Morgunblaðið - 22.09.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. S E P T E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 222. tölublað . 109. árgangur .
FRUMSÝNIR
NÝTT STUTTVERK
Í HÁDEGINU
HVER ERU ÞOLMÖRKIN? FERÐAHUGUR
FYRIRTÆKJA
EYKST Á NÝ
FERÐAMENN Á ÞINGVÖLLUM 12
VIÐSKIPTAMOGGINNBJARNI JÓNSSON 24
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Formenn allra þeirra níu stjórn-
málaflokka sem mælast inni á Al-
þingi mættu í húsnæði Morgun-
blaðsins í Hádegismóum í gær til að
takast á í kappræðum. Segja má að
þær marki upphaf lokasprettsins í
baráttunni fyrir alþingiskosningar
sem fara fram á laugardaginn.
Andrés Magnússon og Stefán Ein-
ar Stefánsson stýrðu kappræðunum,
sem sýndar verða á mbl.is í dag, og
fóru m.a. yfir nýjustu könnun MMR
sem unnin var í samstarfi við Morg-
unblaðið og mbl.is. Miðað við þær
niðurstöður er ljóst að stjórnar-
myndunarviðræður verða flóknar,
en engin þriggja flokka ríkisstjórn
er á sjóndeildarhringnum.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í fyrri
þættinum að það væri álitamál hvort
flokkurinn tæki þátt í samsteypu-
stjórn við þær aðstæður sem könnun
MMR teiknar upp. Þá sagði Logi
Einarsson ljóst að færi væri á að
mynda nýja ríkisstjórn og ítrekaði
að Samfylkingin myndi ekki starfa
með Sjálfstæðisflokknum.
Lokaspretturinn hafinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skipst á skoðunum Logi Einarsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson verða í fyrri þættinum, en báðir birtast á mbl.is í dag.
- Formenn stjórnmálaflokkanna hófu lokasprettinn í kapp-
ræðum Dagmála - Leiðtogarnir mætast í tveimur þáttum
Kappræður Dagmála
1. þáttur: Sigurður Ingi
Jóhannsson, Gunnar Smári
Egilsson, Logi Einarsson,
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, Bjarni Benediktsson.
2. þáttur: Inga Sæland,
Katrín Jakobsdóttir, Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson.
MFormannakappræður »4 & 6
Evrópumeistararnir frá Hollandi
reyndust ofjarlar íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöld þegar
liðin mættust þar í undankeppni
heimsmeistaramótsins.
Hollendingar sigruðu 2:0 með
mörkum frá Danielle Van De Donk
og Jackie Groenen en íslenska liðið
fékk þó sín færi í leiknum.
Möguleikar Íslands á að vinna
riðilinn og komast beint í loka-
keppnina sem verður haldin í
Eyjaálfu árið 2023 eru þar með
strax orðnir takmarkaðir en
mestar líkur eru á að liðið berjist
við Tékka um að komast í umspil.
Næsti leikur er einmitt gegn
Tékkum á Laugardalsvellinum
21. október og hann ræður miklu
um framhaldið hjá íslenska lið-
inu. »23
Morgunblaðið/Eggert
Ósigur Íslensku landsliðskonurnar ganga ósáttar af velli eftir að hafa beðið
lægri hlut fyrir Hollendingum á Laugardalsvellinum í gærkvöld.
Evrópumeistar-
arnir of sterkir
- Holland vann 2:0 á Laugardalsvelli
Knattspyrnusamband Íslands sendi
í gærkvöld frá sér yfirlýsingu þar
sem fram kemur að það hafi farið
þess á leit við Íþrótta- og ólympíu-
samband Íslands að sett verði á
stofn nefnd til að gera úttekt á við-
brögðum og málsmeðferð KSÍ vegna
kynferðisofbeldismála sem tengst
hafa leikmönnum í landsliðum Ís-
lands.
Nefndinni er ætlað að fara yfir þá
atburðarás sem leiddi til afsagnar
Guðna Bergssonar formanns og
stjórnar KSÍ og bregðast við ásök-
unum um þöggun. Þá á nefndin að
taka sérstaklega til athugunar hvort
einhverjar þær aðstæður séu uppi
innan KSÍ sem hamla þátttöku
kvenna í starfi þess. Þetta sé gert í
tengslum við fullyrðingar sem fram
hafa komið í opinberri umræðu um
að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi
fyrir konur.
Þá sneri Klara Bjartmarz fram-
kvæmdastjóri KSÍ aftur til starfa í
gær eftir að hafa verið í leyfi að und-
anförnu. Hennar verkefni er nú að
undirbúa aukaþing KSÍ sem haldið
verður 2. október en þar verður
kjörin ný stjórn sambandsins sem
sitja á fram að næsta ársþingi.
KSÍ biður
um nefnd
hjá ÍSÍ
- Klara snýr aftur til
að undirbúa aukaþing
Róbert Guðfinns-
son, fjárfestir og
athafnamaður á
Siglufirði, hefur
ákveðið að bjóða
til sölu allar
ferðaþjónustu-
eignir sínar í
bænum.
„Ég hef verið
með tvær ein-
ingar í uppbygg-
ingarfasa á Siglufirði, annars vegar í
ferðaþjónustu og hins vegar í líf-
tæknifyrirtækinu Genís. Það er
nokkuð ljóst að Genís mun kalla á
mjög mikla athygli á næstu miss-
erum, enda liggja þar feikileg tæki-
færi. Ég verð því að velja á milli þess
að sinna Genís vel eða ferðaþjónust-
unni,“ segir Róbert í samtali við Við-
skiptaMoggann.
Eignirnar sem um ræðir eru Sigló
hótel, Gistihúsið Hvanneyri og veit-
ingastaðirnir Rauðka, Hannes Boy
og veitingastaðurinn Sunna á Sigló
hóteli.
Róbert
selur allt á
Siglufirði
Róbert
Guðfinnsson
- Hyggst einbeita
sér að Genís