Morgunblaðið - 13.09.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 13.09.2021, Síða 21
Ástkær tengda- faðir minn Ísleifur Þorbjörnsson var tekinn frá okkur allt of snemma. Mann setur hljóðan og skilur ekki hvað gerðist, af hverju og hví svona snögglega. Það sem gerir frá- fall þitt erfitt, elsku Ísleifur, eru allar góðu stundirnar sem fjölskyldan átti saman í ótelj- andi bústaðaferðum, nokkrum utanlandsferðum, sumarfríum í fellihýsinu og svo verunni í Ak- urgerði, sumarbústað fjölskyld- unnar síðustu árin. Tónlistin finnst mér standa upp úr þegar ég hugsa til þín, alltaf var stutt í gítarinn og með hann í fanginu ljómaðirðu og naust þín í botn. Yfirleitt voru sömu lögin tekin í fyrstu, s.s. Teach your children, Bring it on home to me o.fl., o.fl. Elsku tengdapabbi, þú nýtur eflaust sameiningarinnar við Hjalta Þór og það veitir okkur fjölskyldunni mikla huggun, minning þín lifir. Kveðja, Magnús Daníel. Þegar ástvinir falla frá fara hugsanir margar á stjá og við finnum í minningum fró fáum styrk, öðlumst sálarró. Og að tilgangi hefjum leit krefjumst svara en enginn veit hver er næstur á Guðs síns fund og upp rennur þín hinsta stund. Sjálft lífið svo örstutt er svo láttu það eftir þér að njóta þess, þakka samt ber þeim herra sem alráður er. (SHL) Það slær þögn og hugurinn fer á flug þegar harmafregn um hann Ísleif mág minn barst okkur hjónum. Ekki datt okkur í hug að hans lífsklukka myndi Ísleifur Þorbjörnsson ✝ Ísleifur Þor- björnsson fæddist 9. sept- ember 1951. Hann lést 28. ágúst 2021. Ísleifur var jarð- sunginn 9. sept- ember 2021. stöðvast svo snöggt. Ísleifur ólst upp á Skagaströnd í stórum systkina- hópi og fór ungur til Reykjavíkur að læra bifvélavirkj- un, snyrtimennska og faglegur fram í fingurgóma og allt- af voru bílarnir hans best bónaðir. En misjöfn eru verkefni lífsins og þurfti Ísleifur að kveðja fyrri konu sína hana Petu og son þeirra Hjalta Þór langt um aldur fram. En með æðruleysi og Hafdísi sér við hlið ásamt dætrum þeirra Sveinlaugu og Hrefnu Dröfn náði hann lífs- gleðinni að nýju. Ísleifur var töffari og alltaf flottur en með sínu hæverska fasi kom hann systkinahópnum og vinum í stuð bæði með gít- arspili og söng og átti sín uppá- haldslög sem gott verður að ylja sér við. Þau Hafdís voru búin að finna sér sælureit í sveitinni þar sem fjölskyldan hefur átt gæðastundir sl. ár og „sjaldan féll honum verk úr hendi“ þar, alltaf að smíða og gera fínt og hafði að leiðarljósi allt það besta fyrir fjölskyld- una. Hann var farinn að sjá enda- lok á vinnumarkaðnum og ætl- uðu þau hjónin að njóta ævi- kvöldsins saman, en kallið kom alltof fljótt og 70 ára afmæl- isdagurinn verður nú með öðr- um hætti þar sem Ísleifur er farinn í sína hinstu ferð. Með söknuði og þökk fyrir samfylgd í gegnum lífið kveðj- um við kæran bróður og mág og hlustum á „Teach your children“ sem hann söng og spilaði af einstakri innlifun og var eitt af hans uppáhaldslög- um. Elsku Hafdís, Sveinlaug og Maggi, Hrefna Dröfn og Kári, Dagbjört og Lovísa, ykkar missir er mikill og megi algóð- ur Guð styrkja ykkur. Öðrum aðstandendum sendum við hug- heilar samúðarkveðjur. Björg Lárusdóttir (Böggý), Sigurður Þorbjörnsson (Siggi). MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 Kæri vinur! Að leiðarlokum sendi ég þér bestu þakkir fyrir okkar góðu stundir. Öll þau góðu samtöl er við áttum á liðn- um vetri mun ég geyma mér í huga allar stundir. Ég mun kveðja þig með ljóðlínum eftir Þröstur Guðbjartsson ✝ Þröstur Guð- bjartsson fædd- ist 23. október 1952. Hann lést 17. júlí 2021. Útförin fór fram 26. júlí 2021. Herdísi Andrésdótt- ur frá Flatey á Breiðafirði. Og seinna, þar sem enginn telur ár og aldrei falla nokkur harmatár, mun herra tímans, hjartans faðir vor, úr hausti tímans gera eilíft vor. (H.A.) Farðu í friði, friður Guðs þig blessi. Jón Kr. Ólafsson söngvari, Reynimel, 465 Bíldudal Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF KRISTMUNDSDÓTTIR, Lóló, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sunnudaginn 5. september. Útför fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 16. september klukkan 14. Ólafur Einar Samúelsson Laufey Marta Einarsdóttir Berglind Samúelsdóttir Örn Logi Hákonarson Sigrún Jóna Samúelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG BJÖRGVINSDÓTTIR, Lillý, Frumskógum 6, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Hjúkrunar- heimilinu Ási í Hveragerði að morgni föstudagsins 3. september. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 17. september klukkan 11. Sérstakar þakkir til starfsfólks Áss fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Jónatan Karlsson Anning Wei Karlsson Ingi Björgvin Karlsson barnabörn og barnabarnabörn Miðnætursólin teygir anga sína yfir æfingasvæði Golf- klúbbs Garðabæjar og Kópavogs. Kyrrðin er mikil, það hreyfir ekki vind og við erum einir á svæðinu enda klukkan orð- in margt. Hlynur er að rembast við að kenna mér golf. Eftir nokkrar mislukkaðar tilraunir til þess að fá boltann til að fljúga al- mennilega í loftið tekur Hlynur sig til og heldur sýnikennslu. Hann rífur hlífina af dævern- um, stillir golfkúlunni vandlega upp og svo byrja herlegheitin. Þreklegur skrokkurinn stillir sér fullkomlega upp fyrir framan kúluna. Aftursveiflan er bæði hröð og takföst en um leið og hún nær hæsta punkti fylgir á eftir ótrúleg samhæfing af krafti og nákvæmni sem skila sér í fram- sveiflu sem virðist fara á ljós- hraða í átt að golfkúlunni sem flýgur á loft eins og lítil fallbyssu- kúla. Hlynur snýr sér að mér og seg- ir mér að ég verði að horfa betur á boltann þegar ég er að slá. Agn- dofa hlæ ég mig máttlausan yfir þeirri athugasemd - það vanti að- eins meira upp á en það. Hlynur var nefnilega með ein- dæmum högglangur kylfingur. Þetta var sumarið 2003, þegar Hlynur Þór Haraldsson ✝ Hlynur Þór Haraldsson fæddist 31. ágúst 1985. Hann lést 2. september 2021. Útförin fór fram 10. september 2021. hvorugur okkar hafði náð 18 ára aldri. Við Hlynur höfðum kynnst vet- urinn áður í Fjöl- brautaskóla Garða- bæjar og á milli okkar þræddust saman sterk vina- bönd. Áhugamál okkar voru svipuð og þá sérstaklega enski boltinn þar sem hann hélt með Arsenal og ég Chelsea. Framhaldsskólaárin hjá ungu fólki einskorðast af mikilli skemmtun og var það raunin hjá okkur Hlyni og öðrum vinum. Þegar háskólaárin taka við fer fólk oft í aðrar áttir og við Hlynur hittumst minna, sérstaklega eftir að hann fluttist til útlanda. En um stutta hríð tókst okkur þó að vera nágrannar í Brekkubyggðinni í Garðabænum, sem gladdi okkur mikið. Á þeim tíma byrjaði Hlyn- ur aftur að kenna mér golf, enda orðinn sprenglærður golfkennari. Það litla sem ég kann í dag á ég honum að þakka. Oft er talað um að fólk sé með smitandi hlátur. Hlynur hafði þann eiginleika að geta látið alla aðra hlæja í kringum sig, ef hann hló að brandaranum, þó hló restin af hópnum - jafnvel þó viðkom- andi hefði ekki fattað brandarann. Ég mun sakna þessa smitandi hláturs mikið. Sorgin í kringum fráfall Hlyns er óbærileg á alla kanta. Missir- inn er þó mestur hjá Fríði og drengjunum þeirra tveimur, þeim Flóka og Daða - ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og styrk á þessum erfiðu tímum. Elsku Hlynur, ég mun sakna þín. Þinn vinur, Jóhann (Jói). Elsku Hlynur. Samband okkar nær langt aftur og minningarnar hellast yfir. Ég var bara þrettán ára þegar ég elti Ástu upp á golf- völl til að fara á golfnámskeið. Við komum askvaðandi inn í golfskála og þar lást þú, einn af leiðbein- endunum, í sófanum með bros sem lýsti upp allt húsið. Árin á eft- ir tóku við skemmtilegir tímar á golfvellinum, óteljandi skammtar af frönskum og Sprite Zero og alltaf gerðir þú jafn mikið grín að okkur. Trúðu mér, þú varst aðal- atriðið á þessum golfvelli. Ég hef aldrei spilað heilan hring. Þú varst svo skemmtilegur og hlýr. Ólíkur öllum öðrum sem ég þekkti, dálítill furðufugl, djúpvit- ur og með gamla sál. Ég heyri ennþá einlægan hláturinn. Ég held að við höfum alltaf vitað að við ætluðum að verða kærustupar en þú beiðst þolinmóður þangað til ég kláraði grunnskólann enda þremur árum eldri. Annað hefði verið óviðeigandi. Ég var á leið- inni í Verzló en skipti yfir í FG til að geta verið með ykkur Ástu. Það var líka frekar töff að eiga eldri kærasta með bílpróf og svona. Þú kenndir mér og sýndir svo margt sem maður lærir á þessum árum. Annars eyddum við tímanum aðallega uppi í rúmi að spjalla, fíflast og horfa á spól- ur. Eina nýja og eina gamla af víd- eóleigunni. Við hlustuðum líka á Bob Marley. Svo fylgdirðu mér alltaf heim því það kom nefnilega í ljós að þú varst alls ekki með bíl- próf. Stundum stálumst við inn til mömmu þinnar og pabba til að kíkja á myndina af konunni sem fæddi þig. Þú hefðir ekki getað verið heppnari með foreldra og elskaðir þau svo mikið. Mér er minnisstætt þegar ég fór með mömmu og pabba til Spánar og fékk 90 þúsund króna símreikning þegar ég kom til baka. Ég saknaði þín svo mikið og stalst til að tala við þig alla ferð- ina. Þá var gott að eiga ferming- arpeninginn og honum var mun betur varið í samtöl við þig en stærra sjónvarp eða hljómflutn- ingsgræjur. Síðar fórum við sam- an í sólarlandaferðir eins og full- orðið fólk. En þetta voru líka mikil mót- unarár og við gengum bæði í gegnum erfiðleika sem við reynd- um að hjálpa hvort öðru með. Þú ákvaðst að verða golfkennari og ég fékk mér vinnu með skóla til að geta heimsótt þig til Noregs þar sem skólinn var. Símanúmerið þitt er ennþá aðgangsnúmerið mitt inn á RÚV og víðar. Það er skrítið að kveðja ein- hvern sem var í mörg mikilvæg ár manns nánasti en var það ekki lengur. Mér líður eins og þetta hafi allt gerst í fyrradag en samt er langt síðan við hittumst. Þú hélst áfram að heimsækja mömmu og pabba enda löngu orð- inn fjölskylduvinur. Mamma keypti sólblómafræ fyrir þig í Bandaríkjunum og þú passaðir Kiljan. Þið áttuð alveg sérstakt samband og nutuð þess báðir jafn mikið að vera saman. Mér þótti svo vænt um að fylgjast með þér eignast þína fallegu fjölskyldu og blómstra í leik og starfi. Kæru Fríður, Flóki Þór, Daði Þór, Elín, Halli, Helga Lucia og fjölskyldan öll. Missir ykkar er ólýsanlega mikill og sár. Minning Hlyns lifir í okkur öllum sem þekktum hann og hann mun alltaf eiga sinn stóra sess í hjarta mínu. Takk fyrir allt. Edda Sif Pálsdóttir. ✝ Guðný Egils- dóttir fæddist á Akureyri 5. apríl 1945. Hún lést 18. ágúst 2021 á líkn- ardeild Landspít- alans. Foreldrar henn- ar voru Valgerður Lárusdóttir, f. 18. mars 1925, d. 28. desember 2011, og Egill Sigurðsson, f. 24. janúar 1919, d. 27. desember 2011. Systkini Guðnýjar eru Rakel, f. 12. mars 1946, Kristín, f. 17. júní 1952, og Sigurður, f. 28. ágúst 1958. Guðný giftist Lárusi Hjalte- sted Ólafssyni, f. 7. september 1945. Foreldrar hans voru Ólaf- ur Beinteinsson, f. 1911, d. 2008, og Sigurveig Hjaltested, f. 1923, d. 2009. Þau slitu samvistir. Sonur þeirra er Ólafur, f. 29. ágúst 1965, maki Christiane Grossklaus, f. 8. ágúst 1961. Börn þeirra eru Anna Sigurveig, f. 20. september 2000, og Klara Sól, f. 16. jan- úar 2003. Guðný ólst upp á Akureyri til sjö ára aldurs og síðar í Reykjavík. Hún gekk í Laugarnesskóla og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Hún vann mestallan sinn starfsaldur við matreiðslu á ýmsum stöðum, meðal annars hjá Íslandsbanka og fleiri stórum mötuneytum. Útför hennar fór fram í kyrr- þey. Við fráfall þitt, elsku systir, er höggvið stórt skarð í systkina- hópinn. Við eigum margar góðar minningar gegnum lífið. Þú áttir fallegt heimili og það var alltaf gott að heimsækja þig. Alltaf kræsingar á borðum enda af- burðakokkur og -bakari. Þú hafð- ir líka einstakt lag á allri handa- vinnu, svo eftir var tekið og liggja eftir þig falleg handverk. Kett- irnir þínir voru þér einstaklega kærir fram á síðasta dag. Eins og hjá mörgum voru oft slæmir tímar og erfiðleikar í líf- inu sem þú þurftir að takast á við. Síðast núna í veikindum þínum, þar sem þú barðist hetjulega við krabbameinið með jákvæðni og auðmýkt. Við þökkum þér samfylgdina, kæra systir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Rakel, Kristín og Sigurður. Guðný Egilsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.