Morgunblaðið - 22.09.2021, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.09.2021, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021 Gengið hefur verið frá sam- komulagi um starfsemi og fjár- mögnun Grænvangs til ársins 2026. Grænvangur er samstarfsvett- vangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir og var stofnaður fyrir tveimur ár- um. Við sama tækifæri var tilkynnt um fimm nýja bakhjarla vettvangs- ins, þ.e. Brim, Icelandair Group, Ís- landsbanka, KPMG og Kviku. Forsætisráðherra, Katrín Jak- obsdóttir, opnaði við þetta tilefni fyrsta áfanga nýrrar margmiðl- unarsýningar sem ber heitið Græn framtíð. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var einnig við- staddur. Sýningin verður fullbúin í októ- ber en hún er tileinkuð framlagi Ís- lands í loftslagsmálum. Græn fram- tíð er staðsett á fjórðu hæð í Grósku – hugmyndahúsi innan veggja nýrr- ar skrifstofu Íslandsstofu og Græn- vangs. Sýningin er sögð varpa ljósi á ár- angur og sögu Íslands við hagnýt- ingu grænna orkugjafa, segja frá framtíðarmarkmiðum Íslands í loftslagsmálum, og draga fram þær fjölmörgu lausnir sem íslenskir frumkvöðlar hafa fram að færa á erlendum mörkuðum, að því er seg- ir í fréttatilkynningu. Samið um Grænvang til 2026 - Samstarf atvinnu- lífs og stjórnvalda Grænvangur Gengið frá sam- komulaginu um vettvanginn. Guðlaugur J. Albertsson Guðni Einarsson Framtíðarsýn í fiskeldi á Vest- fjörðum var efni funda á Patreks- firði í fyrrakvöld og Ísafirði í gær- kvöldi. Þar var m.a. rætt um samfélagssáttmála sveitarfélaga á Vestfjörðum sem eru með fiskeldi innan sinna marka. Streyma átti síðari fundinum á heimasíðu og facebooksíðu Vestfjarðastofu (vestfirdir.is) og þar verður hægt að sjá upptöku. Guðrún Anna Finnbogadóttir, sjávarútvegsfræðingur og verk- efnastjóri hjá Vestfjarðastofu, sagði að KPMG hefði gert skýrslu fyrir sveitarfélögin um fiskeldið síðastliðinn vetur. Síðan var gerð viðhorfskönnun og málið rætt við sveitarstjórnir á Vestfjörðum. Sveitarfélögin fóru svo yfir við- fangsefni vegna fiskeldis. Bolungarvíkurkaupstaður, Ísa- fjarðarbær, Strandabyggð, Súða- víkurhreppur, Tálknafjarðar- hreppur og Vesturbyggð undir- rituðu samfélagssáttmála um fiskeldi 15. júlí sl. Tilgangur hans er að standa sameiginlega að hags- munagæslu í fiskeldi og tengdum atvinnugreinum á Vestfjörðum með það markmið að efla atvinnu og mannlíf með heildarhagsmuni Vest- fjarða að leiðarljósi. Guðrún sagði að framtakinu hefði verið vel tekið á fundinum á Patreksfirði. Þar töluðu fulltrúar sveitarfélaga, fiskeldisfyrirtækja og Sjótækni sem veitir fiskeldinu fjölbreytta þjónustu. Framtíðarsýn fiskeldisins Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Patreksfjörður Fundurinn var mjög vel sóttur og þar var farið yfir málin. - Fundir á Patreksfirði og Ísafirði - Samfélagssáttmáli Hæstiréttur hef- ur hafnað áfrýj- unarbeiðni Sig- urjóns Árna- sonar, fv. banka- stjóra Lands- bankans, í máli LBI ehf., slita- stjórnar gamla Landsbankans, gegn honum, en Sigurjón var í Landsrétti dæmdur til að greiða slitastjórninni 50 milljónir, auk 21 milljónar í málskostnað. Var um að ræða skaðabætur sem slita- stjórnin hafði farið fram á vegna vanrækslu sem tengist ábyrgð vegna lánveitingar til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, fyrr- verandi stjórnarformanns Lands- bankans. Sigurjón fær ekki að áfrýja Sigurjón Þ. Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.