Morgunblaðið - 22.09.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 22.09.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021 Geir H. Haarde, fyrrv. formaður Sjálfstæðisflokksins er gestur á opnum hádegisfundi eldri sjálfstæðismanna á H Reykjavík Nordica kl ilton . 12 í dag. Fundur með Geir H. Haarde Allir velkomnir. Geir H. Haarde Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og fyrr- verandi framkvæmdastjóri Land- verndar, verður seint sakaður um aðgerðaleysi á síðustu dögum sín- um í embætti fyrir komandi kosn- ingar. Ráðherrann hefur farið lands- horna á milli og friðlýst í gríð og erg svo að landeigendur mega hafa sig alla við að fylgjast með hvar hann drepur niður fæti. - - - Ráðherrann er ánægður með framgöngu sína og greindi frá því fyrir nokkrum dögum að frið- lýsingar hans væru komnar upp í 28 það sem af er embættistíðinni. Segja má að þetta sé í samræmi við stefnu VG um að friðlýsa „30% af landi og hafi fyrir árið 2030“ sem umhverfisráðherrann segir að sé „í samræmi við stefnu metnaðar- fyllstu ríkja heims“. Ekki er ljóst hvað þessi tala, 30%, kemur nátt- úruvernd við, en líklegt má telja að frekar ætti að ráðast í friðlýsingar eftir mat á tilteknu svæði en á grundvelli slíks markmiðs. - - - Víða hefur verið friðlýst hér á landi áður en Guðmundur Ingi settist í stól umhverfisráðherra, en almennt hefur það verið vel und- irbúið og gert í góðri sátt. - - - Í kapphlaupinu sem umhverfis- ráðherrann er nú í við fyrrver- andi framkvæmdastjóra Land- verndar hefur orðið vart meiri gagnrýni en áður sem þarf ekki að koma á óvart þegar friðlýsingar eru afgreiddar af færibandi. - - - Er víst að það sé verndun lands- ins fyrir bestu að ganga fram af slíkum ofsa í þessum efnum? Er ekki betra að vanda undirbúning og vinna slík mál í meiri sátt? Guðmundur Ingi Guðbrandsson Friðlýsingar á færibandi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rostungurinn Valli, sem hefur gert sig heimakominn á Höfn í Hornafirði síðustu daga, dregur að sér athygli þar í bæ. Skepnan hefur skriðið upp á flotbryggjuna í Hornafjarðarhöfn, þar sem hent er til hennar æti. „Rostungurinn er þægur og prúð- ur,“ sagði Vignir Júlíusson for- stöðumaður Hornafjarðarhafna í samtali við mbl.is í gær. Vignir segir skepnuna ekki hafa valdið neinu tjóni en sé þetta sama dýr og sést hefur í höfnum á Írlandi, eins og haldið er fram, gæti allt gerst. Ytra er rostungurinn kallaður Wally, eða Valli, og hefur víða valdið tjóni. Samkvæmt því sem fram kemur á Vísindavefnum hafa rostungar ekki haft fasta viðveru við Ísland síðustu aldir. Þau stöku dýr sem sjást hér, kannski eitt dýr á áratug, eru flæk- ingar, líklega mest frá Grænlandi. Þau hafa hér skamma dvöl og eru iðulega horfin innan mánaðar. Skýr- ingin á því hversu fáséð þessi flæk- ingsdýr eru hér, segir í grein eftir Hilmar J. Malmquist líffræðing, er sú að hér við land er of hlýtt og ís vantar. Rostungar séu háðir kulda; að minnsta kosti yfir æxlunartíma og kelfingu. rebekka@mbl.is / sbs@mbl.is Valli vekur athygli - Sjaldséð dýr í heitum sjónum við Ísland Ljósmynd/Hornafjarðarhöfn Rostungur Skepnan er stór og vígaleg og margir vilja líta hana augum. Hreindýraveiðitímanum lauk al- mennt sl. mánudag, 20. september, sem var síðasti veiðidagur á hrein- kúm. Veiði á þeim hófst 1. ágúst. Veiði á hreintörfum hófst 15. júlí og lauk henni 15. september. Að auki verður leyfð veiði á 46 kúm 1.-20. nóvember á veiðisvæðum 8 og 9. Kvótinn var alls 1.220 dýr. Ekki tókst að veiða 24 dýr af þeim 1.174 sem mátti veiða hingað til á árinu. Af gekk 21 hreinkýr og þrír hreintarfar. Í veiðifréttum á vef Umhverfisstofnunar (ust.is) segir að þessi niðurstaða verði að teljast góð. „Of mikil samþjöppun varð á veið- um seinni hluta veiðitímans. Í heild var veður gott á veiðitímabilinu og fáir þokudagar heilt yfir. Óvenjulegt að suðlægar áttir eða hægviðri með áttleysu vari stóran hluta tímans,“ segir í fréttinni. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hreindýr Veiðitímabili hreindýra er almennt lokið. Ekki tókst að fella 24 dýr af kvótanum. Takmörkuð veiði á hreinkúm verður leyfð í nóvember. Góður árangur á hreindýraveiðunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.