Morgunblaðið - 13.09.2021, Page 11

Morgunblaðið - 13.09.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 mikilvægi starfa félagsmanna sinna í faraldrinum. Kreddur um rekstarform í heilbrigðisþjónustu segir Friðrik Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eitt af mikilvægum verkefnum næstu missera er að byggja hér á landi upp hagkerfi þekkingar, sem laðar að fólk með margvíslega sér- fræðimenntun. Virði slíkra starfa er mikið og tekjurnar sömuleiðis, sem eru fljótar að seytla út í hag- kerfið,“ segir Friðrik Jónsson, for- maður BHM. „Reynsla síðustu missera í heimfaraldri hefur kennt okkur að stoðir samfélagsins þurfa að vera traustar. Sjávarafli er svipull og ferðaþjónustan sömu- leiðis. Því þarf að leggja grunn að breyttu atvinnulífi.“ Formaður BHM hefur nú í að- draganda þingkosninga átt fundi með forystufólki þeirra stjórn- málaflokka sem eru í framboði. Brýn mál eru reifuð á fundum sem Friðrik segir gagnlega. Lýðheilsa og meiri fyrirsjáanleiki „Í sjálfu sér er svipaður skiln- ingur þvert á flokkslínur um helstu mál og viðfangsefni og fólk oft sammála um markmið, en ekki leiðirnar að þeim. Slíkt er líka í fínu lagi,“ segir Friðrik sem tók við formennskunni í BHM síðast- liðið vor. Í samtölum við stjórnmála- menn kveðst Friðrik hafa lagt þunga á það sjónarmið að ný ríkis- stjórn búi svo um hnúta að skap- aður verði meiri fyrirsjáanleiki til lengri tíma í aðgerðum gegn Co- vid-19. Tryggja þurfi lýðheilsu, skv. bestu ráðum vísindamanna, en stjórnmálanna sé að horfa til hinna efnahagslegu og félagslegu þátta í þessu sambandi. „Nú hefur þorri landsmanna verið bólusettur sem ætti að skapa jafnvægi. Eftir standa hins vegar spurningar um stöðu heilbrigðis- kerfisins. Fyrir um mánuði voru til dæmis settar á nokkuð stífar tak- markanir úti í samfélaginu til þess að draga úr álagi á Covid-deildir Landspítalans. Slíkt gæti bent til að eitthvað sé að í heilbrigðiskerf- inu. Stundum er sagt að neyðar- ástandið á sjúkrahúsinu sé einu rútuslysi frá skelfingu. Því þarf að greina betur hvar þolmörk spít- alans gagnvart álagi liggja. Tak- markaður fjöldi gjörgæslurýma er eitt þessara atriða,“ segir Friðrik. Kreddur eru varhugaverðar Í þessu sambandi vekur hann athygli á herferðinni Sem betur fer, þar sem BHM, Læknafélag Ís- lands og Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga vekja athygli á varhugaverðar. Opinber rekstur sé þar í aðalhlutverki, en einka- rekstur ýmissa félagasamtaka og stétta með þjónustusamningum við ríkið sé einnig mikilvægur. Fjöl- margir félagsmenn BHM, það er háskólamenntaðir sérfræðingar, starfi við einkarekstur í heilbrigð- iskerfinu, við þjónustu sem ágrein- ingslaust sé að verði áfram greidd af ríkinu. Alls um 16.000 manns eiga að- ild að BHM - Bandalagi háskóla- manna – sem eru regnhlífar- samtök fag- og stéttarfélaga fólks í sérfræðistörfum í opinberri þjón- ustu sem og á einkamarkaði. Kjarasamningar bandalagsins við viðsemjendur gilda fram í mars árið 2023 og nú þykir tímabært að huga að framhaldinu. „Ég tel ólík- legt að aðildarfélög BHM séu tilbú- in í krónutöluhækkanir launa. Frekar viljum við hlutfallshækk- anir og að hér gildi samkeppnis- hæf laun,“ segir Friðrik. „Á síkvik- um vinnumarkaði þarf annars að horfa til mjög margra fleiri þátta en launa, svo sem skattamála og lífeyrismála. Til viðbótar við laun hvers starfsmanns þarf atvinnu- rekandi að greiða um 20% meira, í lífeyrissjóði og tryggingagjöld. Slíkt er talsverður peningur og við þurfum þá líka að vera viss um að kerfin sem greitt sé til virki. Auk þess verða félagar í BHM fyrir miklum jaðarskattaáhrifum vegna tekjutenginga skattkerfisins.“ Jafnréttismálin koma líka sterk inn í alla samningagerð, seg- ir Friðrik. Hann segir margt benda til að sem fyrr sitji stéttir þar sem meirihluti starfsmanna eru konur eftir í launaþróun, til dæmis þær sem vinna hjá sveit- arfélögunum. Menntun ekki metin til launa „Menntun á Íslandi er ekki metin til launa með sama hætti og gerist annars staðar á Norður- löndum og í Evrópu. Þá þurfum við líka að fylgja styttingu vinnu- tímans eftir. Í sumum tilvikum hef- ur hún verið sýnd veiði en ekki gefin og nauðsynlegt er að 36 stunda vinnuvika verði lögfest. Einnig þarf að huga betur að stöðu einyrkja á vinnumarkaði. Margir sjálfstætt starfandi eru í BHM og við tökum fagnandi á móti þeim. Þeim sem eru í harkhagkerfinu fjölgar stöðugt, samkvæmt þróun tímans, en réttindi þess fólks eru oft óljós og þarf í mörgum tilvikum að styrkja. Það verða áfram mikl- ar breytingar á vinnumarkaði í þessa átt. Einstaklingar eru fyrir- tæki framtíðar.“ Fólki í harkhagkerfinu fjölgar en réttindin eru oft óljós og þarf jafnvel að styrkja, að mati formanns BHM Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vinnumarkaður Fylgja styttingu vinnutímans eftir og nauðsynlegt er að 36 stunda vinnuvika verði lögfest, segir Friðrik Jónsson, formaður BHM. Þörf á þekk- ingarhagkerfi - Friðrik Jónsson er fæddur 1967 og starfaði í utanríkisþjón- ustunni frá 1996 og fram á þetta ár. Hefur verið fulltrúi Ís- lands hjá Alþjóðabankanum, NATO og Sameinuðu þjóðunum og starfað í sendiráðum Íslands í Washington og Kaupmanna- höfn. Um skeið forstöðumaður hjá Gró, þekkingarmiðstöð þró- unarsamvinnu, og fleiri verk- efna í alþjóðastarfi Íslendinga. - Friðrik er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum svo og MBA-gráðu í alþjóðaviðskiptum. Hver er hann? Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. Áratuga reynsla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.