Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 56

Morgunblaðið - 11.09.2021, Síða 56
Gilfélagið fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því þáðu liðsmenn Populus Tremula að gera endurkomu hinum megin í Listagilinu á Akureyri, í Deiglunni, og halda skemmtun í anda Populus-áranna frá 2004-2014, eins og segir í tilkynningu. Á þeim tíu árum réð ríkjum í kjallaranum undir Listasafninu hópur manna á ýmsum aldri sem kölluðu félagsskapinn og starfsstöðina Populus Tremula og voru þeir reiðubúnir að skemmta sér og öðrum og fá í lið með sér fjölda listamanna, með fjölbreytilegum uppákomum, mynd- listarsýningum, tónleikum af flestu tagi og ljóðalestri, segir þar. Undir hverri auglýsingu um kvöldskemmtanir stóð að malpokar væru leyfðir og verður nú slíkt kvöld haldið og hefst klukkan 21. Aðgangur er ókeypis. Malpokar leyfðir í Deiglunni LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Valur mætir FH í Origo-höllinni á Hlíðarenda í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Coca Cola- bikarnum, á mánudaginn kemur en Valsmenn unnu öruggan sjö marka sigur gegn Víkingi í sextán liða úr- slitum keppninnar í Víkinni í gær. Í bikarkeppni kvenna mætast ÍBV og Valur í Vestmannaeyjum í átta liða úr- slitum. Eyjakonur unnu öruggan fjórtán marka sigur gegn Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi en Valur vann þriggja marka sigur gegn HK í Kórnum. Undan- úrslitin kvennamegin fara fram 14. september. »48 Stórleikir fram undan í fjórðungs- úrslitum bikarkeppninnar ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í liðinni viku synti Sigurgeir Svanbergsson áheitasund frá Kjal- arnesi að Bryggjuhverfinu í Graf- arvogi til styrktar Einstökum börnum, um 12 kílómetra leið, og hafa safnast rúmlega 300 þúsund krónur vegna átaksins. Vélarbilun í fylgdarbátnum varð til þess að afrekið tók mun lengri tíma en ætlað var eða tæplega níu klukku- stundir. Heimsmeistaramótinu í bar- dagalistum hefur verið frestað hvað eftir annað vegna kórónu- veirufaraldursins. Sigurgeir ætlaði að taka þátt í því en þegar fyrir- huguð keppni í ágúst var endan- lega blásin af ákvað hann að finna annað verkefni og áheitasundið varð fyrir valinu. „Mig vantaði eitthvað ögrandi og skemmtilegt að gera og þá datt mér í hug að synda frá Reyðarfirði til Eski- fjarðar. Þegar allt fylltist af mar- glyttum í sjónum hérna fyrir aust- an varð ég að finna aðra sundleið og valdi þessa fyrir sunnan.“ Var að gefast upp Undanfarin sex ár hefur Sigur- geir búið á Eskifirði. Hann vinnur hjá Alcoa-Fjarðaáli á Reyðarfirði og er auk þess einkaþjálfari. „Ég byrjaði að æfa karate þegar ég var sex ára og hef því verið í bar- dagalistum í um aldarfjórðung,“ segir hann. Sund í vötnum og sjó hafi fyrst og fremst verið skemmt- un, sérstaklega í útlöndum. „Ég hef aldrei synt af kappi en hef gaman af því sem er ögrandi og erfitt og tók því þessari áskorun.“ Hann leggur áherslu á að hann hafi æft mikið fyrir sjósundið á líðandi ári, fyrst í sundlaug og síð- an í sjónum eftir að hann hlýnaði. Sundið gekk ekki eins og til var ætlast. „Vélin bilaði í fylgdar- bátnum og því þurfti ég að svamla í nágrenni við hann í um einn og hálfan tíma eða þar til vinur minn og menn frá hafsport.is komu á tveimur bátum, annar fylgdi mér en hinn dró bátinn með biluðu vél- inni í land, sneri svo við og fylgdi mér síðasta spölinn.“ Vegna þessa segir Sigurgeir að sundið hafi verið mun erfiðara en efni hafi staðið til. „Mér var farið að líða illa; ég fékk blóðsykursfall, þegar ég kom upp úr og var búinn með alla orku, en fann ekki fyrir kulda fyrr en í sturtunni á eftir.“ Hann segir að vegna tafarinnar hafi hann misst af réttu straum- unum og lent í því að fá strauminn í fangið. „Á síðustu metrunum, þegar ég sá Bryggjuhverfið, komst ég ekkert áfram, var fastur í um 40 mínútur og þá hvarflaði að mér að hætta þessu.“ Sigurgeir segir að það hafi tekið sig smástund að átta sig á því að hann hefði náð settu marki. „Ströndin í Bryggjuhverfinu er grunn og því gekk ég síðasta spöl- inn, en þegar ég kom að landi hneig ég eiginlega niður í spennu- falli. Ég var líka hálftómur í höfð- inu eftir átakið, en það stóðst væntingar, var skemmtilegt og nú þarf ég að finna nýtt verkefni.“ Í Kollafirði Sigurgeir Svanbergsson lenti í erfiðum straumum vegna tafar í kjölfar vélarbilunar í fylgdarbátnum. Á sundi í nær níu tíma - Synti frá Kjalarnesi að Bryggjuhverfinu í Grafarvogi Góður Sigurgeir Svanbergsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.