Morgunblaðið - 20.09.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
595 1000
n
fy
rir
vaTenerife
.A
th
.
st
á
29. september í 12 nætur
12 nátta ferð
Flug & hótel frá
93.225
12 nætur
Verð frá kr.
116.950
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Verði ekki komið betur til móts við
nemendur sem kunna að vera í
vanda eða brugðist við því að víða
vantar til starfa kennara með starfs-
menntun er slíkt uppskrift að vanda-
málum í framtíðinni. Þetta segir
Ragnar Þór Pétursson, formaður
Kennarasambands Íslands. Hann
kveðst sakna þess að nú fyrir alþing-
iskosningar skuli ekki vera meiri
umræða meðal frambjóðenda um
skóla- og menntamál, svo mikilvæg
sem þau séu.
Hvetjandi aðgerðir
Á líðandi kjörtímabili hefur verið
efnt til ýmissa hvetjandi aðgerða í
því skyni að fjölga
grunnskólakenn-
urum. Þetta segir
Ragnar Þór hafa
skilað ágætum
árangri og afstýrt
því að meiri vandi
skapaðist. Úr
ýmsu þurfi þó að
bæta. Á Austur-
landi, Vestfjörð-
um og Suðurnesj-
um stefni í að um þriðjungur þeirra
sem sinna fræðslu í grunnskólum
hafi ekki tilskilda menntun.
„Með fjarnámi, staðlotum og fleiri
aðgerðum, þar sem reynt er að koma
til móts við kennaranema, hefur
nokkur árangur náðst. Á mörgum
svæðum er þorri þeirra sem sinna
kennslu með menntunina sem þarf.
Svo eru líka svæði eins og Suðurnes-
in, þar sem innviðir skólastarfs hafa
ekki fylgt fjölgun íbúa og nemendum
í grunnskólum þar með talið,“ segir
formaður KÍ.
Skóli án aðgreiningar og efling
læsis hafa verið áhersluatriði í skóla-
starfi síðustu árin. Þeim málum seg-
ir Ragnar að fylgja þurfi betur eftir.
Hann minnir einnig á menntastefnu
til ársins 2030, þingsályktunartillögu
menntamálaráðherra sem Alþingi
samþykkti nýlega. Fimm helstu
stoðir hennar eru jöfn tækifæri fyrir
alla, kennsla í fremstu röð, hæfni
fyrir framtíðina, vellíðan í öndvegi
og gæði í forgrunni. „Þessi atriði og
stefnan almennt er nokkuð sem ég
vil kalla heilbrigða skynsemi.
Stefnumótun og góðum vilja þarf að
fylgja raunverulegur vilji og pening-
ar til aðgerða. Einnig þróað og vel
markað starf sem dugar í fjölmenn-
ingarsamfélagi sem breytist hratt,“
segir Ragnar.
Innviðirnir ekki fylgt íbúafjölgun
- Nemendum sé betur sinnt - Fólk án menntunar sums staðar þriðjungur þeirra sem sinna kennslu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjanesbær Stapaskóli í Njarðvík. Gera þarf betur í skólamálum á
Suðurnesjum með fjölgun menntaðra kennara, að mati formanns KÍ.
Ragnar Þór
Pétursson
hafði endurgerð glermyndanna og
uppsetningu nú með höndum ásamt
samstarfsfólki.
„Þessum viðgerðum hefur fylgt
talsvert umstang, sérstaklega nú
vegna vesturglugganna en taka
þurfti orgel kirkjunnar niður vegna
þessa. Það var gert í maí sl. og því
hefur allt helgihald sem vera átti í
kirkjunni farið fram í safnaðarheim-
ilinu síðustu mánuði og annars stað-
ar eftir atvikum. En nú sér fyrir
endann á þessu mikilvæga verkefni
sem ýmsir lögðu lið með margvís-
legum hætti,“ segir sr. Sigurður
Arnarson að síðustu.
„Glerið í myndunum var unnið
upp og hreinsað, svo nú sjást í skýr-
ara ljósi ýmis tákn og helgimyndir
sem Gerður vildi hafa með. Þarna
má nefna hringinn, sem er tákn ei-
lífðar, og hið alsjáandi auga sem
nefnt er í trúarbrögðunum,“ segir
sr. Sigurður.
Myndir Gerðar Helgadóttur eru
frá 1962 og voru komnar í glugga
Kópavogskirkju á aðventunni það
ár. Sjálf kom hún að uppsetningu og
með henni voru glergerðarmeist-
ararnir, þýsku bræðurnir Ludvicus
og Fritz Oidtman. Þeirra nýtur ekki
lengur við, en barnabarn Ludvicusar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Verk Gerðar eru djásn bygging-
arinnar. Nú þegar endurgerð þeirra
er lokið er mikilvægur áfangi í
höfn,“ segir sr. Sigurður Arnarson,
sóknarprestur við Kópavogskirkju.
Þýskir glermeistarar luku um
helgina uppsetningu viðgerðra
steindra glermynda Gerðar Helga-
dóttur sem eru í gluggunum í bogum
kirkjunnar á Kársnesi.
Hringurinn tákn eilífðar
Fyrstu myndirnar voru teknar
niður 2018 og fluttar til endurgerðar
í glersmiðju svonefndra Oidtmann-
bræðra í borginni Linnich í Þýska-
landi. Svona hafa gluggar úr hverri
hliðinni eftir aðra verið teknir – nú
síðast á vesturhlið. Glermyndir
Gerðar úr þeim gluggum voru tekn-
ar ofan í maí og farið með til Þýska-
lands. Komið svo með aftur til Ís-
lands og þeir settir upp að nýju sl.
laugardag. Þá var búið að hreinsa
glerið og setja í nýja ramma, svo
meira öndunarrými er milli mynda
og rúðuglersins sem er því að baki.
Hve lítið þetta bil var áður olli því að
glerið í myndunum góðu þandist út
og varð mun brothættara fyrir vikið.
En nú er allt komið í betra lag og
sömuleiðis búið að endurnýja
gluggapóstana sem glerið er sett í.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tilfæringar Iðnaðarmenn bera glermyndirnar inn gólf kirkjunnar, þar sem þeim var komið fyrir á sínum stað.
Glermyndir Gerðar
nú aftur í gluggunum
- Tákn og helgimyndir skýr í kirkjunni á Kársnesinu
Guðshús Vinnupöllum var slegið upp við kirkjuna svo iðnaðarmenn kæmust
vel að vegna uppsetningar glermyndanna góðu, sem var mikið vandaverk.
Eldgos hófst á eyjunni La Palma í
gær en undanfarna viku hafa
mælst mörg þúsund skjálftar á
svæðinu. Þeir stærstu voru beint
undir húsi Hafsteins Helga Hall-
dórssonar og Guðrúnar Öglu
Egilsdóttur.
„Við erum að fylgjast með hvar
gosið kemur niður. Eignir okkar
og akurinn eru líklega sloppin,“
segir Hafsteinn en á tímabili var
það mjög tvísýnt.
Eiga þau þriggja hektara
landareign þremur kílómetrum frá
eldgosinu, þar sem þau rækta lár-
perur, papaja og mangó.
„Þetta er í raun allt sem við eig-
um, við erum búin að gróðursetja
þúsund ávaxtatré, gera upp rústir
og setja upp sólarsellukerfi,“ segir
Hafsteinn.
Þróun gossins núna bendir til
þess að það muni ekki fara inn í
þéttustu byggðina en hraunið
skríður niður að sjónum og gleypir
allt sem á vegi þess verður. Fjöl-
mörg hús hafa orðið hrauninu að
bráð en unnið hefur verið að því
að rýma húsin niðri við ströndina.
Hafsteinn og Guðrún eru búin að
bjóða húsið sitt að láni fyrir þá
sem geta ekki verið heima hjá sér.
Ekkert manntjón hefur orðið og
Hafsteinn telur ólíklegt að svo
verði, enda lítið samfélag. „Það fer
ekki fram hjá neinum ef einhvern
vantar.“ thorab@mbl.is
Eldgos rétt hjá
ávaxtabúgarði
- „Þetta er í raun allt sem við eigum“
Bændur Guðrún og Hafsteinn
rækta ávexti á La Palma.