Morgunblaðið - 13.09.2021, Page 4
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Riðuveiki, sem staðfest var á bæn-
um Syðra-Skörðugili í Skagafirði
síðasta föstudag, er mikið áfall að
sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar,
sveitarstjóra sveitarfélagsins
Skagafjarðar.
Um 1.500 fjár eru á bænum,
bæði fullorðið fé og lömb, en því fé
þarf nú að lóga samkvæmt gildandi
reglugerð. Syðra-Skörðugil er í
Húna- og Skagahólfi en í því hólfi
greindist síðast riða síðasta haust.
Sigfús segir bændurna á Syðra-
Skörðugili ekki enn hafa haft tíma
til að hugsa um tjónið enda voru
göngur þegar riðuveikin kom upp
og síðan réttir. Hann segir það þó
viðbúið að þegar hægist á muni
bændurnir finna fyrir áfallinu.
„Þetta er þrjátíu ára ræktunar-
starf sem er að gufa upp í einu vet-
fangi,“ segir Sigfús.
Ekki heppilegasti árstíminn
Réttir voru í Skagafirði í gær og
kom féð af Syðra-Skörðugili niður í
réttirnar og var réttað með öðru
fé. Allt féð fór í einn almenning áð-
ur en dregið var í dilka. Sigfús seg-
ir það ekki hafa verið hægt að hafa
fyrirkomulagið annað og bendir á
að tilfelli riðuveiki hafi áður komið
upp á þessum árstíma.
„Auðvitað er fólk uggandi,“ segir
hann en bendir á það séu til auð-
veldari smitleiðir en í réttum. „En
þetta er ekki heppilegasti árstím-
inn til að greinast á, það er alveg
rétt,“ segir Sigfús.
Fá ekki bætur fyrir vinnu
Hann segist vita til þess að
bændur sem hafa lent í því að riða
greinist á bæ þeirra hafi gagnrýnt
að þeir fái ekki nema ákveðnar
bætur greiddar. Þannig fáist
greitt fyrir jarðvegsskipti, efnis-
skipti á timburvegi og álíka, en sú
vinna sem lendir á bændunum sé
ekki metin. „Það vantar alveg að
meta þessa miklu vinnu sem
bændurnir leggja í þetta,“ segir
hann.
Bændur hafi ítrekað bent á
þetta og Sigfús kveðst vita til þess
að hluti þeirra bænda sem lentu í
niðurskurði í fyrra hafi haldið
mjög samviskulega skrá yfir sínar
vinnustundir svo það liggi fyrir
hvað vinnan er í raun og veru mik-
il.
Einnig hafi hann heyrt frá
bændum að samningar um bætur
hafi tekið of langan tíma.
Viðræður um helgina
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir
reglugerðina um útrýmingu á riðu-
veiki og bætur vegna niðurskurðar
hafa verið í endurskoðun og rætt
hafi verið við ráðuneytið um
helgina. Gunnar vonar að samtal-
inu verði haldið áfram.
Aðspurður segir hann að sam-
talið verði að fjalla um upphæð
bótanna en auk þess sé búið að
óska eftir að ferlinu verði hraðað.
Þá nefnir hann að bætur verði að
berast hraðar en þær gerðu eftir
að riðuveiki kom upp í Skagafirði
síðasta haust.
„Það er eiginlega búið að gera
það upp, en það er nú ekkert alltof
langt síðan það var gert, þannig að
við höfum gjarnan viljað hraða
þessu meira heldur en var gert síð-
astliðið haust,“ segir Gunnar.
Tjónið sé heilmikið fyrir bændur.
Bætur vegna riðu of lengi að berast
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tún Syðra-Skörðugil í Skagafirði. 1.500 fjár þarf að slátra vegna veikinnar.
- Þrjátíu ára ræktunarstarf gufaði upp í einu vetfangi á föstudaginn - Formaður Bændasamtakanna
segir reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar hafa verið í endurskoðun
Árið 2007 kom upp riða í sauðfé
á bænum Skollagróf í Hruna-
mannahreppi. Sigurður Haukur
Jónsson og Fjóla Helgadóttir,
bændur á bænum, sömdu ekki
við Matvælastofnun um bætur
og fór það svo að málinu var vís-
að til matsnefndar eignarnáms-
bóta þar sem þeim voru úrskurð-
aðar hærri bætur.
Hjónunum barst síðan ekki
nema þriðjungur bótanna og
fóru þau því með málið fyrir hér-
aðsdóm í júlí 2012, þar sem þau
unnu málið. En ekki barst þó af-
gangur greiðslunnar.
„Svo var það fljótlega eftir að
ég kom þessu á framfæri við
Morgunblaðið, og einhver birti
frétt um þetta, að þeir borguðu,“
segir Sigurður en fréttin var
skrifuð í október 2012, fimm ár-
um eftir að riðan kom upp.
Tók fimm ár
að fá bætur
GREIÐSLA BARST EFTIR
UMFJÖLLUN MOGGANS
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021
Lið rithöfunda hafði betur á móti liði útgefenda í knatt-
spyrnuleik liðanna á laugardag. Leikurinn var hluti af dag-
skrá Bókmenntahátíðarinnar. Staðan í leikslok var 6-3 fyrir
rithöfunda en fyrirliði útgefenda, Anna Lea Friðriksdóttir,
segir rithöfundana hafa unnið í krafti fjöldans. Útgefendurnir
voru aðeins með einn varamann en rithöfundarnir átján og
útgefendur því uppgefnir. Slagorð rithöfunda var „Skáld eru
aldrei rangstæð“. Anna Lea kveður höfundana hafa verið
rangstæða allan leikinn en að dómarinn hafi aldrei dæmt.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Rithöfundar lögðu útgefendur
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
skilaði tillögum að tilslökunum á
sóttvarnaaðgerðum til Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í
gær. Ríkisstjórnin mun fara yfir til-
lögur sóttvarnalæknis á morgun,
þriðjudag, og sagði Svandís í gær að
ekki væri tímabært að ræða innihald
minnisblaðsins. Búist er við því að
frekari tilslakanir verði kynntar að
ríkisstjórnarfundi loknum.
Alls greindust 46 smit á föstudag
og laugardag, 31 á föstudag og 15 á
laugardag. Færri sýni eru yfirleitt
tekin um helgar en aðeins um 1.500
voru tekin á laug-
ardag. Í gær var
14 daga nýgengi
innanlands á
hverja 100.000
íbúa 154,6 og
stendur það í stað.
Nýgengi smita á
landamærum er
nú 6. Í gær voru
776 í sóttkví, 397 í
einangrun og 490
í skimunarsóttkví. Fyrir helgi voru
sex á sjúkrahúsi og þar af tveir á
gjörgæslu.
Ríkisstjórnin ræðir
tilslakanir á morgun
Svandís
Svavarsdóttir
- 46 greindust á föstudag og laugardag
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur
ekki borist kvörtun vegna Facebook--
færslu Sigurðar G. Guðjónssonar
hæstaréttarlögmanns um mál knatt-
spyrnumannsins Kolbeins Sigþórs-
sonar. Þetta staðfestir Einar Gautur
Steingrímsson, formaður nefnd-
arinnar, í samtali við Morgunblaðið.
Að sögn Einars bærist slík kvörtun
fyrst til Lögmannafélagsins og síðan
til nefndarinnar, en hann bendir þó á
að ef kvörtun hefði borist væri hún
mjög nýleg því úrskurðarnefndin
myndi fljótt frétta af því.
Sigurður Örn Hilmarsson, formað-
ur Lögmannafélagsins, segist í sam-
tali við Morgunblaðið ekki vita til
þess að kvörtun hafi borist félaginu.
Þreyttur á „atlögum“
Sigurður hefur verið gagnrýndur
fyrir áðurnefnda færslu sína á sam-
félagsmiðlum. Meðal annars af dóttur
sinni, Eddu Sif, sem skrifaði að færsl-
an væri hvorki honum né málstað
Kolbeins til framdráttar.
Í samtali við mbl.is í liðinni viku
sagði Sigurður færsluna hvorki fela í
sér gerendameðvirkni né druslu-
skömmun. Þá sagðist hann einfald-
lega vera orðinn þreyttur á „atlög-
um“ í garð knattspyrnu og
Knattspyrnusambands Íslands.
Sigurður kvaðst hafa tjáningar-
frelsi eins og blaðamenn til að vinna
úr þeim gögnum sem hann fær og
sér, en í færslunni birti Sigurður lög-
regluskýrslu og fleiri gögn sem tengj-
ast ásökunum Þórhildar Gyðu Arn-
arsdóttur á hendur Kolbeini árið
2017. Hann vildi ekki gefa upp hvað-
an hann fékk gögnin.
Engin kvörtun borist
- Facebook-færsla hæstaréttarlögmanns hefur verið
gagnrýnd á samfélagsmiðlum - Birti lögregluskýrslur