Morgunblaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Tölvur Sérhæfð gagnabjörgun af hörðum diskum o.fl. Datatech.is sérhæfir sig í gagna- björgun af öllum gerðum af tölvum og hörðum diskum. Hafðu samband í síma 571-9300 eða kíktu á heimasíðuna okkar Datatech.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Veiði Sjóbleikjunet - Silunganet Fyrirdráttarnet Flotteinar – Blýteinar Laxanet fyrir veiðirétthafa Kraftaverkanet - margar tegundir HAUSTÚTSALA Í SEPTEMBER 15% AFSLÁTTUR Vettlingar – Bólfæri – Netpokar fyrir þyngingar Meira skemmtilegt Sendum um allt land HEIMAVÍK Tveir góðir úr nýju netunum Þekking – Reynsla – Gæði HEIMAVÍK EHF s. 892 8655 Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Atvinnuauglýsingar Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is Raðauglýsingar Raðauglýsingar Tilboð/útboð ÚTBOÐ LEIKSKÓLI ASPARSKÓGUM 25 Lóðarfrágangur Landslag ehf., fyrir hönd Fasteignafélags Akraness, óska eftir tilboðum í framkvæmdir við lóðarfrágang á nýjum leikskóla við Asparskóga 25, Akranesi. Verkið nær til heildarfrágangs lóðar. Verktaki skal setja upp girðingar, koma fyrir frárennsliskerfi á lóð, koma fyrir snjóbræðslukerfi, ganga frá rafkerfi og raflýsingu lóðar, helluleggja gönguleiðir og stéttar, malbika bílastæði, ganga frá djúpgámum, aðstoða við uppsetningu leiktækja, ganga frá fallvarnarefnum, þökuleggja grassvæði, ganga frá gróðurbeðum, gróðursetja tré og runna. Helstu stærðir: Hellulögn 2.400 m2 Malbik 1.055 m2 Fallvarnarefni 1.500 m2 Heildarstærð lóðar um 8.000 m2 brúttó. Verktaki tekur við byggingarsvæði frá verktaka sem annast uppsteypu og utanhússfrágang. Byggingarsvæðið er afgirt og með hliði inn á vinnusvæðið. Verklok á útboðsáfanga er 31. júlí 2022. Útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi frá og með 25. ágúst 2021 með því að senda tölvupóst á netfangið landslag@landslag.is þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda. Tilboðum skal skila á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 Akranesi í síðasta lagi 8. október 2021 kl. $"!"%# Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Botsía kl. 10. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Prjónakaffi Önnu kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2701 & 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimimeð Milan kl. 10.30. Handavinna kl. 12-16. Karlakór- inn Kátir karlar kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könn- unni. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sími. 411-2600. Boðinn Ganga / stafganga með leiðsögn kl. 10 frá Boðanum. Fugla- tálgun kl. 13. Brids og kanasta, munið sóttvarnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Stólaleikfimi með Silju kl. 12.30 (hvetjum fólk að koma og prufa). Opið kaffihús kl. 14.30. Qi-gong kl. 17 (frítt og opið öllum hverfisbúum). Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina á vægu verði. Félagsstarf eldri borgara kl. 13. Söngdúett Kristín Ragnhildur og Inga Backman. Verið velkomin. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistar- hópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Aðalfundur Hollvina Hæðargarðs kl. 13.30. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10-13.40. Bónus-rútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-Gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ás- garði kl. 12.55. Smíði kl. 9 og 13 í Smiðju Kirkjuhvoli. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði, kl. 16-18 Nafnlausi leikhópurinn með námskeið í upplestri og framsögn, kl. 13- 16 opin handavinnustofa og verkstæði. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 10, tréútskurður og kanasta kl. 13. Hraunsel Billjard kl. 9-16. Qi-Gong kl. 10. Brids kl. 13. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frákl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9. Brids í handavinnustofu kl. 13. Bingó kl. 13.15.Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Ritlistanámskeið í lista- smiðju kl. 9.30 til 11.30 í Borgum. Botsía í Borgum kl. 10. Helgistund í Borgum kl. 10.30 og leikfimishópur Korpúfa í Egilshöll, Margrét Eiríks- dóttir leiðbeinir. Spjallhópur í listasmiðju í Borgum kl. 13 og sundleik- fimi í Grafarvogssundlaug kl. 14, Brynjólfur leiðbeinir. Minnum á hóp- söng og kynningu á ljósmyndum í Borgum á morgun. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10. 30 ef veður leyfir. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. ATH. Í DAG VERÐUR BINGÓ í SALNUM á Skólabraut kl. 13.30. Örnámskeið / roð og leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30. Útboð Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið: Fiskislóð - hjólastígur Helstu magntölur eru: - Gröftur 1.800 m3 - Grúsarfylling 1.200 m3 - Malbikun 1.600 m2 - Þökulögn 1.300 m2 - Uppsetning ljósastólpa 24 stk. Verklok eru 15. desember 2021. Útboðsgögn verða aðgengileg á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 21. september 2021 kl. 12:00 á útboðsvef Faxaflóahafna: https://faxafloahafnir.ajoursystem.is/ Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 6. október 2021. Ekki verður haldinn opnunarfundur og niðurstöður opnunar verða birtar á útboðsvefnum. Tilboð/útboð Dómhildur Eiríksdóttir ✝ Dómhildur Eiríksdóttir fæddist 15. júní 1934. Hún lést 29. ágúst 2021. Útför Dóm- hildar fór fram 11. september 2021. Meira: á www.mbl.is/andlat Minningar á mbl.is Það var áfall að heyra af veikindum og andláti Kristín- ar, fyrrverandi starfsfélaga okkar í Rofaborg. Það var létt yfir Kristínu þegar hún kvaddi okkur í lok mars 2019 eftir farsælt samstarf sem aldrei bar skugga á. Nú fannst henni tímabært að fara að njóta, ferðast, æfa golfið og eyða meiri tíma með fjölskyldu og barna- börnum. Sannarlega átti Kristín það inni og unnum við henni þess vel. Aðeins tveimur mánuðum síðar kom hún í heimsókn á gamla vinnustaðinn og sagði okk- ur af æðruleysi frá veikindum sínum og því verkefni sem hún átti fram undan. Það gat ekki verið; af hverju Kristín sem hafði varla orðið misdægurt á yfir 30 ára starfsferli í Rofaborg? Kristín var einstaklega bón- góð og traustur samstarfsfélagi. Alltaf var hún með einhver verk- efni í höndunum ef það gafst laus stund, en samt sást aldrei á henni neinn asi, allt var svo yf- irvegað. Hennar rólega fram- koma gaf frá sér svo mikla orku að öllum leið vel í kringum hana, bæði börnum og starfsmönnum. Kristínu var líka mjög umhugað um samstarfsfólk sitt. Hún lagði sig fram um að kynnast öllum og sýna þeim áhuga. Hún hafði gaman af að segja frá en ekki síð- ur var hún góður hlustandi, ráða- góð og hvetjandi. Þá er ekki hægt að tala um Kristínu án þess að minnast á hannyrðaáhuga hennar, verksvit og nýtni, sem var algjörlega til fyrirmyndar. Sérstaklega eru okkur minn- isstæðar sumarbústaðarferðirn- ar til hennar á Flúðir. Þar lét hún sig ekki muna um að taka á móti tugum manns og öllu því besta sem hún átti í kotinu var tjaldað til svo okkur liði vel. Við erum oft minnt á að lífið er ekki alltaf sanngjarnt og okkur Kristín Ólafsdóttir ✝ Kristín Ólafs- dóttir fæddist 23. mars 1950. Hún lést 9. september 2021. Útför Kristínar fór fram 20. sept- ember 2021. er engu lofað með framhaldið. Hafðu þökk fyrir allt elsku Kristín. Missir fjöl- skyldunnar er mikill og við sendum Magnúsi eigin- manni Kristínar, börnunum Unni Gyðu, Ólafi, Hall- dóri og börnunum þeirra, sem hún var svo óendanlega stolt af, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks úr Rofaborg, Þórunn Gyða Björnsdóttir og Guðlaug Kristinsdóttir. Í dag kveðjum við æskuvin- konu okkar, Kristínu Ólafsdótt- ur. Þegar ástkær vinkona fellur frá koma upp í hugann margar minningar. Efst í huga okkar er að hafa kynnst Stínu eins og við kölluð- um hana, eytt með henni æsku- og unglingsárunum og síðar vin- áttunni sem við fjölskyldur okkar bundust og samverustundunum sem við áttum. Stína var einstaklega vel gerð og góð manneskja. Hún var ekki bara vinkona heldur sannur vin- ur. Við minnumst unglingsáranna þegar ekkert truflaði okkur í að skemmta okkur saman og njóta lífsins, hvort sem það voru bolta- leikir, skólaböll, bíóferðir á laug- ardagskvöldum eða – eilítið síðar – útilegur, labba rúntinn og fara inn á Hressó. Tryggða- og vinabönd rofnuðu aldrei, þrátt fyrir að við vinkon- urnar færum hver sína leið. Stína fór í Fóstruskólann, eins og hann hét þá, og var leikskólakennari alla sína starfsævi. Þau Maggi byggðu sér unaðsreit við Flúðir þar sem þau fjölskyldan dvöldu nánast allar helgar. Fjölskyldan var Stínu mikilvægust. Við vinkonurnar höfum verið saman í saumaklúbbi í fjölda- mörg ár. Styrkti það vináttu okk- ar enn frekar. Við höfum hjálpast að þegar eitthvað hefur staðið til hjá okkur og fjölskyldum okkar. Alltaf var Stína til staðar, ná- kvæm og vandvirk. Það var gott að leita til hennar Stínu. Við stofnuðum gönguhóp með eigin- mönnum okkar og bestu vinum og fórum í margar skemmtilegar ferðir um landið. Við eigum ógleymanlegar minningar um allar okkar góðu samverustund- ir. Tilveran verður skrítin án þín, kæra vinkona, og saumaklúbbur- inn fámennur. Við sendum Magga, Unni Gyðu, Óla, Halldóri, Nonna og fjölskyldum okkar hjartans sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning góðrar manneskju. Áslaug og Fríða. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.