Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
✝
Dómhildur Ei-
ríksdóttir
fæddist á Bíldudal
15. júní 1934 en
flutti ung að aldri á
Patreksfjörð. Hún
lést á Patreksfirði
29. ágúst 2021.
Foreldrar hennar
voru Guðbjörg Sig-
urey Indriðadóttir,
fædd 24. desember
1909, dáin 17. júní
1972, og Eiríkur Guðni Guð-
mundsson, fæddur 8. janúar
1911, dáinn 16. september 1936.
Uppeldisfaðir hennar var Þor-
valdur Eggertsson, fæddur 3.
maí 1908, dáinn 17. ágúst 1974.
Finnbogadóttir, f. 24. maí 1953,
maki Snæbjörn Gíslason og eiga
þau 3 syni og 8 barnabörn. 3)
Sigurey Finnbogadóttir, f. 3.
nóvember 1955 og á hún 3 börn
og 3 barnabörn. 4) Hafdís Finn-
bogadóttir, f. 18. desember
1956, maki Steinar Sigurðsson
og eiga þau 2 börn og 3 barna-
börn. 5) Hafrún Rafnar Finn-
bogadóttir, f. 2. mars 1958,
maki Jónas Rafnar Ingimarsson
og eiga þau 2 börn og 3 barna-
börn. 6) Steinunn Finnbogadótt-
ir, f. 10. október 1962, maki
Freyr Héðinsson og eiga þau 3
syni og 7 barnabörn. 7) Þorvald-
ur Finnbogason, f. 31. ágúst
1971, maki Þórdís Ögn Þórð-
ardóttir og eiga þau 4 börn og 2
barnabörn.
Útför Dómhildar fer fram frá
Patreksfjarðarkirkju í dag, 11.
september 2021, klukkan 13.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Bróðir Dómhildar
var Eiríkur Guð-
berg Þorvaldsson,
fæddur 20. sept-
ember 1941, dáinn
1. desember 1996.
Dómhildur starf-
aði lengst af sem
húsmóðir en stofn-
aði einnig bílaleigu
sem hún rak í tvo
áratugi. Hún giftist
Finnboga Helga
Magnússyni skipstjóra, fæddum
28. maí 1931, dánum 2. maí
1984. Þau eignuðust sjö börn: 1)
Reynir Örn Finnbogason, f. 19.
desember 1951 og á hann 6
börn og 8 barnabörn. 2) Kristín
Einhvers staðar segir „að
heilsast og kveðjast, það er lífsins
saga“ og nú er komið að kveðju-
stund. Hún elsku amma okkar og
langamma er látin. Þú varst okk-
ur öllum svo kær og minningarn-
ar sem spretta fram eru margar.
Minningar um allar góðu stund-
irnar á Urðargötunni, í Fjarðar-
horni að veiða og þegar þú varst á
faraldsfæti og heimsóttir okkur.
Við munum geyma þær allar í
hjarta okkar um ókomna tíð. Við
treystum því að þú finnir ein-
hvern til að baka súkkulaðibita-
kökur fyrir og spila yatzy með á
lokaáfangastaðnum.
Við elskum þig.
Sigurður, Þórey,
Þóra, Una Karen,
Steinar og Ómar Frosti.
Ljúfar minningar fara um
huga minn þegar ég sest niður til
að koma orðum á blað um elsku
ömmu mína. Frá því ég man eftir
mér var amma alltaf til staðar
fyrir mig og þó að það væri langt
á milli okkar pössuðum við alltaf
að láta ekki líða marga daga á
milli símtala.
Ég man eftir ótal stundum í
eldhúsinu á Urðargötunni þar
sem amma kenndi mér að baka og
leyfði mér að taka þátt í allri elda-
mennsku. Hjá ömmu kviknaði
áhuginn á matreiðslu og því er
kannski ekki skrítið að ég hafi
valið að læra það fag og er mat-
reiðslumaður í dag.
Ég man eftir öllum ferðunum
vestur. Mér leiddist aldrei hjá
ömmu á Patró enda fannst henni
mikilvægt að ég hefði alltaf eitt-
hvað fyrir stafni og var hún dug-
leg að spila við mig og dúllast með
mér. Amma spilaði meira að segja
á gítar og söng og kenndi mér
mín fyrstu grip og Ljóma-lagið.
Eftir bílferðina vestur til ömmu
gat maður verið viss um að fá eitt-
hvað gott að borða og var hún
gjarnan tilbúin með kjötsúpu.
Haninn var alltaf fullur af súkku-
laðibitakökum og átti hún yfirleitt
hveitikökur, skinkuhorn, tísku-
tertu eða annað bakkelsi til í
frystinum. Það þurfti því ekki að
hafa áhyggjur af því að eiga ekki
eitthvað til að bjóða upp á ef gesti
bar óvænt að garði. Það voru allir
velkomnir heim til ömmu og betri
gestgjafa hef ég ekki hitt. Hún
vildi að öllum liði vel og það mátti
alls ekki fara frá henni svangur
og passaði hún upp á það.
Minningarnar eru óteljandi og
samverustundirnar með ömmu
voru alltaf kærleiksríkar og
skemmtilegar. Þær mun ég alltaf
varðveita. Við gátum alltaf hlegið
og skemmt okkur en líka talað um
allt milli himins og jarðar, ég gat
alltaf leitað til ömmu. Ef til væri
handbók um það hvernig á að
vera góð amma þá væri hún skrif-
uð um ömmu mína því hún var
einfaldlega best.
Elsku amma, hvíldu í friði,
minning þín mun alltaf lifa í hjört-
um okkar. Ég verð alltaf stelpan
þín og þú alltaf besta amman mín.
Eva Dögg Þorvaldsdóttir.
Elsku amma mín, mikið er erf-
itt að sætta sig við að þú sért farin
frá okkur en þetta er víst það eina
sem er öruggt þegar að við fæð-
umst í þennan heim, en aldrei er
maður tilbúinn þegar að þessu
kemur.
Betri ömmu var ekki hægt að
hugsa sér að eiga. Alltaf sast þú
uppi með mig þegar mamma og
pabbi fóru eitthvað og gátu ekki
tekið mig og Gísla bróður með sér
þegar við vorum litlir, enda vildi
ég hvergi annars staðar vera en
hjá þér.
Mikið sem maður á eftir að
sakna þess að heyra í þér reglu-
lega í síma og að koma til þín í
Urðargötuna sem hefði svo sann-
arlega mátt vera oftar í seinni tíð.
Að hitta þig og fá að njóta sam-
verustunda með þér helgina fyrir
andlátið þitt, bæði í fermingar-
veislu yngsta stráksins míns og í
brúðkaupi Þorvaldar og Þórdísar
var bæði yndislegt og ómetanlega
dýrmætt fyrir mig og mína fjöl-
skyldu.
Elska þig og þú munt alltaf
vera í hjarta mínu. Elsku mamma
og systkini, megi góður guð
styrkja ykkur í þessum mikla
missi og sorg.
Þinn
Finnbogi Helgi.
Hugur leitar til löngu liðinna
stunda, svo ljúfar sem þær voru.
Minningar streyma fram. Þessar
ljóðlínur koma fyrst upp í hugann
er ég minnist Dómhildar:
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt hjartans mál.
(IS)
Það var mikil gæfa fyrir mig að
vera send til Dómhildar Eiríks-
dóttur og Finnboga Magnússon-
ar skipstjóra. Þá var ég á þrett-
ánda ári og átti að hjálpa til á
heimilinu, aðallega að gæta
yngstu barnanna. Þá höfðu þessi
ungu hjón eignast fimm börn, það
yngsta eins árs og elsta á áttunda
ári, hvert öðru yndislegra. Strax
á fyrsta degi fékk ég að finna að
ég var ein af fjölskyldunni. Við-
mótið frá þeim bar þess glöggt
merki. Á þessum tíma bjuggu þau
í Stúkuhúsinu. Þetta var samhent
og góð fjölskylda og ég á margar
góðar minningar af veru minni
hjá henni. Dómhildur stjórnaði
öllu heima með mikilli festu og
dugnaði á meðan Finnbogi stund-
aði sjóinn. Hún var mikil húsmóð-
ir, hvort sem kom að þrifum, mat-
argerð, saumaskap eða öðru sem
við kom heimilishaldi. Allt lék í
höndunum á henni, enda dugnað-
arforkur alla tíð.
Dómhildur var sérstaklega
næm á líðan annarra og öllum leið
vel í návist hennar. Aldrei sagði
hún styggðaryrði við mig, faðm-
aði mig jafnan í lok dags. Hún var
greind og skarpskyggn, mjög
heilsteypt, hrein og bein og
óhrædd að segja sínar skoðanir.
Hún var einstaklega falleg og
hafði mikla útgeislun, sem lét
engan ósnortinn; sannkallaður
demantur. Eftir að veru minni
lauk hjá þeim í Stúkuhúsinu
byggðu þau sér stórt og fallegt
hús við Urðargötu. Er þangað var
komið bættust tvö yndisleg börn
við fallega hópinn þeirra. Vetur-
inn 6́5-́66 bjuggu þau í Reykjavík.
Þá fór Finnbogi í nám í Skip-
stjóra- og stýrimannaskólanum.
Ég hitti Dómhildi eitt skipti
þennan vetur. Við hittumst af til-
viljun í miðbænum og fórum á
kaffihús og áttum þar notalega
stund. Ekki grunaði mig þá að
verðandi eiginmaður minn væri á
þeim tíma skólabróðir Finnboga
og að þeir væru góðir vinir.
Sveinn minn sagði mér síðar að
hann hefði oft komið til þeirra í
Vesturbæinn. Alltaf þegar ég
heimsótti Dómhildi var tekið vel á
móti mér og ekki vantaði kræs-
ingarnar. Ég man sérstaklega
eftir því er ég heimsótti hana á
Urðargötu að mér fannst hún
eins og drottning í ríki sínu í
þessu stóra, fallega húsi; það var
eitthvað svo ævintýralegt og á
skemmtilegum stað þaðan sem
sést vel yfir höfnina. Það var vel
við hæfi fyrir þau.
Elsku besta Dómhildur mín,
bestu þakkir fyrir allt sem þú
kenndir mér og hversu góð og
þolinmóð þú varst alltaf við mig.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(IS)
Börnum Dómhildar, tengda-
börnum og öllum öðrum ástvinum
sendi ég mínar dýpstu samúðar-
kveðjur. Góður Guð gefi þeim öll-
um styrk í sorginni.
Guðríður Guðbjartsdóttir.
Okkar góða vinkona Dómhild-
ur Eiríksdóttir er fallin frá, hún
var einstaklega glæsileg kona en
umfram allt hlý og vönduð mann-
eskja. Hún skilur eftir sig góðar
minningar í hugum okkar.
Við kynntumst þeim hjónum
þegar við vorum að vinna við
tannlækningar á Patreksfirði ár-
in 1976-79. Við bjuggum í sama
húsi og fljótlega myndaðist með
okkur góður vinskapur. Oft var
boðið í kaffi á efri hæðinni, þar
kynntumst við hennar stóra
barnahópi. Ógleymanlegar eru
ferðirnar sem við fórum í laxveiði
með þeim hjónum í Laugardalsá í
Skálmardal, þar voru þau öllum
hnútum kunnug og kynntu það
fyrir okkur. Eftir að Finnbogi féll
frá hittum við Dómhildi alltaf af
og til og áttum við skemmtilegar
stundir saman með henni í berja-
mó fyrir vestan og seinna í lax-
veiðum í Laxá á Skógarströnd
þar sem við höfðum aðstöðu til að
rifja upp gamla takta. Seinni árin
töluðum við oft saman í síma og
hún kom við hjá okkur þegar hún
kom suður. Alltaf þegar við hitt-
umst var hún jafn einlæg og ást-
rík, ég var alltaf á leið til hennar
vestur, en nú er það orðið of seint,
svona líður tíminn út úr höndun-
um á okkur.
Elsku Dómhildur við kveðjum
þig með söknuði, þú sem gafst svo
mikið af þér. Takk fyrir vináttu
þína. Fjölskyldu hennar sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Minning hennar mun lifa
og vera ljós í lífi þeirra sem
kynntust henni.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Íris Bryndís og Jón Birgir
Dómhildur
Eiríksdóttir
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins.
Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STEFÁN HJÁLMARSSON
svæfinga- og gjörgæslulæknir,
lést á heimili sínu 31. ágúst.
Útför hans fer fram þriðjudaginn
14. september klukkan 13 frá Hafnarfjarðarkirkju.
Streymt verður frá athöfninni á
https://youtu.be/LrQ3PvrhFQw
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á Dropann, styrktarfélag sykursjúkra barna.
Unnur Rannveig Stefánsdóttir
Tinna Mjöll Stefánsdóttir
Hjálmar Stefánsson Rakel Ýr Ólafsdóttir
Margrét Stefánsdóttir Guðmundur Snorri Eysteins.
Magnus Julius
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR GUNNARSSON,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða
föstudaginn 3. september. Útför hans fer
fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
14. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef
Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Skógræktarfélag
Skilmannahrepps kt.: 490399-2089, bankareikningur nr.
0552-26-1872.
Sigurður Pétur Sigurðsson Kolbrún Gunnarsdóttir
Runólfur Þór Sigurðsson Soffía Örlygsdóttir
Guðmundur Gísli Sigurðsson Kristín Guðrún Jónsdóttir
Sigmundur Garðar Sigurðs. Guðríður Guðmundsdóttir
Sigurlín Margrét Sigurðard. Magnús Sverrisson
Helga Sigurðardóttir Halldór Karlsson
Guðráður Gunnar Sigurðs. Ása Líndal Hinriksdóttir
afabörnin og langafabörnin
Elsku systir okkar,
GÍGJA GUÐFINNA THORODDSEN,
Starengi 6, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítala
miðvikudaginn 8. september.
Ólafur E. Thóroddsen
Ásta St. Thoroddsen
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR
leikskólakennari,
Þorrasölum 5-7,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 9. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Magnús Kr. Halldórsson
Unnur Gyða Magnúsdóttir Maron Kristófersson
Ólafur Magnússon Rakel Ýr Sigurðardóttir
Halldór Guðjón Magnússon Erna Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR RAGNARSSON,
Sólmundarhöfða 7, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi þriðjudaginn 7. september, útför
hans fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 16. september klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á að styrkja badmintonfélag
Akraness: Bankanúmer 0186-26-9026, kt. 430169-6109.
Drífa Harðardóttir
Faisal, Salma og Sara
Una Harðardóttir
Ragnar Harðarson