Morgunblaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 34
34 MESSUR
á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
AKUREYRARKIRKJA | Upphaf vetr-
arstarfsins. Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu
kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Hólm-
fríður Hermannsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 og upphafi barna-
starfs í kirkjunni fagnað í söng og leik.
Andrea Anna Arnarsdóttir, Thelma
Rós Arnarsdóttir, Ingunn Jónsdóttir
djákni og sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir þjóna. Aðalheiður Þorsteinsdótt-
ir leikur á flygilinn.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli og
guðsþjónusta kl. 13. Athugið nýjan
messutíma! Jóhanna María Eyjólfs-
dóttir djákni og Þorsteinn Jónsson,
nýr barnastarfsleiðtogi, annast sam-
verustund sunnudagaskólans. Séra
Sigurður Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, org-
anisti er Bjartur Logi Guðnason. Ferm-
ingarbörn vorsins 2022 sérstaklega
boðuð til guðsþjónustunnar ásamt
foreldrum sínum. Stuttur kynningar-
fundur um fermingarstarf vetrarins
haldinn eftir guðsþjónustu. Kirkjukaffi
í Ási eftir guðsþjónustu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 17. Ingvar Alfreðsson leiðir
samsöng. Prestur er Arnór Bjarki
Blomsterberg. Ókeypis matur að
guðsþjónustu lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Prest-
ur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kór
Breiðholtskirkju, Örn Magnússon er
organisti. Um sunnudagaskólann sjá
Steinunn Þorbergsdóttir djákni og
Steinunn Leifsdóttir. Kaffi og sam-
félag eftir guðsþjónustu.
Alþjóðlegi söfnuðurinn / The Interna-
tional Congregation kl. 14 / at 2 pm.
Guðsþjónusta. Prestar sr. Toshiki
Toma og sr. Ása Laufey Sæmunds-
dóttir, prestar innflytjenda og flótta-
fólks. Barnagæsla / Childcare. Kaffi
og samfélag / Coffee/tea after the
service.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa og
guðsþjónusta. Fyrsta barnamessa
vetrarins er kl. 11. Sóley Adda, Katrín
Eir, sr. Eva Björk og Rebbi refur eru
meðal þeirra sem taka á móti börn-
unum. Pálmi Sigurhjartarson spilar.
Þá er almenn guðsþjónsta kl. 13. Sr.
Eva Björk þjónar ásamt messuþjón-
um, Antonía Hevesi spilar og félagar
úr Kammerkór Bústaðakirkju leiða al-
mennan messusöng.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti er
Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Léttar
veitingar að lokinni messu. Messa í
Hjallakirkju sunnudag kl. 17.
Sr. Helga Kolbeinsdóttir. Tónlist Matt-
hías V. Baldursson ásamt Lofgjörð-
arhópi Hjallakirkju. Veitingar að lok-
inni messu.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11.
Prestur er Sveinn Valgeirsson, Kári
Þormar og Dómkórinn.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skólinn er að byrja aftur og verður alla
sunnudaga í vetur kl. 10.30. Vetrar-
starfið hefst að þessu sinni með
hausthátíð 12. september kl. 10.30.
Pylsupartí og fjársjóðsleit eftir stund-
ina í kirkjunni. Umsjón hafa sr. Þor-
geir, Torvald við flygilinn, Guðný, Elísa,
Ragnheiður o.fl.
FELLA- og Hólakirkja | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar
Gunnarsson þjónar og prédikar. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhild-
ar Valgarðsdóttur organista. Kaffisopi
eftir stundina. Meðhjálpari er Kristín
Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar
leiðir söng undir stjórn Arnar Arnar-
sonar. Prestur er Margrét Lilja
Vilmundardóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14.
Í tilefni Bókmenntahátíðar verður
þema næsta sunnudags ljóðmál Bibl-
íunnar. Prédikun dagsins: Það er ekk-
ert saklaust við ljóð! Dr. Sigurvin Lár-
us Jónsson prestur leiðir stundina.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða sönginn ásamt
Gunnari Gunnarssyni. Fjölskyldur
fermingarbarna eru hvattar til að
mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðrún Karls Helgu-
dóttir og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir
þjóna. Kór Grafarvogskirkju leiðir
söng. Organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar
ásamt messuhópi. Antonía Hevesi og
Kirkjukór Grensáskirkju flytja tónlist
og leiða sönginn. Málverkasýning
Hólmfríðar Ólafsdóttur í forsalnum.
Sameiginlegur sunnudagaskóli Foss-
vogsprestakalls er í Bústaðakirkju kl.
11. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.
Hannes Guðrúnarson leikur á gítar.
Fimmtudagur: Núvitundarstund kl.
18.15, einnig á netinu, og opinn fund-
ur 12 spora starfs Vina í bata kl.
19.15.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.
11. Leifur Ragnar Jónsson prestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkju-
kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn
Hrannar Helgadóttur organista. Hvetj-
um fermingarbörn og foreldra þeirra
að koma í messuna.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili í
umsjá sr. Péturs Ragnhildarsonar og
félaga. Kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir
messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti er
Guðmundur Sigurðsson. Þórunn Vala
Valdimarsdóttur syngur. Sunnudaga-
skólinn hefst kl. 11 og hefur Rósa
Hrönn Árnadóttir umsjón með fjöl-
breyttri dagskrá. Kaffi og djús eftir
stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Eiríkur Jóns-
son, Kristný Rós Gústafsdóttir djákni
og Ragnheiður Bjarnadóttir leiða þjón-
ustuna. Messuhópur aðstoðar. Organ-
isti er Björn Steinar Sólbergsson. For-
söngvarar syngja.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 17. Sr. Helga Kolbeins-
dóttir leiðir stundina ásamt Matta Sax
og Lofgjörðarhóp Hjallakirkju sem sjá
um tónlistina. Eftir stundina verður
boðið upp á mat í safnaðarsalnum
gegn vægu gjaldi.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma með lofgjörð, fyrirbænum
og barnastarfi kl. 11. Ragnar Schram
prédikar. Kaffi að samverustund lok-
inni.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 14. Kór Kálfatjarnarkirkju
syngur undir stjórn Ingvars Afreðsson-
ar. Prestur er Arnór Bjarki Blomster-
berg. Fundur með foreldrum ferming-
arbarna að guðsþjónustu lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Kvöldmessa
kl. 20. Dagný Maggýjar, höfundur bók-
arinnar Á heimsenda, flytur hugleið-
ingu. Sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir
stundina og Arnór Vilbergsson organ-
isti leikur undir söng hjá Kór Keflavík-
urkirkju.
KIRKJUSEL - Spönginni | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sig-
urðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir
söng. Undirleikari er Gísli Magna Sig-
ríðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl.
11 í Borgum, safnaðarheimili Kópa-
vogskirkju. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar
úr Kór Kópavogskirkju syngja undir
stjórn Lenku Mátéová.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11, sem Marta,
Arngrímur og Hera leiða. Við messuna
syngja félagar úr Kór Langholtskirkju
undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar
organista. Guðbjörg Jóhannesdóttir
sóknarprestur þjónar við messuna
ásamt messuþjónum. Fermingarbörn
2022 og fólkið þeirra eru sérstaklega
boðin velkomin. Kaffisopi eftir
messu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjón-
ar fyrir altari og prédikar. Kirkjukór
Lágafellssóknar syngur og leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Þóðar Sigurð-
arsonar organista. Kirkjuvörður er
Bryndís Böðvarsdóttir.
Sunnudagaskóli kl. 13. Bogi og Þórð-
ur leiða stundina.
www.lagafellskirkja.is
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Sunnudag-
inn 12. sept. kl. 14 verður uppskeru-
messa, barnastarf og aðalfundur
safnaðarins eftir messu. Hvetjum ykk-
ur til að mæta með uppskeru sumars-
ins til að smakka á í maulinu. Séra
Pétur sér um messuhald og Kristján
Hrannar sér um tónlistina. Ólafur mun
taka á móti kirkjugestum að venju.
Sandgerðiskirkja | Fjölskylduvæn
messa kl. 18.30. Fermingarbörn sér-
staklega boðuð ásamt foreldrum sín-
um. Almennur söngur.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Sóli og Bára leiða samveruna
og Tómas Guðni spilar á píanóið.
Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Félagar úr Kór Seljakirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Tóm-
as Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli og guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Sól-
veig Ragna Jónsdóttir er umsjónar-
maður sunnudagaskólans. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngja. Kaffiveitingar og samfélag eft-
ir athöfn í safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Við tölum
um þakklætið, það verður mikið sung-
ið og kirkjubrúðurnar koma í heim-
sókn. Rusa Petriashvili er organisti og
kórinn leiðir okkur í söng. Sr. Sigríður
Rún Tryggvadóttir og Berglind Hönnu-
dóttir leiða stundina. Meðhjálpari er
Jóhann Grétar Einarsson. Væntanleg
fermingarbörn og fjölskyldur boðin
sérstaklega velkomin. Eftir guðsþjón-
ustu er fundur með þeim um fyrir-
komulag fræðslunnar í ár.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Axel Á Njarðvík
annast prestsþjónustuna. Organisti
er Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Fjölskylduvæn
messa kl. 17. Fermingarbörn vetrar-
ins sérstaklega boðuð ásamt foreldr-
um sínum. Almennur söngur.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónustur
kl. 11 og 13. Upphaf fermingar-
starfsins. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
og sr. Henning Emil Magnússon.
Fundir með foreldrum og fermingar-
börnum vorsins 2022 eftir athafnirn-
ar. Góður gestur sem fermdist í
Garðabæ fyrir nokkrum árum leikur og
syngur. Kór Vídalínskirkju syngur undir
stjórn Jóhanns Baldvinssonar.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Fjölskylduhátíð kl. 11 í umsjá sr.
Braga, Benna Sig. og Sveins Arnars,
nýs organista kirkjunnar. Sérstakur
gestur verður Ari Ólafsson tenór-
söngvari. Boðið verður upp á pylsur og
tilheyrandi á eftir.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kirkjan á Sólheimum í Grímsnesi.
✝
Ásgeir G. Sig-
urðsson fædd-
ist 30. ágúst 1942 í
Bolungarvík. Hann
lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Bergi í Bolung-
arvík 27. ágúst
2021. Foreldrar
hans voru Sigurður
Skagfjörð Krist-
jánsson, f. 30. jan-
úar 1920, d. 23. júlí
1986, og Guðrún Magnúsdóttir,
f. 5. október 1917, d. 23. mars
2009.
Ásgeir ólst upp í Bolung-
arvík og Ísafirði og
bjó allan sinn aldur
á Ísafirði. Hann
stofnaði heimili á
Ísafirði og eign-
aðist fjögur börn:
Sigurð Kristján,
Guðrúnu Margréti,
Rannveigu og Hlyn
Geir.
Útför Ásgeirs
fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag,
11. september 2021, klukkan
14.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Afi Geiri var enginn venju-
legur afi, enda átti hann strætó
og allir þekktu afa Geira. Afi
átti líka allar heimsins plötur og
geisladiska enda mjög músík-
alskur og áttu tónlistin, strætó
og bílar yfirhöfuð oftast nær
hug hans allan. Við systurnar
og vinkonurnar gátum alltaf
stólað á það að ef nýr geisla-
diskur kom út gátum við fengið
að spila hann innan örfárra
daga, ef ekki samdægurs.
Tónlistin átti stóran part af
lífi afa. Þegar við systur byrj-
uðum í skóla þá byrjuðum við í
tónlistarnámi einnig og afi pass-
aði alltaf upp á það við værum
vel æfðar og leyfði ekki ísblóm
fyrr en það væri búið að renna
einu sinni eða tvisvar yfir allar
píanóæfingarnar og lögin sem
spila átti þá vikuna. Alltaf kom
afi á allar samæfingar og alla
tónleika. Alveg frá því Gamli
Nói byrjaði að hljóma á píanóið
og þar til hann þróaðist yfir í
lengri og flóknari aríur.
Afi Geiri var algjör bílakall
og kenndi okkur eldri systrun-
um að keyra. Þegar æfingaleyf-
ið var komið þá byrjaði ökuskóli
afa. Afi sótti okkur nánast dag-
lega og kenndi okkur allt sem
við þurftum að kunna um bíla
og umferð. Stóri plúsinn var svo
sá að þegar ökuleyfið var komið
þá mátti taka rúnt á Kadilakkn-
um, eða „keyrandi sófasettinu“
eins og afi kallaði hann oft.
Elsku afi Geiri. Við systur er-
um ævinlega þakklátar allri
þeirri þolinmæði sem þú sýndir
okkur alla tíð. Öll þolinmæðin
sem þú sýndir okkur yfir mis-
löngum og áhugaverðum lögum
sem fengu að hljóma á píanóið
jafnt sem nikkuna. Öll þolin-
mæðin að skutlast með okkur
hingað og þangað og taka á
móti vinkonuhópunum þegar
okkur hentaði að heimsækja afa
Geira. Öll þolinmæðin í að spila
rakka við eldhúsborðið aftur og
aftur á meðan við gæddum okk-
ur á ísblómum og horfðum yfir
fallega fjörðinn okkar. Öll þol-
inmæðin í allt sem skruddunum
dísunum þínum datt í hug
hverju sinni.
Afi Geiri rokkarinn sá,
dísunum sínum kenndi,
að tónlistinni alltaf una má,
meðan brautinni hann eftir renndi.
Elsku afi Geiri, þín verður
sárt saknað, en eitt er víst;
minning þín mun lifa og hljóma
með okkur í hverju lagi.
Þórdís, Herdís og Arndís.
Ásgeir G.
Sigurðsson
Minningar
Sumarið var tím-
inn, þegar kveðju-
stundin kom. Sál
þín varð að yfirgefa þau híbýli
sem höfðu hýst hana frá fæð-
ingu. Illvígur sjúkdómur hafði
laskað líkamann það illa að engu
varð bjargað þótt reynt væri af
læknavísindum nútímans. Sálin
yfirgaf samt ekki íverustað sinn
fyrr en hún hafði náð að kveðja.
Beið eftir syninum, þar til hann
kæmi heim af hafinu til að
kveðja hann áður en ferðin sem
við endum öll á að fara væri far-
inn.
Mín kæra móðir Elley, eins
og hún var kölluð, var fædd á
því ári þegar lýðveldið Ísland
var stofnað. Uppeldi hennar hef-
ur því mótast af þeirri umræðu
og samfélagsgerð sem þá var í
þróun og mótun. Hún var Vest-
mannaeyingur, stolt af sínu sam-
félagi. Vildi því vel í alla staði og
hag þess sem bestan. Lífið lék
ekki við mína kæru móður síð-
ustu árin. Háði þrjár orrustur
við meinið sem enn ógnar mörg-
um, sú síðasta varð ekki umflúin.
Enginn samningur í boði, ekkert
vopnahlé, meinið sigraði. Ól okk-
ur börnin sín upp við kærleik og
Elín Bjarney
Jóhannsdóttir
✝
Elín Bjarney
Jóhannsdóttir,
Elley, fæddist 19.
september 1944.
Hún lést 13. júlí
2021.
Útför Elleyjar
fór fram 22. júlí
2021.
hlýju. Leiðbeindi
þegar þess þurfti
og var ég sá sem
hún leiðbeina þurfti
oftar en hinum
börnum sínum, held
ég. Kærleikur
mömmu í minn
garð var ómetan-
legur og til allra
sinna afkomenda.
Umvafði mig hlýju,
í blíðu og stríðu,
kenndi réttsýni og sanngirni,
það voru eiginleikar sem ég
skyldi tileinka mér. Móðir sem
fróðleikurinn var sóttur til þegar
leysa þurfti verkefni sem vöfðust
fyrir drengnum hennar.
Sumarið var tíminn sem var
valinn fyrir þig mín elskulega
móðir, Elín Bjarney. Ferðin
skyldi farin yfir landamærin
sem við vitum ekkert um, né
hvað bíður handan þeirra.
Yndislega eyjan mín,
ó, hve þú ert morgunfögur!
Úðaslæðan óðum dvín,
eins og spegill hafið skín,
yfir blessuð björgin þín
breiðir sólin geislakögur.
Yndislega eyjan mín,
ó, hve þú ert morgunfögur!
(Sigurbjörn Sveinsson)
Ég veit og trúi því að fegurð
morgundagsins hafi blasað við
þér hinum megin landamæranna
mín kæra móðir.
Hafðu þökk fyrir að kenna,
miðla og gefa.
Þinn sonur,
Svavar Örn Svavarsson.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi