Morgunblaðið - 20.09.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 20.09.2021, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2021 N ý ljóðabók Hauks Ingvarssonar, Menn sem elska menn, skipt- ist í þrjá hluta sem hvern um sig mætti kalla sjálfstæðan ljóðabálk. Hvað stílinn varðar eru hlutarnir þrír allir nokkuð svipaðir. Stök orð, stuttir setningarhlutar og einstaka setn- ingar mynda heilar hugsanir. Sömu tákn og sömu minni koma fyrir aft- ur innan hvers bálks fyrir sig. Hvað efnistök varðar eru ljóða- bálkarnir þrír hins vegar nokkuð ólíkir, þótt vissan skyldleika megi kannski finna, sé vel að gáð. Sá fyrsti nefnist „Laumufarþeg- ar“. Þar segir af ferðalagi ljóðmæl- anda til Noregs þar sem ýmsir laumufarþegar eru með í för. Laumufarþegarnir eru rithöfundar og listamenn úr arkívi norrænnar menningar. Íslensku höfundarnir Bragi Ólafsson og Steinar Bragi koma við sögu, auk Norðmannanna Edvards Munchs, Sigurds Hoels, Karls Oves Knausgaards og Har- alds Griegs. Ljóðið hverfist einna helst um heimsóknir á norskt bókasafn svo laumufarþegar sem þessir eiga vel við. Þessar vísanir í norrænt menningarlíf halda uppi ljóðinu, sem er að öðru leyti nokk- uð flatt. Þessi fyrsti ljóðabálkur gerir safninu í heild raunar engan greiða. Þeir tveir sem á eftir koma eru langtum betri. Í næsta ljóðabálki, titilljóðinu „Menn sem elska menn“, kveður við annan tón. Þar vinnur Haukur með bréfaskriftir Fjölnismannanna Jónasar Hallgrímssonar og Tóm- asar Sæmundssonar. Í þeim bréf- um kemur fram að vinskapurinn var mikill og kærleikurinn þeirra á milli fær að vera í forgrunni hjá Hauki. Auk þess veltir höfund- urinn upp spurningum um það að koma hugsunum í orð, að segja hug sinn. Í þessu samhengi skýtur grænlandshákarlinn upp kollinum og vekur áhuga lesandans. Þriðji og síðasti ljóðabálkurinn, „Úr höfði himinn“, er líklega sá forvitnilegasti. Hann hefst á orð- unum: leggjum á ísilagða tjörn örþunna skurn milli þess sem líður og himinsins fyrir ofan leggjum (47) Í þessu ljóði nær Haukur, með sama stíl og hafði einkennt fyrri ljóðin tvö, góðu flugi. Honum tekst að skeyta saman ólíkar myndir sem mynda góða heild. Fjölskyldubönd og ættarsaga koma fyrir í ýmsum myndum, bæði tekin úr sagnaheimi norrænu goðafræð- innar og eitthvað sem virðist per- sónulegra. Himinhvolf og höf- uðkúpur kallast á í lýsingum höfundar á ástinni og náin sam- bönd og samskipti eru sett í áhugaverðan búning meitlaðs orða- lags og grípandi lýsinga. Viss skyldleiki er milli annars og þriðja ljóðabálks. Þar er lögð áhersla á kær sambönd fólks en eitthvert myrkur liggur samt yfir ljóðunum, einhver ógn. Það er ógn- in sem fylgir því að elska einhvern, því ef maður elskar á maður stöð- ugt á hættu að missa. Í „Menn sem elska menn“ er það sú almenna vitneskja að Tómas og Jónas látast báðir fyrir aldur fram sem svífur yfir vötnum. Í þriðja ljóðabálkinum eru það hins vegar úlfurinn, hraunið og vökin sem verða nokkurs konar tákn þessarar ógnar og skjóta þau upp kollinum aftur og aftur. Menn sem elska menn er ljóða- safn sem fer hægt af stað, en stefnir sífellt hærra og nær undir lokin langt á leið til stjarnanna. Hoel, hákarlar og himinhvolf Morgunblaðið/Unnur Karen Ástin „Himinhvolf og höfuðkúpur kallast á í lýsingum höfundar á ástinni,“ segir um einn ljóðabálk Hauks. Ljóðabók Menn sem elska menn bbbmn Eftir Hauk Ingvarsson. Mál og menning, 2021. Kilja, 76 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Hljómsveitin BSÍ, sem Sigurlaug Thorarensen og Julius Pollux Rothlaender skipa, hefur í dag tón- leikaferðalag til Englands og Evr- ópu og mun á því hita upp fyrir bresku hljómsveitina The Vaccines á tónleikaferðalagi síðarnefndu sveitarinnar í Englandi, auk þess að halda eigin tónleika í London. BSÍ mun einnig koma fram á tónlistar- hátíðinni Reeperbahn Festival í Hamborg. Fyrstu tónleikar fara fram í dag í Exeter og tónleikarnir á Reeperbahn 22. september. Það- an verður svo haldið aftur til Bret- lands og leikið í Stoke on Trent, Northampton, Bexhill, Bedford, Cambridge og fleiri stöðum. Sein- ustu tónleikarnir á Englandi fara fram í Bournemouth og verður þá haldið aftur til Þýskalands og leikið í Dortmund og Köln. Ljósmynd/Berglind Erna Tryggvadóttir BSÍ Tvíeykið Sigurlaug og Julius Pollux. BSÍ hitar upp fyrir The Vaccines Blýantsteikning af niðurbrotnum gömlum manni sem ekki var vit- að hver hefði teiknað hefur nú verið eignuð Vin- cent van Gogh, að því er fram kemur á vef The Guardian. Van Gogh-safnið í Amsterdam tilkynnti þetta í nýliðinni viku og að þetta væri merk uppgötvun sem varpaði frekara ljósi á fyrra hluta ferils listamannsins. Þykir hún líkjast annarri í safninu sem nefnd er „Worn Out“, eða Uppgefinn. Talið er að van Gogh hafi teiknað mynd- ina í nóvember 1882. Teikning eftir van Gogh uppgötvuð Teikning van Gogh

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.