Morgunblaðið - 22.09.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Nýjar
haustvörur
Einnig er nýkomið klútar, húfur,
ponsjo, töskur, skart, silkislæður
og klemmueyrnalokkar
Kjólar • Bolir • Blússur • Peysur
Vladimír Pútín Rússlandsforseti sat í gær
fjarfund um efnahagsmál með nokkrum af
sínum helstu sérfræðingum. Er Pútín í
Vafalaust er Pútín þó með hugann við
Moskvu, a.m.k. ef marka má skjámynd á tölvu
hans sem sýnir Kreml í öllu sínu veldi.
hans innsta hring. Smitið virðist vera nokkuð
útbreitt en ekkert bendir til annars en að for-
setinn hafi sjálfur sloppið með skrekkinn.
forsetabústaðnum Novo-Ogaryovo fyrir utan
Moskvu, en hann er þar í tveggja vikna ein-
angrun eftir að kórónuveirusmit kom upp í
AFP
Stjórnar frá
forsetabústaðnum
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Lloyd Austin, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hefur fyrirskipað
flughershöfðingja að fara yfir niður-
stöður rannsóknar á nýlegri dróna-
árás Bandaríkjahers í Kabúl í Afgan-
istan. Tíu almennir borgarar, þar af
sjö börn, létu lífið í árásinni, en hún
var gerð á lokametrum brotthvarfs
Bandaríkjanna frá Afganistan.
Greint er frá þessu í hermiðlinum
Stars and Stripes, sem starfar með
heimild bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins. Á yfir-
ferðin að leggja
hlutlaust mat á
rannsóknina og
þau vinnubrögð
sem viðhöfð voru
við vinnuna.
Bandaríkin hafa
verið harðlega
gagnrýnd fyrir
árásina og hefur
varnarmálaráð-
herrann þegar beðist afsökunar á
henni opinberlega. Vottaði ráð-
herrann um leið aðstandendum lát-
inna sína dýpstu samúð. „Við mun-
um læra af þessum hræðilegu
mistökum,“ sagði hann þá.
Fær 45 daga til vinnunnar
John Kirby, talsmaður varnar-
málaráðuneytisins, segir yfirferðina
eiga að beinast að sjálfri rannsókn-
inni og hversu vandlega hún var unn-
in á sínum tíma. Dreginn verður lær-
dómur af árásinni sem mun hafa
áhrif á aðgerðir hersins til framtíðar.
Eins á þessi yfirferð að meta hvort
og þá hvar hugsanleg ábyrgð liggur.
Lloyd Austin óskaði eftir háttsett-
um flughershöfðingja í verkið, ein-
hverjum með minnst þrjár stjörnur.
Eftir að búið er að velja viðkomandi
hefur hann að hámarki 45 daga til að
ljúka yfirferð sinni.
Frank McKenzie hershöfðingi
hefur sagt árásina vera „sorgleg
mistök“. Hún hafi verið gerð í þeirri
trú að skotmarkið ógnaði öryggi
þeirra hermanna sem unnu að því að
flytja fólk á brott frá Kabúlflugvelli.
„Sem herstjórnandi ber ég fulla
ábyrgð á þessari árás og þeirri sorg-
legu útkomu sem hún skilaði,“ er
haft eftir McKenzie hershöfðingja.
Drónaárásin skoðuð aftur
- Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna vill að farið verði yfir rannsókn á árás sem
kostaði tíu almenna borgara lífið í Afganistan - Háttsettur hershöfðingi fær málið
Lloyd
Austin
Hópur fólks kom saman við háskól-
ann í rússnesku borginni Perm í gær
til að minnast þeirra sex sem myrtir
voru í skotárás sl. mánudag. Var það
nemandi í skólanum sem hóf skot-
hríð og eru tugir til viðbótar særðir,
sumir þeirra alvarlega. Nemendur
og foreldrar lögðu blóm, kerti og
ljósmyndir af hinum látnu við minn-
ingarreit á skólasvæðinu. Allt í
kringum hópinn mátti sjá vopnaða
lögreglumenn sem gættu öryggis.
„Háskólinn er heimili okkar,“ hef-
ur fréttaveita AFP eftir einum
þeirra sem viðstaddir voru athöfn-
ina. „Enginn á von á svona löguðu.
Það er algjört áfall að fá vopnaðan
mann inn á heimilið sem ógnar fjöl-
skyldunni,“ bætti hann við.
Árásir í skólum fátíðar
Árásarmaðurinn er 19 ára piltur
sem á samfélagsmiðlum hafði boðað
ódæðið með fyrirvara. Hann særðist
alvarlega í átökum við lögreglu.
Skotárásir í skólum Rússlands eru
afar fátíðar. Eftir eina slíka í maí sl.
kallaði Vladimír Pútín Rússlands-
forseti eftir hertum reglum um
byssueign almennings.
AFP
Sorg Blóm og kerti eru á meðal þess sem fólk stillti upp á athöfninni.
Minntust þeirra
sem létust í Perm
- „Háskólinn er heimili okkar“
Frjálslyndi
flokkur Justins
Trudeaus, for-
sætisráðherra
Kanada, bar sig-
ur úr býtum í
þingkosningum
þar í landi en
náði þó ekki
hreinum meiri-
hluta. Trudeau,
sem boðaði til
kosninganna í síðasta mánuði, verð-
ur því áfram forsætisráðherra
landsins. „Þið eruð að senda okkur
aftur til starfa með skýrt umboð til
að komast í gegnum þennan far-
aldur og yfir í bjartari daga fram
undan,“ sagði Trudeau í gær.
KANADA
Trudeau áfram
forsætisráðherra
Justin
Trudeau