Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 6

Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Skattskrár vegna álagningar á einstaklinga og lögaðila á árinu 2019 og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2018 eru lagðar fram í dag, mánudaginn 27. september 2021 Skrár yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga og lögaðila á árinu 2019 vegna tekjuársins 2018 ásamt virðisaukaskattsskrá eru til sýnis dagana 27. september til 11. október 2021 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19. Auglýsing þessi er birt, skv. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og 46. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Reykjavík, 27. september 2021 Ríkisskattstjóri 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Kjörsókn í alþingiskosningum 2021 var aðeins lakari en í kosningunum fyrir fjórum árum. Alls greiddu 201.792 atkvæði í ár eða 80,1% kosn- ingabærra manna en 81,2% greiddu atkvæði í alþing- iskosningunum 2017. Kjörsókn var nokkuð jöfn á milli kjördæma. Í Norðvest- urkjördæmi var hún mest, þar kusu 82%. Dræmust var hún í Reykjavík- urkjördæmunum tveimur og Suð- urkjördæmi þar sem 79% greiddu atkvæði. Kjörsóknin er örlítið betri en árið 2016 þegar 79,2% kosn- ingabærra manna kusu. Minnkað tvisvar í röð „Við höfum verið í kringum þessi 80% í nokkrar kosningar í röð en ef maður horfir yfir á lengri tíma þá hefur kosningaþátttakan smám saman verið að minnka. Hún var lengi í kringum 90%. Vonandi heldur hún ekki áfram að minnka, hún hef- ur ekki gert það tvennar kosningar í röð. Þannig maður vonar að hún standi í stað, eða aukist,“ segir Eva Heiða Önnudóttir, dósent í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands, og bætir við að það sé erfitt að spá fyrir um framtíðina. Síðast var kjörsókn 90,1% árið 1987. „Í alþjóðlegum samanburði er kosningaþátttaka hér tiltölulega há en hún er líka tiltölulega há á flest- um Norðurlöndunum. En á al- þjóðavísu hefur kosningaþátttaka al- mennt farið lækkandi,“ segir Eva. Ekki er auðvelt að skýra af hverju kosningaþátttaka fer minnkandi með árunum en Eva segir að rann- sóknir sýni að það sé ekki vegna minnkandi áhuga á stjórnmálum. Yngri kynslóðirnar hafi breyst og taki ekki ákvarðanir á sama hátt og kynslóðirnar á undan. Ekki eins og var áður „Yngri kynslóðin hefur minni tengingu við stjórnmálaflokka, hún er ekki eins flokksholl eins og yngri kynslóðir hér áður fyrr,“ segir Eva. Það er ekki breytan sem getur haft áhrif á kjörsókn yngri kynslóða heldur einnig að ungt fólk byrjar seinna að taka þátt í stjórnmálum „Ungt fólk hefur alltaf verið ólík- legra til að kjósa, en áður fyrr kom það yfirleitt inn í kringum 25 ára aldurinn. Rannsóknir á Íslandi og í Finnlandi sýna að breytingin er sú að þessi yngsta kynslóð sé ekki að koma inn með sama hætti og áður,“ segir Eva. „Ein skýringin er líka seinkun á lífsþroska, það er ungt fólk í dag býr lengur í foreldrahúsum, er lengur í námi og kemur seinna út á vinnu- markað. Þar af leiðandi verður það seinna þátttakendur í samfélaginu.“ Næstlægsta kjörsókn sögunnar - Kjörsókn dalaði um 1,1% frá alþingiskosningum árið 2017 - Munur á kosningaþátttöku kynslóða - Yngri kynslóðir ekki jafn flokkshollar og áður - Kosningaþátttaka minnkað um 10% á 34 árum Kosningaþátttaka í alþingiskosningum frá 1946 til 2021 95% 90% 85% 80% 75% 70% '46 '49 '53 '56 '59 '59 '63 '67 '71 '74 '78 '79 '83 '87 '91 '95 '99 '03 '07 '09 '13 '16 '17 '21 87,4% 92,1% 91,4% 90,1% 84,1% 87,7% 79,2% 81,2% 80,1% Heimild: Hagstofa Íslands Eva Heiða Önnudóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þótt tillaga um sameiningu Ása- hrepps, Rangárþings ytra, Rangár- þings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftáhrepps á Suðurlandi hafi ver- ið felld af íbúum fyrstnefnda sveitar- félagsins er ástæða til þess að for- svarsmenn hinna fjögurra kanni hvort grundvöllur sé fyrir samein- ingu þar. Þetta segir Anton Kári Halldórsson, formaður samstarfs- nefndar um sameiningarmál. Í Ásahreppi, þar sem íbúar eru 271, voru 79% kjósenda á móti sam- einingu. Í Skaftáhreppi voru hins vegar 75% þeirra sem atkvæði greiddu fylgjandi tillögunni sem fyr- ir var lögð. Í Rangárþingi ytra sögðu 51% já í Mýrdal og í Rang- árþingi eystra var einnig meirihluti fyrir málinu, það er 52% á hvorum stað. Afstaða Áshreppinga réð því að sameiningartillagan var felld, þótt 1.313 (52%) greiddu með henni en 1.187 (48%) væru á móti. Virkj- anir á hálendinu eru nokkrar innan landamæra Ásahrepps og þess hef- ur sveitarfélagið notið í fasteigna- gjöldum. Hefur því getað haldið álögum á íbúa mjög lágum. „Fólk vill halda í lága skatta og niður- greidd þjónustugjöld eins og hér bjóðast. Þess vegna meðal annars held ég að tillaga um sameningu hafi verið felld,“ segir Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti Ásahrepps um niðurstöðu kosninganna. Spinna má út frá mynstrum „Niðurstaðan er skýr. Tillagan var felld en eftir standa ákveðin mynstur sem spinna má út frá,“ seg- ir Anton Kári. Í aðdraganda kosn- inganna hafi verið tekin margvísleg greiningarvinna um kosti og galla sameiningar og línur lagðar út frá upplýsingum. Á þeim megi byggja og hugsanlega setja fram nýja til- lögu um sameiningu, án Ásahrepps. Þá væri í pakkanum tillaga að 5.000 manna sveitarfélagi, sem næði frá Holtum í Rangárvallasýslu og aust- ur að Skeiðarársandi. Á þessu svæði eru fjórir þéttbýlisstaðirnir, það er Hella, Hvolsvöllur, Vík og Kirkju- bæjarklaustur – og svo víðfeðm landbúnaðarhéruð þar sem vega- lengdir eru oft mikilar. Því var í um- ræðu um sameiningu lögð áhersla á vegamál, sem heimamenn hafa lýst áhuga sínum á að taka yfir að ein- hverju leyti. „Við í sameiningarnefndinni þurf- um að ljúka okkar starfi formlega þó tillagan sem fyrir lá hafi verið felld. Komum saman nú strax eftir helgina. Þar mun ég setja fram það sjónarmið að í þeim sveitarfélögum þar sem meirihluti var málinu sé æskilegt að ekki verði látið staðar numið,“ segir Anton Kári. Í Mýrdal, þar sem sameiningartil- lagan var samþykkt, hafði Einar Freyr Elínarson oddviti á fyrri stig- um lýst yfir að hann styddi málið ekki. Almennt væri staða sveitarfé- lagsins góð, það er stjórnsýslan í lagi og fjárhagur góður. Margir möguleikar væru á frekari uppbygg- ingu – og þá væri til bóta að í Vík væri haldið utan um stjórnsýslu svæðisins. Í sameinuðu sveitarfélagi væri ekki endilega víst að nægileg áhersla yrði lögð á brýn hagsmuna- mál sem vinna þyrfti að í náinni framtíð, það er byggingu nýs leik- skóla og hjúkrunarheimilis, skipu- lagningu nýrra hverfa í Vík og al- mennri hagsmunagæslu. Samtals verði óskað Í ljósi þess að ¾ þeirra sem at- kvæði greiddu í Skaftárhreppi voru fylgjandi sameiningu segir Sandra Brá Jóhannsdóttir sveitarstjóri mjög trúlegt að óskað verði eftir samtali við fulltrúa þeirra sveitarfé- laga þar sem einnig var meirihluti fyrir sameiningu. Þetta verði vænt- anlega rætt frekar og ákvörðun tek- in á næsta fundi sveitarstjórnar, sem verður síðari hlutann í október. Tillagan var felld en umræður haldi áfram - Kosið var samhliða alþingiskosningum - Ásahreppur á móti sameiningu sveitarfélaga á Suðurlandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hvolsvöllur Meirihluti var fyrir sameiningu sveitarfélaga þar. Sandra Brá Jóhannsdóttir Anton Kári Halldórsson Inga Sæland, oddviti Flokks fólks- ins, er hæstánægð með framgang flokksins í kosningum þetta árið. Flokkurinn bætti við sig 1,9% á landsvísu og endaði með 8,8% fylgi. Hlaut flokkurinn sex kjördæma- kjörna frambjóðendur inn á þing. Flokkurinn var fyrir kosningar með tvo þingmenn. „Ég er bara enda- laust ánægð og þakklát. Þetta er bara dásamlegt.“ Bíður á kantinum Inga vildi ekki svara því hvort hún vildi fara í ríkisstjórn. Hún væri tilbúin að fara í samstarf með Sjálf- stæðisflokki og Framsókn, en þó með skilyrðum. „Ef það yrðu afnumdir hér skatt- ar og skerðingar að 350.000 krónum og þessir flokkar færu í það að brjóta niður múrana í kringum fá- tæktargildrurnar og fátækt fólk, þá fór ég í stjórnmál til þess. En ég held það sé ekki tímabært að vera að tala um það þessa stundina,“ sagði Inga sem kveðst hafa farið í stjórn- mál til þess að gera gott og vinna fyrir þau sem treysta hennar flokki. Inga Sæland hæst- ánægð með fylgið - Flokkur fólksins margfaldast á þingi Morgunblaðið/Eggert Ánægð Inga Sæland sá ekki á bak neinum þingmanni um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.