Morgunblaðið - 22.09.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.09.2021, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021 Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Það var allnokkur spenna í loftinu þegar fyrri hópur stjórnmálaleiðtog- anna af tveimur mætti til kappræðna í Hádegismóum í gær. Á sama tíma og kannanir sýna að fylgi flokkanna er tekið að hreyfast nokkuð þarf for- maður Sjálfstæðisflokksins að snúa dalandi stöðu við, en formenn Fram- sóknar, Viðreisnar og Samfylkingar leita leiða til þess að ýta enn frekar undir fylgisþróun síðustu tveggja vikna. Kappræðurnar verða birtar á mbl.is í dag. Sósíalistaflokkurinn er sá flokkur sem stolið hefur senunni og nefnir Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, það raunar að flokkurinn sé „einu tíðindin í íslenskum stjórnmálum“. Kannanir bendi til þess að hann taki til sín helming alls þess fylgis sem komist hefur á hreyfingu í aðdraganda þess- ara kosninga. Skaut fast á Framsókn Flokkana greinir einnig á um hver þeirra eigi tilkall til forystunnar á miðju stjórnmálanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Við- reisnar sagði Framsóknarflokkinn ekki rísa undir því og beindi orðum sínum m.a. að embættisfærslu Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menning- armálaráðherra. Sagði hún að „eng- inn miðjuflokkur færi í mál við konu sem leitaði réttar síns í jafnréttis- máli“. Tók Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins fálega í þessa sendingu Þorgerðar Katrínar og sagði það ekki aðferðafræði flokks síns að ráðast gegn öðrum flokkum í baráttunni. Bjarni Benediktsson var spurður hvort ekki væri einboðið að annar tæki við forystukeflinu í Sjálfstæðis- flokknum ef niðurstaða kosninganna yrði sú að flokkurinn fengi 20% eða minna. Sagði Bjarni það ekki liggja í augum uppi. Flokkurinn þyrfti hins vegar mögulega að fara í naflaskoðun og að við slíkar aðstæður gæti það reynst heilladrýgst að standa utan ríkisstjórnar. Skattamál í brennidepli Sló í brýnu milli leiðtoganna þegar skattamál voru í brennidepli. Varði Logi Einarsson hugmyndir Samfylk- ingarinnar um upptöku stóreigna- skatts og sagði stefnuna að „taka þessa peninga, tíu milljarða til dæmis í þessu tilviki, og fjárfesta í barna- fjölskyldum í landinu. Taka upp nor- rænt barnabótakerfi […] þar sem t.d. hjón með meðaltekjur og tvö börn fengju 54 þúsund krónur á mánuði“. Gagnrýndi Bjarni tillögur Loga og sagði m.a. að mjög væri á reiki hvað flokkurinn teldi sig geta fengið út úr skattinum. Fyrst hefði verið talað um 15 milljarða en nú væri upphæðin sögð 10 til 14 milljarðar. Gunnar Smári sagði engu líkara en Framsóknarflokkurinn hefði tekið upp tillögur Sósíalistaflokksins um þrepaskiptan tekjuskatt þar sem „minni fyrirtæki verði skattlögð minna. Stærð verði skattlögð. Vegna þess að störfin og nýsköpunin verður til í minni fyrirtækjunum“. Sagði hann einnig mikilvægt að hverfa frá stefnu sem fæli í sér að skattleggja fátækt. Heimskulegast af öllu Bjarni gagnrýndi þessa nálgun Gunnars Smára og benti á að kaup- máttur láglaunafólks hefði aukist meira en annarra hópa og að ríkis- sjóður tæki ekki skatt af hinum verr settu. Þar væri um skattheimtu af hálfu sveitarfélaganna að ræða. Sagði hann auk þess að það væri „það heimskulegasta sem Íslendingar gætu gert“ að skattleggja stærri fyrirtæki umfram hin minni. Það myndi fæla mikilvæg og stór fyrir- tæki úr landi sem sinntu nýsköpun í miklum mæli. Þorgerður Katrín hefur ítrekað að Viðreisn boði vinstri velferð og hægri hagstjórn og að flokkurinn telji „auknar skattahækkanir ekki vera stóra svarið við því m.a. að brúa mjög götóttan ríkissjóð. Nú er verið að spá miðað við fjármálaáætlun um 35-50 milljarða gati og við teljum ekki skattahækkanir vera réttu leiðina. Enda höfum við lagt fram okkar til- lögur um það hvernig við ætlum að auka hagvöxt, hvernig við ætlum að spara í vaxtatekjum ríkisins og síðan hvernig við ætlum síðan að láta markaðsleiðina í sjávarútvegi afla aukinna tekna fyrir ríkissjóð“. Segir herferð í gangi Logi Einarsson var sérstaklega spurður út í fréttir Viðskiptablaðsins um nærri 100 milljóna hagnað Krist- rúnar Frostadóttur af nýtingu kaup- rétta á vettvangi Kviku banka. Er ljóst að Logi er allt annað en sáttur við að fjárhagsmálefni hennar skuli dregin inn í kosningabaráttuna og segist ekki þekkja til þeirra upphæða sem þar hafi verið í spilinu. Ítrekaði hann þó að Kristrún hefði og myndi svara spurningum fjölmiðla um þetta mál. Sagði hann hins vegar að stjórn- málaflokkur og „tengd blöð“ reyndu að grafa undan innkomu hennar á svið stjórnmálanna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í miðju stormsins Það gustaði um stjórnmálaleiðtogana rétt eins og gróðurinn í Hádegismóum í gær. Spennan eykst hröðum skrefum nú þegar örfáir sólarhringar lifa af kosningabaráttunni. Margt ber í milli þrátt fyrir allt - Mjög misjafnar áherslur í skattatillögum flokkanna - Fái Sjálfstæðisflokkurinn harða útreið mun það kalla á naflaskoðun - Kristrún Frostadóttir mun upplýsa um hagnað vegna kauprétta hjá Kviku Leiðtogakappræður » Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins » Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmda- stjórnar Sósíalistaflokksins » Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar » Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir formaður Viðreisnar » Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar „Við sáum að Katrín lagði megináherslu á málamiðlanir en ekki endilega hvaða málum hún ætlar að miðla en Sig- mundur sagðist ætla að standa við allt sem hann sagði og var þar af leiðandi algjörlega hinum megin,“ sagði Krist- ján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur um síðari hluta kappræðna forystumanna stjórnmálaflokkanna í Dagmálum, þar sem Katrín Jakobsdóttir, Inga Sæland, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson öttu kappi. „Mér fannst þessi kosningabarátta byrja mjög seint en henni hefur tekist á skömmum tíma að verða svolítið þreytt. Ég held að það sé hugsanlega afleiðing af því sem Katrín nefndi; það eru komnir svo margir miðlar og ýmis vettvangur. Þau hafa verið bóngóð að mæta á fundi og maður sér að þau eru öll orðin mjög þjálfuð í því að setja fram sín mál og taka þessa umræðu,“ sagði Svanhildur Hólm, sem ásamt Kristjáni gaf álit sitt á frammistöðu formannanna eftir tökur þáttarins. Álitsgjöf þeirra verð- ur sýnd á mbl.is í dag. „Ef maður talar um eitthvað sem stendur upp úr, ætli fólk muni ekki aðallega muna hve vel Ingu Sæland tókst að ramma inn þetta kosningamál Flokks fólksins,“ sagði Svanhildur og vísar til kröfu flokksins um 350 þúsund króna framfærslu skatta- og skerðingalaust. Önnur málefni sem álitsgjafar sögðu áhugaverð voru umræður um samgöngur og borgarlínu, þar sem Katrín og Sigmundur tókust á og Inga Sæland sagði stræt- isvagna alla jafna tóma. Baráttan varð snemma þreytt - Flokki fólksins tókst að margnefna sín áherslumál Morgunblaðið/Eggert Greinendur Svanhildur Hólm og Kristján Guy gáfu álit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.