Morgunblaðið - 11.09.2021, Side 39

Morgunblaðið - 11.09.2021, Side 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendum við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát ✝ Hallsteinn Sverrisson fæddist á Ísafirði 7. desember 1941. Hann lést 19. ágúst 2021. Foreldrar hans voru hjónin Unnur S. Gísladóttir, fædd 23.3. 1911 á Skára- stöðum í Miðfirði, Vestur-Húnavatns- sýslu, dáin 10.12. 2003, og Sverrir S. Guðmunds- son, fæddur 23.12. 1909 á Ísa- firði, dáinn 26.11. 1968. Systir Hallsteins er Sigríður Sverr- isdóttir, f. 7.2. 1940. Fyrri kona hans var Hjördís Þorsteinsdóttir, f. 1945, d. 2002. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Óttar Víðir, f. 4.6. 1963, tækni- fræðingur hjá Marel. Kona hans er Helga Guðmundsdóttir, þau eiga þrjá syni: Andra, f. 17.9. verkastofunni. Þeirra börn eru Eysteinn Skúli, f. 14.5. 2017, og Glódís Anna, f. 27.3. 2020. Fyrri maður Önnu Eyglóar var Ólafur Indriðason, f. 1945, d. 2018. Dótt- ir þeirra: Eygló Björk, f. 19.11. 1967, viðskiptafræðingur. Maður hennar er Eymundur Magn- ússon, bóndi í Vallanesi á Héraði. Hallsteinn ólst upp á Ísafirði. Flutti til Reykjavíkur 1959 og lærði prentiðn. Hann vann í Prentsmiðjunni Eddu, Blaða- prenti og síðan í Prentsmiðjunni Odda til 1983. Þá stofnuðu hann og Anna prentsmiðjuna Límmiðaprent og unnu eftir það bæði við þann rekstur. 2007 seldu þau prentsmiðjuna og vann Hallsteinn í Vörumerk- ingu til 2011 þegar hann fór á eftirlaun. Hallsteinn dvaldi á Hjúkrunarheimilinu Grund síð- ustu átta mánuðina en hann þjáðist af Alzheimers- sjúkdómnum. Útför Hallsteins hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. 1988, Hlyn f. 18.1. 1993, og Aron, f. 23.7. 1996. 2) Elín, f. 24.5. 1967, fyrri maður hennar var Hergeir Elíasson. Barn þeirra er Hel- en, f. 31.12. 1990. Seinni maður er Sig- urður Rúnarsson. Synir þeirra eru Vic- tor, f. 19.7. 2001, og Theodór, f. 4.5. 2004. Barnabarnabörnin eru þrjú. Eftirlifandi eiginkona Hall- steins er Anna Eygló Antonsdótt- ir, f. 13. janúar 1947. Foreldrar: Anton Sigurðsson bifreiðarstjóri, f. 1919, d. 1988, og kona hans Anna Hulda Victorsdóttir, f. 1926, d. 1985. Dóttir þeirra er Unnur Elfa, lögfræðingur í félagsmála- ráðuneytinu, f. 21.6. 1988. Maður hennar Jóhann Skúli Jónsson, f. 20.6. 1991, lögfræðingur hjá Hug- Elsku pabbi minn, nú hefur þú kvatt þetta líf eftir erfið veikindi síðustu ár. Eftir standa allar góðu minningarnar sem við áttum sam- an og ég er svo þakklát fyrir. Allar góðu samverustundirnar í Langa- gerðinu koma helst upp í hugann. Allar stundirnar sem við eyddum uppi í rúminu ykkar mömmu þar sem þú last Morgunblaðið og ég japlaði á Maryland-kexi yfir barnatímanum. Einnig man ég eftir öllum göngutúrunum um hverfið okkar og leiðinni sem við kölluðum „litla hringinn“ en þeir göngutúrar end- uðu oftast með því að þú keyptir bland í poka fyrir mig í Kúlunni eða Kallabúðinni og svo fórum við heim og horfðum á gamlar Spaug- stofur og Áramótaskaup. Svo má ekki gleyma öllum ferðalögunum, bæði til Ísafjarðar að heimsækja alla ættingjana okkar og öllum ferðunum upp í bústað en þar man ég best eftir þér að laga og dytta að bústaðnum og súpa kaffi í sól- inni á meðan ég og Unnur Sif lék- um úti í móa. Pabbi var prentari og stofnaði ásamt mömmu prentsmiðjuna Límmiðaprent. Sá rekstur gekk alla tíð vel og voru mamma og pabbi lánsöm með það samstarf. Ég á líka margar góðar minningar af prentsmiðjunni þar sem þú titl- aðir mig alltaf forstjórann (Moli var svo framkvæmdastjóri). Ég kom oft að heimsækja þig í vinn- una og oftar en ekki settirðu upp leik þar sem þú kallaðir „BÖ“ og ég hljóp þvert yfir alla prentsmiðj- una í fangið á þér. Pabba fannst svo gaman að ferðast og þar voru Bandaríkin í miklu uppáhaldi. Hann elskaði allt sem viðkom bandarískri menn- ingu og þá sérstaklega góða kántrítónlist. Ég man eftir öllum ferðunum sem ég var svo heppin að fara í með ykkur mömmu en ég held að það sé ykkur að þakka hversu ferðaglöð ég hef verið í gegnum lífið. Í þessum ferðum nutum við þess að keyra um, borða góðan mat og oftar en ekki fara í skemmtigarða þar sem ég dró þig í öll stærstu tækin enda varstu alltaf tilbúinn að gera allt með mér. Þú kenndir mér líka að það væri alltaf nauðsynlegt að njóta, sér í lagi þegar dvalið var á hót- elum. Hvort sem það var á Hótel Ísafirði þar sem ég fékk að horfa á Stöð 2 eða að borða York-súkku- laðistykki og blueberry muffin í morgunmat á Sheraton-hótelinu í New York. Síðustu ár voru erfið og það var sárt að sjá veikindin taka yfir. Ég er samt svo þakklát að hafa náð að kveðja þig og eiga góða stund með þér og góðvini okkar Johnny Cash rétt áður en þú kvaddir þetta líf. Þetta var komið gott og ég er viss um að þú ert á betri og sólríkari stað núna, þar sem nóg er af góðu nautakjöti og kántrítónlist. Ég elska þig, elsku pabbi minn, og ég og mamma munum sakna þín mik- ið. Lát anda þinn gæta hans, Guð, og garðstíg hvern óma af söng. Sjá, litrófið glóir. Ég geng undir glitrandi regnbogans hlið. (Hjörtur Pálsson) Unnur Elfa Hallsteinsdóttir. Ég kynntist Hallsteini þegar ég var 13 ára þegar hann og móðir mín tóku saman. Hallsteinn var ekki fyrirferðarmikill maður og tók sér því ekki eitthvert sérstakt hlutverk gagnvart mér, en hann varð partur af miðju sem ég hef notið að vera hluti af í nær 40 ár. Langagerðið varð heimili okkar fljótlega eftir að þau mamma kynntust og varð að því hjarta sem maður kallar „heima“. Í Langagerðinu ríkti stöðugleiki, þar var daglegt líf reglubundið og taktfast. Reglufestan birtist hvað skýrast á aðfangadag; aspassúp- an, svínasteikin og sósan. Frönsku strákartöflurnar, rauðkálið. Við þessu vildi enginn hrófla og ég missti aldrei af því að halda jólin í Langagerðinu. Hallsteinn tók steikina mjög alvarlega, eins og alla eldamennsku á kjöti. Glað- værðin einkenndi heimilið í Langagerði og á jólunum voru hlátrasköllin slík að það glumdi í, sér í lagi þegar Unnur litla systir stríddi pabba sínum með því að skálda upp á hann einhverja vit- leysu með úrklippubókum og öðr- um prakkaraskap. Já, Hallsteini þótti gott að láta stríða sér. Það var mikið hlegið, hann hafði góðan húmor og var snöggur til svars. Hallsteinn var prentari að mennt og stofnaði fyrirtækið Límmiðaprent ásamt mömmu sem þau ráku til ársins 2007. Það var Hallsteini mikilvægt að vera sjálf- stæður atvinnurekandi, að njóta frelsis til athafna og ávaxtanna þegar vel gekk. Hann heillaðist af Ameríku, elskaði kántrítónlist, mjúka bíla og steikur. Hann gerð- ist sérfræðingur í matreiðslu á nautakjöti á þeim tíma sem Íslend- ingar fóru að meðhöndla það af virðingu. Maður naut þeirra for- réttinda að kjamsa á ribeye-, sirlo- in- og porterhouse-steikum sem grillaðar voru á stórum sérinnflutt- um grillum (frá Ameríku að sjálf- sögðu) og fékk síðan ítarlegan fyr- irlestur um kjötskurð og tímasetningar. Ég minnist Hallsteins fyrir góða samveru og hans hlutverk í að skapa stöðuga og örugga miðju í lífinu fyrir okkur öll. Stundum gaf á bátinn þar sem Hallsteinn átti í frekar erfiðu sambandi við áfengi framan af, en eigi að síður var þar gott fjölskyldulíf. Ég minnist hans fyrir léttleika og hnyttni, og geymi vel uppskriftir af ýmsu tagi sem hann skrifaði vandlega á blað fyrir mig. Fyrir þetta allt ber að þakka. Fyrir tæpu ári kvaddi ég Hallstein í síðasta skipti í anddyrinu á Langagerðinu, og þá mynd mun ég geyma í huga mér; hann var að flytja á Grund sem var heimili hans síðustu 8 mánuðina en hann glímdi við Alzheimer. Ég vissi að fram- undan yrðu erfiðir tímar fyrir Hall- stein en hann naut góðrar aðhlynn- ingar og vináttu á Grund. Ég mun sakna hans. Eygló Björk Ólafsdóttir. Fallinn er frá tengdafaðir minn Hallsteinn Sverrisson. Ég kynntist Hallsteini fyrir að verða sjö árum þegar ég tók saman við eiginkonu mína. Frá fyrstu mín- útu var mér tekið af mikilli vin- semd og umhyggju á heimili hans og Önnu Eyglóar og má segja að ég hafi mjög fljótt byrjað að líta á Langagerðið sem mitt annað heimili. Reyndar varð það síðar svo að við fjölskyldan fluttum inn á þau þegar við fluttum heim frá Belgíu og var alltaf lagt sig fram við að mér liði sem best a þeim tíma. Þegar sonur minn fékk ekki leikskólapláss dvaldi hann hjá Hallsteini afa sínum og ömmu sinni allan daginn, sem ég held að hafi gert báðum aðilum einstak- lega gott, en þó að hann hefði ekkert endilega mjög hátt um það veit ég að Hallsteini þótti ótrú- lega vænt um og hafði gaman af Eysteini hálfnafna sínum. Það er ómetanlegt fyrir son minn að hafa átt þennan tíma með afa sínum áður en hann fór og að eiga mynd- ir af því til að ylja sér við í fram- tíðinni þó að hann muni lítið muna eftir honum. Hallsteinn glímdi við erfið veikindi mestallan tímann sem við þekktumst en þó á ég margar góðar minningar af samtölum okkar þar sem hann ræddi ár sín á Ísafirði, drauma um að verða flugmaður og að sjálfsögðu gengi Aston Villa. Við deildum sömu- leiðis áhuga á ýmsu tengdu bandarískri menningu eins og mikilvægi þess að eiga gott grill og svo kynnti hann mér kántrý- tónlist af gamla skólanum. Hallsteinn reyndist barna- börnum mínum frábær afi að því leyti sem hann var fær um og mun ég alltaf eiga góðar minn- ingar um flottan mann. Megi hann hvíla í friði. Jóhann Skúli Jónsson. Hallsteinn Sverrisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.