Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 47
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
„PABBI BAUÐ OKKUR Á SÆDÝRASAFNIÐ
OG DATT ÚT Í.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að vera í
sólskinsskapi.
SAGT ER AÐ MENN EIGI AÐ
VERA ÞAKKLÁTIR FYRIR LITLU
HLUTINA Í LÍFINU
RÉTT… EN SUMIR HLUTIR ERU
BESTIR Í YFIRSTÆRÐ!
ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ
ELSKA ÞENNAN STAÐ! ALLT SEM ÞÚ GETUR HUGSAÐ
ÞÉR AÐ BORÐA HLAÐBORÐ
ÓMINNISBRUNNUR 2007 – OG ÉG ER Á
HRAÐFERÐ.
unarmaður reikninga þess í 40 ár,
frá 1957-1997.
Þegar Hilmar hætti að vinna
fór hann að stunda pútt. „Ég
byrjaði í því til þess að hafa fé-
lagsskap og stundaði pútt með
púttklúbbi Suðurnesja í hartnær
15 ár.“
Fjölskylda
Eiginkona Hilmars er Ásdís
Jónsdóttir, húsfreyja, f. 24.2. 1927,
en þau giftust 7. júní 1952 og eiga
því 70 ára brúðkaupsafmæli næsta
vor. Foreldrar hennar voru hjónin
Jón Sigurðsson, bóndi og sjómað-
ur, f. 16.9. 1897, d. 7.12. 1966 og
Ágústa Sigurjónsdóttir, húsmóðir
og saumakona, f. 16.9. 1899, d.
28.8. 2000. Þau bjuggu í Keflavík.
Synir Hilmars og Ásdísar eru 1)
Jón Bjarni Hilmarsson, skrifstofu-
maður, f. 23.10. 1952, d. 15.7. 2007
og Pétur Kristinn Hilmarsson,
tölvunarfræðingur, f. 28.10. 1965,
kvæntur Önnu Borgþórsdóttur Ol-
sen, f. 26.2. 1965 og þau eiga börn-
in Borgþór Pétursson, f. 29.12.
1990; Ásdísi Olsen Pétursdóttur, f.
5.7. 1993 og Sigríði Þórdísi Péturs-
dóttur, f. 30.6. 1998. Systkini Hilm-
ars eru Jóhann Danival, f. 26.4.
1928; Lárus Kristján, f. 17.5. 1930,
d. 4.1. 2011; Páll, f. 21.5. 1940, d.
7.5. 2018 og Unnur Berglind, f. 9.4.
1943.
Foreldrar Hilmars voru hjónin
Pétur Lárusson, bóndi og hús-
vörður, f. 23.3. 1892, d. 4.5. 1986 og
Kristín Danivalsdóttir, húsfreyja,
f. 3.5. 1905, d. 9.11. 1997. Þau
bjuggu á Steini á Reykjaströnd í
Skarðshreppi í Skagafirði og síðar
í Keflavík.
Hilmar
Pétursson
Ingigerður Pétursdóttir
húsfreyja á Nautabúi í
Tungusveit, Skag.
Jón Jónsson
bóndi í Nautabúi,
Mælifellssókn, og í Merkigarði
í Tungusveit, Skag.
Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja í Úlfagili,
Höskuldsstaðasókn, Hún.
og á Litla-Vatnsskarði
Danival Kristjánsson
bóndi í Selhaga og Litla-
Vatnsskarði á Laxárdal
fremri, A-Hún. og í Úlfagili,
Höskuldsstaðasókn, Hún.
Kristín Danivalsdóttir
húsfreyja á Steini á
Reykjaströnd, Skag.,
síðar í Keflavík
María Guðmundsdóttir
húsfreyja og síðar ekkja á
Strjúgsstöðum í Langadal
Kristján Guðmundsson
bóndi á Strjúgsstöðum í
Langadal
Ingibjörg Hannesdóttir
húsfreyja á Steini á
Reykjaströnd, Skag., fór til
Winnipeg árið 1900
Sveinn Sigvaldason
bóndi á Steini á
Reykjaströnd og víðar í
Skagafirði og Húnaþingi,
síðast tómthúsmaður á
SauðárkrókiSigríður Björg
Sveinsdóttir
húsfreyja í Skarði í
Gönguskörðum, Skag.
Lárus Jón Stefánsson
bóndi í Skarði í
Gönguskörðum, Skag. Lilja Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Grófargili,
Glaumbæjarsókn, Skag. og í
Vatnshlíð á Skörðum,A-Hún.
Stefán Einarsson
bóndi í Vatnshlíð á Skörðum, á Grófargili á Langholti og víðar í Skagafirði
Úr frændgarði Hilmars Péturssonar
Pétur Lárusson
bóndi á Steini á Reykjaströnd,
Skarðshr., Skag., síðar
eftirlitsmaður í Keflavík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Léttur blær sér lyftir hér.
Löðrungur er veittur þér.
Heyskapur þá hafinn er.
Hraður nú í brjósti mér.
Þá er það lausnin frá Hörpu á
Hjarðarfelli:
Sláttur er vægur vindur.
Á vanga slátt fékk hann.
Sláttur í kýr og kindur.
Kona hjartslátt fann.
„Svona er nú slátturinn mergj-
aður“ segir Eysteinn Pétursson:
Leikur sláttur laufi í.
Leitt er slátt á kinn að fá.
Slátt við byrjum brátt á ný.
Bylmingshjartslátt finnum þá.
Guðrún B. á þessa lausn:
Slappt er í slættinum seglið.
Sláttur á vanga er sár.
Um sláttinn næringu neglið.
Ef nár, er hjartsláttur smár.
„Þá loks er það lausn vikunnar,“
segir Helgi R. Einarsson:
Hér gola, högg og heyskapur er,
sem hjartans sanni máttur.
Já, allt að sama brunni ber
og birtist okkur sláttur.
Sjálfur leysir Guðmundur gátuna
þannig:
Sláttur vart sér hreyfir hér.
Högg er sláttur veittur þér.
Heysláttur þá hafinn er.
Hjartsláttur í brjósti mér.
Þá er limra:
Í gærkveldi gerði regn,
sem góður og virkur þegn
ég fór út að slá
með sláttumanns ljá,
en sló samt ekki í gegn.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Æstir vindar árla dags
utan húsið lemja,
vaknaður ég leita lags
litla gátu að semja:
Tækifæri telja má.
Tíðum falskt það hljómar.
Ei með réttu ráði sá.
Rækja sálir frómar.
Páll Ólafsson orti (talin síðasta
visa hans):
Tregur sérhvert fer ég fet
fram að grafar barminum.
Sjónlaus ekki séð ég get
af sextugum konugarminum.
Gömul vísa í lokin:
Vertu góður, Geiri minn,
gleymdu óró þinni.
Einatt hljóðar auminginn
eftir móður sinni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er slegið úr og í
Ég var að leita eftir Omega-3 fitusýrum án eftirbragðs og var bent á Krill olíuna, sem ég hef
nú notað að staðaldri sl. 10 ár. Þessi olía blandast við vatn, sem aðrar fiskiolíur gera ekki
og innheldur einnig hið öfluga andoxunarefni astaxanthin, sem mér finnst vera mikill plús.
Ég finn það að með æfingum og réttu mataræði virðist regluleg inntaka Krill olíunnar hjálpa
mér að nota fitubirgðir líkamans betur og gera það að verkum að líkaminn verður tónaðri og
vöðvarnir sýnilegri. Ég mæli heilshugar með Krill olíunni frá Natures aid fyrir alla!
Sólveig Bergsdóttir Íslandsmeistari og landsliðskona í fimleikum.
Krill Oil
– öflugustu omega-3
fitusýrurnar!
Krill olía er omega 3 í sinni
hreinustu og öflugustu mynd, sótt í
Suðurskautshafið sem er hreinasta
hafsvæði veraldar. Líkaminn á mjög
auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar
í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir
inntöku.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.