Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 D ídó var full af ást – og hatri. Nafn hennar hefur verið al- þekkt á Íslandi á 13. öld. Í Tristrams sögu (sjá Tungu- takspistil 11.7. ’20), einni af okkar áhrifa- mestu ástarsögum, er hennar getið (í þágufalli!) á þessa leið: „Því að það er kvenna lunderni að þær virða meir vilja sinn fullkominn en mund- angshóf, girnast oft það þær kunna ekki fá, en hafna því mörgu og fyrirlíta það er þær heimilt eiga; svo sem féll Dídóni er svo mjög unni að hún brenndi sig inni þá er unnusti hennar fór frá henni er kominn var af öðru landi.“ Hver var þessi Dídó sem elskaði svona heitt? Saga hennar er sögð í snilldarverki hins rómverska Virgils (70-19 f.Kr.) um Eneas, sem lagði grundvöllinn að Rómaborg. Dídó var kóngsdóttir í Týrus, höfuð- borg Fönikíu sem var orðin mikið sigl- ingaveldi. En þaðan varð hún að flýja eftir að konungurinn bróðir hennar myrti eiginmann hennar til að komast yfir auð hans. Hún komst reyndar undan með auðinn og stofnaði Kar- þagóborg á norðurströnd Afríku og eignaðist með klókindum mikið landsvæði þar. Í ekkjustandi sínu niðurlægði hún þá afrísku ættar- höfðingja sem báðu hennar. Þá kom Eneas óvænt til skjalanna. Hann hafði orðið skipreika í óveðri á flótta sínum til Ítal- íu frá hinni föllnu Tróju- borg. Skip hans voru löskuð og hann og menn hans áttu hinni ungu ekkju líf sitt að launa. Það tókust ástir með Eneasi og Dídó. En guðirnir höfðu ætlað Eneasi annað hlutverk en að verða undir- gefinn drottningarmaður í Karþagó. Hann sveik lífgjafa sinn, skildi hana eftir í sárum og hélt til fyrirheitna landsins. Dídó hafði þá engin umsvif; hún kom sér fyrir á logandi bálkesti í höllinni og lagði sig í gegn með sverði, sem Eneas hafði gefið henni, og þuldi um leið ástmanni sínum herfilegar bölbænir. Hún gat ekki afbor- ið þá hugsun að verða úthrópuð meðal þegna sinna sem skækja og þurfa auk þess að þola háðsglósur fyrri biðla og biðja einhvern þeirra auðmjúklega að ganga að eiga sig. Í hugarvíli sínu sagði hún meðal annars (4. bók): „Ó, að ég hefði mátt lifa frjáls eins og villt dýr merkurinnar, án hjónabands, og vera laus undan þessari skömm.“ Þessi frásögn Virgils um Dídó og Eneas barst sem sinueldur norður um alla Evrópu, og er fyrrnefnt söguljóð af Tristram og Ísönd undir augljósum áhrifum þaðan. En er ekki athyglisvert að mesti kvenskörungur hetjukvæða okkar, Brynhildur Buðladóttir, sé Dídó endurborin? Brynhildur elskaði og hataði. Hún sængaði með Sigurði Fáfnisbana utan hjónabands og þá kom sverð við sögu eins og frægt er orðið. Og eftir að hún hafði verið svikin „miðlaði hún sig mækis eggjum“ [lagði sig sverði] eins og segir í Sigurðar kviðu skömmu (47.v.); lík hennar var síðan brennt á báli í samræmi við hennar hinstu ósk. Þannig er frægasta ástarsaga eddukvæðanna endurómur ástarsög- unnar í einu af meistaraverkum rómverskrar fornaldar. Dídó og Brynhildur Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Dídó og Brynhildur. H agstofa Íslands telur að Covid-faraldurinn hafi leitt til annars mesta samdráttar í lands- framleiðslu okkar Íslendinga. Vegna farald- ursins löguðu stjórnvöld hér og í nágranna- löndunum stjórn ríkisfjármála að nýjum, erfiðum aðstæðum. Nú þegar sést vonandi fyrir endann á sótt- varnahömlum birtast víða vangaveltur um framhaldið, hvort snúið verði til sömu stjórnarhátta og áður eða róið á ný mið. Hér á landi bendir margt til þess að um hraðan efna- hagsbata verði að ræða enda sé haldið rétt á málum. Sömu sögu er að segja um Bandaríkin. Hægari vexti er spáð innan ESB. Faraldurinn varð til þess að ríkissjóði Íslands var beitt af miklum þunga til að pestin ylli ekki óbætan- legum skaða á efnahagslegum grunnstoðum. Auðveldaði sterk staða ríkissjóðs í upphafi allar ákvarðanir um þetta efni auk bjartsýni Bjarna Benediktssonar, efna- hags- og fjármálaráðherra, á að þessi beiting á ríkisfjár- málunum leiddi til þess að hjólin færu hratt af stað að nýju þegar slaknaði á hömlunum. Á undraskömmum tíma hefur atvinnulífið svo tekið kipp eins og sjá má á þjóðlífinu og heyra á öll- um ársfundum samtaka og opin- berra stofnana sem efnt er til um þessar mundir. Rannís, rannsóknamiðstöð Ís- lands, hélt ársfund sinn fimmtu- daginn 9. september. Þar fagnaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra því hve vel hefði miðað við fjármögnun rannsókna- og þróunarverkefna á kjörtímabilinu enda hefði ríkisstjórnin sett skýr markmið um það í sáttmála sinn. Fyrstu og skýrustu umskiptin í íslensku atvinnulífi eftir aðildina að evrópska efnahagssvæðinu (EES) árið 1994 urðu á sviði rannsókna og þróunar. Í áranna rás hafa íslenskir vísindamenn og sérfræðingar svo staðið að öflugum og samkeppnisfærum umsóknum í evrópska rannsóknasjóði. Á sjö ára fresti er þessum sjóðum sett markmið og lauk einu slíku tímabili í fyrra. Þá greiddu íslensk stjórn- völd 80 milljónir evra í sameiginlega sjóðinn en til Ís- lendinga og samstarfsmanna þeirra um umsóknir runnu styrkir sem námu um 140 milljónum evra. Sé litið á þetta sem mælikvarða um gæði rannsókna hér á landi geta þeir sem að þeim vinna vel við unað. Á fáum sviðum eru kröfur um gæði umsókna meiri en þeg- ar sótt er í evrópsku sjóðina. Samkeppnin er gífurlega hörð. Að þessari staðreynd verður að huga á öllum stig- um íslenska skóla- og menntakerfisins. Sé slegið af kröf- um innan þess bitnar þjálfunarleysi, til dæmis við að þreyta próf, á nemendum síðar þegar reynir á sam- keppnishæfni og úthald. Sé litið á hlutfall útgjalda til rannsókna og þróunar miðað við verga landsframleiðslu er Ísland nú í 7. sæti meðal Evrópulanda. Hallgrímur Jónasson, forstjóri Rannís, sagði á ársfundinum að nú mætti eygja að því markmiði yrði náð að útgjöld vegna þessa málaflokks yrðu 3% af landsframleiðslu. Þegar peningastefnunefnd kynnti vaxtaákvörðun sína 25. ágúst 2021 sagðist Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri afar bjartsýnn á efnahagshorfur til skamms tíma. Að einhverju leyti gæti farsóttin reynst „blessun í dular- gervi“. Ferðaþjónustan hætti að vera jafn yfirgnæfandi og áður þar sem aðrar greinar sæktu í sig veðrið. Taldi hann að nú hæfist nýtt framfaraskeið þjóðarinnar. Vegna þessara orða er nærtækast að líta til hugverka- iðnaðarins svonefnda, fjórðu stoðar efnahags- og at- vinnulífsins, rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Í fyrra námu útflutningstekjur hugverkaiðnaðar um 158 milljörðum króna – 103% meira en árið 2013. Hlut- deild hugverkaiðnaðar í útflutn- ingstekjum fór úr 7,4% í nær 16%. Þetta má meðal annars rekja til þess að nú fá fyrirtæki endur- greiðslu úr ríkissjóði til að standa undir hluta rannsókna- og þróun- arkostnaðar. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra lýsir þessum endurgreiðslum sem einni stærstu stuðningsaðgerð sögunnar við nýsköp- unarstarf fyrirtækja hér á landi. Árið 2020 var endurgreiðsluhlutfallið 35% í stað 20% áður. Þá hækkaði þak á endurgreiðslum úr 600 millj- ónum í 1.100 milljónir króna. Rannís telur að fjárstreymi úr ríkissjóði til stuðnings við rannsóknir, þróun og ný- sköpun muni af þessum sökum aukast úr 5,2 milljörðum króna fyrir árið 2019 í um 10 milljarða fyrir árið 2020. Ekkert af þessu gerist af sjálfu sér. Stjórnmálamenn verða að móta stefnu og taka ákvarðanir um fram- kvæmd hennar. Vilji til að stofna til opinberra útgjalda til stuðnings framtaki einkaaðila sem uppfylla gegnsæ opinber skilyrði verður að vera fyrir hendi. Hvati af þessu tagi á ekki aðeins við um nýsköpun. Hann snýst til dæmis einnig um endurgreiðslu á virð- isaukaskatti til þeirra sem fá iðnaðarmenn til að endur- bæta eigið húsnæði sitt. Á þessum stuðningi er ekki eðlismunur og fjárstuðn- ingi við bændur, sjálfstæða atvinnurekendur, til að tryggja skynsamlega nýtingu lands og búsetu í því öllu. Á þeirri ráðstöfun skattfjár sem hér er lýst og áform- um Pírata um að taka milljarða að láni til tilraunastarfs með svonefndum borgaralaunum er hins vegar regin- munur. Svo að ekki sé minnst á tilboð Sósíalistaflokksins um „stóru húsnæðisbyltinguna“, byggingu 30 þúsund íbúða á tíu árum. Hér hafa kjósendur skýrt val í kosningunum eftir tvær vikur á milli raunhæfra aðgerða í þágu þjóðarhags og yfirboða í anda lýðskrums. Ríkisstjórnin tók skyn- samlegar efnahagsákvarðanir vegna faraldursins og vonandi verður framhald á þeim að honum loknum. Bjartsýni í efnahagsmálum Í kosningunum eftir tvær vikur er auðvelt að velja milli ólíkra leiða í efnahagsmálum: raunhæfar aðgerðir eða loftkastala. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Sumar fréttir eru svo óvæntar og stórar, að allir muna, hvar þeir voru, þegar þeim bárust þær. Árið 1963 var ég tíu ára lestrar- hestur á Laugarnesvegi 100. Hin- ar fjölmörgu bækur á heimili for- eldra minna nægðu mér ekki, svo að ég laumaðist oft upp til vina- fólks okkar í sama stigagangi og grúskaði í bókum. Ég sat þar við lestur síðdegis föstudaginn 22. nóvember, þegar annar sonur hjónanna í íbúðinni kom að mér og kallaði: „Hefurðu heyrt fréttirnar? Þeir hafa skotið Kennedy!“ Öllum var brugðið. Haustið 1997 var ég á leið til Torino, þar sem ég skyldi vera gistifræðimaður í nokkra mánuði. Að morgni sunnudagsins 31. ágúst var ég nýlentur í Mílanó (sem fornmenn kölluðu Melansborg) og í leigubíl á leið til járnbrautar- stöðvarinnar. Lágvært útvarp á ítölsku var í gangi. Skyndilega hrópaði ökumaðurinn: „Díana prinsessa er látin! Hún lenti í bíl- slysi!“ Ég var forviða. Það var ótrúlegt, að þessi þokkadís væri öll. Þriðjudaginn 11. september 2001 var ég nýkominn á gistihús í Bratislava í Slóvakíu, þar sem halda átti svæðisþing Mont Peler- in-samtakanna, alþjóðasamtaka frjálslyndra fræðimanna. Laust eftir klukkan þrjú síðdegis hringdi bandarískur kunningi í mig. Hann var í uppnámi: „Komdu upp í íbúðina til mín og horfðu á sjón- varpið með mér. Það er verið að gera loftárás á New York!“ Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. „Eins og í kvikmynd?“ sagði ég. „Já, en þetta er ekki kvikmynd, þetta er veruleiki,“ svaraði hann. Ég fór upp í íbúð hans, við feng- um okkur drykki og blönduðum sterkt, settumst fyrir framan sjón- varpið og horfðum þöglir á árás- irnar í beinni útsendingu. Þegar áfengisbirgðir þraut úr kæliskápn- um í íbúð hans, náði ég í það, sem til var í mínu herbergi. Ólíkt hörmulegum andlátum Kennedys og Díönu markaði árás- in á Bandaríkin tímamót. Þetta var í fyrsta skipti, sem fjandmenn höfðu ráðist inn í landið sjálft. En hryðjuverkasamtökin Al-Kaida höfðu vanmetið styrk Bandaríkj- anna, sem lögðu þau að velli á nokkrum misserum, þótt ekki hafi þeim tekist með öllu að uppræta þau. Enginn skyldi samt vanmeta þennan styrk. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Fyrir tuttugu árum Íbúðir sem upp- fylla skilyrði um hlutdeildarlán Berjateigur 17-23, 250 Garði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Nýjar fullbúnar og vandaðar 3ja herbergja íbúðir í raðhúsi á einni hæð, með sólpalli, sem snýr í vestur. ATH. Umsóknartímabil hlutdeildarlána HMS er til 15. sept. Berjateigur 17 82,9 m2 Seld Berjateigur 19 82,9 m2 36.900.000.- Berjateigur 21 82,9 m2 36.900.000.- Berjateigur 23 82,9 m2 Seld Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Afhending í nóvember 2021

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.