Morgunblaðið - 11.09.2021, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Fyrir nokkrum ár-
um hélt bandarískur
fyrirlesari námskeið
um frumkvöðla-
starfsemi á vegum
Stjórnunarfélags Ís-
lands. Eftir nám-
skeiðið bað hann mig
að keyra sig til
Grindavíkur en hann
hafði heyrt að þar
væru fleiri fyrirtæki
en heimili, sem var raunin þá. Við
heimsóttum fjölskyldu þar sem var
með þrjú fyrirtæki í blómlegum
rekstri. Fyrirlesarinn upplifði Ís-
land sem land frumkvöðla og
sprotafyrirtækja og fjallaði um það
á sínum námskeiðum víða um heim
að hans sögn.
Erlendur fyrirlesari við Háskól-
ann í Reykjavík sem er ráðgjafi rík-
isstjórna um allan heim sagði mér
eitt sinn að það sem einkennir helst
sterk hagkerfi og góð lífskjör að
hans mati væri öflugt frumkvöðla-
umhverfi og vilji fólks til að stofna
eigin fyrirtæki. Ísland var að hans
mati meðal öflugstu ríkja á þessu
sviði.
Hugsanlega er óvíða að finna eins
mikinn vilja til að stofna fyrirtæki
um hugmyndir og á Íslandi. Marel
sem er eitt verðmætasta fyrirtæki
landsins byrjaði með tvo starfs-
menn. Fjöldi örfyrirtækja sem eru
með undir 10 starfsmönnum er yfir
24 þúsund sem samsvarar um 80%
allra ársreikningaskyldra félaga.
Á næstu árum þarf að skapa tug-
þúsundir nýrra starfa hér á landi
sem flest verða til hjá litlum sprota-
fyrirtækjum. Það skiptir því höfuð-
máli að rekstrarumhverfi nýsköp-
unar- og frumkvöðlafyrirtækja sé
hagstætt hjá okkur.
Glötuð tækifæri?
Ég tel að fjölmörg tækifæri til
nýsköpunar hafi glatast á síðustu
árum.
Eftir að pistill minn um atvinnu-
mál birtist nýlega í Morgunblaðinu
hef ég fengið fjölda ábendinga um
þessi glötuðu tækifæri.
Mér var sagt frá því að mörg
hugvits- og ráðgjafarfyrirtæki,
fyrirtæki í tölvuleikja- og hugbún-
aðargerð og fyrirtæki í auglýsinga-
geiranum hefðu ýmist verið flutt til
útlanda, til dæmis Hollands, Pól-
lands, Ungverjalands og Bandaríkj-
anna, eða misst viðskipti vegna
óstöðugs viðskiptaumhverfis á Ís-
landi.
Viljum efla nýsköpun
með stöðugra gengi
Óstöðug króna með sífelldum
gengissveiflum er einn helsti óvinur
nýsköpunar og frumkvöðla-
starfsemi. Erfitt er að gera áreið-
anlegar áætlanir með útgjöld í
krónum og tekjur í evrum eða doll-
urum en frá 2017 hefur krónan
sveiflast gagnvart evru frá um 110
krónum í um 165 krónur, síðan seig
hún í um 145 og í dag er hún aftur
komin í um 150. Þetta er óboðlegt
umhverfi fyrir öll fyrir-
tæki og má helst líkja
við að búa við óstöðugt
rafmagn.
Nýleg könnun meðal
frumkvöðla sýnir að yf-
ir 73% þeirra telja
krónuna vera helstu
hindrun vaxtar. Í
skýrslu Viðskiptaráðs
um málefni smáfyrir-
tækja frá 2009 segir
meðal annars að „fyrir-
komulag gjaldeyris-
mála hefur um langa hríð verið
mikil hindrun í rekstri lítilla og
meðalstórra fyrirtækja hér á
landi“.
Síðar í skýrslunni segir að „ís-
lenska krónan hefur lagt mikinn
aukakostnað á íslensk fyrirtæki“ og
að „með upptöku annarrar myntar
aukast líkur á fjölbreyttu atvinnu-
lífi“. Þessar viðvaranir eiga einnig
við í dag.
Auk þess má nefna að erlend
fjárfesting fæst oft ekki inn í ís-
lensk fyrirtæki nema hugverkarétt-
indi séu flutt í lögsögu með stöð-
ugum gjaldmiðli. Það hefur og verið
gerð krafa um að fyrirtæki séu flutt
í erlenda lögsögu af þessum sökum.
Flest sprotafyrirtækin stefna á
alþjóðlegan markað og þau eru því í
alþjóðlegri samkeppni frá fyrsta
degi, samkeppni sem býr í flestum
tilfellum við stöðugan gjaldmiðil.
Könnun Samtaka iðnaðarins í síð-
ustu viku sýndi að helsta krafa iðn-
fyrirtækja er stöðugur gjaldmiðill.
Viðreisn tækifæranna
Það þarf kjark og þor til að gera
nauðsynlegar breytingar sem
styðja við nýsköpun. Kosningarnar
í haust snúast því meðal annars um
að tryggja að frumkvöðlarnir og
viðskiptatækifærin verði áfram í
landinu.
Í kosningunum mun Viðreisn
leggja sérstaka áherslu á stöðugra
rekstrarumhverfi atvinnulífsins og
sérstaklega umhverfi sprotafyrir-
tækja. Til að bæta stöðu þeirra vill
Viðreisn binda gengi krónunnar við
evru með samningi við Seðlabanka
Evrópu sem fyrsta skref að upp-
töku evru. Fyrirsjáanlegt gengi
mun gjörbreyta skilyrðum fyrir ný-
sköpun og uppbyggingu þekkingar-
iðnaðar. Lífskjör fólks og sam-
keppnishæfni íslenskra fyrirtækja
mun batna með þessari breytingu
og vaxtakjör munu breytast strax
til lækkunar.
Með þessum áherslum vill Við-
reisn gefa framtíðinni tækifæri.
Nýsköpunarlandið
Ísland
Eftir Thomas
Möller
Thomas Möller
» Viðreisn mun leggja
sérstaka áherslu á
stöðugra rekstrar-
umhverfi atvinnulífsins
og sérstaklega umhverfi
sprotafyrirtækja.
Höfundur er verkfræðingur, MBA og
frambjóðandi í fjórða sæti Viðreisnar
í Suðvesturkjördæmi.
Nýleg skýrsla Sam-
einuðu þjóðanna um
loftslagsmál (IPCC)
sýnir svo ekki verður
um villst að hrakspár
undanfarinna ára eru að
rætast: hitastig jarðar
er við hættumörk, jökl-
ar bráðna, flóð, skógar-
eldar og stormar valda
miklum usla, aldauði
margra tegunda blasir
við – og mannskæð
plága geisar um allan heim. Allt stafar
þetta af róttækum breytingum á lífríki
hnattarins sem rekja má til svokall-
aðrar mannaldar. Mestu skiptir losun
gróðurhúsalofttegunda sem drifin er
af hagkerfi heimsins, hömlulausum
mörkuðum og ægivaldi einkahags-
muna.
Í aðdraganda alþingiskosninga hef-
ur mörgum orðið tíðrætt um lofts-
lagsvána. Oftar en ekki er þó stað-
næmst við einfaldar tæknilegar
lausnir. Engin ástæða er til að van-
meta slíkar lausnir, en hitt skiptir
meira máli að huga að djúpstæðum
rótum umhverfisvandans og þeim
stórtæku pólitísku aðgerðum sem
blasa við. Erfitt er að sjá að loftslags-
vandinn verði leystur án mikillar
eignatilfærslu, með hagsmuni almenn-
ings í fyrirrúmi.
Covid, ósonlagið og tóbakið
Covid-fárið, sem rekja má til auk-
innar fábreytni dýrategunda á síðustu
árum og áratugum, hefur leitt í ljós
mikilvægi jafnræðis og samstöðu.
Veiran spyr ekki um heimilisfang eða
stéttarstöðu, við erum öll á sama báti.
Þau lönd sem verst hafa komið út úr
fárinu hafa yfirleitt hafnað samheldni
og félagslegri ábyrgð og hallað sér að
falsfréttum sem runnar eru undan
rifjum þröngra einkahagsmuna, hags-
muna „greinarinnar“ eins og nú er
sagt. Nú þarf að setja greinaskil.
Glíman við ósonlagið í háloftunum,
sem franskur eðlisfræðingur uppgötv-
aði árið 1913, segir sína sögu. Nú eru
flestir búnir að gleyma henni, en á átt-
unda og níunda áratug síðustu aldar
komst ósonlagið í hámæli. Það hafði
löngum varið jörðina
gegn skaðlegum sólar-
geislum, en nú var ljóst
að það hafði rofnað.
Manngerð efni, sem al-
geng voru í úðabrúsum
og kælikerfum, eyddu
ósonlaginu og tíðni húð-
krabbameins margfald-
aðist í kjölfarið. Nokkr-
ar ríkisstjórnir ákváðu
árið 1978 að banna notk-
un efnanna heima fyrir
og rúmum áratug síðar
var svonefnd Montreal-
bókun samþykkt á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna og fleiri ríkja þar sem
framleiðsla þeirra var bönnuð. Síðar
var staðfest að bannið hægði verulega
á rýrnun ósonlagsins. Vandinn var
snarlega leystur með alþjóðlegri sam-
stöðu.
Því skyldu menn ekki taka lofts-
lagsvandann sömu tökum, standa
saman og grípa til aðgerða? Það er
sannarlega mun flóknara verkefni og
hægara sagt en gert; olíukóngar slá
ryki í augu fólks, kosta „rannsóknir“
sem fullvissa almenning um að engin
hætta sé á ferðum og leggja undir sig
fjölmiðla sem eru sífellt á verði. Eins
og tóbaksframleiðendur forðum.
Lengi vel virtu men „rétt“ fólks til að
reykja nánast hvar sem var. Þegar
ljóst var að óbeinar reykingar voru
hættulegar heilsu manna, rétt eins og
banvænar veirur, tóku varnirnar að
bresta.
Kvótakerfið, enn og aftur
Saga tóbaksbarbaróna og olíukónga
minnir um margt á sögu íslensks sjáv-
arútvegs. Í skjóli „veiðireynslu“ og ný-
frjálsra vinda í stjórnmálum, sem
töldu hagsmunum almennings best
borgið með einkavæðingu, voru sam-
þykkt lög um kvótakerfi í fiskveiðum
árið 1983. Á örfáum árum hafði fá-
mennur hópur útgerðarmanna nánast
„eignast“ auðlindir hafsins. Stjórn-
málamenn töluðu um „þjófnað ald-
arinnar“ og almenningur hneykslaðist
á nýjum „kóngum“ og „greifum“ sem
hirtu lítið um „leiguliða“ og verkafólk.
Endurgjald til samfélagsins var ekk-
ert í hlutfalli við þann arð sem kóng-
unum hlotnaðist af þjóðarauðlindinni.
Á sama tíma hefur ofurvald kóng-
anna tryggt þeim vald yfir samræðum
landsmanna. Sumir stjórnmálamenn
segja að fiskveiðikerfið sé afar gott,
jafnvel fyrirmynd fyrir allan heiminn,
og engin ástæða sé til að staðfesta með
lögum og stjórnarskrá eignarhald
þjóðar yfir auðlindinni. Aðrir líta und-
an og segja það of seint, eignin sé stað-
reynd. Í vitund almennings situr
dramatískt myndband úr sjónvarps-
fréttum sem sýnir erfðaprins kon-
ungsveldisins reiðubúinn að leggja
hendur á fyrrverandi seðlabanka-
stjóra sem hafði staðið í lappirnar
þrátt fyrir þrýsting úr „greininni“. Nú
situr það líka í vitund okkar flestra að
krosstengsl í fyrirtækjum hafa falið
mikinn auð kvótaeigenda, sumpart í
skjóli persónuréttar, og hluti arðsins
af fiskveiðum á Íslandsmiðum hefur
verið notaður til að komast með vafa-
sömum hætti inn á veiðilendur í öðrum
heimsálfum þar sem fátækt fólk þarf
að heyja sín þorskastríð. Enginn
stjórnmálaflokkur á Alþingi hefur roð
við kóngunum. Nú er þörf á sósíalisma
við Austurvöll.
Á tímum stórkostlegra náttúru-
hamfara og þjóðfélagsumróts er kall-
að eftir róttækum lausnum sem dugi
til framtíðar með hagsmuni komandi
kynslóða í huga. Sósíalisminn, sem
byggist á rótgrónum hugmyndum
sem leggja áherslu á jöfnuð, réttlæti,
samhygð og samstöðu, er enn í fullu
gildi, en nú á nýjum forsendum. Aldrei
hefur verið brýnni þörf fyrir stjórn-
málahreyfingu sem kennir sig við
sósíalisma.
Eftir Gísla Pálsson » Á tímum hamfara er
kallað eftir lausnum
sem dugi til framtíðar.
Aldrei hefur verið
brýnni þörf fyrir hreyf-
ingu sem kennir sig við
sósíalisma.
Gísli Pálsson
Höfundur er mannfræðingur og
skipar eitt af sætum Sósíalistaflokks
Íslands í Suðvesturkjördæmi.
gpals@hi.is
Sósíalismi á tímum hamfara
Það er sorglegt að
mjög slæmt ástand í
þjónustu og úrræðaleysi
í málefnum aldraðra sé
orðið stórt kosningamál.
En það er því miður
veruleiki sem við þurf-
um að horfast í augu við
og samfélaginu til
skammar. Aldraðir eru
sennilega sá hópur sem
hefur fengið að kynnast
fleiri sviknum kosninga-
loforðum en flestir aðrir hópar sam-
félagsins. Við myndun næstu rík-
isstjórnar verða málefni aldraðra að fá
forgang, hvort sem það snýr að fram-
færslu eða umönnun.
Látum þjónustuna ná til allra
Aldraðir hafa ekki tíma til að bíða
eftir lausnum á sínum málum, það ætti
öllum að vera ljóst.
Eins og staðan er núna vantar
heildaryfirsýn yfir verkefnin og fjöl-
breyttari lausnir. Það er verið að sinna
þessari þjónustu út og suður eins og
fjármunir leyfa, án þess að hafa yf-
irsýn yfir hvernig þeir nýtast. Afleið-
ingin er gjarnan sú að aldraðir festast í
kerfinu og ekki finnast úrræði til að
leysa vandamál þeirra eða þá að þau
eru hreinlega ekki fyrir hendi.
Þessi málaflokkur er dýr og verður
samfélaginu dýrari með hverju árinu
sem líður.
Því verður að tryggja varanlega
fjármuni í hann og skipuleggja í heild
hvernig við ætlum að láta þjónustuna
nýtast sem best þeim sem þurfa á
henni að halda. Hver rekur þjón-
ustuna á ekki að vera að-
aldeilumálið eða, eins og
staðan er nú, að allt sé
fast í þrefi á milli ríkis og
sveitarfélaga um rekst-
urinn. Fyrir utan það að
tryggja grunnþjónustu
þarf líka að huga að and-
legri líðan þessara ein-
staklinga.
Áhyggjulaust
ævikvöld
Áhyggjulaust ævi-
kvöld á ekki að vera inni-
haldslaus frasi. Okkur
ber skylda til að sjá til þess að fólkið
sem hefur skapað það samfélag sem
við tökum við ljúki ævi sinni í öryggi
og með reisn. Það eru mannréttindi að
eiga áhyggjulaust ævikvöld.
Þessi hópur á ekki að þurfa að upp-
lifa sig sem ölmusufólk og þurfalinga.
Öll lifum við í þeirri trú að sá tími sé
liðinn fyrir mörgum áratugum. Það er
ekki fyrr en við lendum í því með aldr-
aða foreldra eða ættingja að við fáum
að kynnast kerfinu hér og getuleysi
þess til að bjóða nauðsynleg úrræði,
sérstaklega fyrir einstaklinga sem
ekki hafa getu til að búa einir nema
með mikilli aðstoð. Í dag eru þúsundir
einstaklinga að sinna öldruðum for-
eldrum eða ættingjum sem eru heima
vegna þess að viðeigandi þjónustu
skortir.
Sýnum öldruðum virðingu
Þessi málaflokkur er kostn-
aðarsamur og því mikil freisting hjá
stjórnvöldum að ná fram sparnaði í
ríkisútgjöldum þar, enda þessi þjóð-
félagshópur ekki mjög hávær.
Skerðingar í eftirlaunakerfinu eru
eitt mesta óréttlætið sem aldraðir
verða fyrir. Það hefur kallað fram
mikla óvild í garð lífeyriskerfisins, þótt
það hafi ekkert með þessar óréttlátu
skerðingar að gera þar sem það eru
stjórnvöld hverju sinni sem ákveða
þær. Þess vegna þarf að endurskoða
skerðingar, skattlagningu og frí-
tekjumark fyrir eftirlaunaþega. Það er
okkur til skammar að þegnar þessa
lands, sem eru að ljúka sínu ævikvöldi,
séu píndir svo í skerðingum og skatta-
álögum að þeir þurfi að velta fyrir sér
hverri krónu og sumir eigi varla fyrir
mat.
Sem betur fer erum við að komast á
þann stað að eftirlaunaþegar eru að fá
ásættanlegar greiðslur úr sínum líf-
eyrissjóði sér til framfærslu. Við verð-
um hins vegar að hækka framfærslu-
viðmið, draga úr skattaálögum og
veita þessum þjóðfélagshópi sann-
arlega áhyggjulaust ævikvöld.
Viðreisn er með skýra sýn í þessum
málaflokki eins og í heilbrigðismál-
unum enda eru þessir málaflokkar
samtvinnaðir.
Tryggjum öllum áhyggjulaust ævi-
kvöld og kjósum Viðreisn.
Eftir Guðmund
Þórð Ragnarsson » Aldraðir eru senni-
lega sá hópur sem
hefur fengið að kynnast
fleiri sviknum kosninga-
loforðum en flestir aðrir
hópar samfélagsins.
Guðmundur Þórður
Ragnarsson
Höfundur skipar fjórða sæti
Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi
norður.
Aldraðir hafa ekki tíma til að bíða
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.