Morgunblaðið - 21.09.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021
Límtré
• Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré
• Hægvaxið gæðalímtré
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Bandaríkin aflétta ferðabanni sínu
- Fullbólusettum farþegum verður aftur heimilt að ferðast til Bandaríkjanna frá og með nóvember
- Þurfa að sýna fram á neikvætt kórónuveirupróf - CDC falið að ákveða hvaða bóluefni teljist gild
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær að
hún hygðist aflétta ferðabanni sínu í
nóvember á alla farþega sem eru
fullbólusettir. Munu ferðalangar til
Bandaríkjanna þurfa að sýna nei-
kvætt kórónuveirupróf, sem ekki er
eldra en 72 klukkustunda gamalt.
Ekki var ljóst í gær hvaða bólu-
efni yrðu tekin gild af bandarískum
stjórnvöldum, en Jeffrey Zients,
sem stýrir samhæfingu Hvíta húss-
ins á viðbrögðum gegn kórónuveir-
unni, sagði að bandaríska sóttvarna-
stofnunin CDC myndi taka af skarið
um það hvaða bóluefni teldust full-
gild.
Grímuskylda verður í öllum flug-
ferðum til Bandaríkjanna, og þá
verður flugfélögum gert skylt að af-
henda bandarískum heilbrigðisyfir-
völdum upplýsingar til að aðstoða
við smitrakningu.
Bandarískir fjölmiðlar birtu
fregnir í gærmorgun þess efnis að
Bandaríkjastjórn hygðist einungis
aflétta ferðabanni sínu á Evrópu-
sambandsríkin og Bretland en þeg-
ar til kastanna kom reyndist til-
kynningin ná til allra farþega, sama
hvaðan þeir koma úr heiminum, svo
fremi sem þeir séu bólusettir. Sagði
Zients að þessi niðurstaða væri
studd vísindalegum rökum.
Bannið valdið streitu
Donald Trump, þáverandi Banda-
ríkjaforseti, setti ferðabannið á fyrir
um einu og hálfu ári, og hafði verið
gert ráð fyrir að Joe Biden myndi
aflétta því skömmu eftir embætt-
istöku sína. Hann ákvað hins vegar
að framlengja það, þrátt fyrir að
ferðabannið hafi valdið nokkurri
streitu í samskiptum Bandaríkjanna
og Evrópusambandsins.
Ráðlagði framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins aðildarríkjum sín-
um til dæmis í ágúst síðastliðnum
að þau settu aftur á ferðatakmark-
anir á bandaríska ferðalanga, sem
áður höfðu mátt ferðast til Evrópu
ef þeir voru fullbólusettir.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sem nú er staddur í
Bandaríkjunum vegna allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna, fagnaði
ákvörðuninni og sagði hana verða til
að auka viðskipti yfir Atlantshafið,
auk þess sem fjölskyldur og vinir
beggja vegna „tjarnarinnar“ gætu
nú hist á ný.
AFP
Ferðabann Flugfarþegum verður
aftur heimilt að koma til Bandaríkj-
anna frá og með nóvember.
Húsleit hófst í gær á heimili Brians
Laundries, kærasta hinnar 22 ára
gömlu Gabrielle Petito. Á sunnudag
fannst lík í skógi nálægt tjaldsvæði í
Wyoming í Bandaríkjunum sem lög-
regla tilkynnti á blaðamannafundi að
búið væri að bera kennsl á sem Gabr-
ielle Petito. Krufning hefur þó ekki
farið fram.
Laundrie býr hjá foreldrum sínum
en lögreglumenn fylgdu þeim út þeg-
ar leitin hófst og sæta þeir nú yfir-
heyrslu. Laundrie kom einn heim úr
ferðalagi sem hann og Petito höfðu
lagt af stað í í upphafi sumars á húsbíl
í eigu Petito. Hafði fjölskylda hennar
þá ekkert heyrt frá henni síðan í
ágúst.
Yrði ekkert símasamband
Fram að því hafði Petito verið í
stöðugum samskiptum við þau og
deilt efni á samfélagsmiðlum reglu-
lega.
Síðustu skilaboðin sem Petito sendi
móður sinni voru þess efnis að það
yrði ekkert símasamband í Yosemite,
næsta áfangastað þeirra. Móðirin hef-
ur lýst efasemdum um að Petito hafi
verið sú sem skrifaði skilaboðin.
Þegar Laundrie kom heim neitaði
hann að ræða við fjölskyldu Petito og
vildi heldur ekki ræða við lögreglu.
Þegar ljóst var að hann lægi undir
grun vegna hvarfs Petito hvarf hann
sjálfur sporlaust og ekkert hefur
spurst til hans í viku.
Víkka út leitarsvæðið
Foreldrar Laundries lýstu því að
hann hefði farið með bakpoka og
sagst ætla að eyða tíma á náttúru-
verndarsvæði í grenndinni.
Lögreglan hefur nú þegar kembt
það svæði án árangurs og mun því
víkka út leitarsvæðið umtalsvert.
Tólfta ágúst hafði lögregla haft af-
skipti af unga parinu, vegna gruns um
ofbeldishegðun þeirra á milli.
Tók lögreglan skýrslu af þeim báð-
um sem lýstu atvikinu sem smávægi-
legum ágreiningi og sögðust vera
hamingjusöm og ástfangin en bara
þreytt eftir langt ferðalag.
Gerðu húsleit á
heimili kærastans
- Lík fannst í skógi í Wyoming-ríki
AFP
Lögregla Húsleitin var gerð í gær.
Paul Rusesa-
bagina, mað-
urinn sem varð
heimsfrægur
með kvikmynd-
inni „Hótel Rú-
anda“ fyrir þátt
sinn í að bjarga
rúmlega 1.200
manns frá þjóð-
armorðinu í Rú-
anda 1994, var í
gær dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir
að hafa stofnað hryðjuverkasamtök
sem sökuð hafa verið um árásir í
landinu árin 2018 og 2019.
Beatrice Mukamurenzi, dómari í
málinu, sagði sannað að Rusesa-
bagina hefði stofnað samtökin og
veitt fé til hryðjuverka. Réttar-
höldin hafa staðið yfir í sjö mánuði,
en fastlega er gert ráð fyrir að
Rusesabagina muni áfrýja.
Rusesabagina, sem einnig er með
belgískt og bandarískt ríkisfang, og
fjölskylda hans segja málið sprottið
af pólitískum rótum. Carine Kan-
imba, dóttir Rusesabagina, for-
dæmdi í gær dóminn og sagði að
niðurstaða réttarhaldanna hefði
verið gefin fyrir fram. Sagðist hún
óttast að faðir sinn yrði myrtur í
fangelsi að undirlagi yfirvalda.
Paul
Rusesabagina
RÚANDA
Fundinn sekur
um hryðjuverk
Yfirvöld á Kanaríeyjum sögðu í gær að um
hundrað heimili hefðu eyðilagst í kjölfar eld-
gossins sem hófst þar í fyrradag. Mariano Hern-
andez Zapata, sveitarstjóri á Kanaríeyjum, sagði
að hrauntungurnar væru að meðaltali um sex
metra háar, og að það væri sorglegt að sjá
hversu mörg heimili hefðu orðið eldgosinu að
bráð, en búið var að flytja um 5.000 manns á
brott í gær vegna gossins.
Um hundrað heimili undir hraun og ösku
AFP