Morgunblaðið - 20.09.2021, Side 28

Morgunblaðið - 20.09.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 Árangur landgræðsluflugsins Við upphaf landgræðsluflugsins var ástand gróðurs og jarðvegs landsins víða mjög slæmt eins og áður er vikið að. Heimalönd og afréttir, sérstaklega á eldfjalla- svæðunum, eru hart leikin af ofbeit og gróður- eyðingu. Uppblástur var víða í algleymingi og moldrok og sandfok byrgðu mönnum fjalla- sýn á vorin og síðsumars. Verkefnin við endurheimt land- kosta voru því nær óþrjótandi um miðja síðustu öld. Á þessum árum var þó verið að byggja upp rekstur stórbús í Gunn- arsholti á landi sem áður var sand- auðn. Jörðin fór í eyði árið 1925 sökum gróðureyðingar og sandfoks. Þá var hvergi nokkurs staðar stingandi strá á landi jarðarinnar. Eftir að Sandgræðsla Íslands eign- aðist jörðina ári síðar voru smátt og smátt byggð húsakynni og bú- rekstur hófst að nýju. Frá 1965 til 1980 var þar rekið stærsta bú sem nokkurn tíma hefur verið á Íslandi og allt á landi sem var svo skömmu áður auðnin ein. Það kom sér því vel að fá afkasta- miklar flugvélar til að bera tilbúinn áburð á túnin. Landgræðsluverk- efnin vógu þó alltaf þyngst í verk- efnum flugvélanna en fyrst á vorin voru flugvélar notaðar til áburðar- dreifingar á túnin í Gunnarsholti. Það kom strax í ljós þegar farið var að nota landgræðsluflugvél- arnar sumarið 1958 að afköst við uppgræðslustarfið jukust til muna. Þá varð unnt að sá grasfræi og bera tilbúinn áburð á svæði sem voru erfiðari yfirferðar og voru á þeim tíma ófær fyrir litlar dráttar- vélar og áburðardreifara á hjólum. Talið var að flugvélarnar væru mun hagkvæmari kostur til að dreifa áburði og grasfræi en þeirra tíma dráttarvélar, enda miklu afkastameiri. Þegar flugvélarnar stækkuðu og burðargeta þeirra jókst urðu þær langódýrasti dreif- ingarmátinn vegna mikilla afkasta og tiltölulega lítils rekstrarkostn- aðar. Gæði dreifingar áburðar og grasfræs með flugvélunum voru mjög mikil og jöfn. Fræið bland- aðist jafnt og vel við áburðinn, sem var þýðingarmikið. Einnig var auð- velt að stilla nákvæmlega magn áburðar og grasfræs á hvern hekt- ara lands. Yfirleitt spíraði grasfræ- ið vel þó það væri ekki fellt niður í jörðina eins og gert er t.d. í tún- rækt. Flugvélarnar flugu mjög nálægt jörðinni þegar þær voru að dreifa og því var lítil hætta á að grasfræið aðskildist frá áburðinum þó einhver hliðarvindur væri. Það var mjög þýðingarmikið því gras- fræ á rýru landi á litla lífsmögu- leika án áburðar. Það er því óhætt að fullyrða að nýting landgræðslu- flugvélanna til landgræðslu hér á landi hafi markað tímamót í land- græðslustarfinu. Bændur út um allt land tóku þátt í kostnaðinum við að dreifa áburði á sína heimahaga og stundum afrétti. Það jók uppskeru heimalandanna og ábornu svæðin drógu að sér sauðfé, sem leiddi til minna beitar- álags á aðliggjandi svæði sem oftar en ekki voru röskuð af gróður- eyðingu og þoldu illa beit. Árangur af landgræðslustarfinu má sjá víða um land, ekki aðeins í Gunnarsholti heldur einnig víða um land á landgræðslusvæðum. Þegar víði- og birkikjarr var í nágrenni mela og sanda á landgræðslu- svæðum þá tóku fræ þeirra að nema land á svæðunum þar sem áburður og grasfræ hafði undirbúið landið. Þegar leið á níunda áratug síð- ustu aldar fóru áherslur að breyt- ast í landgræðslustarfinu. Vaxandi áhersla var lögð á að fá bændur og aðra umsjónarmenn landsins til liðs við landgræðslustarfið. Þeir áttu orðið öflugri dráttarvélar en áður sem komust yfir torsóttara land og tóku að sér æ fleiri verkefni í upp- græðslu. Enn fremur var lögð meiri áhersla á notkun melgresis til að hefta sandfokið á mun stærri sandfokssvæðum en áður, en melfræið verður að herfa niður til þess að það festi rætur. Þar með dró úr landgræðslufluginu og verk- efnin færðust til íbúa landsbyggð- arinnar og stuðluðu að öflugri búsetu víða um land. Óþrjótandi verkefni við endurheimt landkosta Ljósmynd/Páll Halldórsson Gosaska Ekkert var til sparað þegar askan var bundin með landgræðslu á Heimaey 1975. Hér er verið að dreifa áburði með Piper Pawnee, TF-TUN. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Gróðurvin Á liðnum áratugum hefur Landgræðslan unnið þrotlaust starf við endurheimt landgæða í Mývatnssveit, en þar hafði ágangur sandsins ógnað byggðinni. Þar komu landgræðsluflugvélarnar mikið við sögu. Bókakafli | Bókin Landgræðsluflugið – Endur- heimt landgæða, eftir þá Svein Runólfsson og Pál Halldórsson, rekur sögu frumkvöðlastarfs Landgræðslunnar og flugmanna hennar við endurheimt landgæða á árunum 1958 til 1992.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.