Morgunblaðið - 21.09.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 21.09.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri „VIÐ UNNUM LOKSINS Í LOTTÓINU Í ÚTDRÆTTI KVÖLDSINS.“ „ÞEIR GERÐU ALLA MINKAPELSANA MÍNA OG DEMANTSARMBÖNDIN UPPTÆK.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga hugulsaman eiginmann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞETTA ER ENDURBÆTTUR KATTAMATUR „NÚ MEÐ MEIRA SKLORPI!“ ÞEGAR ÉG SLEPP HÉÐAN ÚTÆTLA ÉG AÐ ELDA RISAVEISLUMÁLTÍÐ HANDA LIÐINU! KANNKSI EKKI RISA … ÞOLIÐ HJÁ ÞEIM VERÐUR BÚIÐ AÐ MINNKA SVO MIKIÐ ÞEGAR ÞAÐ SKEÐUR! svo miðlægt í lífi ungs myndlistar- manns þá að ég gerði teikningu innan úr sal safnsins eftir minni 1985 líkt og ég gerði af heimilum vina minna og mín sjálfs sem var upphafið af röð staðbundinna verka úr sýningar- sölum og staðsetningum innan þeirra. Lagskipta deiglu innri og ytri veru- leika hef ég síðan verið að brjóta sam- an aftur og aftur líkt og smjördeig sem verður ekki það sem því er ætlað nema við að fella það saman aftur og aftur. Þannig komu verk Einars Jónssonar aftur upp og inn í mitt höf- undarverk 1996 þegar ég tók 24 myndir af verkum Einars á filmu ein- nota myndavélar sem var ekki fram- kölluð nema í huga þess sem las nöfn verkanna á meðfylgjandi blaði. Ég held að með upplifun á Útilegu- manni Einars hafi þetta byrjað allt saman og vökvast til í Kvíslaveitum þar sem ég fékk vatn úr sömu lind og útilegumaðurinn Fjalla-Eyvindur í vísindakampi við Eyvindarkofaver lungann úr sumri 1982.“ Fjölskylda Sambýliskona Húberts Nóa er Daníela Theresa Renis, f. 26.2. 1975, hótelstjóri. Þau búa í Vesturbæ Reykjavíkur. Foreldrar Daníelu: Giovanni Renis, f. 4.6. 1950 á Ítalíu, d, 8.11. 2016, skipasmiður og Anneli Renis, f. 11.8. 1952 í Finnlandi, starfs- maður Sænsku ferðastofnunarinnar í Hamborg. Þau hjónin voru búsett í Hamborg. Systur Húberts Nóa eru Kristín Sigurðardóttir, f. 14.10. 1953, deild- arstjóri hjá Póstinum, búsett í Hafnarfirði; Sigrún Jóhannesdóttir, f. 18.1. 1970, rekstrarhagfræðingur, búsett í Reykjavík. Foreldrar Húberts Nóa: Jóhannes Magnússon, f. 4.5. 1932, d. 18.5. 1985, deildarstjóri Útvegsbanka Íslands, og Ingveldur Halldóra Benediktsen Húbertsdóttir, f. 28.10. 1928, fv. tal- símakona hjá Pósti og síma. Þau hjónin bjuggu síðast á Neshaga 4 Reykjavík. Húbert Nói Jóhannesson Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja og saumakona á Brúsastöðum Eyjólfur KristjánssonWelding sjómaður og bóndi á Brúsastöðum við Hafnarfjörð Kristín Eyjólfsdóttir Welding saumakona í Hafnarfirði Húbert Halldór Benediktsen Ágústsson kaupmaður í Hafnarfirði Ingveldur Halldóra Benediktsen Húbertsdóttir talsímakona hjá Pósti og síma í Reykjavík Halldóra Halldórsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ágúst Benediktsson veitingamaður í Reykjavík Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Víðinesi og áður Móum Árni Björnsson bóndi í Víðinesi á Kjalarnesi og áður Móum Sigrún Árnadóttir húsfreyja í Hvammsvík og Móum Magnús Þórðarson bóndi í Hvammsvík og Móum á Kjalarnesi Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Hvammi í Kjós Þórður Guðmundsson bóndi í Skorhaga í Brynjudal og Hvammi Úr frændgarði Húberts Nóa Jóhannessonar Jóhannes Magnússon deildarstjóri Útvegsbanka Íslands í Reykjavík Grímur prestur Bessason á Hjaltastað (dáinn 1785) var skáldmæltur en níðskældinn. Finn- ur biskup ámælti honum fyrir að misbrúka skáldskapargáfu sína til að yrkja klám og níð og sagði að honum bæri heldur að verja henni til að kveða um andleg efni Guði til dýrðar. „Leitaðu fyrir þér í guð- spjöllunum,“ sagði biskup, „og muntu þar finna nóg yrkisefni.“ Grímur prestur hét að gera það og kvað: Eg tek þar til sem andskotinn gerði fara í svínstetrin öllum saman stakk hann ofan fyrir bakkann helvítis hundurinn. Biskup bað hann kveða ekki meira út af guðspjöllunum. Jóhann S. Hannesson kvað: Í Seley fannst sjórekinn háfur; menn sögðu þar strax: „Þetta er máfur.“ Þeir trúa í blindni á frumleik og fyndni en fordæma hagnýtar gáfur. Það er ekki andskotalaust hvað undarlegt fólk er í haust; jafnvel biskupinn kvað sjást með klámmyndablað og kyrjandi popplög við raust. Sértu fríður, er gróflega gaman að gera sig ljótan í framan með fettum og brettum og glennum og grettum. Ég geri það tímunum saman. Á Boðnarmiði segir Stefán Skafti Steinólfsson og birtir mynd með að lítið sé ort um gulu mykjufluguna. – „Þessi glennti upp augun í smala- mennskum í gær“: Glóey sendir geislabál grípur sæla hugann; gladdi mína gömlu sál gula mykjuflugan. Hallmundur Guðmundsson yrkir og kallar „Þjáníngar“: Jónmundur þjáðist nú í nótt og næstum missti allan þrótt. Því það tekur á að þurfa að sjá; – Þuríði Báru með léttasótt. Benedikt Jóhannsson yrkir: Rautt er bindið Bjarna á, bundið við ríkisjötu, á sama stað er berjablá blússan hennar Kötu. Grænn á svipinn Siggi hjá situr með mjólk í fötu. Að lokum er staka, ein af „fundn- um ljóðum“ Páls Ólafssonar: Hvað ég breytist, brúnin þyngist, brjóstið þreytist veika mitt. En hjartað veit ég ætíð yngist upp við heita brjóstið þitt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort út af guðspjöllunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.