Morgunblaðið - 20.09.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021
SMARTLAND
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til 28. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt Smartlandsblað
föstudaginn 1. október.
Í blaðinu verður fjallað um
tísku, förðun, snyrtingu,
heilsu, fatnað, umhirðu
húðarinnar, dekur
og fleira.
1.
OKT.
40 ÁRA Gunnhildur fæddist á Hvamms-
tanga og ólst upp í Reykjavík og Mos-
fellsbæ. Hún er með BA-próf í sagnfræði og
meistarapróf í kynjafræði og kennararétt-
indi, allt frá HÍ. Gunnhildur er kennari í
Réttarholtsskóla og kennir samfélags-
greinar.
Gunnhildur hefur áhuga á þjóðfélags-
málum, hannyrðum og útivist og hreyfingu.
„Jafnréttismálin brenna á mér í víðum skiln-
ingi, bæði kynjajafnréttisbarátta og barátta
fatlaðs fólks fyrir mannréttindum, en ég á
fatlaða dóttur. Hundauppeldi er líka áhuga-
mál hjá mér og eigum við 12 vikna border
collie-hvolp sem heitir Flóki.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Gunnhildar er Einar Björn Magnússon, f.
1981, íslenskufræðingur og kennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Börn
þeirra eru Úlfhildur, f. 2004, Grímur, f. 2006, og Steindór, f. 2010. Foreldrar
Gunnhildar eru Steinunn Björk Eggertsdóttir, f. 1960, vörustjóri veitinga
hjá N1, búsett í Kópavogi, og Sigurhans Karlsson, f. 1960, smiður og vinnur
við mælingar hjá Byggiðn. Kona Sigurhans er Þórey Jónsdóttir. Þau eru bú-
sett í Kópavogi.
Gunnhildur Sigurhansdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er ekki hyggilegt að hleypa
málum af stað án þess að reyna að sjá
framvinduna fyrir. Ekki eyða tímanum í
samviskubit yfir því að hafa ekki lagt nóg
af mörkum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Hláturinn lengir lífið, á því leikur
enginn vafi. Farðu til læknis ef þú ert ekki
sátt/ur við heilsufarið.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ættir að ganga úr skugga
um heilindi fólks áður en þú trúir því fyrir
einhverju sem þú vilt ekki að fari lengra.
Taktu hugmyndum annarra með opnum
huga.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Eitthvað mun hugsanlega koma
þér á óvart á heimilinu eða innan fjöl-
skyldunnar í dag. Barnalán er það besta.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef þú ert óörugg/ur um stöðu mála
skaltu gefa þér tíma til að endurskoða
þau. Gott ástarsamband er ekki byggt á
sandi.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur haft í mörgu að snúast
og þarft eiginlega að læra að annast þig
betur. Vinur kemur í neyð og þú getur
hjálpað.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Notaðu daginn til þess að gera lang-
tímaáætlanir tengdar börnum. Þú ferð í
boð þar sem þú hittir áhugaverða per-
sónu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú virðist ekki ráða við að-
stæður lengur, en það er enn tími til að
snúa hlutunum við. Hafðu í huga að ekki
er allt gull sem glóir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Fylgstu náið með heilsufarinu
svo þú sért undir það búin/n að mæta
áskorunum vikunnar. Láttu fjölskylduna
hafa forgang.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Einhver þér náinn er að reyna
að ná athygli þinni en þú gefur viðkom-
andi engan gaum. Gerðu þér dagamun.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hugsar mikið um tilgang
lífsins þessa dagana. Sestu niður með
þeim sem þú elskar og ræddu málin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Á þessu stigi lífsins áttar þú þig á
því hvað gengur upp og hvað ekki.
Reyndu að finna þér stund í einrúmi svo
þú getir slakað á.
móður Jóhönnu og Maríu systur
hennar í byggingu veitingahússins í
Nauthólsvík og ráku það saman í
nokkur ár.
umfjöllunar um landbúnaðarmál. Um
tíma starfaði hann á byggingardeild
borgarverkfræðings. Árið 1999 réð-
ust Jóhanna og Óskar ásamt Siggu
Ó
skar Bergsson fæddist í
Reykjavík 20. sept-
ember 1961 en foreldrar
hans voru þá búsettir í
Bogahlíð 14, en Bogahlíð
12-18 var byggð af húsnæðis-
samvinnufélagi ungra framsóknar-
manna í Reykjavík. Seinna byggðu
Bergur og Björg sér hús við Glæsibæ
19, á hluta af sumarbústaðarlóð for-
eldra Bergs, sem vék fyrir íbúða-
byggðinni.
„Þá var Árbæjarhverfið í byggingu
og nýi og gamli tíminn tókust á,“ segir
Óskar. „Byggðamynstrið samanstóð
af gamla Árbænum þar sem nú er
safn, gömlum sumarhúsum með
hesta-, kinda- og kartöflukofum, og
fjöldanum öllum af nýbyggingum.
Mæðurnar flestar heimavinnandi og
aragrúi af börnum sem mest léku sér
úti. Leiksvæðin voru hálfbyggð hús,
fisktrönur á Ártúnsholti og áin. Áin
hafði mikið aðdráttarafl og auðvelt
var að ná sér í afgangsbyggingarefni
til að smíða fleka og sigla um ána í
mikilli óþökk foreldranna sem horfðu
á ósynd börnin leika sér að hættunni.
Víða voru beitarhólf fyrir hesta og
auðvelt að stelast á bak ef snæris-
spotti var í vasanum. Aðalsamkomu-
hús hverfisins var kofi KFUM og K á
horni Hlaðbæjar og Rofabæjar.“
Óskar ólst líka upp á Kleppsveg-
inum og í Breiðholtinu. Eftir grunn-
skóla hóf hann nám í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti og lauk námi í
húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykja-
vík, eftir námssamning hjá Kristni
Sveinssyni byggingarmeistara.
Eftir sveinspróf var Óskar virkur í
starfi Trésmiðafélags Reykjavíkur og
starfaði þar í trúnaðarmannaráði og
varastjórn. Framhaldið í félags-
málum var á vettvangi borgar-
stjórnar Reykjavíkur, fyrst með
Reykjavíkurlistanum og seinna sem
fulltrúi Framsóknarflokksins. Óskar
starfaði fyrst í nefndarstörfum, var
varaborgarfulltrúi, formaður bygg-
ingarnefndar Reykjavíkur, seinna
borgarfulltrúi og formaður borgar-
ráðs. Óskar var formaður skipulags-
nefndar miðhálendis frá 1999-2010.
Óskar var blaðamaður á Tímanum
1993-1995 sem þingfréttaritari auk
Óskar lauk meistaraprófi í húsa-
smíði 1987, diplómu í rekstrarfræði
frá HR 2006, löggildingu fast-
eignasala 2017 og starfar nú sem
framkvæmdastjóri og eigandi Eigna-
borgar.
Sveitin og náttúran toga fast í Ósk-
ar og áhugamálin tengjast því fyrst
og fremst. „Á eftir fjölskyldunni er
hestamennska og ferðalög um landið
aðaláhugamálið. Nýjasta „dellan“ er
söfnun íslenskra lækningajurta og
tilraunir með þær. Brids, skák, saga
og stjórnmál eru líka í miklum met-
um.“
Fjölskylda
Eiginkona Óskars er Jóhanna
Björnsdóttir, f. 19.9. 1958, grunn-
skólakennari. Þau eru búsett í Selja-
hverfi í Reykjavík. Foreldrar Jó-
hönnu voru hjónin Sigríður Jóhanns-
dóttir, hannyrðakona og leiðsögu-
maður, f. 8.3. 1923 á Búðum í
Fáskrúðsfirði, S-Múl, d. 21.12. 2019 í
Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali – 60 ára
Borgarfulltrúinn Við myndun meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í ágúst 2008.
Sveitin og náttúran toga fast
Hjónin Óskar og Jóhanna um sumarnótt á Fossi á Rangárvöllum.
Til hamingju með daginn
Njarðvík Karítas Helga Hafþórsdóttir
fæddist 25. október 2020 í Keflavík.
Hún vó 4.200 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru Hafþór Ægir Vil-
hjálmsson og Margrét Lára Harðar-
dóttir.
Nýr borgari