Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 Fjárrag Í sveitum er nú annatími. Réttað var í Hraunsrétt í Aðaldal um helgina og þegar safnið var rekið þar inn heyrðist jarm kinda, hnegg hesta, gá hunda og hó smala. Einstök sinfónía! Sigurður Bogi Allt frá árinu 1956 hefur sá sem þetta ritar kosið 20 sinnum til Alþingis. Flestar þessara kosninga eru mér minnisstæðar, enda lykilviðburðir í stjórnmálasögunni hverju sinni. Lengst af þessu tímabili eða fram til síðustu aldamóta voru framboðin til þings fjögur eða fimm talsins, en hefur síðan farið fjölgandi og nú hafa kjósendur um níu slík að velja, sem bjóða fram lista í öllum kjördæmum. Að rík- isstjórnum á þessu tímabili hafa staðið 2 eða 3 stjórnmálaflokkar, en aðeins í um helmingi tilvika hefur samstarf þeirra enst í heilt kjör- tímabil og þá oftast í ríkisstjórnum tveggja flokka. Núverandi þriggja flokka ríkisstjórn sker sig úr með því að endast allt til loka. Hér verð- ur litið tólf ár til baka og spáð í samstarfshorfurnar eftir að úrslit liggja fyrir innan skamms. Ríkisstjórnarsam- starfið 2009-2013 Samstarf Samfylkingar og Vinstri grænna í heilt kjörtímabil í kjölfar hrunsins 2008 hefur fengið afar misjafna dóma. Allir viðurkenna að um óvenjulegar að- stæður var að ræða, en mistök stjórnar Jóhönnu og Steingríms voru líka mörg og alvarleg og flokkarnir guldu fyrir þau í kosn- ingunum 2013. Afdrifaríkust voru þá tvímælalaust svik VG við yfir- lýsta stefnu sína gegn aðild að Evr- ópusambandinu. Samningaþófið við Brussel um slíka aðild stóð kjör- tímabilið á enda og þingflokkur VG sundraðist vegna afstöðu og vinnu- bragða Steingríms Sigfússonar sem formanns. Inn í þetta fléttaðist Ice- save-samningur stjórnvalda við Breta og Hollendinga sem hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslu og síð- ar dæmdur ómerkur af EFTA- dómstólnum, sem sýknaði Ísland af öllum kröfum ESA. Fyrirætlanir um olíuleit og olíuvinnslu á vegum Íslendinga á Jan Mayen-svæðinu kórónuðu síðan undanhald stjórn- arinnar í umhverfismálum. Við þessar aðstæður sagði ég mig úr VG, sem ég hafði átt þátt í að stofna fyrir kosningarnar 1999, og hef síðan verið óflokksbundinn. Katrín öflugur forsætisráð- herra Katrín Jakobsdóttir hefur verið í forystusveit VG allt frá árinu 2003 og setið á Alþingi frá 2007. Hún tók við formennsku í flokknum árið 2013 og hefur þannig öðlast mikla og dýrmæta reynslu. Eftir stjórn- arandstöðu VG í tíð tveggja rík- isstjórna á árunum 2013-2017 tók hún við forsætisráðuneytinu 30. nóvember 2017 og hefur skipað það með sóma og við vaxandi vinsældir síðan. Það þurfti í senn styrk og framsýni til að standa að þriggja flokka stjórn ólíkra stjórnmálaafla haustið 2017. Reynslan af samstarf- inu hefur hins vegar sýnt að þetta var rétt skref og sá þó enginn fyrir þá glímu sem fólst í Covid-pestinni allt frá í mars 2020. Þar tókst stjórninni í senn að hlýða kalli sér- fróðra og stilla saman strengi al- mennings á farsælan hátt. For- menn samstarfsflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks, hafa ásamt Katrínu verið burðarásinn í þessu breiða sam- starfi og styrkt stöðu sína. Það á ekki síst við um Bjarna Benedikts- son, sem hefur þurft að glíma við öfl í eigin flokki sem gagnrýnt hafa samstarfið við VG. Sundurleit stjórnarandstaða Gegn núverandi ríkisstjórn og flokkunum sem að henni standa eru ekki færri en sex framboð sem bjóða fram í öllum kjördæmum. Samfylkingin og Viðreisn eru fylgj- andi aðild Íslands að Evrópusam- bandinu og Píratar eru opnir fyrir ESB-aðild sem ákvarðast eigi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slík afstaða samrýmist ekki stefnu VG sem tel- ur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins. Samstarf flokka með svo ólíka sýn til grund- vallarmála verður aldrei heilsteypt og VG getur ekki endurtekið leik- inn frá 2010 um umsóknaraðild að ESB. Önnur framboð í stjórnarand- stöðu, fái þau þingmenn kjörna, eru ólíkleg til samstarfs um ríkisstjórn. Afar afdrifaríkar kosningar Alþingiskosningarnar 25. sept- ember eru óvenju mikilvægar, þar eð framundan eru risavaxin við- fangsefni sem Ísland og heims- byggðin öll þurfa að glíma við. Fyr- ir utan baráttuna fyrir heimsfriði ber hæst glímuna við loftslagsvána og aðlögun að breyttu umhverfi, ekki síst á norðurslóðum. Hér á unga fólkið og óbornir mest undir því að vel takist til. Ég skora því á æskufólk að taka virkan þátt í kosningabaráttunni fyrir lífvænlegu umhverfi. Nærtækasta lóð á þá vogarskál er að nota atkvæðisrétt- inn til stuðnings VG undir forystu Katrínar. Eftir Hjörleif Guttormsson » Framundan eru risa- vaxin verkefni sem þurfa á breiðu samstarfi núverandi stjórnar- flokka að halda. Eftir Hjörleif Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. VG er lykillinn að myndun farsællar ríkisstjórnar Almannatryggingar greiða um þrjá fjórðu hluta örorkulífeyris hérlendis en um fjórð- ungur alls lífeyris vegna örorku er greiddur úr samtryggingarkerfi líf- eyrissjóða. Þetta hlut- fall er svipað ár frá ári. Þeim hefur fjölgað næsta stöðugt frá alda- mótum sem eru með 75% örorkumat eða rétt til endurhæfingarlífeyris. Fyrir hverja 100.000 manns á vinnu- aldri voru þannig um 6.300 á örorku- og endurhæfingarlífeyri árið 2000, fjöldinn var kominn í 8.600 árið 2010 og í 9.700 manns í ársbyrjun 2021 eða nær 10% fólks á aldrinum 18-66 ára. Þessa þróun má glöggt sjá í með- fylgjandi súlu- og línuriti sem byggt er á upplýsingum frá Hagstofu Ís- lands og Tryggingastofnun ríkisins. Lífeyriskerfi landsmanna stendur í heild fyrir sínu og iðgjöld í lífeyris- sjóði eru mikilvægur hluti örorkutrygginga landsmanna. Þannig er hluti af lífeyrisgreiðsl- um samtryggingar- deilda lífeyrissjóða til greiðslu örorku-, maka- og barnalífeyris. Það breytir hins vegar ekki því að meginhlutverk líf- eyrissjóða er að greiða sjóðfélögum ævilangan lífeyri við starfslok. Iðgjöld til samtrygg- ingardeilda alls lífeyr- issjóðakerfisins námu 229 milljörðum króna árið 2020 og sama ár greiddu samtryggingardeildir lífeyrissjóða rúmlega 22 milljarða króna í örorku- og endurhæfingarlífeyri. Þróun mála varðandi örorku og tíðni hennar hef- ur því augljóslega áhrif til lengri tíma á burði lífeyrissjóða til að greiða sjóðfélögum eftirlaun. Þá er þess að geta að trygg- ingafræðileg áhætta vegna örorku er mjög misjöfn eftir lífeyrissjóðum. Hjá sumum sjóðum eru allt að 30% lífeyrisgreiðslna vegna örorkulífeyris en hjá öðrum sjóðum er hlutfallið mun lægra. Það er og hefur verið umfjöllunarefni á vettvangi lífeyr- issjóða hvernig bregðast skuli við enda ljóst að hlutfallslega minna af iðgjöldum er varið til eftirlauna í sjóðum sem hafa hátt hlutfall örorku- lífeyris en í sjóðum þar sem fleiri halda starfsorku allt þar til eft- irlaunaaldri er náð. Ástæða er til þess að greina frekar þá hópa samfélagsins þar sem tíðni örorku hefur aukist undanfarin ár. Það er forsenda þess að bregðast við og vinna að því að gera fleirum mögulegt að halda lengur starfsork- unni. Tvennt liggur fyrir varðandi áhættu á örorku. Annars vegar að örorka eykst með aldri og hins veg- ar að hlutfall örorku kvenna er mun hærra en karla og gildir það um alla aldurshópa nema fyrir hópinn undir tvítugu. Í gögnum Hagstofunnar um fjölda örorkulífeyrisþega kemur fram að undanfarin ár hefur hlutfall kvenna á örorku innan hvers aldurs- hóps farið hækkandi en ekki er hægt að sjá skýr merki um sömu þróun hjá körlum ef frá er talinn aldurshópurinn 20-29 ára. Við blasir að kanna þarf hvað veldur aukinni örorku og meta til hvaða aðgerða er hægt að grípa til að sporna við þessari þróun. Lífs- gæði þeirra sem missa starfsorku, jafnvel á besta aldri, skerðast aug- ljóslega auk þess sem dýrt er fyrir samfélagið að missa fólk af vinnu- markaði. Miklar breytingar hafa átt sér stað á vinnumarkaði hérlendis og annars staðar á tiltölulega skömm- um tíma. Ástæða er til að ræða um núverandi fyrirkomulag og end- urmeta undirstöður kerfisins til að treysta þær til framtíðar. Stað- reyndir sem hér eru dregnar fram benda til að þörf sé á því. Jafnframt blasir við að ræða hlutverk lífeyr- issjóða gagnvart greiðslum örorku- lífeyris og áhrif þess á það meg- inverkefni allra sjóða að greiða sjóðfélögum eftirlaun til æviloka. . Frekari upplýsingar má finna á vef Landssamtaka lífeyrissjóða, www.lifeyrismal.is. Eftir Ástu Ásgeirsdóttur »Við blasir að kanna þarf hvað veldur auk- inni örorku og meta til hvaða aðgerða er hægt að grípa til að sporna við þessari þróun. Ásta Ásgeirsdóttir Höfundur er hagfræðingur Lands- samtaka lífeyrissjóða. Fjöldi örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega fyrir hverja 100 þúsund á vinnualdri (18-66 ára) 1. janúar ár hvert. Miðast við 75% örorkumat eða rétt til endurhæfingarlífeyris. Áleitnar spurningar um örorku, vinnumarkaðinn og lífeyrissjóði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.