Morgunblaðið - 27.09.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Listmunir
Alfreð Flóki
Róska
Sverrir Haraldsson
(abstract eða sprautumynd)
Fjársterkir aðilar eru að leita að lista-
verkum eftir framangreinda listamenn.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Hansen
í síma 845 0450. fold@myndlist.is
Fold uppboðshús ehf. Rauðarárstíg 12-14.
Tilboð/útboð
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Félagsvist kl.
13. Útskurður kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma
411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Spænskukennsla kl. 11. Handa-
vinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12.45. Glervinnustofa kl. 13–16. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Allir velkomnir. Sími. 411-2600.
Boðinn Bingó kl. 13, myndlist kl. 13, sundlaugin opin frá kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall
kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Jóga með Rakel kl. 9.30. Ganga kl.
10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30.
Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með-
læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jóns-
húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá
Smiðju kl. 13. Bónus-rúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Brids í Jónshúsi
kl. 13. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40
og 16.20, Zumba Gold kl. 16.30.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa, kl. 9-10.30 botsía-
æfing, kl. 9-11.30 postulínsmálun, kl. 10.50-12.05 jóga, kl. 13.15 til ca
15 kanasta, kl. 13-16 opið verkstæðið og handavinnustofan, kl. 16.30
kóræfing hjá Söngvinum.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
9-11. Jóga með Sirrí kl. 10-11. Samsöngur kl. 13.30, allir velkomnir,
sönghefti á staðnum, veitingar seldar eftir sönginn.
Hraunsel Billjard kl. 9-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla jóga kl. 10.
Spilum félagsvist alla mánudaga kl. 13. Allir velkomnir.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 í Borgum. Ganga kl. 10 frá
Borgum, Grafarvogskirkju og einnig gengið í Egilshöll. Prjónað til
góðs og frjáls skartgripagerð kl. 13 í Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borg-
um.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í umsjón Gylfa. Línudans
með Guðrúnu kl. 15 í Borgum. Minnum þátttakendur í haustferð
Korpúlfa miðvikudaginn 29. september á að greiða inn á reikning
Korpúlfa sem allra fyrst.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna kl. 9. Leir á Skólabr kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Jóga / leikfimi í salnum kl. 11. Handavinna og
kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins
kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Minnum á stundina í safnaðaheimili
kirkjunnar á morgun kl. 12.30. Kótilettur með öllu tilheyrandi. Friðrik
verður með nikkuna. Skráningarblað liggur frammi á Skólabraut, verð
2.500 kr.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr 2021 Mitsubishi Outlander
Hybrid Spirit+
Tíglamynstruð leður á sætum. 18”
álfelgur. 5 ára evrópsk verksmiðju-
ábyrgð.
Verð 5.990.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Smá- og raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
✝
Bjarni Guð-
mundsson
fæddist í Reykjavík
29. maí 1945. Hann
lést á dvalar- og
hjúkrunarheim-
ilinu Eyri, Ísafirði,
sunnudaginn 12.
september 2021.
Bjarni var sonur
hjónanna Kristínar
Gunnarsdóttur, f.
17.7. 1931, búsett á
hjúkrunarheimilinu Eir í
Reykjavík, og Guðmundar Sö-
rens Magnússonar, f. 8.10. 1922,
d. 15.12. 2009. Bjarni var elstur
fluttist þá að Brekku í Dýrafirði
og bjó þar til ársins 1964 og síð-
ar á Þingeyri. Bjarni fluttist svo
til Ísafjarðar 1993 og bjó þar á
Fjarðarstræti þar til hann fór á
dvalar- og hjúkrunarheimilið
Eyri.
Bjarni vann við störf í sjávar-
útvegi bæði á Þingeyri og Ísa-
firði. Hann sinnti líka jafnframt
bústörfum á búi foreldra sinna
á Brekku en þau héldu áfram
búskap til ársins 1998 þótt þau
byggju á Þingeyri.
Bjarni gekk til liðs við Ívar,
íþróttafélag fatlaðra á Ísafirði,
og æfði og spilaði boccia með
þeim og tók þátt í mótum á
landsvísu. Hann sótti líka fé-
lagsvist hjá félagsstarfi aldr-
aðra á Ísafirði.
Útför Bjarna fór fram frá
Þingeyrarkirkju 26. september
2021.
12 systkina og nú
eru 9 eftirlifandi,
Guðrún Finnborg,
látin, Guðmunda
Kristín, Magnús
Helgi, Sigurveig,
Gunnar Benedikt,
stúlka, látin, Mika-
el Ágúst, Ingibjörg
María, Jónína
Björg, látin, Sigríð-
ur Gerða og Katr-
ín.
Bjarni ólst upp og bjó megnið
af sinni ævi í Dýrafirði, fyrst í
Hrauni í Keldudal en þar bjó
fjölskyldan til ársins 1957 en
Það er skrýtið til þess að
hugsa að Bjarni frændi hafi
kvatt í hinsta sinn. Hann hefur
alltaf verið hluti af lífi okkar og
þrátt fyrir að hafa ekki búið í
sama landshluta og við var hann
duglegur að hringja í fólkið sitt.
Bjarna fannst gaman að vita af
fólkinu sínu, stóru og smáu og
spurði frétta jafnt af mönnum
sem og hundunum okkar. Þá
var það fastur liður að kíkja til
Bjarna frænda þegar við vorum
fyrir vestan. Þá kíktum við til
hans á Eyri og honum fannst
gaman að sýna krökkunum og
okkur hitt og þetta sem hann
var að fást við. Þegar Bjarni
var rólfær keyrði hann um Ísa-
fjörð á hjólinu sínu og það var
nú ekkert leiðinlegt fyrir yngri
kynslóðina að fá að setjast á
hjólið hjá Bjarna frænda þar
sem það stóð fyrir utan Hamra-
borgina. Bjarni var mjög trúað-
ur maður og sýndi væntum-
þykju sína oft með því að senda
fólki fyrirbænir ef veikindi
steðjuðu að. Það kom skýrt
fram í samtölum við hann
hversu ofarlega sá veiki væri í
huga hans og hversu mikið hann
vildi geta hjálpað. Við kveðjum
Bjarna frænda með hlýju og
þakklæti í huga; þakklæti fyrir
að hafa sýnt okkur að þrátt fyr-
ir að lífið fari ekki mjúkum
höndum um þig þá fyllirðu
hjarta þitt af umburðarlyndi og
þolinmæði.
Hvíldu í friði í faðmi ljóssins
elsku Bjarni.
Þín frændsystkin,
Kristín, Margrét og Ólafur
og þeirra fjölskyldur.
Bjarni
Guðmundsson
✝
Kristín Sæunn
Pjetursdóttir
fæddist á Bolung-
arvík 25. maí
1943. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eir 20. sept-
ember 2021.
Foreldrar
hennar voru Pjet-
ur Ólafsson, f.
1902, d. 1985, og
Sumarlína Laufey
Elíasdóttir, f. 1914, d. 1986.
Kristín ólst upp í Reykjavík
hjá fósturforeldrum frá 5
ára aldri. Fósturforeldrar
hennar voru Signý Ólafs-
dóttir, f. 1895, d. 1974, og
Guðmundur Jónsson, f. 1891,
d. 1954.
Kristín giftist Þóri Rúnari
Jónssyni, f. 27. janúar 1941.
Foreldrar hans voru Þóra
Gunnarsdóttir, f. 1919, d.
2011, og Jón Engilbert Sig-
urðsson, f. 1920, d. 1993.
Fósturfaðir hans var Markús
f. 1965. Barn þeirra er Rakel
Eva Sævarsdóttir, f. 1986,
eiginmaður hennar er Frið-
rik Ársælsson, f. 1982, börn
þeirra eru Benedikt og Inga
Þóra.
3) Valgerður Guðrún Þór-
isdóttir, f. 1972, eiginmaður
hennar er Alex Gisler, f.
1968. Börn þeirra eru Robert
Thór Gisler, f. 2004, og Arn-
old Jón Gisler, f. 2008.
4) Þórir Kristján Þórisson,
f. 1978. Börn hans og Karen-
ar Martensdóttur, f. 1983,
eru Marten Brimi, f. 2001,
Emma Ninja, f. 2009, og
Lotta Kristel, f. 2011. Barn
hans og Söndru Bjarkar Jó-
hannsdóttur, f. 1994, er Ka-
milla Sif, f. 2019.
5) Sigurður Rúnar Þór-
isson, f. 1981, d. 2006.
Kristín bjó í Reykjavík að
Njarðargötu 9 þar til hún og
Þórir fluttu í vesturbæ Kópa-
vogs 1975.
Hún lauk námi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík 1987
og starfaði eftir það við tón-
menntakennslu og kórstjórn.
Útför Kristínar fer fram
frá Lindakirkju í Kópavogi í
dag, 27. september 2021, kl.
13.
Grétar Guðnason,
f. 1921, d. 2001.
Börn Kristínar
og Þóris eru:
1) Guðmunda
Signý Þór-
isdóttir, f. 1962,
eiginmaður henn-
ar var Sigvaldi
Elfar Eggerts-
son, f. 1961, d.
2017. Barn henn-
ar er Signý
Magnúsdóttir, f. 1981, sam-
býlismaður hennar er Geir
Sandtorp, f. 1982.
Barn Signýjar og Sigurðar
Sveins Steinþórssonar, f.
1980, er Írena Katrín.
Barn þeirra er Þórir Helgi
Sigvaldason, f. 1990, sam-
býliskona hans er Inga Berg-
mann, f. 1995. Barn Þóris og
Hildar Hilmarsdóttur, f.
1991, er Sigvaldi Freyr.
2) Þóra Gréta Þórisdóttir,
f. 1964, eiginmaður hennar
er Sævar Þór Guðmundsson,
Elsku mamma, við sitjum
hér saman systkinin og viljum
minnast okkar góða tíma sam-
an. Söknuður okkar er sár þeg-
ar við kveðjum þig í dag. Minn-
ingarnar koma ein af annarri,
við heyrum þig hlæja, syngja
og spila og segja okkur eitt-
hvað hnyttið og skemmtilegt,
glettin og hlý. Brosið þitt blíða
og skæra, lifir áfram í huga
okkar.
Minning um móður
Í hjarta mínu er lítið ljós,
sem logar svo skært og rótt.
Í gegnum torleiði tíma og rúms
það tindrar þar hverja nótt.
Það ljósið kveiktir þú, móðir mín,
Af mildi, sem hljóðlát var.
Það hefur lifað í öll þessi ár,
þótt annað slokknaði þar.
Og þó þú sért horfin héðan burt
og hönd þín sé dauðakyrr,
í ljósi þessu er líf þitt geymt,
— það logar þar eins og fyrr.
Í skini þess sífellt sé ég þig
þá sömu og þú forðum varst,
er eins og ljósið hvern lífsins kross
með ljúfu geði þú barst.
(Jóhannes úr Kötlum)
Við biðjum góðan Guð að
geyma þig og varðveita.
Við söknum þín elsku
mamma,
Guðmunda, Þóra,
Valgerður og Þórir.
Elsku amma.
Ég hugsa til baka til allra
þeirra góðu stunda sem við
höfðum saman. Við gátum eytt
löngum stundum í að skálda
upp sögur um steina og trébúta
sem við settum saman, máluð-
um og skreyttum í Skorradal.
Þú sagðir mér alls konar sögur
sem mér fundust svo skemmti-
legar en ef ég bað um sömu
söguna aftur þá gast þú oft
ekki endursagt hana því þú
skáldaðir þær jafnóðum. En ein
saga sat. Það var sagan um
litlu múslurnar sem gerðu alls
konar prakkarastrik og þú
sagðir mér svo einu sinni að
þessar múslur væru mamma,
Vala og Þóra. Við vorum alltaf
að bralla eitthvað, sérstaklega í
Skorra. Einu sinni um miðnætti
var sólarlagið sérstaklega fal-
legt og við hentumst upp í bíl
og keyrðum langar leiðir eftir
því svo við gætum notið þess
lengur. Við gátum setið heila
helgi í scrabble þar sem ég vil
meina að þú varst sérstaklega
dugleg í því að búa til ný orð
sem ég hafði aldrei heyrt áður
og þú bjóst til skemmtilegar út-
skýringar á því hvað þessi orð
þýddu. En það var auðvitað
bara skemmtilegasti hlutinn af
leiknum, ég reyndi svo líka að
leika þetta eftir og tókst það
stundum. Svona eyddum við
mörgum helgum.
Afi grillaði handa okkur góð-
an mat og svo fengum við okk-
ur auðvitað líka nammi. En það
kom líka fyrir að afi keyrði
okkur upp í Skorra og við vor-
um þar bara tvær yfir helgina
og þá vorum við kannski ekki
duglegar að elda. Eina helgina
borðuðum við grillaðan maís í
allar máltíðir og enduðum með
magapínu, en hlógum bara að
því.
Á meðan ég skrifa þessar
línur renna tárin af sorg og líka
hlátri þegar ég er að rifja þetta
upp. Ég er svo þakklát fyrir
allar þessar góðu stundir. Við
vorum sérstaklega góðar vin-
konur, amma og ég. Ég elska
þig svo mikið amma mín.
Þín Signý (Didda).
Kristín Sæunn
Pjetursdóttir