Morgunblaðið - 20.09.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 20.09.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 110 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eitt mikilvægasta hlutverk há- skóla er, þegar kennslu og rann- sóknum sleppir, að vera sterkt afl í samfélaginu. Miðla þekkingu til al- mennings. Þannig berjumst við gegn bullinu,“ segir dr. Ragnhild- ur Helgadóttir, nýr rektor Háskól- ans í Reykjavík. „Mér finnst alveg aðdáunarvert hvað fólk í heil- brigðisvísindum til dæmis hefur verið virkt að segja okkur frá kór- ónuveirunni og rannsóknum tengdum henni. Vissulega gæti vegið þyngra, samkvæmt akadem- ískum viðmiðum, að segja frá málavöxtum í vísindagrein, en að segja frá mikilvægum efnum svo almenningur skilji er ekki síður nauðsynlegt.“ Mikill frumkvöðlaandi Ragnhildur Helgadóttir á að baki langan feril við HR. Var pró- fessor við lagadeild og forseti sam- félagssviðs skólans. Því tilheyra sálfræði-, viðskipta-, laga- og íþróttafræðideild. Undir tæknisvið falla verkfræði-, tölvunar- og iðn- og tæknifræðideildir – en alls eru nemendur í HR um 3.500 talsins. „Ég kom hingað til starfa árið 2002 og var þá einn af fyrstu starfsmönnum nýstofnaðrar laga- deildar. Á nítján árum hefur auð- vitað margt breyst og skólastarfið þróast og orðið að sumu leyti fast- mótaðra og formlegra. Þetta er þó misjafnt, til dæmis er mikill frum- kvöðlaandi í minnstu deildunum,“ segir Ragnhildur. Galdurinn við að stýra stórri stofnun er sá, segir Ragnhildur, að velja sér gott fólk til samstarfs og horfa á stóru myndina. Einnig að halda vel utan um kjarnaþættina, sem í starfi HR eru kennsla og rannsóknir, þar sem tekist hafi að halda dampi allan covid-tímann. Svo þurfi alltaf og endalaust að fylgjast með staðsetningu skólans gagnvart samfélaginu og atvinnu- lífi, og láta rödd menntunar og vís- inda berast. „Starfi rektors fylgir að vera í stöðugum samskiptum við fólk og halda uppi virku sam- tali um ýmis mál. Þá reyni ég alltaf að taka einn vinnudag í viku við eldhúsborðið heima, setja mig inn í mál, lesa og pæla í hlutum.“ Upplýsingar beint af kúnni Á síðustu árum hefur verið mikil eftirspurn eftir fólki með menntun í verkfræði og tækni- greinum, og margir hafa aflað sér menntunar á því sviði. Miklu máli skiptir þó, segir Ragnhildur, að fólk velji nám samkvæmt áhuga- sviði sínu og nái þannig að blómstra. Stærðfræðistelpur eigi fullt erindi í verkfræði. Námsval megi ekki ráðast af steríótýpum sem geti verið varasamar. „Þetta gildir raunar um allar námsgreinar; fólk á einfaldlega að velja fagið sem hugur þess stendur til. Nám, sama hvert er, opnar allt- af möguleika,“ segir Ragnhildur og áfram: „Hér í HR tökum við al- varlega að vera ljósleiðari þekk- ingar frá útlöndum. Oft eru þekkt- ir erlendir vísindamenn hér með fyrirlesta; bæði á staðnum og yfir netið. Það er einfaldlega frábært að fá þekkingu og upplýsingar beint af kúnni eins og til dæmis stafrænt nám gefur möguleika á.“ Rannsóknir hafa mikil áhrif Á nýjum lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims fyrir árið 2022 er Háskólinn í Reykjavík, þriðja árið í röð, efst- ur allra í mati á hlutfallslegum áhrifum rannsókna. Áhrif þessi eru metin út frá fjölda tilvitnana í vísindagreinar, það er hversu oft aðrir vísindamenn vitna í nið- urstöður fræðimanna skólans. Þá er HR áfram efstur íslenskra há- skóla á lista yfir bestu háskóla heims og er í sætum 301-350. „Núgildandi rannsóknar- og matskerfi hér í HR hefur gilt frá 2007 og gefist vel, eins og listinn góði sýnir. Starf okkar hefur líka áhrif víða í samfélaginu, því við höfum sérfræðinga á mörgum sviðum. Fulltrúar til dæmis laga- deildar HR eru oft kallaðir fyrir þingnefndir vegna ýmissa mála, svo sem vegna bankahruns, Ice- save og stjórnarskrár. Sjálf hef ég oft gefið þingnefndum álit á ýms- um málum og verð aldrei vör við annað en þingmenn, hvar sem þeir í flokki standa, séu jafnan að leita bestu upplýsinga til að skilja mál og taka skynsamlega ákvörðun. Þetta er mynd af stjórnmálunum sem ég veit að margir sjá ekki en er mikilvægt að hafa.“ Réttlæti er stórt orð Ragnhildur Helgadóttir segir að sennilega hafi alltaf átt fyrir sér að liggja að starfa að skólamálum. Sjálfri hafi sér fundist gaman að læra. Strax í menntaskóla hafi hún byrjað að hjálpa öðrum framhalds- skólanemum með stærðfræðina. „Eftir stúdentspróf valdi ég lög- fræði, sem er bæði skemmtileg og spennandi. Réttlæti er stórt orð og við það fæst lögfræðin, þegar tek- ist er á um grundvallarmál og stór- ar spurningar. Þar er betri skiln- ingur á málum mikilvægur og í háskólum eru kennarar sem hafa akademískt frelsi til kennslu og rannsókna. Þannig skapast ný þekking og viðhorf sem svo seytla út í samfélagið allt,“ segir Ragn- hildur að lokum. Háskólar séu sterkt afl í samfélaginu og berjist gegn bullinu, segir Ragnhildur Helgadóttir, nýr rektor HR Rektor Akademískt frelsi til kennslu og rannsókna. Þannig skapast ný viðhorf sem svo seytla út í samfélagið allt, segir Ragnhildur Helgadóttir. Ljósleiðari þekkingar - Ragnhildur Helgadóttir fæddist 1972. Hún lauk emb- ættisprófi í lögfræði frá Há- skóla Íslands 1997 og dokt- orsprófi frá háskólanum í Virginíu í Bandaríkjunum 2004. Hefur frá árinu 2019 gegnt stöðu forseta sam- félagssviðs skólans, en var áð- ur prófessor og forseti laga- deildar. - Formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, hefur dæmt mál í Hæstarétti, hér- aðsdómi og í Mannréttinda- dómstóli Evrópu, sat í samn- inganefnd Íslands við ESB og hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum meðfram störfum sínum við háskólann, hér á landi og erlendis. – Ragnhildur er gift Halldóri Eiríkssyni arkitekt og þau eiga þrjú börn. Hver er hún? Morgunblaðið/Sigurður Bogi Nauthólsvík Nemendur Háskólans í Reykjavík eru í dag um 3.500 talsins. Japanskir fánar, sem fólk í landi hinnar rísandi sólar hafði skrifað á fallegar kveðjur og þakkarorð til Ís- lendinga, sáust við athöfn sem efnt var til á dögunum um borð í Óðni, varðskipinu gamla í Reykjavíkur- höfn. Við þá athöfn voru fólki einnig afhentar handprjónaðar húfur sem Hollvinasamtök Óðins fengu frá Jap- an. Forsaga þessa máls er sú að 11. mars 2011 riðu jarðskjálftar og flóð- bylgjur yfir NA-hluta Japans og ollu mikilli eyðileggingu. Í kjölfarið beittu japanskar konur hér á landi sér fyrir því að safna ullarfötum, sem fékk góðar undirtektir. Um 6.000 flíkur söfnuðust og voru þær flokk- aðar og pakkað undir forystu Miyako Þórðarson, prests heyrnar- lausra. Þá tók pósturinn aftur við og flutti fatnaðinn utan. Á hamfara- svæðum í Japan spurðist framtakið út, svo á komust samskipti sem hafa haldist. Þar hefur Egill Þórðarson loftskeytamaður í Hafnarfirði verið í lykilhlutverki, en hann er kvæntur japanskri konu, Yoko Arai Þórðar- son. Deila húfunum Hið góða framtak sem fatasöfnun- in á sínum tíma var snart Takeyoshi Kidoura, forstjóra Mirai-skipa- smíðastöðvarinnar í Kesennuma í Japan. Frá Kidoura barst í sumar nýtt siglingaljósamastur sem sett var upp á varðskipinu Óðni, en fyrr- nefndur Egill Þórðarson er einn af hollvinum skipsins. Á dögunum komu frá Japan hand- prjónaðar húfur, prjónaðar af kon- um sem tóku sig saman eftir hamfar- irnar 2011 og prjónuðu og seldu ullarflíkur. Húfurnar tólf keypti Kidoura forstjóri til að gefa hollvin- um Óðins sem vinarvott til viðbótar við mastrið góða. „Okkur Óðinsmönnum fannst rétt að deila húfunum með konunum sem stóðu að söfnuninni 2011. Rétt að þær viti að hugsað er með þakklæti og hlýhug til þeirra af þeim sem áttu um sárt að binda í Japan,“ segir Egill Þórðarson. sbs@mbl.is Þakkir frá Japan - Fánar og húfur - Íslendingar hjálp- uðu 2011- Góð sending frá Kesennuma Tengsl Japanskar konur á Íslandi með fánana góðu frá heimalandinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.