Morgunblaðið - 22.09.2021, Side 28

Morgunblaðið - 22.09.2021, Side 28
Þurrk- grindur Laugavegi 29 | sími 552 4320 verslun@brynja.is | brynja.is 3 stærðir Vefverslun brynja.is Innan- og utandyra 60 cm x 4,9 lm, ber 20 kg Verð kr. 10.980 Útdraganleg 5x4,2 lm Verð kr. 8.410 80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg Verð kr. 12.220 100 cm x 8,5 lm, ber 20 kg Verð kr. 12.970 Opið virka daga frá 9-18 lau frá 10-16 Bíó Paradís mun frá og með morgundeginum til 26. september sýna þær fimm kvikmyndir sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrir Ís- land er það kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur, Alma, og hinar fjórar myndirnar eru Flugt frá Danmörku eftir leikstjórann Jonas Poher Rasmussen, Ensilumi frá Finnlandi eftir Hamy Ramezan, Gunda frá Noregi eftir Victor Kossakovskíj og Tigrar frá Svíþjóð eftir leikstjór- ann Ronnie Sandahl. Kvikmyndir tilnefndar til verðlauna Norðurlandaráðs í Bíó Paradís MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Bjarki Már Elísson var markahæstur þegar þýsku bikar- meistararnir í Lemgo unnu nauman sigur á Íslands- meisturum Vals, 27:26, í 2. umferð Evrópudeildar karla í handknattleik í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær. Lemgo er því í góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna sem verður í Þýskalandi en liðið lenti þó í miklum vandræð- um í gær því Valur var með sex marka forskot þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Rauða spjaldið fór tvívegis á loft í leiknum en Björgvin Páll Gústavsson var rekinn af velli í fyrri hálfleik. »22 Bjarki Már gerði Val enga greiða í Evrópuleiknum á Hlíðarenda ÍÞRÓTTIR MENNING ræða. „Nú má ekki bregða út af sett- um reglum og eftir að við erum lagð- ir af stað megum við ekki stoppa aft- ur til að bíða eftir farþega.“ Hann segir þetta gert í öryggisskyni með umferðina í huga, en útskotum fyrir strætó í Reykjavík hafi reyndar ver- ið fækkað markvisst með tilheyrandi töfum á umferðinni. „Því er þetta tvískinnungur.“ Miklar breytingar hafa orðið hjá fyrirtækinu frá því Guðmundur hóf þar fyrst störf. „Mér finnst oft skína í gegn að breytingarnar séu gerðar breytinganna vegna,“ staðhæfir hann. Í því sambandi nefnir hann nýlega breytingu á leið 6. Nú sé ekið utan við íbúðahverfi í stað þess að fara í gegnum það að Egilshöll. „Það var búið að reyna þetta en þá gekk það ekki upp,“ segir hann. „Nú er skýringin sú að þetta verði leiðin þar sem borgarlínan eigi að vera, en ef hún á ekki að koma nær fólkinu býð ég ekki í hana.“ Hann gagnrýnir líka kaup á strætisvögnum, sem hafi oft verið vanhugsuð, rétt eins og nafna- breytingar á biðstöðvum, sem hafi oft aukið á vandræði farþega. „Sumt hefur verið til bóta en annað tóm vit- leysa,“ segir hann, en leggur áherslu á að aksturinn sé yfirleitt skemmti- legur og gaman sé að spjalla við aðra bílstjóra í pásum. Guðmundur hefur minnkað við sig og er í 40% vinnu, eingöngu á morg- unvakt. Vinnufyrirkomulagið sé skipulagt mánuð fram í tímann og það sé gott. „Heilsan er góð, en ég fæ ekki að vinna lengur en þar til ég verð 72 ára. Ég veit ekki hvað ég geri í nánustu framtíð en kannski tek ég Guðmund heitinn Clausen mér til fyrirmyndar og fer í vinnu annars staðar eftir að ég verð látinn fara frá Strætó.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Foreldrar eru stundum fyrirmyndir barna sinna í námsvali og starfi, en þó að Pétur Kristinn Jónsson, faðir Guðmundar Inga Péturssonar, hafi verið strætisvagnabílstjóri var það ekki ástæða þess að sonurinn fetaði sömu leið. „Tilviljun réð ævistarfinu og góður lífeyrissjóður er ein helsta ástæða þess að ég fór aftur að keyra strætó og geri það enn,“ segir hann. Sjómennskan heillaði Guðmund á unga aldri. Hann var sumarmaður á togara á unglingsárunum 1966 til 1969 auk þess sem hann tók þá tvo jólatúra. Hann fór í Stýrimannaskól- ann, en meiddist á ökkla í körfu- boltaleik með ÍR og komst ekki í jólatúr. Sjómennskan virtist vera liðin tíð. „Fóturinn var svo bólginn að ekki fengust nógu stór stígvél á mig í Ell- ingsen,“ rifjar hann upp. Hann hafi verið peningalaus með ófrískri konu, hafi hætt í skólanum og drifið sig í meiraprófið og rútuprófið til þess að geta keyrt utanbæjarbílinn hjá Sani- tas. „Það var vel borguð vinna enda vinnudagurinn langur,“ útskýrir hann. Hann hafi reyndar farið aftur á sjóinn, en þegar hann hafi verið á milli skipa 1974 hafi sér boðist starf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. „Ég ákvað að prófa þetta um vet- urinn en leið vel í sætinu og sat til 1980.“ Breytingar og borgarlína Næstu tvo áratugina var Guð- mundur bílstjóri hjá Ferðaþjónustu fatlaðra og Kynnisferðum en hefur keyrt strætó frá 2000. „Aksturinn var hálfgerð þrautalending,“ segir hann. Bendir á að hann hafi ekki getað hugsað sér að fara í innivinnu og ekki hafi verið um auðugan garð að gresja. „Fólksflutningar hafa allt- af verið vanmetnir til launa. Laun strætisvagnabílstjóra hafa samt ætíð verið góð í samanburði við önn- ur bílstjórastörf en vissulega er mjög sjaldgæft að við fáum þjórfé eins og í rútubílaakstrinum.“ Þegar Guðmundur byrjaði að keyra strætó þekktu bílstjórarnir fljótlega flesta farþegana, stoppuðu fyrir þeim sem voru of seinir og hleyptu þeim gjarnan út þótt ekki væri um hefðbundna stoppistöð að Ekki nógu stór stígvél - Sjómaðurinn meiddist í körfubolta og fór að keyra strætó Morgunblaðið/Eggert Strætó Guðmundur Pétursson kann vel við sig í bílstjórasætinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.