Morgunblaðið - 13.09.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021
Á vefnum fullveldi.is er fjallað
um þróun breskrar fjár-
málaþjónustu eftir Brexit: „Þvert
á spár ýmissa stjórnmálamanna í
Bretlandi og
forystu-
manna í
brezku at-
vinnulífi,
sem andvígir
hafa verið
útgöngu
landsins úr
Evrópusam-
bandinu, um að hrun yrði í útflutn-
ingi á fjármálaþjónustu til sam-
bandsins í kjölfar útgöngunnar
jókst útflutningurinn á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs.
- - -
Bretar gengu formlega úr Evr-
ópusambandinu í lok janúar
2020 en yfirgáfu innri markað og
tollabandalag sambandsins um
síðustu áramót þegar víðtækur
fríverzlunarsamningur við það tók
gildi. Samningurinn nær ekki til
þjónustuviðskipta en til stóð að
semja um þau síðar sem þó hefur
ekki skilað árangri. Fyrir vikið
hafa brezk stjórnvöld lagt áherzlu
á að nýta það frelsi frá regluverki
Evrópusambandsins sem útgang-
an hefur skapað, auka
samkeppnishæfni brezks atvinnu-
lífs og sækja fram á öðrum mörk-
uðum.
- - -
Fram kemur á fréttavef brezka
dagblaðsins Daily Telegraph
að þannig hafi útflutningur á þjón-
ustu banka, tryggingafélaga og
annarra fjármálafyrirtækja í Bret-
landi til Evrópusambandsins auk-
izt um 1,4% á fyrstu þremur mán-
uðum þessa árs miðað við sama
tímabil árið 2019 samkvæmt tölum
brezku hagstofunnar. Miðað er við
2019 vegna áhrifa kórónu-
veirufaraldursins á tölur síðasta
árs.“
- - -
Hvað ætli systurflokkarnir Við-
reisn og Samfylkingin segi
um þessa þróun? Hún hefur senni-
lega ekki, frekar en annað, áhrif á
vilja þeirra til að þvinga Ísland inn
í ESB.
Meiri fjármálaþjón-
usta eftir Brexit
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg
Eldgosið í Geldingadölum vaknaði
af værum blundi aðfaranótt laugar-
dags og braut kvika sér aftur leið
upp á hraunyfirborðið. Aðfaranótt
sunnudags var eldgosið í fullu fjöri
og lýsti upp himininn yfir Reykja-
nesi.
Gosið hafði legið í dvala í um viku
þegar það fór aftur af stað. Sér-
fræðingar segjast ekki vita með
vissu hvers vegna eldgosið tók sér
hlé eða hvers vegna það fór aftur af
stað. Margir lögðu leið sína að gos-
stöðvunum á laugardag. Í gær,
sunnudag, var mælst til þess að fólk
gengi ekki að gosinu vegna veðurs.
Gular veðurviðvaranir tóku gildi
um miðjan dag í gær og eru í gildi
þar til síðdegis í dag.
Eldgosið í Geld-
ingadölum vaknað
Jón Sigurðsson er
látinn, 75 ára að
aldri. Hann gegndi
starfi seðlabanka-
stjóra, var formaður
Framsóknarflokksins
og einnig iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Jón greindist með
langt gengið krabba-
mein í blöðruháls-
kirtli og ræddi um
það í kvikmyndinni
Karlamein sem sýnd
var í mars á síðasta
ári.
Jón var fæddur í
Kollafirði á Kjalarnesi 23. ágúst
árið 1946. Foreldrar hans voru
Sigurður Ellert Ólason, hæstarétt-
arlögmaður og ríkislögmaður, og
Unnur Kolbeinsdóttir, kennari og
bókavörður.
Hann stundaði nám við Mennta-
skólann í Reykjavík og lauk þar
stúdentsprófi árið 1966. Þaðan lá
leið hans í íslensku og sagnfræði
við Háskóla Íslands. Hann útskrif-
aðist með BA-gráðu í þeim fögum
þremur árum síðar.
Jón tók við starfi ritstjóra Tím-
ans árið 1978 og sinnti því til 1981.
Að því loknu varð
hann skólastjóri
Samvinnuskólans á
Bifröst og síðar varð
hann rektor skólans
til ársins 1991.
Árið 1988 útskrif-
aðist Jón með meist-
aragráðu í mennt-
unarfræðum og
kennslustjórnun frá
Columbia Pacific
University í San
Rafael í Bandaríkj-
unum. Hann útskrif-
aðist með doktors-
gráðu í sömu
greinum tveimur árum síðar. Árið
1993 útskrifaðist hann svo úr
MBA-námi í rekstrarhagfræði og
stjórnun frá National University í
San Diego í Bandaríkjunum.
Frá árinu 2003 til ársins 2006
var Jón seðlabankastjóri. Að því
loknu tók hann við embætti iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra til árs-
ins 2007. Þá var hann einnig for-
maður Framsóknarflokksins.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er Sig-
rún Jóhannesdóttir. Þau áttu sam-
an tvo syni, en fyrir átti Sigrún
eina dóttur.
Andlát
Jón Sigurðsson