Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Spá Samtaka iðn-
aðarins um þróun og
fjölgun starfa gerir ráð
fyrir því að til ársins
2050 þurfum við að
skapa 60 þúsund ný
störf til að standa und-
ir hagvexti og tryggja
áfram þau lífsgæði sem
við öll erum vön. Þetta
þýðir að skapa þarf
u.þ.b. 2.000 ný störf á
ári. Hvernig ætlum við
að mæta þessari þörf og skapa verð-
mæt störf? Hvernig viljum við sjá
þróun starfa á landinu öllu? Ættum
við ekki að ýta undir þróun nýrra
starfa í rótgrónum atvinnugreinum?
Mennt er máttur
Menntakerfið þarf að vera í stakk
búið til að undirbúa fólk fyrir ný
störf í takt við þarfir atvinnulífsins
og samfélagsþróun hverju sinni.
Menntun til framtíðar þarf að breyt-
ast sem og viðhorf skólakerfisins til
breyttra tíma.
Miklu skiptir að auka þverfaglegt
nám í iðn-, verk- og tækninámi sem
er til þess fallið að útskrifa fleiri sem
eru tilbúnir til starfa í þeim atvinnu-
greinum sem kalla á nýja þekkingu
og nýjar lausnir. Að sama skapi þarf
að efla samvinnu og samstarf fræða-
samfélagsins og at-
vinnulífsins með því að
nýta betur rannsóknir,
efla nýsköpun og miðla
þekkingu.
Sjávarútvegur
Íslenskur sjávar-
útvegur skipar sér í
fremstu röð í heiminum
og af því megum við
vera stolt. Sjávarútveg-
urinn er burðarás í at-
vinnulífi landsbyggð-
arinnar. Störf og
starfsemi fyrirtækja í
sjávarútvegi skiptir miklu máli fyrir
dreifðar byggðir landsins og landið
allt. Ljóst er að afstaða íbúa lands-
byggðarinnar til íslensks sjávar-
útvegs er gjörólík afstöðu íbúa höf-
uðborgarsvæðisins til
atvinnugreinarinnar.
Almennt ríkir sátt um það, hvort
sem það er innan greinarinnar eða
utan, að innheimta eigi gjald vegna
afnota af náttúruauðlindinni. Um-
ræðan er oft á tíðum afvegaleidd
með þeim hætti að fyrirtæki í sjávar-
útvegi séu mótfallin því að greiða
slíkt gjald. Á hinn bóginn er mikil-
vægt að slíkt afnotagjald sé sann-
gjarnt og að þeir sem greiða fyrir af-
notarétt af einni gjöfulustu náttúru-
auðlind okkar Íslendinga búi við
stöðugleika fyrir rekstur sinn. Enda
hafa sjávarútvegsfyrirtækin fjárfest
gríðarlega í nýsköpun og aukið
þannig tækniframfarir í greininni.
Grundvallaratriði er að núverandi
kerfi byggist á vísindalegri nálgun
um sjálfbæra nýtingu fiskveiðistofna
og arðsemi þess er með því hæsta
sem gerist í heiminum.
Óvissa og óstöðugt rekstrar-
umhverfi má ekki valda því að þær
tækniframfarir sem hafa orðið í sjáv-
arútvegi staðni og samdráttur verði í
fjárfestingum innan greinarinnar.
Nýsköpun í sjávarútvegi hefur skil-
að ábata til samfélagsins á sviði nátt-
úru- og umhverfisverndar, verð-
mætasköpunar og nýtingar á afla.
Menning og listir
Menningarlíf skiptir okkur öll
máli og öll viljum við búa við blóm-
legt menningar- og mannlíf. Fram-
lög ríkisins til menningar og lista á
landsbyggðinni er hlutfallslega lágt
miðað við framlög til sömu starfsemi
á höfuðborgarsvæðinu.
Menning og list einskorðast ekki
við höfuðborgarsvæðið. Frumkvæði
og sköpunargleði íbúa á landsbyggð-
inni er mikil og það er hlutverk
stjórnvalda að ýta undir með þeim.
Byggðir með öflugt menningarlíf
eru spennandi og það er líklegra að
ungt fólk vilji setjast að til fram-
búðar þar sem mannlíf er fjölbreytt
og aðlaðandi.
Landbúnaður
Það er auðvelt að segja að hvetja
þurfi til nýsköpunar og tækni-
framfara í landbúnaði en nú reynir á
að koma með lausnir til að ná mark-
miðinu. Það gleymist stundum að
bændur eru eins og allir aðrir sem
standa í rekstri. Það þarf að mynda
umgjörð sem styður við þá og hvetur
til nýliðunar í greininni. Það þarf að
ryðja ýmsum hindrunum úr vegi og
bæta starfsumhverfi greinarinnar.
Íslenskur landbúnaður nýtur hlut-
fallslega mikils stuðnings frá stjórn-
völdum í alþjóðlegum samanburði.
Taka þarf styrkjakerfi landbúnaðar-
ins til endurskoðunar með það að
markmiði að gera bændum auðveld-
ara fyrir að mæta breyttum að-
stæðum. Í því samhengi þarf að
skoða sérstaklega hvort fýsilegra sé
að draga úr framleiðslutengdum
styrkjum og koma á hvata-, land-
bóta- og fjárfestingastyrkjum.
Mikil tækifæri eru í loftslags-
tengdum verkefnum í landbúnaði og
því ættu stjórnvöld að horfa til þess
að styðja betur við verkefni á sviði
umhverfis- og loftslagsmála. Neyt-
endur eru meðvitaðri um ábyrgð
sína í loftslagsmálum og því er mik-
ilvægt að auka tengsl milli bænda og
neytenda.
Atvinnuvegir framtíðarinnar
Fjölgun nýrra verðmætra starfa
er spennandi verkefni sem við verð-
um að taka föstum tökum. Það má
ekki einungis horfa til nýrra at-
vinnugreina sem kalla á fjölgun
starfa heldur þurfum við einnig að
ýta undir sköpun nýrra starfa í rót-
grónum atvinnugreinum. Í þessu
samhengi skiptir það einmitt máli að
styðja við og aðstoða þær atvinnu-
greinar sem þegar hafa skotið rótum
í samfélaginu og stuðla að því að þær
haldi áfram að vaxa og dafna, sam-
félaginu öllu til heilla. Vænlegasta
leiðin til fjölgunar starfa felst í því að
hlúa bæði að þeim rótgrónu atvinnu-
greinum sem haldið hafa uppi verð-
mætasköpun í samfélaginu og að
stuðla að því að nýjar atvinnugreinar
nái fótfestu, vaxi og dafni, jafnvel í
samvinnu við þann atvinnurekstur
sem fyrir er.
Vöxtur atvinnugreina
Eftir Berglindi Ósk
Guðmundsdóttur »Vænlegasta leiðin til
fjölgunar starfa felst
í því að hlúa bæði að
þeim rótgrónu atvinnu-
greinum sem haldið hafa
uppi verðmætasköpun í
samfélaginu og að stuðla
að því að nýjar atvinnu-
greinar nái fótfestu.
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir
Höfundur skipar 2. sætið á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi.
berglindosk7@gmail.com
Í framhaldi af nýút-
kominni skýrslu IPCC
(Intergovernmental
Panel on Climate
Change – loftslagsráðs
Sameinuðu þjóðanna)
dynja á hlustendum
ljósvakamiðla og les-
endum prentmiðla upp-
hrópanir um yfirvof-
andi hrun lífríkis,
mannlegrar tilveru,
vaxandi ógnir í veð-
urfari og annað í svipuðum dúr. Með
fylgja hvatningar til aðgerða, sem
aldrei er greint frá hvað muni hafa í
för með sér í kostnaði eða umbylt-
ingu á lífskjörum og lífsháttum.
Þessi umfjöllun er miklu tíðast með
öllu einhliða; einungis er sett fram
ein hlið málsins – sú sem er myrkust.
Fréttamenn
Í góðri og vandaðri umfjöllun og
fréttamennsku á reglan að vera sú,
að mál séu skoðuð frá fleiri en einu
sjónarhorni. Fréttamenn eiga ekki
að reka áróður, heldur gefa les-
endum sínum og hlustendum sem
hlutlausastar og viðtækastar upplýs-
ingar um þau mál, sem eru til um-
ræðu. Geri þeir það ekki bregðast
þeir hlutverki sínu og verða í raun
ekki annað en meðvirk handbendi
þeirra, sem hrópa hæst,
en ekki þeir upplýs-
endur um fjölbreyti-
leika mannlífsins, skoð-
ana og viðhorfa, sem
þeir eiga að vera vilji
þeir vera starfi sínu
trúir, eða það, sem þeir
segjast vilja og telja sig
vera: flytjendur hlut-
lægra upplýsinga og
fróðleiks; hið upplýs-
andi afl í samfélaginu,
sem miðlar því efni,
sem þörf er á, til þess
að borgararnir geti hver um sig tekið
upplýsta afstöðu til þess, sem er efst
á baugi hverju sinni.
Fréttamenn eiga líka að leitast við
að hafa yfirsýn. Þeir eiga ekki að
gleypa hráar og birta stórkarlalegar
staðhæfingar um til dæmis það, að
aldrei hafi verið hlýrra á jörðinni, að
aldrei hafi verið fleiri eða verri felli-
byljir, aldrei önnur eins flóð, aldrei
skaðvænlegri gróðureldar eða annað
í svipuðum dúr. Þeirra verkefni er að
greina rétt frá. Þeir eiga að leita upp-
lýsinga; leita staðfestinga, leita hins
sanna og þannig leitast við að setja
fram það, sem rétt er, en ekki berg-
mála umhugsunarlaust það, sem að
þeim berst úr ranni háværra og stór-
orðra manna, sem virðast hafast við í
endurómsrýmum sér líkra og vilja
ekki heyra í nokkrum öðrum en sjálf-
um sér og skoðanasystkinum sínum.
Loftslagsrannsóknir
Vísindamenn hafa í áraraðir unnið
að því að greina og rekja loftslag á
jörðinni langt aftur í tímann. Til þess
hafa þeir nýtt sér tækni nútímans.
Þeir hafa tekið ískjarna úr jöklum á
Grænlandi og úr íshellu suð-
urskautsins, borað í setlög á hafs-
botni, talið árhringi í trjám og grúsk-
að í gögnum liðinna kynslóða. Til
hefur orðið mynd af loftslagi á jörð-
inni, sem nær hundruð þúsunda ára
aftur í tímann og hefur verið grand-
skoðuð og rýnd. Hún er komin í
nokkuð endanlegt form og er al-
mennt viðurkennd sem marktæk í
umræðu um loftslag á þessum hnetti.
Á meðal þess, sem sett hefur verið
fram, eru línurit um loftslag yfir af-
mörkuð tímabil, svo sem tímann frá
hámarki síðustu ísaldar til nútíma.
Þessi línurit hafa birst víða og sem
næst ætíð í sömu mynd, eða þeirri,
sem hér fylgir.
Línuritið
Svo sem sjá má á línuritinu lauk
síðustu ísöld endanlega fyrir um
8.000 árum með nokkru skeiði hlut-
fallslegrar hlýnunar. Þá tók við mik-
ið hlýindaskeið, en á því blómstraði
menning Egypta hinna fornu. Við
tók kuldaskeið, en síðan hlýnaði á ný
og upp rann mikið blómaskeið, svo
sem í Egyptalandi. Reyndar var
heldur svalara en á fyrsta hlýinda-
skeiðinu eftir síðustu ísöld, en bæði
menning og mannlíf náðu miklum
hæðum og sjást merki þess enn í dag
í til að mynda hinum miklu píramíd-
um, sem reistir voru á þessu skeiði,
skreytingum þeirra og myndletri.
Við tók kuldaskeið og stutt hlýinda-
skeið. Eftir enn eina kólnun rann
upp hlýindaskeið, sem kennt er við
Rómverja, en á því blómstraði bæði
þeirra menning og einnig annarra
þjóða bæði í Asíu og í Ameríku, svo
sem menning Maya, sem kom fram
upp úr 750 f.Kr. og stóð fram til um
500 e.Kr., eða svipaðan tíma og Róm-
arveldið. Enn kólnaði og átti það sinn
þátt í miklum fólksflutningum –
þjóðflutningunum miklu – og falli
Rómarveldisins. Við tók mið-
aldahlýindaskeiðið. Þá hlýnaði svo
vel, að Ísland byggðist og Grænland
líka, vínviður óx hærra hlíðum Alpa-
fjalla en síðan hefur gerst og allt
norður á Englandi og suðrænar
korntegundir náðu þroska norðar en
fyrr.
Að lokum
Eins og fram kemur á línuritinu
hafa hlýindaskeiðin frá síðustu ísöld
orðið flest styttri og svalari í tímans
rás. Annað er líka greinilegt, eða
það, að mannlíf og menning hefur
blómstrað á hlýindaskeiðum en
hnignað á kuldaskeiðum. Hið sama
gildir um dýralíf og jurtir. Hlýindi
virðast því vera af hinu góða.
Umliðin um það bil 25 ár hafa
gervitungl hringasólað um jörðina og
tekið af henni myndir. Á meðal þess,
sem fram hefur komið á þessum
myndum, er það, að í heild tekið hef-
ur jörðin grænkað. Það helst í hend-
ur við það, að nú stendur yfir hlý-
indaskeið, reyndar nokkuð kyrrstætt
sem stendur, því að frá um það bil
1995 hefur meðalhitinn á jörðinni lít-
ið sem ekkert breyst.
Er ekki rétt að láta af upphróp-
unum um kolefni og hlýnun og horf-
ast í augu við hinn raunverulega
vanda sem að steðjar? Ekki hlýindi,
heldur of mikla fólksfjölgun og stór-
fellda fólksflutninga.
Loftslagsbreytingar
Eftir Hauk
Ágústsson
»Hlýindi virðast því
vera af hinu góða.
Haukur
Ágústsson
Höfundur er fyrrverandi kennari.