Morgunblaðið - 27.09.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 27.09.2021, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u A h ð ð 595 1000 Kanarí u. At h. a t 18. október í 11 nætur 11 nátta ferð Flug & hótel frá 99.325 11 nætur Verð frá kr. 114.850 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Andrés Magnússon andres@mbl.is Úrslit alþingiskosninga virtust koma ýmsum á óvart og var þá jafnan vísað til kannana í liðinni viku, sem sýndu að ríkisstjórnarmeirihlutinn væri fallinn. Þær kannanir sýndu hins vegar aðeins hvernig staðan var á hverjum tíma og drógu ekki fram hvert óákveðnir leituðu. Fylgishreyfingar í lokavikunni gáfu hins vegar skýrt til kynna hvert stefndi. Til hliðar gefur að líta fylgis- þróun hvers flokks í þremur síðustu könnunum MMR, sem teknar voru í lokavikunni fyrir kosningar, auk kosningaúrslita. Þar má yfirleitt greina þær hreyfingar á fylgi, sem á daginn komu í talningunni. Þannig virðist fylgi Sjálfstæðis- flokks haldið áfram að aukast línu- lega fram á kjördag, en fylgisaukn- ing Framsóknar hélt áfram þótt hún hægði ögn á sér. Helstu undantekn- ingar eru Viðreisn, sem virðist hafa fatast flugið á lokametrunum, og Vinstri græn, sem augljóslega áttu inni um 3,5% umfram það sem kann- anir gáfu til kynna. Skoðanakannanir á réttu róli Fylgishneigð í könnunum MMR og kosningaúrslit Þrjár síðustu kannanir MMR í síðustu viku fyrir kosningar (15.-17., 21.-22. og 22.-23. september) og kjördagur 25. september 0% 5% 10% 15% 20% 25% JPVSFCMBD Sjálfstæðisflokkur Framsókn Miðflokkur Viðreisn Flokkur fólksins Samfylking Vinstri græn P Sósíalistaflokkur K ö n n u n M M R 1 5 .9 .- 17 .9 K ö n n u n M M R 2 1 .9 .- 2 2 .9 K ö n n u n M M R 2 2 .9 .- 2 3 .9 Kosningar 25.9. - Velflestar kannanir gáfu góða mynd af fylgishreyfingum - Óákveðnir höfðu sitt að segja um úrslitin - Misgóð mæling eftir flokkum - Kannanir í lokavikunni sýndu fylgishneigð flestra flokka ágætlega Eftir að lokatölur voru birtar úr öll- um kjördæmum varð ljóst að ríkis- stjórnin heldur velli með 37 þing- menn af 63 og getur hún þakkað góðu gengi Framsóknarflokksins fyrir það. Allir ráðherrar ríkis- stjórnarinnar náðu aftur inn á þing. Það var að vonum gott hljóðið í Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, þegar blaða- maður náði af honum tali í gær. Hann sagði þá að viðbúið væri að nýr þingflokkur kæmi saman í dag. Sigurður sagðist þó hafa rætt við alla þingmenn flokksins einslega. „Ég er búinn að tala við alla þing- menn, nýja sem gamla, og fara yfir stöðuna.“ Það mætti segja að Fram- sókn hafi verið sigurvegari kosning- anna en flokkurinn bætti við sig fimm þingmönnum frá síðasta kjör- tímabili og er því með 13 talsins. Spurður hvernig stjórnarmynd- unarviðræður blasi við honum segir Sigurður: „Oddvitar núverandi rík- isstjórnar munu setjast niður, það var það sem við sögðum fyrir kosn- ingar og munum standa við. Við munum gera það næstu daga og taka það samtal, enda eru skila- boðin úr þessum kosningum þannig að þessir þrír flokkar hafa starfað saman í rík- isstjórn og að þessir þrír flokk- ar njóti mest trausts almenn- ings. Skilaboðin eru býsna sterk um að fólk vilji það að við látum á það reyna að halda áfram sam- starfi en auðvitað þá á nýjum grunni og það er það sem við munum kanna næstu daga.“ Katrín vaknaði ánægð Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, vaknaði ánægð í gær- morgun að eigin sögn. Hún segir það stórmerkilegt að Vinstri græn séu áfram stærsti vinstriflokkurinn. Flokknum hafði verið spáð tæplega tíu prósentum í skoðanakönnunum fyrir kosningar, en stóð svo uppi með 12,6 prósenta fylgi eftir að lokaniðurstöður kosninga lágu fyr- ir. Vinstri græn ná þannig inn átta þingmönnum, en munaði litlu að þeir yrðu níu. Þótt fylgi flokksins hafi reynst meira en skoðanakann- anir gáfu til kynna er það töluvert minna en í síðustu kosningum og flokkurinn missir þannig þrjá þing- menn frá þeim kosningum. Í þætt- inum Sprengisandi á Stöð 2 í gær sagði Katrín flokkinn í raun hafa misst einn þingmann miðað við nú- verandi stöðu en tveir þingmenn yf- irgáfu flokkinn á kjörtímabilinu, eða þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Katrín bendir á að Vinstri græn hafi unnið afbragðsgóðan sigur í síðustu kosn- ingum. Flokkurinn sé engu að síður áfram stærsti vinstri flokkur lands- ins. „Það er stórmerkilegt að við séum áfram stærsti vinstri flokk- urinn á Íslandi eftir að við tókum ákvörðun um þetta stjórnarsam- starf.“ Katrín segir ríkisstjórnina hafa fengið mjög góðan stuðning í kosn- ingunum og minnir á að fyrir kosn- ingar hafi stjórnin lýst því yfir að hún myndi ræða saman, næði hún meirihluta. Næstu skref verði því að funda hver með sínum flokki og svo muni ríkisstjórnarflokkarnir funda um framhaldið. Spurð í þættinum Sprengisandi hvort verra gengi í þessum kosn- ingum miðað við þær síðustu hafi áhrif á stöðu hennar sagði hún að þegar hún hafi farið inn í rík- isstjórnina hafi því verið spáð að flokkurinn hennar myndi hverfa. Sagðist hún því hafa tekið mikla pólitíska áhættu. „Þegar ég horfi á þessa niðurstöðu held ég að þessir ágætu aðilar sem spáðu mér tortím- ingu, ég held að þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér,“ sagði Katrín. „Þetta var töluvert betra en flestar kannanir“ „Þetta er nokkurn veginn sama niðurstaða og síðast hjá okkur, við erum innan við einu prósenti frá niðurstöðunni hvað hlutfallið varðar en með sama þingmannafjölda og áþekk niðurstaða í flestum kjör- dæmum,“ sagði Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, í Silfrinu í ríkissjónvarpinu í gær. Flokkurinn heldur sínum þing- mannafjölda, með 16 þingmenn, og er því enn stærsti flokkurinn á þingi. „Þetta var töluvert betra en flest- ar kannanir, við elskum að vinna þessar kannanir, það hleypir kappi í okkur.“ Hann bendir þá á að könn- un Gallup sem kom á föstudag, degi fyrir kjördag, hafi ekki staðið langt frá lokatölum flokksins. „Það er allt annað mál að svara könnunum en að mæta í kjörklefann og svo eru nú ekki allir sem taka þátt í þeim.“ Bjarni sagði síðan í þættinum Sprengisandi niðurstöðu kosning- anna vera skýra. Stuðningur við ríkisstjórnina sé mikill og að honum þætti „eðlilegt að flokkar sem hafa starfað saman í fjögur ár og átt ágætis persónuleg samskipti“ láti reyna á áframhaldandi samstarf. Spurður hvort gott gengi Fram- sóknarflokksins og slakara gengi Vinstri grænna muni hafa áhrif sagði Bjarni það hafa áhrif inn í samtalið með einhverjum hætti. Sömuleiðis sagði Bjarni það slæmt að missa Brynjar Níelsson af þingi. Sigurður Ingi tók þá undir með Bjarna varðandi framhaldið og sagði eðlilegast að þessir þrír flokk- ar settust niður og ræddu málin. Eðlilegt að stjórnar- flokkarnir ræði saman - Ríkisstjórnin heldur velli þökk sé Framsóknarflokki Framhald Flokkarnir gáfu út að þeir muni setjast niður og ræða málin. Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sigurvegarar Framsókn fagnaði góðu gengi í kosningunum um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.