Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 214. tölublað . 109. árgangur . TVÖ LIÐ BERJAST UM BIKARINN Í EFSTU DEILD ÁTUTILRAUN GEKK Á́GÆTLEGA 20 ÁRA SAMSTARFI FAGNAÐ MEÐ YFIRLITSSÝNINGU DRÓGUST AÐ LJÓSINU 14 SNÆBJÖRNSDÓTTIR/WILSON 28TVÆR UMFERÐIR 26 Andrés Magnússon andres@mbl.is Töluverð hreyfing er loks komin á fylgi framboða samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið og mbl.is. Samkvæmt niðurstöðunum bætir Viðreisn hraustlega við sig fylgi milli vikna og Framsókn sömu- leiðis. Hins vegar dalar Sjálfstæðis- flokkurinn merkjanlega og eins virð- ist fylgi Sósíalistaflokksins nokkuð vera að ganga til baka. Fylgisbreyt- ingar annarra flokka eru óverulegar milli vikna. Viðreisn á siglingu Fylgisaukningu Viðreisnar má að langmestu leyti rekja til fylgisaukn- ingar í tveimur kjördæmum, í Suð- vesturkjördæmi þar sem flokkurinn nýtur nú 15,9% stuðnings og í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem hann mælist með 19,3%. Vert er þó að hafa í huga að í ein- stökum kjördæmum eru ekki mörg svör að baki niðurstöðunum og vik- mörkin há. Það er því umhugsunar- vert að í Reykjavíkurkjördæmi suð- ur fær Viðreisn aðeins 11,6%, en til þessa hefur verið lítill munur á fylgi flokksins í Reykjavíkurkjördæmun- um tveimur. Framsókn sækir einnig í sig veðr- ið milli vikna, einkum í Norðaustur- kjördæmi og Suðurkjördæmi, en gefur eftir í Norðvesturkjördæmi. Þá bætir Framsókn einnig við sig í Reykjavík og báðir ráðherrarnir virðast úr allri fallhættu í bili. Sjálfstæðisflokkurinn virðist raunar vera að reisa sig í Norðaust- urkjördæmi, en tapar hins vegar í Suðurkjördæmi og er nú með minna fylgi þar en fyrir norðan ef marka má niðurbrot svara á kjördæmi. Mest munar þó um að hann virðist tapa nær þriðjungsfylgi í Reykjavík suður milli vikna. Miðjusókn Úr þessum tölum virðist óhætt að lesa að fylgið leiti inn á miðjuna, líkt og skautun til hægri og vinstri ýti fólki þangað. Það kemur heim og saman við kannanir sem sýna að tveir þriðju svarenda hafa a.m.k. tvo flokka í huga. Hið mikla úrval fram- boða dregur sennilega ekki úr því. Auðveldast virðist vera að draga þá ályktun að Viðreisn og Framsókn séu að ná til sín fylgi á kostnað Sjálf- stæðisflokksins. Hliðstæð breyting virðist þó einnig vera á vinstri vængnum, þó hún sé flóknari og ekki eins auðsæ. Þannig tapa Sósíalistar fylgi, sennilegast til Pírata, Samfylk- ingar og Vinstri grænna. Eins fer vafalaust eitthvert fylgi milli þeirra innbyrðis og sömuleiðis eru þeir lík- ast að missa eitthvert fylgi inn á miðjuna líka, þó fylgistölurnar breytist á endanum lítið nema hjá Sósíalistum. Hæpið að reikna út þingsæti Niðurstöðurnar byggjast á svör- um 951 manns, en þar af tók 821 af- stöðu til framboðanna. Þrátt fyrir að úr þeim megi vel lesa fylgisstrauma á landsvísu eru svörin í einstökum kjördæmum of fá til þess að leggjast megi í útreikning á úthlutun þing- sæta af nokkurri vissu. Því er gripið til þess ráðs hér að ofan að leggja saman tölur úr þrem- ur síðustu könnunum MMR til þess að reikna út þingmannafjölda, en vegna fjölda framboða og úthlutunar jöfnunarsæta má sáralitlu muna til þess að breyta myndinni töluvert. Með samanlögðum tölum má fá tryggari niðurstöðu um það, en á móti kemur að hún endurspeglar síð- ustu fylgisbreytingar ekki til fulln- ustu og er rétt að lesandinn hafi þá fyrirvara alla í huga. Fylgi framboða komið á hreyfingu inn á miðju - Viðreisn og Framsókn bæta duglega við sig - Sjálfstæðisflokkur dalar talsvert 12 14 7 34 7 6 6 4 Fylgi framboða og þingmenn samkvæmt skoðanakönnun MMR Úr spurningavagni MMR 8. til 10. september 10 16 7 14 7 7 6 5 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 10 .9 .2 0 21 10 .9 .2 0 21 3 .9 .2 0 2 1 K o sn in ga r J Sósíalistar P Píratar V Vinstri græn S Samfylking F Flokkur fólksins C Viðreisn M Miðflokkur B Framsókn D Sjálfstæðisflokkur 22,3% 15,0% 6,0% 12,2% 5,0% 11,6% 10,5% 9,9% 6,7% Könnun 8.-10. september Samtala 3 síðustu vikna _ Gunnar Smári Egilsson er ekki að skafa utan af hlutunum í for- mannaviðtali í Dagmálum Morgunblaðsins, sem birt er í opnu streymi í dag. Hann segir að Ísland sé ger- spillt samfélag og að dómskerfið og stjórnsýslan séu valdaklíka, en að baki búi skipulegt samsæri um að setja inn menn í Hæstarétt til þess að verja kvótakerfið. Hann kveðst ekki vita hverjir stýri því samsæri. »6 Skipulegt samsæri um spillingu Gunnar Smári Egilsson „Ég verð í mörg, mörg ár að ná upp öðrum eins hóp,“ segir Elvar Eylert Einarsson, sem ásamt konu sinni, Fjólu Viktorsdóttur, er bóndi á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Riðuveiki kom upp á bænum fyrir helgi en þar eru um 1.500 fjár, full- orðið fé og lömb. Syðra-Skörðugil var afurðahæsta búið í Skagafirði í fyrra og hlutu þau hjónin viðurkenn- ingu fyrir það. Auk þess var Syðra- Skörðugil með hæstu meðalvigtina fyrir svo stórt bú, 19 kíló í meðalvigt. Tjónið er því mikið. Í tilkynningu sem barst frá Mat- vælastofnun fyrir helgi sagðist stofn- unin vinna að því að meta umfang smitsins og nauðsynlegar aðgerðir. Elvar reiknar með að hlutirnir skýr- ist í vikunni en sjálfur hefur hann haft lítinn tíma til að hugsa málið enda verið í göngum síðastliðna tvo daga. Hann segist ekki munu skera niður fé hjá sér fyrr en samninga- viðræður fari í gang. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að óskað hafi verið eftir því að bótaferli vegna niðurskurðar verði hraðað enda séu bætur of lengi að berast. Bændur hafi ekki bara gagnrýnt seinagang heldur einnig að einungis ákveðnar bætur fáist greiddar. Þannig fást bætur fyrir jarðvegs- skipti og efnisskipti en ekki fyrir vinnu. „Bændur hafa bent á þetta ítrekað,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar. »4 Bændur gagnrýnt seinagang Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dilkur Féð frá bænum var dregið í þennan dilk í Staðarrétt í gær. - Riða í Skagafirði Reynslumestu leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gætu lagt landsliðsskóna á hilluna ef kemur til frekari afskipta stjórnar Knatt- spyrnusambands Íslands, KSÍ, af landsliðshópnum. Þetta herma heim- ildir Morgunblaðsins. Kolbeinn Sigþórsson var valinn í ís- lenska landsliðshópinn í nýliðnum landsleikjaglugga þar sem Ísland mætti Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi á Laugardalsvelli í und- ankeppni HM. Honum var aftur á móti meinað að taka þátt í verkefninu af stjórn KSÍ eftir að umræða um meint ofbeldisbrot hans gegn tveimur stúlkum á skemmtistað í Reykjavík árið 2017 var tekin til umfjöllunar í fjölmiðlum. Mik- il óánægja var með þá ákvörðun stjórnarinnar innan leikmannahóps- ins, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Þá hafa tveir leikmenn karlalands- liðsins verið sakaðir um nauðgun á samfélagsmiðlum, án þess þó að hafa verið nafngreindir. Atvikið á að hafa átt sér stað árið 2010 en þeir voru ekki í íslenska landsliðshópnum í síðasta landsleikjaglugga. Leiða má þó að því líkur að Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, hafi hug á því að velja að minnsta kosti annan þeirra í hópinn fyrir leikina gegn Armeníu og Liechtenstein í und- ankeppni HM en leikirnir fara fram 8. október og 11. október á Laugardals- velli. Stjórn KSÍ sagði af sér á dögunum eftir að sambandið var sakað um þögg- un og meðvirkni með meintum ger- endum. Ný bráðabirgðastjórn verður kjörin á aukaþingi sambandsins 2. október, tæplega viku áður en Ísland mætir Armeníu. bjarnih@mbl.is Óánægja með afskiptin - Þeir reynslumestu gætu lagt landsliðsskóna á hilluna _ Erfitt er fyrir stofnanir og fyrirtæki að verja sig algjörlega gegn álagsárásum tölvuþrjóta líkt og þeim sem gerðar voru á íslensk fjármálafyrirtæki um helgina, en með réttum undir- búningi og forvörnum er hægt að bregðast hraðar og betur við til að lágmarka skaðann. Álagsárásir eru oft gerðar með það að markmiði að kúga lausnarfé út úr skotmarkinu, með hótun um alvarlegri og lengri árás síðar. Tölvuþrjót- arnir standa samt sjaldan við hótanirnar og ekki ráðlegt að greiða þeim eina einustu krónu. » 12 Eins og stormur bresti skyndilega á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.