Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 Útivera Fátt er yndislegra og hollara en göngutúr úti í guðsgrænni náttúrunni, líkt og þessar vinkonur fóru í um hraunið í grennd við Kirkjubæjarklaustur í vikunni. Eggert Á Alþingi í vor lagði ég fram skýrslubeiðni til fjármála- og efnahags- ráðherra. Skýrslan átti að svara því hvað varð um þá 25 milljarða króna sem ríkissjóður lagði til Landsbankans vegna yfirtöku bankans á SpKef sparisjóði. SpKef sparisjóður var stofnaður árið 2010 eftir fall Sparisjóðsins í Keflavík, með aðkomu fjármálaráðuneytisins. Þær eignir sem fylgdu frá Sparisjóðnum inn í SpKef sparisjóð áttu að duga fyr- ir skuldbindingum hans. Það reyndist rangt og fór svo að stjórnvöld sömdu við Landsbankann um að taka hinn nýja Spkef sparisjóð yfir. Samning- urinn um yfirtökuna reyndist ríkis- sjóði mjög kostnaðarsamur. Skattgreiðendur eiga rétt á því að fá vitneskju um hvernig fjármunum rík- isins er ráðstafað hverju sinni. Jafn- framt eiga þeir rétt á því að fá að vita hvernig eignum ríkisins er ráðstafað, að ávallt sé greitt hæsta mögulega verð fyrir þær eignir sem ríkið selur og um eignasöluna ríki gagnsæi hverju sinni. Verðmætar eignir voru færðar frá SpKef sparisjóði til Lands- bankans. Ekkert hefur verið gefið upp á hvaða verði Landsbankinn seldi þessar eignir, hvernig söluferlinu var háttað og hverjir keyptu þær. Lands- bankinn rukkaði hins vegar ríkissjóð að fullu fyrir eignirnar. Alþingi neitað um upplýsingar um SpKef sparisjóð Í skýrslunni kemur fram að Lands- bankinn neitar að afhenda Alþingi þau gögn sem beðið er um og gætu varpað ljósi á lyktir málsins sem hefur kostað skattgreiðendur verulegar fjárhæðir. Í máli þessu gekk ríkissjóður í ábyrgð upp á tugi milljarða. Ábyrgð- araðilar eiga alltaf rétt á að fá upplýs- ingar sem liggja til grundvallar greiðslu. Það er því með öllu óvið- unandi að ríkissjóður njóti ekki þessa réttar. Ef það er niðurstaðan þá þarf að upplýsa hver gekk frá ábyrgðinni með þeim hætti. Hagsmunir skatt- greiðenda eru fyrir borð bornir ef rík- issjóður ábyrgist fjárskuldbindingu án þess að fá ljósar upplýs- ingar um hvað liggur að baki ábyrgðarfjárhæð- inni. Ekki fær staðist að Landsbankinn geti neit- að eiganda sínum rík- issjóði, sem á 100% hlutafjár í bankanum, um mikilvægar upplýs- ingar. Í skýrslunni kemur einnig fram að Þjóð- skjalasafn Íslands hafi ekki svarað beiðni um gögn sem lúta að svari við fyrirspurninni. Það mun því liggja beinast við að Stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd Alþingis óski eftir skýringum frá Þjóðskjalasafni, hvernig standi á því að erindum Al- þingis sé ekki svarað. Mun ég fylgja því máli eftir. Ríkissjóður tapaði 25 milljörðum Skýrsla fjármála- og efnahags- ráðherra er mikil vonbrigði. Fjár- málaráðherra virðist ekki vera jafn áhugasamur nú að upplýsa um þetta mál og hann var árið 2012 þegar hann var í stjórnarandstöðu og ræddi málið á Alþingi. Í ljósi niðurstöðu skýrslunnar mun ég leita eftir áliti Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins, hvort Lands- bankanum sé stætt á því að neita að afhenda Alþingi umbeðin gögn. Ef það er raunin mun ég leggja fram laga- frumvarp á Alþingi þegar nýtt þing kemur saman, fái ég umboð til þess í komandi kosningum. Frumvarpið mun þá skylda Landsbankann til að veita allar upplýsingar um það fyrir hvað skattgreiðendur greiddu 25 millj- arða króna vegna gjaldþrots SpKef sparisjóðs. Eftir Birgi Þór- arinsson » Landsbankinn neitar að afhenda Alþingi gögn sem gætu varpað ljósi á lyktir málsins sem kostað hefur skatt- greiðendur verulegar fjárhæðir. Birgir Þórarinsson Höfundur er þingmaður og oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Landsbankinn yfir Alþingi hafinn Grundvallarstefna Sjálfstæðisflokksins er að frumkvæði ein- staklingsins skili sér í að hver og einn fái notið árangurs erfiðis síns samfara ábyrgð eigin athafna. Það byggist á þeirri trú að kraftur einstaklings og frumkvæði hans byggi upp þjóðfélagið. Við teljum að öflugt og fjölbreytt atvinnulíf sé forsenda framfara og undirstaða velferðar. Stjórnvalda sé að skapa heilbrigt og hvetjandi umhverfi fyrir atvinnulífið svo að nýta megi þessa krafta ein- staklingsins til fulls. Eitt meginstef sjálfstæðisstefn- unnar er að tryggja sem flestum í íslensku samfélagi jöfn tækifæri. En það er ekki krafa um jafna út- komu eða að allir séu steyptir í sama mót, heldur að skapa sam- félag sem veitir flestum tækifæri til þess að njóta hæfileika sinna á hvern þann heilbrigða hátt sem þeir kjósa. Báknið dregur fjármagn suður og þróttinn úr landsbyggðinni Byggðastefna snýst ekki um ölm- usu, heldur um sanngirni, jafnræði og sömu tækifæri. Íbúar dreifðari byggða skyldu njóta sömu tæki- færa, sömu grunngerðar og sama stoðkerfis og þeir sem búa í marg- menni höfuðborgarinnar. Við sjálfstæðismenn viljum verj- ast æ meiri ríkisumsvifum, miðstýr- ingu og sífelldri fjölgun opinberra starfsmanna. Báknið dregur fjár- magn suður og þrótt úr lands- byggðinni. Þar vilja stjórnlyndir leyfa atvinnulífinu fátt, banna margt og skipulagsbinda sem flest – allt skyldi vera háð leyfi einhverra hæggengra stofnana syðra. Það að setja vexti ríkisvaldsins skorður og leyfa atvinnufyrirtækjunum að njóta ávaxta erfiðis síns í heima- byggð er mikilvægt byggðamál. Stöðugleiki atvinnu- lífsins er byggðamál Stöðugt rekstrarumhverfi fyrir- tækjanna í landinu er annað gríðarlega mik- ilvægt byggðamál. Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu á að tryggja atvinnulífinu stöðugleika. Einungis þannig blómstra fyrir- tækin og skila því til samfélagsins sem við vonumst til af þeim. Þetta á ekki síst við um framleiðslugreinar landbúnaðar og sjávar- útvegs, sem eru hvað sterkastar á lands- byggðinni. Sjávar- og eldisafurðir eru til að mynda þriðjungur útflutn- ingstekna þjóðarbúsins. Efnahags- leg hagsæld mun áfram byggjast á vexti útflutningsgreina. Það er ein- faldlega mikilvægt byggðamál að gjaldheimta í sjávarútvegi sem er í daglegri samkeppni við erlendan ríkisstyrktan sjávarútveg dragi ekki úr samkeppnishæfni á al- þjóðamarkaði og fjárfestingu í greininni. Annað dæmi: Að mati Byggða- stofnunar má að jafnaði rekja um 81 prósent atvinnutekna í fiskeldi til tekna á landsbyggðinni. Þessi drif- kraftur atvinnusköpunar og byggðafestu er hvað mestur á Vest- fjörðum og Austfjörðum. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur því sett fram þá sanngjörnu kröfu að skoðað verði með hvaða hætti megi auka beina hlutdeild sveitarfélaga í tekjum af greininni. Öflugri grunnþjónustu um allt land Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á mikilvægi frelsis til vals um búsetu. Það byggist á að með öflugri grunnþjónustu, öruggu og nægu rafmagni, öflugum fjar- skiptum og góðum samgöngum, skapist tækifæri fyrir dreifbýli og þéttbýli til aukinna lífsgæða. Greiðar og öruggar samgöngur eru mikilvæg undirstaða atvinnulífs og styrkja samkeppnishæfni byggð- arlaga landsins. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur einnig sett í forgang uppbyggingu nútímalegra, greiðra og öruggra samgangna um allt land – uppbygging öflugri innviða með valkosti og fjölbreytni að leiðarljósi. Leggja verður aukna áherslu á upp- byggingu stofn- og tengivega um land allt og öfluga vetrarþjónustu. Móta verður langtímaáætlun um gerð jarðganga, styrkingu ferju- leiða og viðhald flugvalla og upp- byggingu varaflugvalla á lands- byggðinni. Fjarskiptainnviðir til byggðafestu Sjálfstæðismenn telja uppbygg- ingu fjarskiptainnviða út um landið vera eitt mikilvægasta byggða- málið. Það er ekki bara mikilvægt hagsmunamál fyrir atvinnulífið í heild sinni heldur í raun forsenda fyrir raunverulegu valfrelsi ein- staklinga um búsetu. Ljósleiðaravæðing, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, lagði grunninn að jafnari skilyrðum til búsetu og styrkti samkeppnisstöðu atvinnu- lífsins. Uppbygging ljósleiðarakerfa á þéttbýlisstöðum er nauðsynlegt forgangsverkefni sem og frekari áætlanir um lagningu gagnasæ- strengja milli Íslands og umheims- ins. Að sama skapi er raforkuöryggi mikilvægt byggðafestumál. Stjórn- völd verða að tryggja afhendingar- öryggi raforku um land allt og ryðja þannig braut að grænni iðn- uppbyggingu og orkuskiptum. Jöfn- un dreifikostnaðar raforku hefur verið tryggð og ætti að vera var- anlegt markmið. Með ábyrgð einstaklingsins og trú á fólkið í landinu, frelsi þess og framfarahug byggjum við saman sterkari og blómlegri byggðir. Þannig verður Ísland land tækifær- anna fyrir alla. Eftir Njál Trausta Friðbertsson »Báknið dregur fjár- magn suður og þrótt- inn úr landsbyggðinni. Þar vilja stjórnlyndir leyfa atvinnulífinu fátt, banna margt og skipu- lagsbinda sem flest. Njáll Trausti Friðbertsson Höfundur er þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur- kjördæmi. Sjálfstæðisstefnan er byggðastefna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.