Morgunblaðið - 27.09.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.09.2021, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Olaf Scholz, kanslaraefni SPD, þýska Sósíaldemókrataflokksins, lýsti því yfir í gærkvldi að flokkurinn hefði unnið mikinn sigur í þingkosn- ingum, sem fóru fram í Þýskalandi í gær. „Kosninganóttin verður löng, það er ljóst,“ sagði Scholz í ávarpi á kosningavöku flokksins í Berlín. „En þetta liggur fyrir: Margir borgarar hafa sett krossinn við SPD vegna þess að þeir vilja breytingar og einn- ig vegna þess að þeir vilja að næsti kanslari heiti Olaf Scholz.“ Kosningaspár bentu til þess í gær- kvöldi, að SPD hefði fengið 26% at- kvæða en í kosningum fyrir fjórum árum fékk flokkurinn um 20%. Kristilegum demókrötum, CDU, flokki Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, var spáð 24,5% en flokk- urinn fékk 33% í síðustu kosningum. Verði þetta niðurstaðan yrðu það verstu kosningaúrslit fyrir CDU frá lokum síðari heimsstyrjaldar en flokkurinn hefur ásamt systur- flokknum CSU aldrei fengið undir 30% atkvæða í þingkosningum. Paul Ziemiak, framkvæmdastjóri CDU, viðurkenndi að það stefndi í sárt tap flokksins. En Armin Laschet, kansl- araefni CDU, sagði í gærkvöldi að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að mynda ríkisstjórn undir forystu CDU. Græningjar í lykilstöðu Þótt loftslagsmál hafi verið ofar- lega í huga þýskra kjósenda í að- draganda kosninganna skilaði það sér ekki í mikilli fylgisaukningu Græningja. Samkvæmt kosninga- spám þýskra fjölmiðla fékk flokkur- inn um 14% atkvæða. Flokkurinn gæti þó leikið lykilhlutverk þegar kemur að því að mynda nýja ríkis- stjórn. Kvöldið fyrir kjördag lýsti Scholz því yfir, að hann vildi helst mynda samsteypustjórn með Græn- ingjum og hvatti kjósendur til að veita honum brautargengi til þess. Frjálslyndir demókratar, FDP, gætu einnig komið að borðinu þegar viðræður hefjast um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Christian Lindner, leiðtogi flokksins, hefur gefið kynna að hann sé reiðubúinn til slíkra við- ræðja, hvort heldur það verði við CDU eða SPD. Útlit var fyrir það í gærkvöldi, að flokkurinn fengi 13,9% atkvæða. Það stefndi í að flokkurinn Al- ternative für Deutschland fengi 11,5% atkvæða og Die Linke um 5%. Ljóst þykir, að stjórnarmyndun- arviðræður muni taka langan tíma, hvort sem SPD eða CDU leiði þær. Í sjónvarpsumræðum í gærkvöldi voru þeir Armin Laschet og Olaf Scholz spurðir hvenær búast mætti við að ný ríkisstjórn yrði mynduð. „Örugglega fyrir jól,“ sagði Las- chet og bætti við að ný stjórn yrði að liggja fyrir áður en Þýskaland tekur við forsæti í G7-ríkjahópnum um áramótin. Scholz var orðvarari og sagðist ekki vilja nefna tiltekna dagsetningu en að sjálfsögðu yrði allt reynt til að ljúka stjórnarmyndun fyirr jól.Stóru flokkarnir tveir, CDU og SPD, sitja nú saman í ríkisstjórn en sú stjórn var ekki mynduð fyrr en hálfu ári eftir kosningar sem fóru fram haust- ið 2016. Erfið verkefni Nýr kanslari Þýskalands þarf að takast á við erfið verkefni, bæði heima fyrir og á alþjóðasviðinu. Hann þarf að finna leiðir til að gæða efnahag landsins nýju lífi og takast á við kórónuveirufaraldurinn sem enn geisar í landnu. Á alþjóðavettvangi þarf ný stjórn að móta stefnu í sam- skiptum Þýskalands við Evrópusam- bandið og afstöðu til alræðisríkja á borð við Kína. AFP Sigurviss Olaf Scholz veifar til flokksmanna í höfuðstöðvum SDP í Berlín. Sósíaldemókratar fagna sigri - Kanslaraefni Sósíaldemókrata í Þýskalandi segir kjósendur hafa lýst vilja til að hann leiði næstu ríkisstjórn - Verstu úrslit hjá Kristilegum demókrötum frá styrjaldarlokum - Stjórnarmyndun gæti reynst erfið KNM Gnist, korvetta norska sjóhers- ins, er meðal norskra herskipa sem sést hafa á rússneskum hafsvæðum á skipaferðasíðunni Marine Traffic auk hernaðarlegra sjófara frá fleiri NATO-ríkjum. Í júní voru KNM Gnist og korvett- an KNM Storm á siglingu meðfram strandlengju nokkurra Norður-Evr- ópuríkja. Sjóförin héldu 43 hnúta hraða og stefndu á pólsku hafnar- borgina Gdynia 14. júní, steinsnar vestan við rússneska fylkið og borg- ina Kalíníngrad. Aðfaranótt 16. júní urðu svo þau ólíkindi að norsku skipin sigldu inn á rússneskt hafsvæði. Þetta mátti glöggt sjá af skjám not- enda Marine Traffic. Rússneskum og norskum herflugvélum og -skipum nægir almennt að nálgast landamæri ríkjanna til að kalla fram fyrirsagnir í fjölmiðlum þessara landa. Norsku korvetturnar sigldu hins vegar aldrei inn á rússneskt hafsvæði. Talað um draugaskip Samkvæmt Bjørn Bergman, sem er sjóferðagreinandi, eða sjøfartsana- lytiker, hjá samtökunum Skytruth og Global Fishing Watch, hefur stað- setning rúmlega hundrað skipa verið fölsuð síðasta árið, en samtökin, sem hann starfar fyrir, hafa þróað forrit sem fylgjast með hvoru tveggju, ólög- legum fiskveiðum og fölsuðum sjó- ferðagögnum. Tæknitímaritið Wired talar um „draugaskip“ í umfjöllun sinni um staðsetningarnar fölsuðu, sem það segir til þess fallnar að vekja tor- tryggni og viðsjár milli norrænu ríkjanna og Rússlands. Skýrsla norsku leyniþjónustunnar, sem norska ríkisútvarpið NRK hefur fengið að sjá, sýnir enn fremur að norsku freigáturnar Roald Amund- sen og Niels Juel áttu að hafa verið á siglingu um alþjóðlegt hafsvæði þeg- ar þær í raun lágu við festar í heima- höfn. atlisteinn@mbl.is Falsanir á Marine Traffic - Norsk herskip ekki í lögsögu Rússa Ljósmynd/Norski sjóherinn Bryndreki Korvettan KNM Gnist sýndist sigla inn á rússneskt svæði. Þrír farþegar lestar frá Amt- rak-járnbraut- unum létust og 50 eru slasaðir eftir að lestin fór af sporinu í nágrenni bæj- arins Joplin í Montana klukkan 16 að staðartíma á laugardaginn með þeim afleið- ingum að nokkrir vagna hennar ultu á hliðina, en um borð voru 141 farþegi og 16 starfsmenn. „Ég vil ekki hugsa til þess hvað gerst hefði ef mér hefði ekki tekist að halda mér í borðið mitt,“ sagði farþeginn Megan Vandervest felmtri slegin við New York Times eftir slysið. BANDARÍKIN Mannskætt lestar- slys í Montana Lest frá Amtrak. Átján fyrrverandi nemendur danskra kostskóla svokallaðra, skólastofnana, sem uppfóstra börn og ungmenni, er ratað hafa á refil- stigu í lífinu, hafa stefnt danska rík- inu og krefjast samtals 5,4 milljóna danskra króna, jafnvirði tæplega 110 íslenskra milljóna, í skaðabætur fyrir harðræði, sem nemendurnir máttu sæta í skólunum, þar á meðal kynferðislega misnotkun og ofbeldi. Byggist skaðabótakrafa nemend- anna meðal annars á því, að dagljóst hafi verið hvað viðgekkst í kostskól- unum Havregården, Gilleleje og Godhavn, en þrátt fyrir það hafi eng- inn fullorðinn aðhafst nokkuð til að koma börnunum til hjálpar. „Þetta er einn myrkasti kaflinn í lífi mínu,“ segir Sarah Christensen, einn stefnenda, um dvöl sína í Havregården, „mér fannst skelfilegt að þurfa að lifa við þau skilyrði, sem þarna voru,“ rifjar hún upp við danska ríkisútvarpið DR. Daglegt ofbeldi Mads Pramming, lögmaður stefn- endanna, tekur undir þetta og segir ljóst að ítrekuð og gróf mannrétt- indabrot hafi átt sér stað í skólunum um árabil. „Þessi börn bjuggu í fullri alvöru við daglegt ofbeldi, kynferð- islega misnotkun, vanrækslu og ein- elti í mörg ár,“ segir Pramming ómyrkur í máli. Afhjúpaðir í útvarpsþáttum Fordæmi er fyrir að greiða nem- endum kostskólanna bætur úr rík- issjóði, en fyrr á þessu ári komst rík- ið að samkomulagi við annan hóp, 17 nemendur, um að greiða þeim 300.000 danskar krónur hverjum fyrir sig í bætur fyrir brot gegn mannréttindum þeirra eins og danska ríkisútvarpið fjallaði um í út- varpsþáttaröðinni „Kostskólinn“ á útvarpsstöð sinni P1 nú á árinu, þar sem flett var ofan af því hvað í raun viðgekkst innan veggja skólastofn- ana ætluðum börnum með „þörf fyr- ir stuðning og umhyggju“, eins og það er orðað í leyfisbréfi danskra stjórnvalda til Havregården- skólans. atlisteinn@mbl.is Krefja danska ríkið um milljónabætur - Kynferðisleg misnotkun og ofbeldi daglegt brauð í dönskum kostskólum Ljósmynd/Facebook Hafragarðurinn Dýrkeypt stoð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.