Morgunblaðið - 11.09.2021, Page 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021
Ég fylgdist með Daníel Þór
Ingasyni í hluta leiksins gegn
Kiel í fyrstu umferð þýsku bun-
desligunnar í handknattleik í vik-
unni.
Daníel lék þá fyrsta leik sinn í
efstu deild í Þýskalandi en hann
fór til Balingen í sumar.
Varla er hægt að fá meiri eld-
skírn en að mæta Kiel á útivelli í
frumrauninni. Sjálfur hef ég far-
ið á völlinn í Kiel og stemningin í
höllinni er mögnuð.
Miðað við framgöngu Daníels í
leiknum verður áhugavert að sjá
hvernig honum vegnar í Þýska-
landi. Hann lék í miðri vörninni
og þurfti að glíma við leikmenn
á borð við Sagosen og Duvnjak.
Þegar liðið fór í hraðar sóknir
sótti Daníel af krafti á vörnina
og var áræðinn.
Nú er ég enginn sérstakur
áhugamaður um Daníel Þór
Ingason. En upp í hugann kemur
sú tilhugsun að breiddin í ís-
lenska landsliðinu sé að verða
nokkuð góð þegar öflugir varn-
armenn eru annars vegar.
Á síðustu árum hafa stöðurnar í
miðri vörninni í landsliðinu
stundum verið stöður sem erfitt
hefur verið að manna með góðu
móti. Ýmir Örn Gíslason og Elliði
Snær Viðarsson áttu góða leiki á
síðasta stórmóti og lofa mjög
góðu. Daníel öðlast nú reynslu í
Þýskalandi sem og Elvar Örn
Jónsson sem kominn er til Mel-
sungen. Þar leikur einnig Arnar
Freyr Arnarsson sem hefur burði
til að verða mjög góður. Auk
þess er Sveinn Jóhannsson
einnig inni í myndinni.
Í handboltanum er geysilega
mikið atriði að vörnin sé sterk
og þá ekki síst fyrir miðju. Ef
þessir menn halda áfram að
bæta sig getur landsliðið að
mínu viti orðið mjög gott.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valskonur fögnuðu Íslandsmeist-
aratitlinum með látum þegar liðið
fékk Selfoss í heimsókn í úrvals-
deild kvenna í knattspyrnu, Pepsi
Max-deildinni, á Origo-völlinn á
Hlíðarenda í lokaumferð deild-
arinnar í gær.
Leiknum lauk með 5:0-sigri Vals-
kvenna sem bókstaflega gengu af
göflunum í fyrri hálfleik þar sem
þær skoruðu öll mörk leiksins.
Cyera Hintzen skoraði tvívegis
fyrir Valskonur í leiknum og þær
Ásdís Karen Halldórsdóttir, Ída
Marín Hermannsdóttir og Fanndís
Friðriksdóttir sitt markið hver.
„Nýbakaðir Íslandsmeistarar
Vals voru smátíma í gang en þegar
það gerðist sýndi liðið frábæran fót-
bolta og lauk mótinu með stæl,“
skrifaði Stefán Stefánsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Valur lýkur keppni með 45 stig
en liðið vann fjórtán leiki á tíma-
bilinu, gerði þrjú jafntefli og tapaði
aðeins einum leik.
Selfoss er sem stendur í fjórða
sætinu en gæti fallið niður í það
fimmta ef Stjarnan vinnur Tindastól
á Sauðárkróki á morgun.
_ Þetta er í tólfta sinn sem Valur
verður Íslandsmeistari en liðið varð
síðast meistari árið 2019.
Lettarnir fóru mikinn
Viktorija Zaicikova gerði sér lítið
fyrir og skoraði þrennu fyrir ÍBV
þegar liðið vann 5:0-stórsigur gegn
Fylki á Hásteinsvelli í Vestmanna-
eyjum.
Þá skoraði Olga Sevcova tvívegis
fyrir ÍBV en hún og Zaicikova eru
báðar lettneskir landsliðsmenn.
Eyjakonur voru mun sterkari
aðilinn allan leikinn og var sigurinn
síst of stór. Fylkiskonur voru falln-
ar fyrir leikinn og leikmenn liðsins
virtust hafa lítinn áhuga á því að
yfirgefa deild þeirra bestu með
sæmd.
Eyjakonur eru með 22 stig í
sjöttta sæti deildarinnar en Fylk-
iskonur kveðja efstu deild í neðsta
sætinu með 13 stig.
_ Þrír leikmenn ÍBV skoruðu sjö
mörk í sumar og enduðu marka-
hæstar; þær Delaney Pridham,
Zaicikova og hin sautján ára gamla
Þóra Björg Stefánsdóttir.
Fögnuðu bikarnum með stæl
- Viktorija Zaicikova fór mikinn í stórsigri Eyjakvenna gegn föllnu liði Árbæinga
- Selfoss gæti hafnað í fimmta sæti eftir harða toppbaráttu framan af móti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslandsmeistarar Fyrirliðinn Elísa Viðarsdóttir hefur bikarinn á loft eftir stórsigurinn gegn Selfossi á Hlíðarenda.
Dómaraparið Anton Gylfi Pálsson
og Jónas Elíasson verða dómarar á
Evrópumótinu í handknattleik sem
fram fer í Ungverjalandi og Slóvak-
íu í janúar á næsta ári. Þetta er
annað Evrópumótið í röð sem þeir
félagar dæma á og sjöunda stórmót
Antons Gylfa en Jónas á færri stór-
mót að baki. Alls taka átján dóm-
arapör þátt í Evrópumótinu frá
átján löndum en Ísland leikur í B-
riðli keppninnar ásamt Portúgal,
Ungverjalandi og Hollandi. Mótið
hefst 13. janúar næstkomandi og
lýkur hinn 30. janúar í Búdapest.
Annað Evrópu-
mótið í röð
Morgunblaðið/Eggert
EM Jónas Elíasson og Anton Páls-
son eru fremstu dómarar landsins.
Íslands-, bikar- og deildarmeistarar
Hamars í blaki hafa samið við
marga lykilmenn fyrir komandi
keppnistímabil í úrvalsdeild karla.
Tvíburabræðurnir Hafsteinn og
Kristján Valdimarssynir hafa fram-
lengt samninga sína við félagið sem
og Ragnar Ingi Axelsson. Þá hafa
þeir Damian Sapor, Jakub Madej og
Wiktor Mielczarek samið aftur við
félagið fyrir tímabilið. „Radoslaw
Rybak verður áfram spilandi þjálf-
ari en þó er gert ráð fyrir að hlut-
verk hans innan vallar muni
minnka,“ segir í frétt Hamars.
Hvergerðingar
stórhuga
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Þrenna Hamar vann þrefalt á síð-
ustu leiktíð og ætlar sér stóra hluti.
Valur mætir FH í átta liða úrslitum
bikarkeppni karla í handknattleik,
Coca Cola-bikarnum, á Hlíðarenda
en Valsmenn unnu öruggan sjö
marka sigur gegn Víkingi í sextán
liða úrslitum keppninnar í Víkinni í
gær.
Tumi Steinn Rúnarsson og
Tryggvi Garðar Jónsson fóru mikinn
í liði Vals og skoruðu sex mörk hvor
en Arnar Huginn Ingason var marka-
hæstur Víkinga með fjögur mörk.
Þá tryggðu Fjölnir og Fram sér
einnig sæti í átta liða úrslitum en
Fram vann 33:28-sigur gegn HK í
Kórnum og mætir ÍR í fjórðungs-
úrslitum en Fjölnir vann Milan, 35:23,
í Set-höllinni og mætir Aftureldingu í
Dalhúsum.
Átta liða úrslitin fara fram á mánu-
daginn kemur.
Í bikarkeppni kvenna mætast ÍBV
og Valur í Vestmannaeyjum í átta liða
úrslitum en Eyjakonur unnu öruggan
fjórtán marka sigur gegn Gróttu í
Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.
Birna Berg Haraldsdóttir fór mik-
inn fyrir ÍBV og skoraði átta mörk og
Harpa Valey Gylfadóttir skoraði sjö.
Þá fór Lovísa Thompson hamför-
um í liði Vals og skoraði fjórtán mörk
í 25:22-sigri Valskvenna gegn HK í
Kórnum.
Fjórðungsúrslitin kvennamegin
fara fram 14. september þar sem
Haukar mæta Fram á Ásvöllum, Vík-
ingur mætir FH og Stjarnan mætir
annaðhvort KA/Þór eða Fylki.
Stórleikir í fjórðungsúrslitum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
14 Lovísa Thompson, til vinstri, fór hamförum fyrir Val í Kópavoginum í
gær þegar liðið tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum bikarkeppninnar.
Sævar Pétursson,
framkvæmda-
stjóri Knatt-
spyrnufélags
Akureyrar eða
KA, hefur ekki
leitt hugann að því
að bjóða sig fram
til formanns
Knattspyrnu-
sambands Íslands.
Þetta kom fram í
hlaðvarpsþættinum Mín skoðun.
Guðni Bergsson lét af störfum sem
formaður sambandsins á dögunum
eftir að KSÍ var sakað um þöggun og
meðvirkni með meintum gerendum
innan sambandsins.
Sævar hefur verið orðaður við for-
mannsstólinn ásamt öðrum en hann
segist ekki hafa íhugað framboð.
„Þeirri hugmynd hefur ekki skotið
upp í kollinum á mér,“ sagði Sævar í
Mín skoðun.
„Ég hef vissulega haft mína skoðun
á þessu máli og verið ófeiminn að
segja hana en svo það komi fram þá
hef ég átt mjög gott samstarf við bæði
Guðna [Bergsson] og Klöru [Bjart-
marz].
Þú ert ekkert minni maður þótt þú
stígir fram og viðurkennir ákveðin
mistök. Persónulega hef ég ekki verið
að hugsa mér til hreyfings enda í mjög
spennandi starfi hjá KA,“ bætti Sæv-
ar við.
Sækist ekki
eftir formanns
embættinu
Sævar
Pétursson
ÍBV – FYLKIR 5:0
1:0 Viktorija Zaicikova 26.
2:0 Viktorija Zaicikova 41.
3:0 Olga Sevcova 67.
4:0 Viktorija Zaicikova 70.
5:0 Olga Sevcova 76.
MM
Olga Sevcova (ÍBV)
Viktorija Zaicikova (ÍBV)
M
Liana Hinds (ÍBV)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
sæunn Björnsdóttir (Fylki)
Dómari: Guðmundur Ingi Bjarnason – 7.
Áhorfendur: 205.
VALUR – SELFOSS 5:0
1:Ásdís Karen Halldórsdóttir 11.
2:0 Cyera Hintzen 24.
3:0 Ída Marín Hermannsdóttir 29.
4:0 Fanndís Friðriksdóttir 38.
5:0 Cyera Hintzen 44.
M
Mist Edvardsdóttir (Val)
Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsd. (Selfossi)
Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi)
Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinsson – 8.
Áhorfendur: 432.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/
fotbolti.