Morgunblaðið - 13.09.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.09.2021, Qupperneq 13
AFP Slys Vélinni hlekktist á á flugbrautinni og brotnaði í tvennt eftir lendinguna. Mistök flugmanns og brot á örygg- isreglum leiddu líklegast til flug- slyss á Indlandi í ágúst á síðasta ári. 190 voru um borð í vél Air India Ex- press þegar hún hrapaði á Calicut- flugvellinum í Kerala-héraði með þeim afleiðingum að 21 lést og 75 slösuðust alvarlega. Báðir flug- menn vélarinnar létust. Vélinni hlekktist á á flugbraut- inni og brotnaði í tvennt eftir lend- inguna. Flugmennirnir höfðu áður reynt að lenda vélinni en ákveðið að hætta við lendinguna vegna veðurs. Samkvæmt nýútgefinni skýrslu indverskrar rannsóknarnefndar vegna flugslysa brutu flugmenn- irnir þónokkrar öryggisreglur í að- draganda lendingarinnar. Sam- kvæmt skýrslunni hafði biluð rúðuþurrka einnig áhrif á slysið, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. INDLAND Mistök flugmanns leiddu til flugslyss FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 COVID HRAÐPRÓF Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Nákvæm og traust hraðpróf sem gefa niðurstöðu á 15 mínútum. Verslaðu hraðprófin á fastus.is/hradprof Nákvæmni: 99,29% Næmni: 97,04% Sértækni: 99,99% Nýr bandarískur raunveruleika- þáttur þar sem aðgerðasinnar kepp- ast um að sinna góðgerðarstörfum með hjálp samfélagsmiðla hefur verið mikið gagnrýndur. Þátturinn sem mun bera nafnið The Activist, eða „Aðgerðasinninn“, var kynntur í byrjun vikunnar og verður sýndur á CBS í október en þátturinn er framleiddur af frjálsu félagsamtökunum Global Citizen. Leikkonan Priyanka Chopra, söngvarinn Usher og dansarinn Julianne Hough munu öll koma til með að vera kynnar í þáttunum. Segir í yfirlýsingu frá CBS að í þáttunum muni sex aðgerðasinnar, sem koma víðs vegar að úr heim- inum, vinna að því að koma á þýð- ingarmiklum breytingum á sviði heilsu, menntunar og umhverfis- mála. Þá munu aðgerðasinnarnir meðal annars keppa í því að setja af stað stafrænar herferðir og samfélags- lega viðburði sem miða að því að vekja athygli áhrifamesta fólks í heimi og krefjast aðgerða strax. Úrslitaviðureignin mun síðan fara fram á leiðtogafundi G20 í Róm í lok október þar sem aðgerðasinn- arnir munu hitta leiðtoga heimsins í von um að tryggja fjármagn og vekja athygli á málstað sínum. En viðbrögðin létu ekki á sér standa og voru samfélagsmiðlanot- endur fljótir að ásaka þættina um að gera lítið úr málstað aðgerða- sinna þegar mörg ríki heimsins skerða tjáningarfrelsi aðgerðasinna eða henda þeim í fangelsi og geta þeir þannig ekki staðið fyrir mann- réttindum. AFP Leikkonan Priyanka Chopra verð- ur kynnir þáttarins ásamt öðrum. Hver er besti aðgerðasinninn? - Nýr raunveruleikaþáttur umdeildur Stjórnvöld í Norður-Kóreu prófuðu um helgina nýtt langdrægt flug- skeyti. Ríkismið- illinn í Norður- Kóreu flytur þær fréttir að tilraunir með eldflaugarnar hafi átt sér stað 11. og 12. sept- ember og að þær hafi gengið vel. Drægni eldflauganna var um 1.500 kílómetrar og eru þær sagðar marka tímamót í fimm ára áætlun ríkisins í varnarmálum. Skeytin eru sögð hraðfleygari og nákvæm- ari en áður. NORÐUR-KÓREA Vel heppnuð tilraun Kim Jong-Un Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur opinberað gögn sem rannsaka tengsl ríkisborgara frá Sádi-Arabíu sem bjuggu í Bandaríkjunum og tveggja hryðjuverkamannanna sem tóku þátt í árásunum 11. september árið 2001. Gögnin eru þau fyrstu af nokkrum sem Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur sagst ætla að opinbera í kjölfar þess að 20 ár eru liðin frá árásunum. Aðstandendur fórnarlambanna sem fórust í árásunum hafa lengi kallað eftir að gögnin verði gerð op- inber þar sem þeir telja að yfirvöld í Sádi-Arabíu hafi vitað af árásunum og hafi ekkert gert til þess að stöðva þær. Gögnin veita aftur á móti engar vísbendingar um að ríkisstjórnin í Sádi-Arabíu hafi vitað af árásinni en 15 af 19 flugræningjum árásanna voru frá Sádi-Arabíu. Áður en gögnin voru gefin út sagð- ist sendiráð Sádi-Arabíu í Wash- ington-borg fagna því að gögnin yrðu gerð opinber. Þau ítreki að eng- in tengsl séu á milli ríkisins og flug- ræningjanna og lýsti sendiráðið þeim orðrómi sem „röngum og hat- ursfullum“. Fengu aðstoð frá sádi-arab- ískum ríkisborgurum Um er að ræða 16 blaðsíðna skjal þar sem enn er talsvert yfirstrikað. Það byggist á viðtölum við ónafn- greindan heimildarmann þar sem hann lýsir samskiptum á milli rík- isborgara frá Sádi-Aarabíu og tveggja flugræningja, Nawaf al- Hazmi og Khalid al-Midhar. Flugræningjarnir tveir þóttust vera nemar er þeir komu til Banda- ríkjanna árið 2000. Skjalið segir að þeir hafi fengið mikinn stuðning frá Omar al-Bayoumi en vitni segja að hann hafi verið tíður gestur á ræðis- mannsskrifstofu Sádi-Arabíu í Los Angeles-borg. Al-Bayoumi hafði þá landvistarleyfi sem nemi. Heimildarmaðurinn segir að al- Bayoumi hafi verið „mjög hátt sett- ur“ á ræðismannsskrifstofunni. Hann aðstoðaði al-Hazmi og al- Midhar meðal annars fjárhagslega og veitti þeim húsnæði. Þá segir í skjalinu að flugræningj- arnir hafi einnig haft góð tengsl við Fahad al-Thumairy sem var íhalds- amur ímam í mosku í Los Angeles. Al-Thumairy og al-Bayoumi fóru frá Bandaríkjunum nokkrum vikum fyrir árásirnar 11. september árið 2001. Opinbera fyrstu skjölin - Gögn um hryðjuverkaárásina 11. september opinberuð - Lítið bendir til að stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafi vitað af árásinni - Þóttust vera nemar við komuna AFP Rústir Um 3.000 manns létust, flest- ir í árásinni á tvíburaturnana. Ljósminnisvarðinn um tvíbura- turnana lýsti upp himin New York- borgar á laugardagskvöld. Þá voru 20 ár liðin frá hryðjuverkaárás- unum 11. september 2001, daginn sem breytti bandarísku samfélagi til frambúðar. Til vinstri má sjá One World Trade Center-turninn eða „Frels- isturninn“. Turninn er hæsta bygg- ing Bandaríkjanna og var byggður til þess að sýna fram á að New York gæti staðist þolraunir og horft til framtíðar. Ground Zero-minnis- varðinn þar sem finna má ljóskast- arana er sagður tákna tómarúmið sem myndaðist við árásirnar en Frelsisturninn tákna það jákvæða. Fyrir miðju má síðan sjá upplýsta Frelsisstyttuna, tákn frelsis, lýð- ræðis og réttlætis. Harmleiksins 11. september var minnst vestanhafs á laugardag Minnisvarð- inn lýsti upp New York AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.