Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
R
ússinn Anton Demchenko
og Þjóðverjinn Vincent
Keymer urðu jafnir og
efstir á vel heppnuðu
Reykjavíkurskákmóti/Evrópumóti
einstaklinga sem lauk á Hotel Nat-
ura um síðustu helgi. Þeir hlutu
báðir 8½ vinning af 11 mögulegum
en Demchenko tefldi við stigahærri
andstæðinga og er því Evrópu-
meistari einstaklinga. Baráttan um
efsta sætið var hörð en frammi-
staða hins 16 ára gamla Vincents
Keymers frábær. Eins og getið var
um í síðasta helgarpistli hafa landar
Keymers verið að bíða eftir öðru
viðlíka afreki og því sem hann vann
2018 á opnu móti í Grenke í Þýska-
landi.
Í 3.-4. sæti urðu Rússinn Alexei
Sarana og Rúmenin Bogdan-Daniel
Deac með 8 vinninga hvor. Þar á
eftir komu 14 skákmenn með 7½
vinning. 23 efstu menn fá keppn-
isrétt á heimsbikarmóti FIDE sem
fram fer á næsta ári.
Helgi Áss Grétarsson fékk flesta
vinninga íslensku keppendanna, 7
vinninga af 11 mögulegum, með ár-
angur sem reiknast upp á 2.458 elo-
stig. Hann tefldi frísklega í loka-
hluta mótsins og vann góða sigra.
Héðinn Steingrímsson, sem tapaði í
lokaumferðinni, kom næstur með
6½ vinning og árangur upp á 2.492
elo. Þar á eftir komu Hannes Hlífar
Stefánsson, Hjörvar Steinn Grét-
arsson, Vignir Vatnar Stefánsson
og Jóhann Hjartarson, allir með 6
vinninga.
Í næstsíðustu umferð mótsins fór
fram uppgjör efstu manna. Demc-
henko hafði hvítt á Keymer, athygl-
isverð baráttuskák. Keymer beitti
fáséðu afbrigði Caro-Kann-varnar
sem Kortsnoj var svolítið að tefla
árin 1978 og 1979, þ.á m. í HM-
einvígi sínu við Karpov. Eftir byrj-
un sem virtist lofa góðu var eins og
Rússinn væri sáttur við jafntefli en
þá sýndi Keymer styrk sinn, sneri
taflinu sér í vil og náði fram vinn-
ingsstöðu. En það vantaði upp á ná-
kvæmni í úrvinnslunni:
Reykjavíkurskákmótið/EM ein-
staklinga 2021; 10. umferð:
Anton Demchenko – Vincent
Keymer
Caro-Kann-vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4.
Rxe4 Rf6 5. Rxf6 exf6
Hinn leikurinn, 5. … gxf6, sást
oft í skákum Bents Larsens.
6. Be3 Bd6 7. Bd3 Rd7 8. Re2 f5
9. Bf4 Bxf4 10. Rxf4 0-0 11. 0-0 Rf6
12. c3 Dd6 13. Df3 He8 14. Hfe1
Bd7 15. Re2 g6 16. Df4 De7 17. Kf1
Rd5 18. Dg3 Df8 19. Rf4 Rf6 20. f3
c5 21. dxc5 Dxc5 22. Df2 Dc7 23.
Dd4 Bc6 24. Rxg6 hxg6 25. Dxf6
Df4 26. Dd4
Hann gat líka leikið 26. Kg1 og
staðan er jöfn. Þessi leikur virkar
eins og jafnteflistilboð.
26. … Dxh2!
Hann gat hæglega fengið jafn-
tefli með drottningaruppskiptum og
síðan He-d8. Í fyrstu virðist þetta
glæfralegt vegna veikleikans á f7.
27. Bc4 Hed8 28. Df6 Dh1+ 29.
Kf2 Hd2+ 30. Be2
Það kann að vera að Demchenko
hafi sést yfir að eftir 30. Ke3 Dh6+!
31. f4 Hd7 er engin vörn við hót-
uninni 32. … He8+. 30. He2 kemur
í sama stað niður, 30. … Hxe2+ 31.
Bxe2 Dxa1 32. Bc4 Kh7! 33. Bxf7
Dxb2+ 34. Kg3 f4+! og vinnur.
30. … Hxe2+! 31. Kxe2 Dxg2+
32. Kd3 Bxf3 33. c4 b5 34. Kc3 Hc8
35. Hac1 a5 36. Kb3
36. … bxc4+?
Þar gekk vinningurinn úr greip-
um Keymers. Ein leið til sigurs er
36. … Dg3! t.d. 37. cxb5 Bd1 mát!
Annar sterkur leikur var 36. …
Bd5!
37. Ka3! Dd2? 38. Hxc4 Hb8 39.
Hh4 Bh5 40. He7
Hvítur er sloppinn.
40. … Dd5 41. Hc7 De6 42. Dxe6
fxe6 43. Hd4 e5 44. Hdd7 He8 45.
Kb3 f4 46. Kc3 e4 47. Hg7+ Kh8
48. Hh7+ Kg8 49. Hhg7+ Kh8 50.
Hh7+ Kg8 51. Hhg7+
- Jafntefli.
Demchenko og
Keymer sigurvegarar
Reykjavíkurmótsins
og EM einstaklinga
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Heimasíða REK/EM
Einbeittur Anton Demchenko við taflið í lokaumferðinni.
Framsókn er, og
vill vera, grænn
flokkur og það krefst
stefnu í umhverf-
ismálum í víðum
skilningi. Margir
halda að við sem er-
um í eldri kantinum
séum ekki nægj-
anlega umhverf-
issinnuð. Ég tel að
það sé hinn mesti
misskilningur. Ég tel
að við vinnum daglega að
umhverfismálum með flokkun á
öllu sem hægt er að flokka og því
að huga að nágrenni okkar og
rækta garðinn okkar, hafi fólk
garð.
En hvað getum við gert enn
frekar? Fordæmið sem hr. Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
hefur gefið okkur er að fara út og
plokka. Þess er þörf mestallt árið.
Þessa iðju gera margir að dag-
legum göngutúr og hafa verk for-
setans verið hvatning fyrir alla að
taka upp sömu hætti. Leið eldra
fólks liggur við hlið yngra fólks í
kynslóðasáttmála um að vernda
umhverfið á allan hátt.
Framsókn er í forystu um land-
vernd. Á síðastliðnu ári náðist t.d.
fjöldahreyfing í að safna birkifræi
og skila inn, en það að sá birkifræi
getur verið mjög árangursríkt
sem ný skógrækt. Það má m.a. sjá
þar sem birkifræ hefur fokið í
mela og móa. Þar spírar fræið og
gefur af sér ný tré.
Við þurfum líka öll að venja
okkur á að hafa vistvæna burð-
arpoka með okkur við innkaup.
Fram undan í mörgum sveit-
arfélögum er svo að gera flokkun
enn aðgengilegri og samræmdari.
Það á að vera krafa til stjórnmála-
manna að beita sér fyrir því að
allt megi flokka og helst end-
urvinna. Á landi eins og Íslandi
með sína tæru læki og ár þarf sú
hugsun að vera í fyrirrúmi meðal
okkar allra að virða náttúruna svo
afkomendur okkar fái notið henn-
ar.
Vistvæn orka hófst
með litlum raf-
stöðvum við bæj-
arlækinn. Nú þarf að
finna fleiri lausnir
fyrir nútímann, svo
sem sólarsellur, sem
eru t.d. að ryðja sér
til rúms í Þýskalandi
þar sem bændur
leigja út akra fyrir
sólarsellur sem tappa
svo af inn á kerfin.
Vindmyllur þarf einn-
ig að skoða, en um
þær er auðvitað ekki
full sátt.
Framsókn leggur áherslu á
vistvænar lausnir. Í Danmörku og
Hollandi er þær víða að finna og
gera þær gæfumuninn hvað varð-
ar framleiðslu rafmagns. Mörg
stórfyrirtæki í Evrópu eru orðin
mjög vistvæn og stórar verslanir
ganga fram með góðu fordæmi
um vistvænar umbúðir.
Framsókn leggur megináherslu
á að við ræktum sem mest sjálf
og verðum sjálfbær s.s. í græn-
meti, korni og fleiri tegundum.
Íslensk nærandi matarolía frá
Sandhóli er ein snilldin sem og
vörur Vallanesbúsins undir
merkjum Móður jarðar. Alls kon-
ar heimagerðar afurðir má finna
um allt land og þeir sem hyggjast
reyna sig við að skapa nýjar
vörur geta fengið aðstoð hjá þró-
unarsetrum.
Sjálfbærni á mörgum sviðum er
hugsun unga fólksins sem við,
eldra fólkið, styðjum heils hugar.
Við í Framsókn verðum sterk
rödd í umhverfismálum framtíð-
arinnar.
Umhverfismál
snerta eldra fólk líka
Eftir Þórunni
Sveinbjörnsdóttur
» Leið eldra fólks ligg-
ur við hlið yngra
fólks í kynslóðasáttmála
um að vernda umhverfið
á allan hátt.
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir
Höfundur er í 3. sæti á lista Fram-
sóknar í Reykjavík norður og skóg-
arbóndi.
basendi6@simnet.is
Kolbrún Jónsdóttir mynd-
höggvari fæddist 12. sept-
ember 1923 á Hólum í Horna-
firði og var dóttir Jóns Þor-
leifssonar listmálara og Rakel-
ar Ólafar Pétursdóttur ljós-
móður. Fjölskyldan flutti til
Kaupmannahafnar þegar hún
var ársgömul og dvaldi þar til
1929. Þá fluttu þau í Blátún,
hús sem var í Vesturbænum
nálægt Hringbrautinni.
Kolbrún var listræn eins og
faðir hennar og hún fór vestur
um haf til að nema högg-
myndalist við listaskólann
Mills College í Oakland í Kali-
forníu á árunum 1943-45. Hún
þótti afbragðsnemandi og
hlaut fyrstu verðlaun skólans í
myndhöggvaralist þegar hún
útskrifaðist 1945. Þegar heim
var komið sýndi hún teikn-
ingar á málverkasýningu með
föður sínum í Listamannaskál-
anum 1948 sem vöktu mikla
athygli.
Kolbrún var fögur kona og
1950 var hún kjörin fegurðar-
drottning Reykjavíkur og er
fyrsta konan til að hreppa
þann titil. Árið 1957 giftist
Kolbrún Gísla Halldórssyni
verkfræðingi og varð fjórða
eiginkona hans. Þau áttu
börnin Guðfinnu, f. 1958, og
Jón Eldjárn, f. 1960.
Kolbrún lést hinn 22. júlí
árið 1971.
Merkir Íslendingar
Kolbrún
Jónsdóttir
Dalshraun 6 | 220 Hafnarfjörður | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Faglegar heildarlausnir og samkeppnishæf verð.
Allt á einum stað.
Fylgja ferskir vindar og ný vinnubrögð.
NÝJUM ÞJÓNUSTUAÐILUM