Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 43 Helstu verkefni: • Ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni mannauðsmála • Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks í mannauðsmálum • Umsjónmeð ráðningum,móttöku nýrra starfsmanna og starfsþróun • Umsjón með þjálfun og fræðslu starfsfólks • Viðhalda jafnlaunakerfi og þróa áfram • Þróun ferla og umbóta á sviði mannauðs- og öryggismála • Umsjón með öryggis- og vinnuverndarmálum • Ábyrgð á frávikaskráningu og umbótaverkefnum • Umsjón með öryggis- og vöktunarkerfum Menntun og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Starfsreynsla á sviði mannauðs- og/eða öryggismála • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi • Færni til að greina gögn og setja fram upplýsingar Mannauðs- og öryggisstjóri Loðnuvinnslan óskar eftir að ráða mannauðs- og öryggisstjóra til starfa hjá fyrirtækinu. Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði. Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling. Við hvetjum alla til að sækja um starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892-7484, ragna@lvf.is Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið ragna@lvf.is Umsóknarfrestur er til ogmeð 17. september nk. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. H é ra ð sp re n t LVF Fyrirtæki ársins 2021 Grundarfjarðarbær Íþrótta- og tómstundafulltrúi og leikskólastjóri Grundarfjarðarbær er á miðju norðanverðu Snæfellsnesi. Í Grundarfirði og nágrenni er fjölskrúðug náttúra og gott mannlíf, atvinnuvegir og félagsstarf er fjölbreytt og samfélagið fjölskylduvænt. Hér er leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóli. Í Grundarfirði er aðstaða fyrir störf án staðsetningar, t.d. fyrir maka. Ferðatími til höfuðborgarinnar er um 2 klst. og samgöngur eru góðar. Viltu vera með í skemmtilegri uppbyggingu? Grundarfjarðarbær leitar að kraftmiklum stjórnendum, annars vegar til að móta nýtt starf og stýra verkefnum á sviði íþrótta- og tómstundamála og hins vegar til að stýra Leikskólanum Sólvöllum. Íþrótta- og tómstundafulltrúi Um er að ræða nýtt og spennandi starf. Það felst í þróun, skipulagningu, samræmingu og stjórnun íþrótta- og tómstundamála, forvarna og lýðheilsuverkefna á vegum bæjarins. Fag- og rekstrarleg ábyrgð á starfsemi íþróttamannvirkja, félagsmiðstöðvar unglinga og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Samstarf við félagasamtök, umsjón eða aðkoma að viðburðum. Leikskólastjóri Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli fyrir yngsta fólkið okkar; börn á aldrinum 12 mánaða til 5 ára. Leikskólastjóri ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans og jákvæðri skólaþróun. Sjá nánar á http://solvellir2.leikskolinn.is/ Leitað er að kraftmiklu fólki með góða forystu- og skipulagshæfileika, frumkvæði, lipurð í mannlegum samskiptum og færni í að tjá sig munnlega og skriflega. Ítarlegri upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfnikröfur o.fl. er að finna á grundarfjordur.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfreðs - alfred.is í síðasta lagi 26. sept. nk. Fylgja skal kynningarbréf, ferilskrá og samantekt með hugmyndum umsækjanda um nálgun, uppbyggingu og þróun faglegs starfs. Störfin henta hvaða kyni sem er. Nánari upplýsingar veitir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri, í síma 430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir á bjorg@grundarfjordur.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.