Morgunblaðið - 27.09.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2021
Ýmsar gerðir af heyrnar-
tækjum í mismunandi
litum og stærðum.
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki fást
í vefverslun heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
2007
HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600
HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS
Heyrðu
umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
50 ÁRA Óskar er Borgnesingur en
býr í Mosfellsbæ. Hann tók rekstr-
arfræði frá Tækniskólanum og er með
BS-gráðu í flutningatækni frá Há-
skólanum í Reykjavík. Óskar er fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda Borg-
arverks, en faðir hans stofnaði það
1974. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í
vegaframkvæmdum, fastir starfs-
menn eru rúmlega 80 en þeim fjölgar
talsvert yfir sumarið þegar mesti
álagstíminn er. „Það er mikið að gera,
við vorum með klæðningar um allt
landið í sumar, erum með gatnagerð í
miðbænum á Selfossi, hafnarframkvæmdir á Ísafirði og margt fleira.“
Áhugamál Óskars eru ferðamennska, jeppar og önnur því tengd.
FJÖLSKYLDA Jórunn Edda Hafsteinsdóttir, f. 1975, hjúkrunarfræðingur
og deildarstjóri á Heilsugæslunni í Mosfellsbæ. Börn: Sigvaldi Örn, f. 2002,
Hafsteinn Ari, f. 2007, Halldór Orri, f. 2011. Foreldrar: Sigvaldi Arason, f.
1937, fyrrv. framkvæmdastjóri, og Halldís Gunnarsdóttir, f. 1943, kennari.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Óskar Sigvaldason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nú ertu loks tilbúinn til að gera þær
breytingar sem staðið hafa fyrir dyrum um
nokkurn tíma. Sambönd halda áfram að
vera ögrandi og eitthvað mikilvægt gerist í
kvöld.
20. apríl - 20. maí +
Naut Stundum er betra að láta það vera að
segja öðrum hug sinn og leyfa þeim að
komast að niðurstöðu í málunum sjálfir.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ert eitthvað eirðarlaus og utan
við þig í dag og það getur hæglega leitt til
misskilnings eða einhvers konar óhapps.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt þú eigir auðvelt með að smita
aðra af jákvæðni þinni í dag ættirðu að
reyna að umgangast fólk sem er þegar í
góðu skapi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Vertu kátur því þú mátt eiga von á því
að eitthvað nýtt og framandi skjóti upp
kollinum í lífi þínu. Fólk er farið að taka þig
alvarlega.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er gaman að gleðjast í góðra
vina hópi, en einvera er líka holl og kjörin til
uppbyggingar. Leggðu þig og borðaðu mat
sem gerir þér gott.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Stundum geta hversdagslegar sam-
ræður leitt til annarra og meiri hluta.
Mundu að í upphafi skal í endirinn skoða.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það er eitthvað sem stendur í
veginum fyrir því að þú náir þeim árangri,
sem þú stefnir að. Varastu að segja of
mikið.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Mundu að það er ekki bara það
sem sagt er sem skiptir máli heldur líka
hvernig það er sagt. Gleymdu ekki að taka
mikilvægi hamingjunnar með í reikninginn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ýmsir erfiðleikar í einkalífinu
eiga hug þinn allan. Vertu opinn fyrir þeim
skilaboðum sem fólk reynir að koma til þín
og láttu vera að berjast sífellt á móti sann-
leikanum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Varastu að dæma hlutina af
fyrstu kynnum því oft ber yfirborðið ekki
með sér hvað undir býr. Láttu allan meting
við aðra lönd og leið.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þótt sjálfsgagnrýni sé góður kostur
má hún ekki ganga svo langt að drepa allt
frumkvæði í dróma.
selja þetta hús. Við eigum því enn þá
athvarf fyrir norðan.“
Björn Steinar hefur haldið fjölda
einleikstónleika hér heima, á öllum
Norðurlöndunum, í Evrópu og Norð-
ur-Ameríku. Hann hefur leikið ein-
leik með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,
Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The
að ég gæti bæði verið organisti á
Akureyri og í Hallgrímskirkju en eft-
ir að ég var skipaður skólastjóri Tón-
skólans haustið 2006 tók ég þá
ákvörðun að kveðja Akureyrarkirkju
með eftirsjá. Við hjónin höfðum rétt
áður látið teikna og byggja fyrir okk-
ur draumahús beint á móti Akureyri,
en við gátum ekki hugsað okkur að
B
jörn Steinar Sólbergsson
er fæddur 27. septem-
ber 1961 á Akranesi og
ólst þar upp. Hann
stundaði nám við
Barna- og grunnskóla þar og síðar við
Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem
hann lauk stúdentsprófi af tónlistar-
braut.
Björn Steinar stundaði tónlistar-
nám við Tónlistarskólann á Akranesi
og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í
Reykjavík. „Þetta byrjaði þannig að
amma mín keypti píanó og lét báða
eldri bræður mína læra á það og ég
fékk að fara með miðbróður mínum í
píanótíma þegar ég var 6 ára. Ég fór
þá sjálfur að pikka á píanóið heima.
Síðan fór ég í tónlistarskólann þegar
ég var sjö ára.“ Meðal kennara hans
þar voru Haukur Guðlaugsson og
Fríða Lárusdóttir.
„Haukur var áhrifavaldur í mínu
lífi og ég á honum mikið að þakka.
Hann fór með mig út í kirkju þegar
ég var 12-13 ára, setti orgelið í botn
og þá varð ekki aftur snúið. Ég fór þá
að læra á orgel hjá honum en hélt
áfram að læra á píanóið. Haukur lagði
alltaf áherslu á að píanóið væri góður
grunnur að tækninni. Ég hef síðan
alla tíð spilað á píanó.“ Þess má geta
að Björn Steinar var til skamms tíma
í hljómsveitinni Tíbrá á Akranesi.
Framhaldsnám stundaði Björn
Steinar á Ítalíu hjá James E. Göett-
sche og í Frakklandi við Conserva-
toire National de Region de Rueil
Malmaison hjá Susan Landale þar
sem hann útskrifaðist með einleikara-
próf í orgelleik (Prix de virtuosité)
árið 1986.
Björn Steinar starfaði sem organ-
isti og kórstjóri við Akureyrarkirkju í
21 ár og vann að uppbyggingu tónlist-
arstarfs við kirkjuna og stýrði Sum-
artónleikum og Kirkjulistaviku í
Akureyrarkirkju. Hann hefur verið
organisti við Hallgrímskirkju í
Reykjavík frá árinu 2006 og tónlistar-
stjóri kirkjunnar frá 2021. Hann er
einnig skólastjóri Tónskóla þjóðkirkj-
unnar þar sem hann kennir jafnframt
orgelleik.
„Mér leið mjög vel á Akureyri og
var búinn að byggja upp öflugt tón-
listarlíf þar. Í bjartsýni minni hélt ég
Cleveland Institute of Music Orches-
tra. Í ár lék Björn Steinar á tón-
leikum á Íslandi, Finnlandi, Þýska-
landi og Noregi. „Ég fór í fyrstu
tónleikaferðina erlendis eftir Covid
núna í ágúst og september. Ég fer
svona í tvær til þrjár tónleikaferðir á
ári, en tónleikahald er mikilvægur
partur í mínu lífi.“ Núna stendur yfir
tónleikaröð í Hallgrímskirkju sem
nefnist Haust í Hallgrímskirkju og
31. október verða haldnir tónleikar til
heiðurs Hauki Guðlaugssyni níræð-
um þar sem Björn Steinar mun m.a.
spila.
Björn Steinar hefur hljóðritað fyrir
útvarp og sjónvarp og á geislaplötur,
m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá
Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert
Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS
sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Hann hlaut Menningarverðlaun DV
1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin
2001 og var valinn bæjarlistamaður
Akureyrar 2002. Hann hlaut Lista-
mannalaun 1999 og 2015. Hann hefur
setið í stjórn Félags íslenskra organ-
leikara, í stjórn Tónlistarfélags Akur-
eyrar og í orgelnefnd þjóðkirkjunnar.
„Ég er forfallinn fluguveiðimaður
og stunda veiðar á sjóbleikju og urr-
iða á sumrin. Ég og Hrefna konan
mín erum áhugafólk um lífræna
ræktun á grænmeti, kryddjurtum,
blómum og berjum og haustin fara
oft í berja-, jurta- og sveppatínslu.
Björn Steinar Sólbergsson, organisti og skólastjóri – 60 ára
Fjölskyldan heima Björn Steinar og Hrefna ásamt Lindu og fjölskyldu hennar.
Heillaðist ungur af orgelinu
Fjölskyldan í Hollandi Sólberg Bjartur, Sólbjörg, Thomas og Kolbrún Dís.
Veiðimaðurinn Björn Steinar með
fjórar skagfirskar sjóbleikjur.
Til hamingju með daginn
Akureyri Unnur Lilja Snævarsdóttir
fæddist 30. október 2020 kl. 19.38.
Hún vó 3.434 g og var 49 cm löng. For-
eldrar hennar eru Snævarr Örn
Georgsson og Auður Erna Péturs-
dóttir.
Nýr borgari