Morgunblaðið - 20.09.2021, Blaðsíða 26
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Víkingur úr Reykjavík er einu skrefi
frá fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum
í knattspyrnu í karlaflokki í 30 ár
eftir dramatískan sigur á KR, 2:1, í
Frostaskjóli í gærkvöldi. Víkingi
nægir að sigra Leikni úr Reykjavík
á heimavelli í lokaumferðinni til að
tryggja sér titilinn.
Víkingar fóru erfiðu leiðina í gær-
kvöldi því Kjartan Henry Finn-
bogason kom KR yfir strax á níundu
mínútu. Atli Barkarson jafnaði á 16.
mínútu með stórglæsilegu marki og
varamaðurinn Helgi Guðjónsson
skoraði sigurmarkið á 87. mínútu.
Dramatíkin var hins vegar rétt að
byrja því KR fékk víti í uppbótar-
tíma. Kjartan Henry fékk beint
rautt spjald þegar sauð upp úr í kjöl-
farið og þeir Þórður Ingason, vara-
markvörður Víkinga, og markvarð-
arþjálfarinn Hajrudin Cardaklija
fengu einnig rautt spjald. Þegar loks
tókst að róa leikmenn og þjálfara fór
Pálmi Rafn Pálmason á punktinn en
Ingvar Jónsson varði glæsilega, í
sínum 100. úrvalsdeildarleik hér á
landi, og tryggði Víkingi dísætan
sigur.
„Það ætlaði síðan allt að sjóða upp
úr í uppbótartíma þegar brot virtist
eiga sér stað í vítateig Víkinga.
Dómari virtist byrja á að dæma
hornspyrnu en sá dómur endaði í
vítaspyrnu. Mikill ágreiningur átti
sér stað milli leikmanna meðan á
þessu stóð og virtust hnefar fara á
loft,“ skrifaði Hólmfríður María
Ragnhildardóttir m.a. um leikinn á
mbl.is.
Árna brást bogalistin
Breiðabliki hefði nægt jafntefli á
útivelli gegn FH til að vera í topp-
sætinu og í góðum málum fyrir loka-
umferðina. Pétur Viðarsson skoraði
hins vegar sigurmark FH á 38. mín-
útu í 1:0-sigri Hafnarfjarðarliðsins.
Árni Vilhjálmsson fékk kjörið
tækifæri til að jafna fyrir Breiðablik
á 77. mínútu en hann skaut hátt yfir
úr vítaspyrnu sem hann hafði náð í
sjálfur. Breiðablik fékk fleiri góð
færi en tókst ekki að koma boltanum
fram hjá Atla Gunnari Guðmunds-
syni sem varði mark FH í fjarveru
Gunnars Nielsen.
Breiðablik verður nú að vinna
granna sína í HK í lokaumferðinni
og treysta á að Víkingar misstígi sig
á síðustu hindrun gegn Leikni úr
Reykjavík.
„Breiðablik náði ekki nema á köfl-
um upp sínu leiftrandi spili en FH-
ingar útfærðu sína leikaðferð nánast
fullkomlega þar sem þeim tókst að
loka á Kópavogsliðið á löngum köfl-
um, nokkuð sem engu liði hefur tek-
ist í margar vikur,“ skrifaði Víðir
Sigurðsson m.a. um leikinn á mbl.is.
KA fór illa með meistarana
KA vann 4:1-stórsigur á útivelli
gegn Íslandsmeisturum Vals. Vals-
menn hafa verið í frjálsu falli síðustu
vikur og tapað fimm leikjum í röð í
öllum keppnum. Sigurinn var sá
þriðji í röð hjá KA og eru norðan-
menn komnir í kjörstöðu í barátt-
unni um þriðja sætið. KA gulltryggir
þriðja sætið og mögulegan þátt-
tökurétt í Evrópukeppni á næstu
leiktíð með sigri á FH í lokaumferð-
inni.
„Valsmenn voru þá nýbúnir að
klúðra tveimur dauðafærum þegar
Nökkvi Þeyr kom inn á sem vara-
maður. Því var það sem blaut tuska í
andlit heimamanna þegar hann
skoraði nánast um leið,“ skrifaði
Gunnar Egill Daníelsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
ÍA upp úr fallsæti
ÍA fór upp úr fallsæti í fyrsta
skipti í nokkurn tíma er liðið fór illa
með Fylki á heimavelli í miklum
botnslag, 5:0. Margir spekingar voru
búnir að dæma ÍA niður í 1. deild
fyrir nokkrum vikum, en tveir sigrar
í röð hafa gert það að verkum að
Skagamenn eru komnir upp úr fall-
sæti. Örlögin eru ekki alveg í hönd-
um ÍA, því liðið verður að treysta á
að HK vinni ekki tvo síðustu leiki
sína til að halda sæti sínu í deildinni.
HK á leik til góða gegn Stjörnunni í
kvöld og sendir ÍA aftur í fallsæti
með sigri. Fylkir þarf að vinna Val í
lokaumferðinni og treysta á hagstæð
úrslit úr öðrum leikjum til að bjarga
sér.
Mikilvægur sigur Keflavíkur
Keflavík vann mikilvægan 1:0-
útisigur á Leikni. Með sigrinum fór
Keflavík upp í 21 stig. Tapi HK fyrir
Stjörnunni í kvöld er Keflavík örugg
með sætið sitt í deildinni að ári.
Ástralski markahrókurinn Joey
Gibbs skoraði sigurmark Keflavíkur
en hann hefur sannarlega verið betri
en enginn í sumar.
Víkingur í
kjörstöðu fyrir
lokaumferðina
- Víkingar á toppinn eftir ótrúlega
dramatík - Dýrkeypt tap Breiðabliks
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Toppsætið Víkingurinn Viktor Örlygur Andrason sækir að Theódóri Elm-
ari Bjarnasyni í leik Víkings og KR í gær. Víkingur er kominn á toppinn.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021
Pepsi Max-deild karla
Leiknir R. – Keflavík ............................... 0:1
ÍA – Fylkir ................................................ 5:0
FH – Breiðablik........................................ 1:0
KR – Víkingur R. ..................................... 1:2
Valur – KA ................................................ 1:4
Staðan:
Víkingur R. 21 13 6 2 36:21 45
Breiðablik 21 14 2 5 52:21 44
KA 21 12 3 6 34:18 39
KR 21 11 5 5 33:19 38
Valur 21 11 3 7 31:26 36
FH 21 9 5 7 37:24 32
Stjarnan 20 6 4 10 24:33 22
Leiknir R. 21 6 4 11 18:30 22
Keflavík 21 6 3 12 21:35 21
ÍA 21 5 3 13 26:42 18
HK 20 4 5 11 20:36 17
Fylkir 21 3 7 11 18:45 16
Lengjudeild karla
Fram – Afturelding.................................. 6:1
Grindavík – Víkingur Ó. .......................... 2:4
Selfoss – Fjölnir ....................................... 0:1
Þróttur R. – Þór........................................ 2:3
ÍBV – Vestri .............................................. 1:2
Staðan:
Fram 22 18 4 0 58:17 58
ÍBV 21 14 2 5 40:20 44
Fjölnir 22 13 3 6 38:21 42
Kórdrengir 21 11 5 5 36:25 38
Grótta 21 11 2 8 50:37 35
Vestri 21 11 2 8 35:36 35
Grindavík 22 7 5 10 38:45 26
Selfoss 22 7 3 12 35:44 24
Þór 22 6 5 11 33:37 23
Afturelding 22 6 5 11 37:54 23
Þróttur R. 22 4 2 16 39:53 14
Víkingur Ó. 22 2 2 18 28:78 8
2. deild karla
Fjarðabyggð – Leiknir F......................... 0:3
Haukar – KF............................................. 2:2
KV – Þróttur V. ........................................ 2:0
Magni – Kári ............................................. 3:1
Njarðvík – Völsungur .............................. 0:1
ÍR – Reynir S............................................ 4:3
Lokastaðan:
Þróttur V. 22 12 6 4 43:22 42
KV 22 12 5 5 40:29 41
Völsungur 22 12 4 6 44:35 40
Magni 22 10 7 5 45:36 37
KF 22 10 5 7 42:33 35
Njarðvík 22 8 8 6 45:29 32
Reynir S. 22 9 5 8 49:45 32
ÍR 22 8 7 7 40:36 31
Haukar 22 8 5 9 46:41 29
Leiknir F. 22 7 3 12 31:45 24
Fjarðabyggð 22 2 5 15 17:62 11
Kári 22 1 6 15 27:56 9
3. deild karla
Einherji – Víðir......................................... 0:0
Elliði – ÍH.................................................. 1:2
Höttur/Huginn – Ægir ............................ 1:2
KFG – Sindri............................................. 4:2
KFS – Tindastóll ...................................... 4:3
Lokastaðan:
Höttur/Huginn 22 13 3 6 38:28 42
Ægir 22 12 5 5 42:29 41
KFG 22 11 8 3 37:24 41
Sindri 22 11 3 8 44:34 36
Elliði 22 11 1 10 46:38 34
KFS 22 11 1 10 38:47 34
Dalvík/Reynir 22 8 5 9 37:31 29
Víðir 22 7 8 7 31:34 29
Augnablik 22 7 5 10 38:43 26
ÍH 22 5 5 12 35:48 20
Einherji 22 6 2 14 36:51 20
Tindastóll 22 4 6 12 39:54 18
England
C-deild:
Doncaster – Morecambe......................... 1:0
- Jökull Andrésson lék allan leikinn í
marki Morecambe.
Holland
Heracles – AZ Alkmaar .......................... 3:2
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 86 mín-
úturnar með AZ Alkmaar og skoraði.
Danmörk
Köbenhavn – Midtjylland ....................... 0:1
- Ísak B. Jóhannesson kom inn á á 68.
mínútu hjá Köbenhavn og Andri Fannar
Baldursson var ónotaður varamaður. Há-
kon Arnar Haraldsson var ekki í hópnum.
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyll-
and.
SönderjyskE – Bröndby.......................... 1:0
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á í
uppbótartíma hjá SönderjyskE.
Lettland
Bikarkeppnin, undanúrslit
RFS – Riga....................................... (frl.) 1:3
- Axel Óskar Andrésson kom inn á sem
varamaður á 106. mínútu hjá Riga.
Tyrkland
Adana Demirspor – Rizespor................. 3:1
- Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Adana Demirspor og skoraði.
Bandaríkin
Cincinnati – New York City ................... 1:2
- Guðmundur Þórarinsson lék í 84 mín-
útur með New York og lagði upp mark.
Noregur
B-deild:
Åsane – Aalesund .................................... 1:6
- Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Aalesund og skoraði.
50$99(/:+0$
sagður á förum frá
þýska félaginu.
Melsungen hefur
ekkert staðfest í
þeim efnum en
staðarmiðillinn
HNA greinir frá. Í
frétt miðilsins er
einnig greint frá
því að Svíinn Ro-
bert Hedin taki við Melsungen af Guð-
mundi. Guðmundur tók við Melsungen
í mars á síðasta ári og fór með liðið í
bikarúrslit í vor þar sem liðið tapaði
fyrir Lemgo.
_ Real Madrid skaust upp í toppsæti
spænsku 1. deildarinnar í fótbolta með
2:1-útisigri á Valencia í gærkvöldi.
Hugo Duro kom Valencia yfir á 66.
mínútu en Viníc-
ius Júnior jafnaði
metin á 86. mín-
útu. Aðeins tveim-
ur mínútum síðar
skoraði Karim
Benzema sigur-
markið. Real er
með 13 stig,
tveimur stigum á
undan Atlético Madrid.
_ Brasilíska knattspyrnugoðsögnin
Pelé er kominn aftur á gjörgæslu á Al-
bert Einstein-spítalanum í São Paulo í
heimalandinu. Pelé var útskrifaður af
spítalanum á dögunum eftir skurð-
aðgerð vegna æxlis í ristli. Hinn átt-
ræði Pelé hefur hins vegar verið lagð-
ur inn á nýjan leik vegna
öndunarerfiðleika. Pelé, sem varð
heimsmeistari með Brasilíu 1958,
1962 og 1970, greindi frá á samfélags-
miðlum um helgina að hann væri á
batavegi.
_ Norðmanninum Åge Hareide
bauðst að taka við íslenska karla-
landsliðinu í fótbolta á síðasta ári.
Hareide greindi frá í viðtali við Aften-
posten. Hareide fékk boðið eftir að
Svíinn Erik Hamrén lét af störfum í
nóvember á síðasta ári. Að lokum var
Arnar Þór Viðarsson ráðinn í starfið,
sem hann gegnir enn. Hareide var
áður landsliðsþjálfari Dana og Norð-
manna en stýrir nú norska liðinu Ros-
enborg. Hann var nýkominn til Rosen-
borg þegar tilboðið frá Knattspyrnu-
sambandi Íslands barst.
Eitt
ogannað
_ Íslenska U19 ára landslið kvenna í
fótbolta mátti þola 0:2-tap gegn
Frakklandi í öðrum leik sínum í und-
ankeppni Evrópumótsins. Louna Riba-
deira, leikmaður París FC, skoraði
bæði mörk Frakka. Fyrra markið kom á
38. mínútu og seinna markið á 48.
mínútu. Ísland tapaði fyrir Svíþjóð í
fyrsta leik og er því án stiga eftir tvo
leiki.
_ Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari karla í handbolta og
þjálfari Melsungen í Þýskalandi, er
26 ÍÞRÓTTIR
KR – VÍKINGUR R. 1:2
1:0 Kjartan Henry Finnbogason 9.
1:1 Atli Barkarson 16.
1:2 Helgi Guðjónsson 87.
M
Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Theódór Elmar Bjarnason (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Finnur Tómas Pálmason (KR)
Ingvar Jónsson (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Kári Árnason (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Helgi Guðjónsson (Víkingi)
Rautt spjald: Kjartan Henry Finnboga-
son (KR) 90., Þórður Ingason (Víkingi)
90. Hajrudin Cardaklija (Víkingi/aðstoð-
arþjálfari) 90.
Dómari: Þorvaldur Árnason – 7.
Áhorfendur: 1202.
VALUR – KA 1:4
1:0 Birkir Már Sævarsson 6.
1:1 Sebastiaan Brebels 25.
1:2 Nökkvi Þeyr Þórisson 63.
1:3 Sebastiaan Brebels 76.
1:4 Elfar Árni Aðalsteinsson 81.
MM
Mark Gundelach (KA)
M
Birkir Heimisson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
Sebastiaan Brebels (KA)
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7.
Áhorfendur: 423.
ÍA – FYLKIR 5:0
1:0 Steinar Þorsteinsson 13.(v)
2:0 Hákon Ingi Jónsson 50.
3:0 Jón Gísli Eyland 76.
4:0 Ingi Þór Sigurðsson 84.
5:0 Eyþór Aron Wöhler 90.
M
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Alexander Davey (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Sindri Snær Magnússon (ÍA)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Dagur Dan Þórhallsson (Fylki)
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Rautt spjald: Þórður Gunnar Hafþórs-
son (Fylki) 12.
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 9.
Áhorfendur: 776.
FH – BREIÐABLIK 1:0
1:0 Pétur Viðarsson 38.
MM
Pétur Viðarsson (FH)
M
Hörður Ingi Gunnarsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Atli Gunnar Guðmundsson (FH)
Alexander H. Sigurðarson (Breiðab.)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: 1.369.
LEIKNIR R. – KEFLAVÍK 0:1
0:1 Joey Gibbs 23.
M
Emil Berger (Leikni)
Manga Escobar (Leikni)
Jón Hrafn Barkarson (Leikni)
Hjalti Sigurðsson (Leikni)
Joey Gibbs (Keflavík)
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Nacho Heras (Keflavík)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 5.
Áhorfendur: Um 300.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.