Morgunblaðið - 22.09.2021, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
Andrés Magnússon
Stefán E. Stefánsson
Það var allnokkur spenna í loftinu
þegar fyrri hópur stjórnmálaleiðtog-
anna af tveimur mætti til kappræðna
í Hádegismóum í gær. Á sama tíma
og kannanir sýna að fylgi flokkanna
er tekið að hreyfast nokkuð þarf for-
maður Sjálfstæðisflokksins að snúa
dalandi stöðu við, en formenn Fram-
sóknar, Viðreisnar og Samfylkingar
leita leiða til þess að ýta enn frekar
undir fylgisþróun síðustu tveggja
vikna.
Kappræðurnar verða birtar á
mbl.is í dag.
Sósíalistaflokkurinn er sá flokkur
sem stolið hefur senunni og nefnir
Gunnar Smári Egilsson, formaður
framkvæmdastjórnar flokksins, það
raunar að flokkurinn sé „einu tíðindin
í íslenskum stjórnmálum“. Kannanir
bendi til þess að hann taki til sín
helming alls þess fylgis sem komist
hefur á hreyfingu í aðdraganda þess-
ara kosninga.
Skaut fast á Framsókn
Flokkana greinir einnig á um hver
þeirra eigi tilkall til forystunnar á
miðju stjórnmálanna. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir formaður Við-
reisnar sagði Framsóknarflokkinn
ekki rísa undir því og beindi orðum
sínum m.a. að embættisfærslu Lilju
Alfreðsdóttur mennta- og menning-
armálaráðherra. Sagði hún að „eng-
inn miðjuflokkur færi í mál við konu
sem leitaði réttar síns í jafnréttis-
máli“.
Tók Sigurður Ingi formaður
Framsóknarflokksins fálega í þessa
sendingu Þorgerðar Katrínar og
sagði það ekki aðferðafræði flokks
síns að ráðast gegn öðrum flokkum í
baráttunni.
Bjarni Benediktsson var spurður
hvort ekki væri einboðið að annar
tæki við forystukeflinu í Sjálfstæðis-
flokknum ef niðurstaða kosninganna
yrði sú að flokkurinn fengi 20% eða
minna. Sagði Bjarni það ekki liggja í
augum uppi. Flokkurinn þyrfti hins
vegar mögulega að fara í naflaskoðun
og að við slíkar aðstæður gæti það
reynst heilladrýgst að standa utan
ríkisstjórnar.
Skattamál í brennidepli
Sló í brýnu milli leiðtoganna þegar
skattamál voru í brennidepli. Varði
Logi Einarsson hugmyndir Samfylk-
ingarinnar um upptöku stóreigna-
skatts og sagði stefnuna að „taka
þessa peninga, tíu milljarða til dæmis
í þessu tilviki, og fjárfesta í barna-
fjölskyldum í landinu. Taka upp nor-
rænt barnabótakerfi […] þar sem t.d.
hjón með meðaltekjur og tvö börn
fengju 54 þúsund krónur á mánuði“.
Gagnrýndi Bjarni tillögur Loga og
sagði m.a. að mjög væri á reiki hvað
flokkurinn teldi sig geta fengið út úr
skattinum. Fyrst hefði verið talað um
15 milljarða en nú væri upphæðin
sögð 10 til 14 milljarðar.
Gunnar Smári sagði engu líkara en
Framsóknarflokkurinn hefði tekið
upp tillögur Sósíalistaflokksins um
þrepaskiptan tekjuskatt þar sem
„minni fyrirtæki verði skattlögð
minna. Stærð verði skattlögð. Vegna
þess að störfin og nýsköpunin verður
til í minni fyrirtækjunum“. Sagði
hann einnig mikilvægt að hverfa frá
stefnu sem fæli í sér að skattleggja
fátækt.
Heimskulegast af öllu
Bjarni gagnrýndi þessa nálgun
Gunnars Smára og benti á að kaup-
máttur láglaunafólks hefði aukist
meira en annarra hópa og að ríkis-
sjóður tæki ekki skatt af hinum verr
settu. Þar væri um skattheimtu af
hálfu sveitarfélaganna að ræða. Sagði
hann auk þess að það væri „það
heimskulegasta sem Íslendingar
gætu gert“ að skattleggja stærri
fyrirtæki umfram hin minni. Það
myndi fæla mikilvæg og stór fyrir-
tæki úr landi sem sinntu nýsköpun í
miklum mæli.
Þorgerður Katrín hefur ítrekað að
Viðreisn boði vinstri velferð og hægri
hagstjórn og að flokkurinn telji
„auknar skattahækkanir ekki vera
stóra svarið við því m.a. að brúa mjög
götóttan ríkissjóð. Nú er verið að spá
miðað við fjármálaáætlun um 35-50
milljarða gati og við teljum ekki
skattahækkanir vera réttu leiðina.
Enda höfum við lagt fram okkar til-
lögur um það hvernig við ætlum að
auka hagvöxt, hvernig við ætlum að
spara í vaxtatekjum ríkisins og síðan
hvernig við ætlum síðan að láta
markaðsleiðina í sjávarútvegi afla
aukinna tekna fyrir ríkissjóð“.
Segir herferð í gangi
Logi Einarsson var sérstaklega
spurður út í fréttir Viðskiptablaðsins
um nærri 100 milljóna hagnað Krist-
rúnar Frostadóttur af nýtingu kaup-
rétta á vettvangi Kviku banka. Er
ljóst að Logi er allt annað en sáttur
við að fjárhagsmálefni hennar skuli
dregin inn í kosningabaráttuna og
segist ekki þekkja til þeirra upphæða
sem þar hafi verið í spilinu. Ítrekaði
hann þó að Kristrún hefði og myndi
svara spurningum fjölmiðla um þetta
mál. Sagði hann hins vegar að stjórn-
málaflokkur og „tengd blöð“ reyndu
að grafa undan innkomu hennar á
svið stjórnmálanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í miðju stormsins Það gustaði um stjórnmálaleiðtogana rétt eins og gróðurinn í Hádegismóum í gær. Spennan eykst hröðum skrefum nú þegar örfáir sólarhringar lifa af kosningabaráttunni.
Margt ber í milli þrátt fyrir allt
- Mjög misjafnar áherslur í skattatillögum flokkanna - Fái Sjálfstæðisflokkurinn harða útreið mun
það kalla á naflaskoðun - Kristrún Frostadóttir mun upplýsa um hagnað vegna kauprétta hjá Kviku
Leiðtogakappræður
» Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknarflokksins
» Gunnar Smári Egilsson,
formaður framkvæmda-
stjórnar Sósíalistaflokksins
» Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar
» Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir formaður Viðreisnar
» Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
„Við sáum að Katrín lagði megináherslu á málamiðlanir
en ekki endilega hvaða málum hún ætlar að miðla en Sig-
mundur sagðist ætla að standa við allt sem hann sagði og
var þar af leiðandi algjörlega hinum megin,“ sagði Krist-
ján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur um síðari
hluta kappræðna forystumanna stjórnmálaflokkanna í
Dagmálum, þar sem Katrín Jakobsdóttir, Inga Sæland,
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson öttu kappi.
„Mér fannst þessi kosningabarátta byrja mjög seint
en henni hefur tekist á skömmum tíma að verða svolítið
þreytt. Ég held að það sé hugsanlega afleiðing af því sem
Katrín nefndi; það eru komnir svo margir miðlar og ýmis
vettvangur. Þau hafa verið bóngóð að mæta á fundi og
maður sér að þau eru öll orðin mjög þjálfuð í því að setja
fram sín mál og taka þessa umræðu,“ sagði Svanhildur
Hólm, sem ásamt Kristjáni gaf álit sitt á frammistöðu
formannanna eftir tökur þáttarins. Álitsgjöf þeirra verð-
ur sýnd á mbl.is í dag.
„Ef maður talar um eitthvað sem stendur upp úr, ætli
fólk muni ekki aðallega muna hve vel Ingu Sæland tókst
að ramma inn þetta kosningamál Flokks fólksins,“ sagði
Svanhildur og vísar til kröfu flokksins um 350 þúsund
króna framfærslu skatta- og skerðingalaust.
Önnur málefni sem álitsgjafar sögðu áhugaverð voru
umræður um samgöngur og borgarlínu, þar sem Katrín
og Sigmundur tókust á og Inga Sæland sagði stræt-
isvagna alla jafna tóma.
Baráttan varð snemma þreytt
- Flokki fólksins tókst að
margnefna sín áherslumál
Morgunblaðið/Eggert
Greinendur Svanhildur Hólm og Kristján Guy gáfu álit.