Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 18

Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 ✝ Kristján Páll Kristjánsson (Krissi) fæddist í Reykjavík 4. nóv- ember 1979. Hann lést eftir snarpa viðureign við krabbamein á Ho- spice Sydvestjyll- and í Esbjerg í Danmörku 6. sept- ember 2021. Foreldrar Krist- jáns Páls eru Kristján Jón Jóns- son, f. 15. júlí 1948, og Steinunn Jóhanna Pálsdóttir, f. 3. maí 1950. Systkini Kristjáns eru Að- alheiður, f. 1969, Laufey, f. 1973 og Jóhannes Steinar, f. 1984. Eftirlifandi eiginkona Krissa er Hanna Jóna Ragnarsdóttir, f. 28. mars 1980, dætur þeirra eru Petrúnella Aðalheiður, f. 11. október 1998, kærasti hennar er Viktor Andri Reynisson, f. 1999, og Katrín Diljá, f. 29. apríl 2006. Fyrsta æviárið bjó Krissi með fjölskyldu sinni í Vík í Mýrdal en annars ólst hann að mestu hans var þó fjölskyldan og var föðurhlutverkið honum afar kært. Krissi bætti jafnt og þétt við sig menntun í ýmsum skólum og skaraði fram úr í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Stærðfræði og skyldar greinar voru hans yndi og hann stefndi á að hefja nám í eðlisfræði með vinnu haustið 2021 áður en krabbameinið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Árið 2018 fluttist Krissi ásamt konu, dætrum og gælu- dýrum til Danmerkur og hóf störf hjá LEGO group sem Lead IT Engineer. Hann var gríð- arlega ánægður í starfi þar. Hann naut mjög síðustu mán- aðanna þrátt fyrir erfiðar lyfja- gjafir. Hann gat sökkt sér í Star Wars-bækur og myndefni, keypti og spilaði á draumagít- arinn sinn, spilaði World of Warcraft af hjartans lyst og var með konu og dætrum, sem var það sem hann elskaði mest. Útför Kristjáns Páls fer fram þann 13. september í Billund í Danmörku að viðstöddum nán- ustu fjölskyldu og vinnu- félögum. Minningarathöfn mun fara fram á Íslandi og verður tímasetning hennar auglýst nánar síðar. upp í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem hann kláraði sína grunnskóla- göngu frá Haga- skóla. Síðan lá leið hans í MR einn vet- ur en þaðan færði hann sig yfir í Iðn- skólann þar sem hann lærði raf- eindavirkjun. Krissi fékk ung- ur áhuga á gítar. Hann tók þátt í Músíktilraunum í grunnskóla þar sem hljómsveit hans lenti í þriðja sæti og hann spilaði snilldarvel á gítar alla ævi. Hann fann sig vel í golfiðkun eftir þrítugt. Mest af öllu elsk- aði hann ævintýri, Star Trek, Star Wars, Hringadróttinssögu, Hobbitann, Dungeons and Dra- gons, og var alla tíð mikill áhugamaður um tölvuleiki. Hann var lengstan hluta starfs- ævinnar innan tölvugeirans að vinna fyrir ýmis tölvuleikjafyr- irtæki. Það mikilvægasta í lífi Kristján Páll gekk í Vestur- bæjarskólann og síðan í Haga- skóla. Hann byrjaði í MR en lauk ekki námi þar því áhuginn var við tölvur sem kom fljótt í ljós eftir að pabbi hans kom með tölvu heim þegar hann var um 11 ára gamall og þá varð ekki aftur snúið. Hann var eig- inlega einn af þeim fyrstu sem grúfðu sig ofan í tölvur og forrit seinna meir bæði heima við og í starfi. Hann varð einskonar tölvunörd ef svo má segja. Hann stundaði nám í tölvunar- fræðum hjá Tölvuskóla Suður- nesja, leigði sér íbúð í Keflavík og fékk vinnu í tölvudeild Varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Kynntist hann þar góðu fólki sem urðu góðir vinir hans og hélt hann sambandi við sína gömlu vini til hinsta dags. Kristján Páll var líka „System Architect“ í tölvudeild CCP 2012-2014 og „Cloud Systems Architect“ hjá WuXi Nextcode 2015-2019 eða allt þar til fjöl- skyldan flutti til Danmerkur. Hann var kannski ekki vin- margur en traustur vinur þeirra sem hann kynntist vel. Alltaf var hann til í að hlusta og gefa ráð. Kristján Páll okkar var bráðvel gefinn, rólyndur og gat verið snöggur t.d. við að sjá út með tölur og mengi og finna lausnir og útkomur. Ekkert vafðist fyrir honum í ráðum til fólks hvort sem um ræddi tölvu- mál, viðgerðir eða rafmagn. Hann var fljótur að átta sig og mjög naskur að sjá út hvað var málið ef einhvers þurfti við. Það var stutt í góðvildina og hlýjuna og fallega milda brosið ef svo bar undir. Hann var mjög næm- ur og tilfinningaríkur og lét sér annt um allt sitt fólk, vini sína og fjölskyldu. Hann var elsku- legur við konu sína og dætur og vildi allt fyrir þær gera. Hann hefði getað vaðið eld og brenni- stein fyrir þær allar ef með þyrfti. Hann var heilshugar þegar eitthvað bjátaði á hjá öðr- um, alveg sama hver átti í hlut. Hann átti stundum erfitt og hugur þungur en hann bar það ekki á torg og bar þess vegna harm sinn í hljóði eins og stund- um er sagt. Kristjáni Páli var margt til lista lagt eins og að leika á gít- ar. Hann fikraði sig áfram af fingrum fram á gítarinn sem pabbi hans gaf honum 11 ára gömlum og síðar fór hann í gít- arnám og varð góður gítaristi. Hann hafði ekkert fyrir því að hlusta á lög og finna nóturnar sem við áttu og leika svo hnökralaust. Hann hafði svo gott tóneyra til að geta spilað á gítarinn sinn. Reyndar hafði hann farið í Tónlistarskóla Reykjavíkur 9 ára gamall og lært þar á altflautu og nótna- lestur. Oft var líf og fjör í fjölskyldu- húsinu á Vesturgötunni. Krist- ján Páll og skólabræður hans mynduðu smá hljómsveit sem æfði í bílskúrnum og kjallarinn varð miðstöð tölvuleikjanna hjá félögunum, stundum langt fram á nótt og um helgar. Það var oft glatt á hjalla og hálfgerð ætt- armót í matarveislum ættingja og fjölskylduvina Kristjáns Páls á Vesturgötu 37 þar sem fjöl- skyldan bjó. Fermingarveislan hans Kristjáns Páls var einmitt haldin heima. En nú er stundin liðin og minningarnar einar eftir til að ylja sér við. Allt er svo öfugsnú- ið. Ungur maður í blóma lífsins, 41 árs, er frá okkur tekinn en eftir sitjum við foreldrar hans á áttræðisaldri og finnst hlutirnir í algjörlega öfugri röð í sorg okkar. Hann barðist hetjulega til hinstu stundar en varð að lúta í lægra haldi fyrir vágest- inum mikla og er okkur og öðr- um ættingjum hans mikill harmdauði. Blessuð sé minning elskulegs sonar og vinar sem nú er genginn. Sendum við kær- leiks- og samúðarkveðjur til eft- irlifandi eiginkonu og dætra. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Mamma og pabbi. Gleðidagur mikill var 4. nóv- ember 1979 þegar þú komst í heiminn elskulegurinn minn. Al- gjört ljós í mínu lífi. Hefur allt- af átt hjarta mitt frá fyrstu mínútu. Ógleymanlegt þegar ég passaði þig og Lullu sætu sys þegar ég var 12 ára heilt sumar og þú aðeins tveggja ára, varst alltaf eins og hugur minn, því- líkur ljúflingur, yndislegur, fal- legur og góður. Við horfðum á bílana út um gluggann, það var það skemmtilegasta sem þú gerðir og við lékum okkur og svo eltirðu mig um alla íbúð, bara sætastur. Sorgin er mikil í mínu hjarta nú, elsku hjartagullið mitt. Vildi að ég gæti sótt þig og haft þig hjá mér. Góðar stundir áttum við saman og einnig erfiðar. Snöppin okkar skemmtilegu, Rip-, Rap- og Rup-grúppan okkar, vá, það var yndislegt og allt skemmtilega spjallið okkar, mikið á ég eftir að sakna þess. Þú varst sólargeislinn í mínu lífi en nú hefur verið dregið fyr- ir sólu. Vildi að ég gæti faðmað þig, knúsað og kysst, yndislegi bróðir minn. Við fengum ynd- islega stund saman þegar ég kom til þín til DK í júlí og mun ég halda fast í þá fallegu minn- ingu okkar. Þú munt alltaf eiga stóran sess í mínu hjarta og mun ég alltaf halda minning- unum um þig á lofti. Börnin mín dýrkuðu þig, flottasti, skemmti- legasti og fyndnasti frændinn, alltaf eins og þau hefðu hitt þig í gær. Ég kem til þín þegar minn tími kemur og við knús- umst, föðmumst og kyssumst. Ég lofa því elskulegurinn minn. Ég sakna þín óendanlega mikið, elsku fallegi bróðir minn, en þangað til næst: Sofðu vært og rótt, elsku bróðir. Lovjú að eilífu. Þín elskandi stóra sys, Aðalheiður Mjöll Petrúnelludóttir (Heiða). Með brostið hjarta kveð ég þig elsku litli bróðir minn og vinur. Vegna þagnarinnar við öllum spurningum mínum hlýja ég mér við minningarnar okkar. Fyrir utan að vera þyngsti bróðir, sem fimm ára stelpa hef- ur hugsanlega eignast, þá varstu gæddur mörgum heillandi persónueinkennum. Frá fyrstu tíð varstu hæglátur, dundari með sótsvartan húmor. Útlit þitt var fallegt, þú varðst fljótt hávaxinn og ljósa hárið, sem fékk stundum að vaxa, fór þér vel. Önnur framtönnin þín fór aðeins yfir hina sem gerði bros þitt og glott svo ómót- stæðilega fallegt að það var ekki hægt annað en að brosa og vera í góðu skapi í kringum þig. Tónlistin skipaði fljótt stóran sess í hjarta þínu. Gítarinn þinn og magnarinn voru aldrei langt undan og ég og páfagaukurinn Kobbi hlustuðum alltaf á þig með aðdáun. Þú varst mikið náttúrubarn og hafðir áhuga á öllu sem Mýrin hafði upp á að bjóða. Í minningunni kvartaðir þú aldrei, baðst aldrei um neitt og fannst sjálfur út úr hlut- unum. Þú hlustaðir meira en þú talaðir. Ég er og verð að eilífu þakk- lát fyrir að hafa fengið þig sem bróður. Við vorum náin og góð saman. Minningarnar okkar lifa. Útlit þitt lifir í börnunum okkar og ég mun aldrei gleyma þér. Það er í raun og veru magnað að þú, þessi hægláti rólegi drengur, varðst ungur pabbi, þú fannst ástina þína fljótt og menntaðir þig í tölvuheiminum á skjótan og farsælan hátt. Fyr- ir það er ég þakklát. Það voru mikil gæði í þínu stutta lífi. Þú varst frábær pabbi, barn- gæska þín átti sér engin tak- mörk. Þú varst einfaldlega best- ur og stelpurnar þínar nutu svo aldeilis góðs af því. Á þínum fullorðinsárum lifðir þú fyrir þær. Þið voruð samheldin og ástrík fjölskylda sem umvöfðuð ykkur með dýrum, kósíheitum og góðum anda. Til ykkar var alltaf gott að koma. Á heimilinu fékkstu pláss til að vera þú sjálfur, dunda, spila á gítarinn, vinna heima í tölvunni, vera í kringum dýrin þín, dekra þau/ þær og umvefja alla þá sem í kringum þig voru ást og um- hyggju. Það var erfitt að fylgjast með baráttu þinni við hinn ógnar- sterka krabba sem fannst inni í þér fyrir sjö mánuðum. Ótelj- andi illkynja meinvörp sem voru svo sannarlega staðráðin í að drepa þig frá fyrstu mínútu. Baráttan, trúin, viljinn og þráin eftir lengra lífi með stelp- unum þínum þremur var svo áþreifanlega magnþrungin að við, þínir nánustu, stóðum ut- anvelta, ráðþrota og ráðalaus rétt eins og vélvana árabátar úti á ólgandi rúmsjó. Það var vont og ný tilfinning að fyllast þessu djúpa dökka vonleysi og þessum ömurlegheitum að geta ekki gert neitt fyrir ykkur. Þið sem voruð stödd í draumalífinu ykk- ar, í draumahúsinu, með draumagarðinn og þú í drauma- starfinu. Þú lifir áfram Krissi minn, í hjarta mínu og sál. Skarðið verður aldrei fyllt en ég mun reyna að fylla það með gulli góðra minninga. Hvíldu í ró og friði elsku litli bróðir minn. Við sjáumst aftur einhvers staðar, einhvern tíma aftur. Þín Laufey (Lulla). Elsku hjartans Krissi minn, maðurinn hennar Hönnu Jónu minnar og tengdasonur hennar systur minnar. Pabbinn þeirra Petu og Kötu. Mér finnst svo ótrúlega stutt síðan ég heyrði af þér fyrst. Kærastinn hennar Hönnu Jónu minnar í heimsókn á Álfaskeið- inu, máttir sko ekki gista en fórst samt ekki heim fyrr en undir morgun. Þetta voru fyrstu sögurnar sem hún amma Drop- laug sagði mér af ykkur kær- ustuparinu og mér fannst þetta hrikalega spennandi. Svo þegar við Jói og krakkarnir fluttum heim sumarið 1998 þá var fyrsta lífið sem þið skópuð komið vel af stað í mallakútnum hennar Hönnu Jónu þinnar og Peta fæddist í október þetta haust. Þið voruð búin að ná smá meiri þroska þegar hún Kata kom í heiminn árið 2006 en samt alltaf sömu skemmtilegu krakkarnir. Það sem hún Sissa systir mín var stolt af ykkur og montin af ömmustelpunum sínum. Þið Hanna Jóna hafið búið víða og gert margt svo ekki sé meira sagt. Þið hikuðuð aldrei við að skipta um umhverfi, hvort sem var innan höfuðborgarsvæðis- ins, út um landið okkar góða og svo núna síðustu árin hafið þið búið um ykkur í Danmörku þar sem þú starfaðir fyrir LEGO. Mér hefur þótt einstakt að fylgjast með ykkur fjölskyld- unni í gegnum tíðina, svolítið á ská þar sem ég er „bara“ frænka en samt svo náið þar sem ég á svo mikið í henni Hönnu Jónu minni. Þið hafið lagt mikla alúð í dætur ykkar og þær bera þá alúð vel. Þú hef- ur gefið þeim gott veganesti sem þær munu grípa til á áframhaldandi leið sinni í gegn- um lífið. Núna rennur hugurinn svolít- ið sjálfkrafa til síðustu jóla sem við héldum saman á Reyrenginu hjá Sissu og Stebba. Við vissum þá að það væru síðustu jólin hennar Sissu tengdamóður þinnar, við vissum bara ekki að það væru líka síðustu jólin þín. Þessi jól voru einstaklega góð, falleg og innihaldsrík, mikið hlegið og talað og etinn góður matur sem þið hjónin sáuð um fyrir okkur hin. Einstök sam- vera sem við erum þakklát fyrir og skilur eftir margar góðar minningar, líkt og allar aðrar samverustundir okkar í gegnum lífið. Nýárið var vart runnið í garð þegar þú færð svo þína grein- ingu og var það sannarlega mik- ið áfall fyrir okkur öll en ekki síst fyrir stelpurnar þínar þrjár, Hönnu, Petu og Kötu. Þú háðir hetjulega baráttu við þennan ófögnuð sem krabbinn getur verið. Þið fjölskyldan náðuð samt á einstakan hátt að gera þennan allt of stutta tíma inni- haldsríkan og bjartan. Eftir því sem þú veiktist meir urðu stelp- urnar þínar sterkari með hverri raun og saman fóruð þið af styrk allt á leiðarenda þar sem þú kvaddir umvafinn ást. Ég og fjölskylda mín þökkum þér samfylgdina elsku Krissi minn. Elsku stelpurnar okkar, Hanna Jóna, Peta og Kata – við vottum ykkur okkar hjartans samúð. Andrea, Jóhannes og fjölskylda. Kristján Páll Kristjánsson ✝ Geir Guð- laugsson fædd- ist 24. október 1935 á Akureyri. Hann lést 1. sept- ember 2021. Foreldrar hans voru Guðlaugur Marteinsson, f. 6. júní 1911 á Sjö- undastöðum í Fljótum, d. 7. sept- ember 1992, og Elsa Jónsdóttir, f. 16. júní 1916 á Krossanesi, Glæsibæjar- hreppi í Eyjafirði, d. 2. ágúst 1953. Bræður Geirs eru Skúli Guð- 3. nóvember 1956, maki Sig- urmon Marvin Hreinsson. 3) Pála Svanhildur, f. 24. febrúar 1958, sambýlismaður Kristinn Pétursson. 4) Anna Jóna, f. 11. febrúar 1962, maki Indriði Þórisson. 5) Laufey Helga, f. 21. mars 1968, sambýlismaður Olgeir Andrésson. Geir var lengst af bóndi á Kjaransstöðum í Hvalfjarð- arsveit. Afkomendur þeirra hjóna eru alls 48. Barnabörn eru 13, barnabarnabörn 29, og eitt barnabarnabarnabarn. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 13. september 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju: https://www.akraneskirkja.is/ Virkan hlekk má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/ laugsson, f. 7. nóv- ember 1942 á Ak- ureyri, og Jón Guðlaugsson, f. 2. janúar 1945 á Hjalteyri. Eiginkona Geirs er Jóhanna Þórdís Þórarinsdóttir, f. 10. desember 1937. Þau voru gefin saman 13. október 1957 í prestsbú- staðnum á Akranesi og eign- uðust fimm dætur. 1) Elsa Guðlaug, f. 19. júlí 1955, maki Sveinn Vilberg Garðarsson. 2) Þuríður Elín, f. Geir Guðlaugsson eða Geirsi eins og hann alltaf var kallaður í sveitinni í gamla daga er nú fallinn frá, en hann var kvænt- ur móðursystur minni Jóhönnu Þórarinsdóttur. Stýrðu þau myndarbúi að Kjaransstöðum, sem þau tóku við af afa og ömmu, Þórarni E. Jónssyni og Þuríði S. Jóhannesdóttur, þar til Anna Jóna dóttir þeirra og tengdasonur tóku við búi. Þá byggðu þau sitt eigið hús, Kjar- ansstaði 2, á jörðinni og hafa búið þar síðan. Það að „fara í sveit“ var ómetanleg reynsla fyrir börn og ungmenni þegar við systk- inin vorum að alast upp. Vorum við Jóhann Svanur elstu bræð- urnir þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í sumardvöl á Kjar- ansstöðum í mörg ár og Jóhann talsvert meira en ég. Manni varð fljótt ljóst hversu góður bóndi Geirsi var. Hann var kraftakarl og man ég að ég dáðist að hvernig öflugir upphandleggsvöðvar hans hnykkluðust við heyskapinn, og æfði mig í laumi skv. frægri æf- ingabók Charles Atlas til að reyna að efla vöðvastyrk svo ég yrði eins og Geir. Hann var einnig afbragðskunnáttumaður á vélar og gerði við hvaðeina og þurfti eiginlega aldrei virtist mér að kalla til neina viðgerð- armenn. Ekki var heldur oft kallað á dýralækna og læknaði hann kýrnar með ýmsum að- ferðum sem mér þóttu nýstár- legar og ekki ólíklegt að það hafi verið eitt af því sem kveikti áhuga minn á læknis- fræði síðar. Þá vakti sérstaka athygli mína og aðdáun á kvöldin við mjaltirnar hversu góður söng- maður Geir var, en hann söng gjarnan hástöfum við beljurass- ana og Jóhanna frænka mín tók stundum undir, enda sungu þau árum saman í kirkjukórnum við Innra-Hólmskirkju. Þar var hann máttarstólpi í bassanum. Eftir mjaltir á fallegum sum- arkvöldum man ég eftir fót- boltaæfingum við skólann í sveitinni, þar sem bændur og vinnumenn þeirra og gestir tókust á. Geir var yfirleitt í vörninni því hann var firna- sterkur í fótunum líka og tók oft útspörk frá marki og mátti þá markmaðurinn hinum megin setja sig í stellingar og vera viðbúinn því ósjaldan náði hann að sparka frá marki alveg að marki andstæðinganna. Húm- orinn og glettnin var alltaf nærtæk hjá Geirsa og kitlaði hláturtaugar nærstaddra. Þá var kunnátta hans á harmon- ikku vel þekkt og marga harm- onikkuhátíðina hafa þau hjónin sótt um ævina, gjarnan á hús- bílnum sínum með viðkomu hjá okkur hjónum á Akureyri ef svo bar undir og voru þær heimsóknir alltaf skemmtileg- ar. Já, maður á margar góðar minningar um Geir en afkom- endur þeirra hjóna eru orðnir ótrúlega margir. Jóhönnu frænku og dætrunum Elsu, Þuríði (Diddu), Pálu, Önnu Jónu og Laufeyju Helgu, þeirra mökum börnum og barnabörn- um, sendi ég innilegar samúð- arkveðjur og kveðjur fylgja einnig frá minni fjölskyldu, móður og systkinum. Haraldur Hauksson. Geir Guðlaugsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.