Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur auka framboð sitt á hjólum á næst- unni, segir hann inntur eftir því. „Við gætum lent í álíka stöðu aftur í kringum áramótin og í byrjun næsta árs því framleiðendur hafa boðað minna framboð af hjólum þar til í júní á næsta ári.“ Ýmsir þættir hafa áhrif á eftir- spurn eftir bifhjólum hér á landi, svo sem gengi krónunnar og veðurfar, að sögn Karls. Í heimsfaraldrinum hafi árferði þó verið óvenjulegt og fólk eytt meiri peningum innanlands. „Okkar áskynjan er klárlega sú að fólk sé bara frekar heima að leika sér í nærumhverfinu og salan hafi þess vegna aukist. Fólk er minna að ferðast og þá frekar að kaupa sér ný hjól eða taka mótorhjólapróf, leyfa sér eitthvað meira innanlands.“ Bifhjólaframleiðendur hafa boðað verðhækkanir á sínum vörum frá fyrsta ársfjórðungi, að sögn Karls. Spurður segist hann ekki eiga von á að verðhækkanir muni hafa merkj- anleg áhrif á verðlagningu og sölu á hjólum hér á landi. „Viss hjól hjá KTM eru framleidd í Indlandi eða í Asíu og verðið á þeim hefur tvisvar hækkað á þessu ári; annars vegar um 9% á öðrum ársfjórðungi og hins vegar 7% á þriðja ársfjórðungi. Þessar verðhækkanir eru beinar af- leiðingar af gríðarlegri hækkun sem hefur orðið á flutningskostnaði,“ segir hann. „Aðalsöluvaran okkar er þó framleidd í Evrópu svo ég á ekki von á að sjá neinar verulegar verð- hækkanir á þeirri vöru. Við sjáum fram á í mesta lagi 2-5% hækkun á henni.“ Sveiflukenndur bransi Líklegra er að eftirspurn eftir bif- hjólum fari minnkandi þegar fólk fer að ferðast að nýju eftir faraldurinn, að sögn Karls. „Maður sér alveg að fólk hefur uppsafnaða þörf fyrir að ferðast. Mánaðamótin maí-júní var mikil já- kvæðni í þjóðfélaginu og fólk farið að huga að utanlandsferðum. Þá fannst mér eftirspurnin eftir okkar vörum minnka aðeins. Svo þegar það varð uppsveifla í faraldrinum í júlí jókst eftirspurnin aftur,“ segir hann. „Mótorhjólamennska er jað- arsport og þegar hagurinn er góður er uppgangur hjá okkur en þegar á bjátar kreppir mjög fljótt að hjá okkur líka. Það fer rosalega eftir hagsveiflunni hvernig bransinn er hjá okkur, enda eru þetta ekki nauð- synjavörur.“ Roksala á bifhjólum í ár Ljósmynd/KTM á Íslandi Bifhjól KTM 890 Adventure er mest selda bifhjólið hjá KTM á Íslandi. - Eftirspurn eftir nýjum hjólum jókst í kófinu - Faraldurinn hefur haft neikvæð áhrif á framboð - Færri fengu hjól en vildu - Framleiðendur hafa boðað verðhækkanir BAKSVIÐ Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Vinsældir bifhjóla hafa aukist til muna hér á landi undanfarin ár og hefur salan á þeim haldist vel síðan 2019. Í kórónuveirufaraldrinum hafa bifhjólaframleiðendur þó átt undir högg að sækja og þeim gengið erf- iðlega að anna eftirspurn. Þetta seg- ir Karl Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri KTM-umboðsins. KTM-umboðið er með tæplega 50% markaðshlutdeild í sölu á mótor- og torfæruhjólum á Íslandi. Löng bið eftir nýjum hjólum „Salan síðastliðin tvö ár hefur ver- ið mjög góð en hún hefur svolítið einkennst af því að framboðið frá framleiðendum hefur verið minna en eftirspurnin. Það sem af er ári höf- um við selt tæplega hundrað bif- og torfæruhjól en hefðum getað af- greitt 150 hjól hefðum við fengið þau frá framleiðendum. Við áttum ansi góðan lager um áramót af nýjum hjólum en ástandið hefur verið mjög slæmt undanfarið. Viðskiptavinir eru búnir að vera á biðlista eftir hjólum meira og minna síðan í lok maí,“ segir Karl. Umboðið á þó von á stórri sendingu í lok september sem Karl segir koma til með að „taka kúfinn“ ofan af biðlistanum. Ekki er þó útlit fyrir að framleiðendur nái að 6. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.84 Sterlingspund 175.44 Kanadadalur 101.19 Dönsk króna 20.253 Norsk króna 14.661 Sænsk króna 14.807 Svissn. franki 138.65 Japanskt jen 1.1536 SDR 180.95 Evra 150.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.6424 « Fjármálaeftirlit Seðlabankans hefur skráð Nasdaq First North-markaðinn á Íslandi sem vaxtarmarkað lítilla og meðalstórra fyrirtækja (e. SME growth market). Í tilkynningu segir að það sé ný teg- und af markaðstorgi sem komið hafi til sögunnar með MiFID II-Evrópu- regluverkinu. Hafa þessar reglur þegar tekið gildi á öðrum mörkuðum Nasdaq á Norðurlöndunum. „Flest fyrirtæki hér á Íslandi sem og annars staðar í Evrópu flokkast sem smá og meðalstór fyrirtæki en þau eru hvað mikilvægust fyrir vöxt og atvinnu- sköpun í hverju samfélagi fyrir sig,“ segir Magnús Harðarson, forstjóri Nas- daq Iceland, í tilkynningunni. Magnús segir skráninguna mikilvæga breytingu fyrir íslensk fyrirtæki sem huga að vexti, þar sem nú sé búið að sníða regluverkið betur að þörfum þeirra og draga úr skriffinnsku, án þess að það komi niður á fjárfestavernd. „Þetta er því mjög jákvætt skref í átt að betra fjármögnunarumhverfi fyrir slík fyrirtæki og við erum þess fullviss að þetta geri markaðinn að enn betri vett- vangi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að afla fjármagns og vaxa.“ Þá segir Magnús í tilkynningunni að ESB hafi verið að stíga skref í þá átt að gera skráningu á almenningsmarkaði meira aðlaðandi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, með vísan til þeirra jákvæðu áhrifa sem fylgja því að fleiri vaxtarfyr- irtæki noti hlutabréfamarkaði til að sækja sér fjármagn. Vaxtarmarkaðir séu ein varða á þeirri vegferð. Nasdaq First North skráður sem vaxtarmarkaður Viðskipti Breytingin er skref í átt að betra fjármögnunarumhverfi. STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alcoa-Fjarðaál mun skila hagnaði í ár en tapið nam samtals um 16,7 milljörðum árin 2019 og 2020, miðað við núverandi gengi. Álverð hefur hækkað um 45% í ár og er nú um tvö- falt hærra en það var lægst í fyrra. Tor Arne Berg, forstjóri Alcoa- Fjarðaáls, segir hins vegar lítið hafa breyst í rekstrinum hjá Fjarðaáli þrátt fyrir að verð á áli hafi hækkað. „Það er lítið svigrúm í starfsemi álvers að eiga við framleiðslumagn eftir því hvert markaðsvirðið er, hvort sem sveifl- urnar eru upp á við eða niður. Við fögnum þessari breyttu stöðu sem er uppi núna en öll okkar orka hefur upp á síð- kastið farið í að viðhalda stöðug- leika í framleiðslu eftir óvenju hlýtt sumar og tryggja að vörurnar okkar skili sér á markað í Evrópu í þeim gæðum sem viðskiptavinir okkar þurfa,“ segir Berg. Krefjandi sé að starfa í álveri þegar heitt er í veðri. Spurður um áhrif hærra álverðs á af- komuna kvaðst hann ekki geta tjáð sig um það á þessu stigi. Umhverfið nú afar hagfellt „Það er þó óhætt að segja að ef ál- ver getur ekki skilað góðri afkomu í þessu markaðsumhverfi þá er ekki um mjög lífvænlegan rekstur að ræða,“ sagði Berg. Loks sagði hann aðspurður að stærstur hluti viðskiptanna færi fram í öðrum gjaldmiðlum en krónu og því hefði veiking krónu óveruleg áhrif á lokaniðurstöðuna. Fjarðaál skilar aftur hagnaði - Umskipti í rekstrinum eftir tæplega 17 milljarða króna tap árin 2019 og 2020 Morgunblaðið/ÞÖK Alcoa-Fjarðaál Reksturinn er á uppleið eftir að álverðið hækkaði. Tor Arne Berg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.