Morgunblaðið - 20.09.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
MEÐ SJÁLFBÆRNI
AÐ LEIÐARLJÓSI
Nýr borgarstjóri Kabúl í Afganist-
an, Hamdullah Nomany, hefur fyr-
irskipað að allir kvenkyns borgar-
starfsmenn haldi sig heima, að þeim
undanskildum er sinna störfum sem
karlmenn geta ekki sinnt.
Eftir að talíbanar tóku yfir höfuð-
borgina í ágúst hafa ýmis kvenrétt-
indi verið lögð til hliðar í samræmi
við bókstafstúlkun talíbana á ísl-
ömsku sjaríalögunum svonefndu.
Þá hafa talíbanar lokað kvenna-
málaráðuneyti landsins og sett á fót
nýja stofnun í þess stað, sem hefur
að markmiði að trúarlegum gildum
sé fylgt í landinu.
Skólahald hófst í grunnskólum
landsins um helgina en einungis
karlkyns nemendum og kennurum
var heimilt að mæta. Talíbanar hafa
þá gefið út að þeir hugi að opnun
grunnskóla fyrir stúlkur.
Mótmæli fyrir utan
kvennamálaráðuneytið
Alls um þriðjungur borgarstarfs-
manna Kabúl er kvenkyns en borg-
arstjórinn hefur lýst því yfir að ein-
hverjar konur muni enn geta sinnt
störfum á vegum hins opinbera: „Til
dæmis geta konur unnið á
kvennaklósettum í borginni, þar sem
körlum er meinaður aðgangur,“ hef-
ur fréttastofa BBC eftir honum.
„En karlmenn munu ganga í þær
stöður kvenna sem þeir geta sinnt
þar til greitt verður úr aðstæðum,“
sagði hann.
Fámenn mótmæli fyrir utan
kvennamálaráðuneytið fóru fram í
gær, þar sem áformum stjórnvalda
var mótmælt. veronika@mbl.is
AFP
Kabúl Áformunum var mótmælt
fyrir utan kvennamálaráðuneytið.
Konum sagt að
halda sig heima
- Kvenréttindi lögð til hliðar í Kabúl
Borgarstjóri Jó-
hannesarborgar,
Jolidee Matongo,
lést í bílslysi í
gær, 46 ára að
aldri.
Bifreið Mat-
ongos lenti á
annarri bifreið
sem þurfti að
nauðhemla
vegna vegfaranda sem sagður er
hafa hlaupið út á götu, með þeim af-
leiðingum að vegfarandinn og öku-
maður hinnar bifreiðarinnar létu
lífið en lífverðir Matongos voru
fluttir á sjúkrahús.
Cyril Ramaphosa, forseti Suður-
Afríku, hefur vottað aðstandendum
og borgarbúum samúð sína.
Matongo, sem var ættaður frá
Simbabve, barðist gegn aðskiln-
aðarstefnunni sem ríkti í Suður-
Afríku frá þrettán ára aldri. Hann
varð síðar þingmaður fyrir hönd
afríska þjóðarráðsins.
SUÐUR-AFRÍKA
Borgarstjóri Jóhann-
esarborgar látinn
Jolidee Matongo
Scott Morrison,
forsætisráðherra
Ástralíu, vísar
því á bug að
Ástralía hafi
gengið á bak
orða sinna þegar
stjórnvöld hættu
við að festa kaup
á kafbátum frá
Frakklandi fyrir
milljarða dala, í
ljósi nýs öryggissáttmála við
Bandaríkin og Bretland, sem hefur
verið nefndur Aukus-sáttmálinn.
Frönsk stjórnvöld telja Aukus-
sáttmálann hafa leitt til alvarlegrar
kreppu milli bandamannanna en
samkvæmt honum mun Ástralía fá
tæknibúnað til að byggja kjarn-
orkuknúna kafbáta sem leið til að
vinna gegn áhrifum Kína á spennu-
svæði í Suður-Kínahafi. Þá mun
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti funda með Joe Biden Banda-
ríkjaforseta um Aukus-bandalagið
bráðlega.
ÁSTRALÍA
Ástralía tekur til
varnar vegna Aukus
Scott
Morrison
Veronika S. Magnúsdóttir
Þóra Birna Ingvarsdóttir
Oddur Þórðarson
Eldgos hófst á eyjunni La Palma,
einni Kanaríeyja, á þriðja tímanum í
gær en mörg þúsund skjálftar hafa
mælst á svæðinu undanfarna viku.
Gossvæðið er í návígi við íbúabyggð
og var hraun þegar tekið að flæða
yfir vegi eyjunnar í gær. Mikill gos-
mökkur steig til himna klukkan kort-
er yfir þrjú um miðjan dag í gær
þegar gosið hófst í þjóðgarðinum
Cumbre Island á suðurhluta eyjar-
innar en rétt áður en gosið hófst
höfðu stjórnvöld í La Palma komið
fjörutíu manns með skerta hreyfi-
getu, sem bjuggu í nágrenni við gos-
svæðið, í öruggt skjól.
Forseti Kanaríeyja, Angel Victor
Torres, sagði á blaðamannafundi í
gær að fimm þúsund manns hefðu
þurft að yfirgefa heimili sín vegna
gossins en engum orðið meint af.
Herinn aðstoðar við rýmingu
Herinn var þá fenginn til að
aðstoða við rýmingu á svæðinu að
sögn varnarmálaráðuneytisins á
Kanaríeyjum og er von á því að nær-
liggjandi bæir verði rýmdir í fram-
haldinu.
Áður en gosið hófst hafði mikil
skjálftahrina riðið yfir svæðið og
mældist stærsti skjálftinn 3,8 stig
samkvæmt Jarðvísindastofnuninni á
Spáni. Fyrsta eldgosið á La Palma
varð árið 1430 en síðast gaus þar
1971 og lést þá einn við ljósmyndun á
svæðinu.
Fjölmörg hús á svæðinu hafa þeg-
ar orðið hrauni að bráð.
Hefur ekki áhrif á áætlunarflug
Eldgosið hefur ekki áhrif á flug-
áætlun Icelandair eins og stendur en
flugfélagið, sem er með reglulegar
flugferðir til Tenerife, fylgist þó
grannt með gosinu.
Þórarinn Einarsson, íbúi á La
Palma, sagði í samtali við mbl.is í
gær að óhjákvæmilegt væri að hraun
flæddi yfir íbúabyggð þar og bætti
við að mögulega gæti aukin hætta
skapast ef miklir skógareldar bryt-
ust út vegna gossins. Þegar mbl.is
ræddi við hann var hann staddur
ofarlega í byggðinni á La Palma og
gat séð gosmökk leggja upp úr fjalls-
hlíð á eyjunni, sem er nokkuð dreif-
býl. Ekki hefur enn komið til rým-
ingar þar sem Þórarinn býr og sagði
hann Íslendinga á svæðinu nokkuð
rólega í ljósi aðstæðna.
Enginn hefur hingað til leitað til
borgaraþjónustu utanríkisráðuneyt-
isins vegna eldgossins að því er
Sveinn H. Guðmarsson, upplýsinga-
fulltrúi ráðuneytisins, staðfesti við
mbl.is í gær. Hann segir gosið virð-
ast í minna lagi og aðdragandi þess
nokkuð langur og þess vegna hafi
flestir getað komið sér í burtu í tæka
tíð en auk þess séu fremur fáir Ís-
lendingar búsettir á La Palma í sam-
anburði við aðrar eyjar í klasanum.
Eldgos hafið í La Palma
- Hraun flæðir yfir vegi og fjölmörg hús þegar orðið eldgosinu að bráð - Enginn
leitað til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis - Fimm þúsund yfirgefa heimili sín
Rýming Þegar hafa 5.000 manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna gossins, sem hófst um þrjúleytið í gær.
AFP
Gos Hraun er þegar tekið að flæða yfir íbúabyggð á La Palma.