Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 8

Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 Hlutabréfamark- aðurinn íslenski tók nokkuð skarpa dýfu í gærmorgun, fyrsta dag viðskipta eftir að Morg- unblaðið birti skoðana- könnun þar sem vinstrisveifla var greinileg og ríkisstjórnin hafði misst meirihluta sinn. Hægt er að halda því fram að dýfan sé að hluta til vegna áhrifa frá erlendum mörkuðum, en lækkunin er þó mun meiri hér en á mörkuðum nágrannalandanna og erfitt að verjast þeirri hugsun að fjár- festar óttist vinstristjórn. - - - Raunar hefur glitt í vinstristjórn fyrr og segja má að megnið af þessum mánuði hafi íslenski mark- aðurinn lækkað umtalsvert og verður óvissa vegna kosninganna að teljast líkleg skýring. - - - Þetta er skiljanlegt því að augljóst má vera að nái vinstriflokkarnir saman um stjórnarmyndun verði af- leiðingarnar meiri lausatök í ríkis- fjármálum, aukin skuldasöfnun og aukin skattheimta. - - - Seðlabankinn hefur gefið það skýrt til kynna að aukin lausatök í fjár- málum ríkisins muni ýta undir vaxta- hækkanir, enda væru þau viðbrögð óhjákvæmileg. - - - Annað sem óhjákvæmilega mundi fylgja slíkri stefnubreytingu er versnandi fjárhagsleg staða almenn- ings, bæði vegna hærri skatta og hærri vaxta. - - - Kjósendur eiga valið eins og vera ber, en mikilvægt er að þeir geri sér grein fyrir að valið mun hafa afleiðingar. Afleiðingar atkvæðisins STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kirkjusóknir í Skagafirði hafa fengið afhentan nýjan og glæsilegan líkbíl af gerðinni Benz. Tekur hann við af 40 ára gömlum Chevrolet sem hefur ver- ið í þjónustu fyrir Sauðárkrókskirkju og fleiri sóknir í Skagafirði frá 1998, þegar RKÍ gaf sjúkrabíl sem var síð- an breytt í líkbíl. Félagasamtök, fyrirtæki og ein- staklingar söfnuðu fyrir nýjum líkbíl. Var hann pantaður hjá Bílaumboðinu Öskju og Bílaskjól sá um innrétt- ingar. Feykir greinir frá afhendingu bílsins. Sóknarnefnd Sauðárkróks- kirkju ákvað árið 2019 að ráðast í endurnýjun og fá fleiri sóknir til liðs við sig. Góð gjöf kom frá Kiwanis- klúbbnum Drangey og fleiri klúbbar fylgdu í kjölfarið. Þá barst ein milljón frá Steypustöð Skagafjarðar, til minningar um Pálma Friðriksson. Fleiri fyrirtæki lögðu söfnuninni lið. Sóknir í Skagafirði fá nýjan líkbíl Ljósmynd/Feykir Líkbíll Fulltrúar kirkjusókna í Skagafirði við nýja bílinn, ásamt bílstjór- anum Jóni Herði Elíassyni, sem er lengst til hægri á myndinni. Umboðsmaður Alþingis (UA) hefur birt álit þar sem segir að niðurstaða og málsmeðferð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli sem Isavia kvartaði yfir vegna gjald- töku og heilbrigðiseftirlits á Kefla- víkurflugvelli hafi ekki verið í sam- ræmi við lög. „Það eru tilmæli mín til nefnd- arinnar að taka mál Isavia ohf. til meðferðar að nýju, komi fram beiðni þess efnis frá félaginu, og að hún leysi þá úr því í samræmi við þau sjónarmið sem hafa verið rakin í álit- inu. Jafnframt er því beint til nefnd- arinnar að taka framvegis mið af þessum sjónarmiðum,“ segir í niður- stöðu umboðsmanns. Isavia gerði á sínum tíma athuga- semdir við fjárhæð tímagjalds fyrir heilbrigðis- og mengunarvarna- eftirlit á Keflavíkurflugvelli, og einn- ig við tíðni og umfang eftirlitsins á flugvellinum o.fl. Isavia kærði svo álagningu gjaldsins til úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlindamála sem kvað upp úrskurð 10. ágúst 2018 og hafnaði því að fella úr gildi álagn- ingu gjaldsins að stærstum hluta. Í kjölfarið leitaði Isavia til umboðs- manns sem í nýju áliti hefur ýmis- legt við málsmeðferð og niðurstöðu nefndarinnar að athuga. Í umfjöllun umboðsmanns kemur m.a. fram að úrskurður nefnd- arinnar hafi ekki verið í samræmi við lög, bæði að því er laut að málsmeðferð og um fjárhæð tíma- gjaldsins, sem og um tíðni og um- fang eftirlitsins á vellinum. Nefndin hafi hvorki haft fullnægjandi gögn né tryggt að fullnægjandi grundvöll- ur væri lagður að niðurstöðu hennar um gjaldtökuna. Telur úrskurð ekki í samræmi við lög - Taka ber mál Isavia aftur til með- ferðar að mati UA Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við Leifsstöð Deilt um gjald af heil- brigðis- og mengunarvarnaeftirliti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.