið á
samráð sem verkfæri fyrir stjórnvöld
til að stuðla að auknum gæðum í reglu-
setningu og stefnumótun og aukinni
sátt og vitund hagsmunaaðila um lög,
reglur og stefnur. Þessir þættir ásamt
auknu gagnsæi séu til þess fallnir að
leiða til „færri brota á reglum þar sem
aðkoma hagsmunaaðila stuðlar að far-
sælli innleiðingu“.
Hins vegar gerðist það 7. sept-
ember síðastliðinn að togarinn Vest-
mannaey VE-054 var staðinn að
meintum ólöglegum veiðum á lokuðu
svæði og bar skipstjórinn fyrir sig að
niðurstöður samráðs vegna fyrirhug-
aðrar reglugerðar um tímabundið
bann við veiðum með fiskibotnvörpu út
af Glettinganesi hefðu ekki verið birtar
í samráðsgáttinni. Samkvæmt upplýs-
ingum í gáttinni hafa niðurstöðurnar
verið í vinnslu hjá atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytinu frá 13. júní, en reglu-
gerðin var birt á vef reglugerðasafns
ríkisins 23. júní.
Um málið bárust sex umsagnir og
ekki allar á einu máli en ekkert liggur
fyrir hvernig var unnið úr þeim þrátt
fyrir að samþykktir ríkisstjórnarinnar
gefi tilefni til að telja að ráðuneyti beri
að greina frá hvernig var brugðist við
umsögnunum.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar um
undirbúning og frágang stjórnar-
frumvarpa og stjórnartillagna – sem
var breytt til að rúma nýja starfs-
hætti vegna samráðs – segir að í
„greinargerð með lagafrumvarpi skal
rakið […] hvernig samráði hafi verið
háttað, hvaða sjónarmið komu fram
og hvort brugðist hafi verið við þeim,
og hvaða áhrif samráðið hafi haft á
frumvarpið“.
Beðið svars
Mál sem bíða enn eftir niður-
stöðum úr samráði dreifast á öll ráðu-
neyti en þau mál sem beðið hafa lengst
eru frá umhverfis- og auðlindaráðu-
neytinu: drög að reglugerð um fráveit-
ur og skólp, og samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytinu: drög að nýrri
reglugerð um mælingu skipa. Í tilfelli
þessara mála hafa niðurstöður verið í
vinnslu frá 25. apríl 2018. Fyrirspurn
vegna seinagangsins var send báðum
ráðuneytunum á fimmtudag en ekkert
svar hafði borist blaðamanni síðdegis í
gær.
Skrifstofa löggjafarmála í forsæt-
isráðuneytinu á að tryggja eftirfylgni
með framkvæmd samráðsgáttarinnar
með birtingu árlegrar umfjöllunar
„um framkvæmd opins samráðs á net-
inu af hálfu ráðuneyta“, eins og fram
kemur á vef samráðsgáttarinnar.
Í svari forsætisráðuneytisins við
fyrirspurn blaðamanns var vísað í árs-
skýrslu ráðuneytisins. Þar er að finna
yfirlit yfir málafjölda og fjölda um-
sagna en ekki skýringar á seinagangi.
Hét forsætisráðuneytið því að veita
frekari skýringar eftir helgi.
Brotalamir í fram-
kvæmd samráðsferlis
Umsagnir og mál í samráðsgátt stjórnvalda
Ráðuneyti Fjöldi mála
Fjármála- og efnahagsráðuneyti 177
Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneyti 159
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti 150
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti 98
Dómsmálaráðuneyti 73
Ráðuneyti Fjöldi mála
Heilbrigðisráðuneyti 68
Mennta- og
menningarmálaráðuneyti 67
Forsætisráðuneyti 61
Félagsmálaráðuneyti 42
Velferðarráðuneyti 28
Utanríkisráðuneyti 19
Fjöldi mála í samráð eftir ráðuneytum frá árinu 2018
Niðurstaða birt 691
Niðurstöður í vinnslu 235
Í samráðsferli 16
Fjöldi mála í samráð
frá árinu 2018
Alls
942
mál
Umsagnir vegna mála í samráðsgátt
7.881 umssögn
frá upphafi
2.252 á ári að meðaltali
eða um 183 á mánuði
H
ei
m
ild
:
Sa
m
rá
ðs
gá
tt